Morgunblaðið - 02.10.1997, Side 50

Morgunblaðið - 02.10.1997, Side 50
50 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens £g\//L Etxcl AÐSOfJUR. AA/NN TAk.1 þ'ATTÍHÖP- FtárniHLAUPi e/A/sos ,þAU&SO /PA6 ' HUN HBLDURÁÐÉ6 HLAUPt\ (AteÐ HÖNSU/U NÓP/ / 01996 Tribune Media Servíces, Inc/ All Rights Reserved. Ljóska Þú hræddir mig ekki hið Fuglar geta ekki sagt: minnsta... „Bú!“ BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Er lettan vinna að sinna skólabörnum en starfa við ræstingar Frá Ermi M. Sveinbjarnardóttur: ar félagsdómur hefur lokið störfum ÞÆR rangfærslur sem koma fram í grein leigubílstjórans Kristins Snælands í Morgunblaðinu 25.9. sl. um störf skólaliða eru með ólík- indum. Þeim getur varla verið ósvarað þó ómerkar séu, einkan- lega þar sem hann tekur Langholts- skóla sem dæmi og störf skólaliða sem þar starfar. Kristinn setur nýtt skipulag á störfum starfsfólks í þremur skól- um borgarinnar í pólitískt sam- hengi, það er óþolandi. Ákvörðun mín, þegar ég sótti um að fá að taka þátt í þessu tilraunaverkefni, var byggð á þeirri reynslu sem ég hef af þessu fyrirkomulagi. Þegar ég hóf störf sem skólastjóri hjá Reykjavíkurborg undraðist ég það form sem var á ræstingum grunn- skóla borgarinnar enda vön öðru frá mínum fyrri skóla. Þar höfðu verið blönduð störf, þ.e. umsjón með nemendum og dagræsting, um áraraðir, fyrirmyndin að því var fengin úr Kópavogi. Bæði þar og víða annars staðar, s.s. á Akureyri og í Keflavík hefur það form verið á lengi. Hún Erla Sigurðardóttir, skóla- liði í Langholtsskóla, er góður starfskraftur sem vill skólanum sínum vel. Það eru hinir skólalið- amir líka. Að „gernýta“ fólk er í engu samhengi við þá hugmynd sem er að baki þessari breytingu, Þó svo að hún Erla færi örugglega létt með að sinna öllum þeim störf- um, sem Kristinn lýsir í grein sinni, þá er hún ekki eini skólaliðinn í Langholtsskóla. Það er ekki verið að fækka starfsfólki, síður en svo. Einnig vita skólaliðar vel hvaða verk bíða þeirra að morgni. Að sjálfsögðu eru störf þeirra skipu- lögð og verða það ennþá betur þeg- smum. Aðalatriðið er að með þessari breytingu er verið að stórauka þjónustu við nemendur. Aukin gæsla er á skólalóð og á göngum í frítímum, baðvörslu er hægt að sinna betur, skólaliðar fylgja yngstu nemendum í sundtíma, sinna neyðarhjálp og ótalmörgu fleira. Það er fáránlegt að setja umfjöll- un um þetta verkefni fram á þann hátt sem Kristinn gerir. Hann hefði átt að kynna sér það betur áður en hann tjáði sig um það á opinber- um vettvangi til dæmis með því að tala við hana Erlu, skólaliða í Langholtsskóla. Það er ekki ánægjulegt að lesa svona lítilsvirð- andi umfjöllun um sig og störf sín í blöðunum. Það hefðu verið mann- asiðir að láta hana vita fyrirfram á hveiju hún ætti von. Það ætti að vera hægt að skipu- leggja störf í grunnskólum borgar- innar, til hagsbóta fyrir nemendur, án þess að fá yfir sig pólitískt skít- kast. Eg allavega kæri mig ekki um það þegar ég er að koma á þeim breytingum við minn skóla sem ég veit að eru til bóta fyrir alla aðila. Að lokum, sá hroki sem er í grein Kristins er ótrúlegur. Ég tæki ekki nærri mér að þvo gólf í þeim skóla sem ég starfa í, ég hef reyndar gert það. Og að maðurinn skuli fullyrða að það sé léttara verk að sinna börnunum í grunnskólunum en að ræsta þá. Ég trúi því ekki að hann eigi marga skoðanabræð- ur. Ég vona í öllu falli að við fáum að þróa þessa tilraun í friði. ERNA M. SVEINBJARNARDÓTTIR, skólastjóri Langholtsskóla. Vetrarstarf Hvítasunnukirkjunnar Frá Verði L. Traustasyni: VETRARSTARF Hvítasunnukirkj- unnar Fíladelfíu hefst 1. október. Margt er í boði fyrir fólk á öllum aldri: Á miðvikudögum kl. 18.30 er samverustund með léttri máltíð (súpa og brauð) sem seld verður vægu verði. Samverustund þessi er fyrir alla aldurshópa. Kl. 19.30 hefst kennsla og verður henni skipt niður. Börnin í krakkaklúbbnum (3ja til 12 ára) fá efni við sitt hæfi, unglingafræðsla fyrir 13-14 ára, sérstök fræðsla fyrir byijendur (undirstöðuatriði trúarlífsins). Fyrir enskumælandi verður kennsla á ensku og síðast en ekki síst verður biblíulestur eða og fijálsir vitnis: burðir fyrir þá sem þess óska. í upphafi samverunnar munum við öll syngja saman og lofa Drottin. Um kl. 20.30 lýkur svo samver- unni. Allir eru velkomnir. Á föstudögum kl. 20.30 er sam- koma fyrir unga fólkið. Hver mán- uður mun hafa sitt þema og munu ýmsir koma og tala um efni mánað- arins. Allt ungt fólk er velkomið. Fyrsta þriðjudag í hveijum mán- uði kl. 15.00 eru sérstakar sam- verustundir fyrir eldri borgara. Þeir sem eiga erfitt með að komast, geta hringt á safnaðarskrifstofuna og óskað eftir að verða sóttir. Systrakvöld eru síðasta þriðjudag í hveijum mánuði kl. 20.00. Konur á öllum aldri hittast yfir kaffibollum og hlýða á hugleiðingu og söng. Einnig er beðið fyrir þörfum hver annarrar og beiðnum um bænir sem berast sinnt. Á sunnudögum eru svo almennar samkomur kl. 16.30. Þar verður mikill almennur söngur og prédikun Guðs orðs. Á samkomum okkar færðu að vita að þú ert skapaður í Guðs mynd og elskaður af Guði. Á safnaðarskrifstofunni getur þú fengið að vita meira um söfnuðinn og starf hans. Sími 552-111. VÖRÐUR L. TRAUSTASON. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.