Morgunblaðið - 02.10.1997, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 02.10.1997, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÉSfÉ:, J$81i lij&i 1*., Ír .> jm Wl J x f W F >JM agjjjjL ” 1 jl. Hir -&11P* * m ! P- t > ! MYNDIN var tekin á 15 ára útskriftarafmælinu og með á myndinni er Hjálmar Ólafsson einn kennara þeirra en hann lést fyrir aldur fram. Lionsklúbbur Hafnarfjarðar Perusalan HIN árlega perusala Lionsklúbbs Hafnarfjarðar hefst nú á næstu dögum. Lionsmenn ganga í heimahús og bjóða perur og ágóði af sölunni rennur allur til líknarmála. Stærstu verkefni Lionsklúbbs Hafnarfjarðar hafa á síðustu árum verið tækjakaup fyrir St. Jósepsspítala og Sólvang í Hafn- arfirði. Einnig hefur klúbburinn styrkt leikskólann á Víðivöllum, að hefjast Hörðuvelli, Skálatún, slysavarna- félögin og sambýlið á Kletta- hrauni 17, Hafnarfirði. Klúbbur- inn hefur einnig lagt skólum bæjarsins lið með Lions Quest verkefnum, aðstoðað ýmsa ein- staklinga og lagt áherslu á sjón- verndarátak. Félagar í Lionsklúbbi Hafnar- fjarðar vonast eftir góðum við- tökum í fjáröflun sinni nú sem endranær. Vetrarstarf KFUM og KFUK að hefjast NÚ er að heQast vetrarstarf KFUM og KFUK fyrir böm og unglinga. Félögin bjóða upp á tómstundastarf fyrir börn og unglinga í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Keflavík, Vestmannaeyjum, Akur- eyri og Akranesi. Starfið felst í vikulegum fundum. Viðfangsefni eru ólík eftir aldri. Níu til tólf ára börnum er boðið upp á leiki úti og inni, söng, marg- víslega tómstundaiðju, stuttar ferð- ir og fleira. í unglingastarfinu er val um mismunandi kosti svo sem Ten Sign sem leggur áherslu á skapandi starf, Skógarvini sem tengjast sumarbúðunum í Vatna- skógi á sérstakan hátt og unglinga- deildir þar sem lögð er áhersla á þroskandi og skapandi viðfangsefni á léttum nótum. í öllum deildum er frætt um kristna trú og kenndar bænir. Þátttaka í starfí KFUM og KFUK er ókeypis og leiðtogar í starfi félag- anna eru flestir sjálfboðaliðar. Fé- lögin starfa víða í nánu samstarfí við söfnuði þjóðkirkjunnar. Gagnfræðing- ar frá Ingi- marsskól- anum 50 ára GAGNFRÆÐINGAR úr Gagn- fræðaskóla Reykjavíkur, Ingi- marsskólanum, sem útskrifuð- ust vorið 1947, hafa komið sam- an til að minnast þess á fimm ára fresti, allar götur síðan 1957. Nú ætla þau að hittast á föstu- dagskvöldið, 3. október, á Sex baujunni, Eiðistorgi 15, ld. 19 til að minnast þess að það eru 50 ár liðin frá því þau útskrifuðust. Pjársöfnun að ljúka SÖFNUN fyrir fórnarlömb flóðanna í Tékklandi „Neyðar- hjálp úr norðri“ lýkur föstu- daginn 10. október nk. og verða peningarnir millifærðir til Tékklands mánudaginn 13. október. Á tónleikunum í Háskólabíói laugardaginn 20. september söfnuðust 1.081.700 kr. en bein útgjöld nema um 300.000 kr. Þeir sem vilja leggja fórn- arlömbum flóðanna í Tékk- landi lið fram að því að söfnun- arreikningi verður lokað er vinsamlegast bent á reikning Neyðarhjálpar úr norðri, tékkareikningur númer 72000 í Búnaðarbanka íslands, aðal- banka. Þrjú prests- embætti laus BISKUP íslands hefur auglýst þijú prestsembætti laus til umsóknar. Þetta eru embætti sóknarprests í Hallgríms- prestakalli, Reykjavíkurpróf- astsdæmi vestra, embætti sóknarprests í Skálholts- prestakalli, Árnessprófasts- dæmi og embætti sóknar- prests í Skinnastaðaprestakalli í Þingeyjarprófastsdæmi. Embættin eru veitt af dóms- og kirkjumálaráðherra en um- sóknarfrestur er til 1. nóvem- ber 1997. Ársþing Samtaka fámennra skóla Fulltrúar úr flest- um landshlutum ÁRSÞING Samtaka fámennra skóla var hald- ið á Haliormsstað dagana 26. og 27. septem- ber sl. Þingið var nokkuð vel sótt og mátti sjá þar fulltrúa úr flestum landshlutum. „Meginþema þingsins var um kennslu unglingadeilda í fámennum skólum. Meðal annars var fjallað um það hvort stefna beri að því að halda uppi kennslu í öllum bekkjum grunnskólans í hveijum skóla eða hvort rétt- ara sé að reka svokallaða safnskóla, þar sem nemendum úr nokkrum skólahverfum er safnað saman til kennslu í efstu bekkjunum. Einnig var fjallað um ýmis önnur mál, sem fengjast skólahaldi í fámennum skólum, s.s. samkennslu, skipulag valgreina og samnýt- ingu faggreinakennara. Menntamálaráð- herra, Björn Bjamason ávarpaði þingið og svaraði fyrirspurnum, einnig fluttu ávörp fulltrúar frá samtökum sveitarfélaga á Aust- urlandi, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambandi íslands. Á þinginu var kosin ný stjóm. Hana skipa eftirtaldir: Ólafur Amgrímsson, formaður, Rúnar Sigþórsson, varaformaður, Rósa Björg Þorsteinsdóttir, Sif Vígþórsdóttir, Þóra Björk Jónsdóttir, Dagbjört Hjaltadóttir, Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Ingvar Sigurgeirs- son,“ segir í fréttatilkynningu frá samtökum fámennra skóia. Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á þinginu. Um birtingu einkunna á samræmdum prófum í 10. bekk „Aðalfundur Samtaka fámennra skóla, haldinn á Hallormsstað 27. september 1997, vekur athygli á að í þeirri umræðu sem nú fer fram um árangur einstakra skóla á sam- ræmdum prófum í 10. bekk, er fyrst og fremst verið að fjalla um fjölmenna skóla á þéttbýlissvæðum. Þeir skólar sem hafa 10 nemendur og færri í 10. bekk eru ekki með í umræðunni. Fundurinn bendir á að víða í fámennum skólum fer fram öflugt og blómlegt skóla- starf og árangur nemenda fámennra skóla á samræmdum prófum hefur síst verið lakari en nemenda annarra skóla. Samtök fámennra skóla ítreka þá skoðun sína að einkunnir á samræmdum prófum séu ekki algildur mælikvarði á skólastarf og sú aðferð sem notuð hefur verið við birtingu einkunna geti jafnvel gefið villandi mynd. Neikvæð umræða Aðalfundur Samtaka fámennra skóla, haldinn á Hallormsstað 27. september 1997, lýsir áhyggjum sínum yfír neikvæðum tóni í umræðum um frammistöðu einstakra skóla og landshluta á samræmdum prófum. Þessi neikvæði tónn birtist einnig í umfjöllun um gengi skólabarna í alþjóðlegum könnunum. Fundurinn varar við þeim áhrifum sem þessi neikvæðu skilaboð geta haft á sjálfs- mynd og framtíðarsýn barna og unglinga. Fundurinn minnir á að í flestum grunnskólum landsins fer fram vel undirbúið og metnaðar- fullt starf og hvetur til þess að því sé ekki síður haldið á loft en því sem þarf að breyta og bæta. Um endurskoðun aðalnámskrár grunnskóla Aðalfundur Samtaka fámennra skóla, haldinn á Hallormsstað 27. september 1997, bendir á mikilvægi þess að endurskoðuð að- alnámskrá skóla hafi nægilegan sveigjanleika til að skólar geti skipulagt starf sitt á eigin forsendum. Fámennir skólar í dreifbýli hafa einstæða möguleika á að nota nánasta umhverfí sitt, náttúrulegt og menningarlegt, til að gæða skólastarfið lífi. Mikilvægt er að aðalnámskrá grunnskóla hafí svigrúm til að skólar geti styrkt tengsl nemenda við heimabyggð og þannig eflt búsetu í dreifðum byggðum landsins. Sam- tökin hafa boðið menntamálaráðuneytinu sérfræðiþekkingu sína á skólastarfí í fámenn- um skólum og ítrekar hér með boðið. Vinnuálag á skólastjóra Aðalfundur Samtaka fámennra skóla, haldinn á Hallormsstað 27. september 1997, bendir á að finna verði leiðir til að draga úr auknu vinnuálagi á skólastjóra í fámennum skólum. Með flutningi á rekstri grunnskóla yfir til sveitarfélaga fluttust fjölmörg verkefni sem aðrir sinntu áður á herðar skólastjóra án þess að stjórnunarkvóti væri aukinn eða kennsluskylda minnkuð. Þetta bitnar ekki síst á skólastjórum fámennra skóla. Fundurinn telur nauðsynlegt að í yfírstand- andi kjarasamningum verði tekið tillit til þessarar staðreyndar með því að auka veru- lega stjómunarkvóta fámennra skóla og gera þeim kleift að standast nýjar kröfur. Blendinn fögnuður Að vanda fagna Samtök fámennra skóla öllu því góða sem gerst hefur í skólamálum þjóðarinnar. Því er þó ekki að leyna að sú staða sem nú ríkir í samningaviðræðum kenn- ara og sveitarfélaga bregður nokkrum skugga á hið öfluga starf sem víða fer fram í skólum landsins um þessar mundir. Það er einlæg von Samtaka fámennra skóla að launanefnd sveitarfélaga og kenn- arafélögin beri gæfu til að gera sem fyrst með sér kjarasamning sem stöðvar stórfelld- an flótta úr kennarastétt en eflir í þess stað grunnskólahald í landinu."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.