Morgunblaðið - 02.10.1997, Side 64

Morgunblaðið - 02.10.1997, Side 64
Fyrstir meö Pentium íl HP Vectra PC WHh] hewlett ! mLVÍÆ PACKARD Sjáöu meira á www.hp.is <Ö> AS/400 Mikið úrval viðskiptahugbúnaðar <33> NÝHERJI MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTII FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Lítið fískframboð og hátt fískverð • • Olium starfsmönmim Sjávarfisks sagt upp ÖLLUM starfsmönnum Sjávarfisks hf. í Hafnarfirði hefur verið sagt upp og taka uppsagnirnar gildi um næstu áramót. 20 manns starfa hjá Sjávarfiski. Gísli Gíslason fram- leiðslustjóri segir ástæðuna vera ótrygga hráefnisöflun og hátt verð á mörkuðum. Sjávarfiskur hefur byggt sína vinnslu á hráefni af fiskmörkuðum. „Það hefur verið hverfandi lítið framboð á mörkuðum undanfarið og •arist um það litla sem þar er í boði. Það eru flestir sammála um að yfir- verð er á hráefninu. Þeir sem mest skipta við markaðina eru þeir sem stunda ferskflakaútflutning og kaupa hráefnið dýru verði til þess að halda uppi viðskiptasambönd- um,“ segir Gísli. Sjávarfiskur hefur mest unnið flök í salt og flutt út til Spánar í gegnum SÍF. Fyrirtækið hefur unnið úr um 4.500 tonnum af hrá- efni á ári. Línutvöföldun og smábátar dottnir út „Bátar sem voru á línutvöfóldun lönduðu hjá mörkuðum og sömu- leiðis smábátarnir. Núna er línu- tvöföldun aflögð og smábátamir hafa ekki eins frjálsa sókn og þeir höfðu. Framboð af fiski á mörkuð- um hefur því minnkað. Við viljum hafa hreint borð um áramót og ætl- um að nota tímann fram að áramót- um til að skoða okkar gang og at- huga hvort einhverjar leiðir finnist til nýrrar sóknar," segir Gísli. Hann segir að í besta falli verði hægt að ráða alla aftur en í versta falli geti starfsmenn ekki átt von á því að halda starfinu. Hann segir að stjórnendur flestra þeirra fisk- vinnslufyrirtækja sem reiði sig á fiskmarkaðina séu mjög tvístígandi þessa dagana og eins kvarti for- svarsmenn fiskmarkaðanna yfir litlu framboði. Gísli segir að ein leiðin sé að kaupa Rússafisk en vandinn við það sé að þá þurfi fyrirtækið að finna markaði fyrir afurðirnar í Kanada eða Bandaríkjunum því hár tollur sé á söltuð þorskflök af þriðja lands uppruna á Spánarmarkað. Hitaveita Suðurnesja í Svartsengi Bygging orkuvers undirbúin MIKLAR jarðvegsframkvæmdir standa nú yfir við Bláa lónið en þar er verið að undirbúa bygg- ingu á nýju orkuveri auk kynning- ar- og mötuneytishúss. Hreinsa þarf allan kísil úr botninum beggja vegna lónsins, svo hægt sé að byggja á traustum grunni, að sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra Hitaveitu Suðurnesja. Ráðgert er að hið nýja orkuver verði tilbúið í september 1999 en það verður við þann enda lónsins sem Qær er á inyndinni. Fram- kvæmdir við kynningar- og mötu- neytishúsið, sem mun rísa framan við orkuverið, eru mun lengra á veg komnar en að sögn Júlíusar stendur til að taka það í notkun í febrúar eða mars á næsta ári. Morgunblaðið/RAX ■ Trúnaðarbrestur/B8 Búlandstindur og Njörður Samein- ing felld EKKERT verður af fyrirhugaðri sameiningu Búlandstinds á Djúpa- vogi og Njarðar í Sandgerði, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins. Er ástæðan sögð trúnaðar- brestur sem orðið hafi á milli fyrir- tækjanna i kjölfar frétta af and- stöðu innan stjórnar Búlandstinds við samrunann í ágúst sl. Gengi hlutabréfa í Búlandstindi lækkaði um 25% í fyrradag. Samkvæmt áætluninni var gert ráð fyrir því að hlutur Njarðar í hinu sameinaða fyrirtæki yrði tæp 35%. Fyrir lá hins vegar að a.m.k. tveir stórir hluthafar, Hlutabréfa- sjóðurinn íshaf, sem á um 24% hlut í Búlandstindi, og Ki-ossanes, sem á rúm 5%, væru andvígir þessari samnmaáætlun. Þá munu fleiri smærri hluthafar einnig hafa reynst andvígir henni. Einn heimildarmanna blaðsins sagði þó í samtali við Morgunblaðið í gær að andstaða Ishafs hefði ekki legið ljós fyrir og því hefði ekki verið öruggt að hann hefði greitt atkvæði gegn sami-unanum hefði komið til atkvæðagreiðslu um hann. A það muni þó ekki reyna þar sem fyrir liggi að hluthafafund- ur Njarðar muni fella samrunann á fundi sínum í næstu viku. Peningum stolið á ný í Kjalfelli Island vill ljúka viðræðum um Schengen sem fyrst UM 70-80 þúsund krónum í reiðufé var stolið úr söluturninum Kjalfelli við Gnoðarvog um miðjan dag í gær. Að sögn Rúdólfs Axelssonar aðal- varðstjóra komu þrír piltar, senni- lega 16-17 ára, inn í verslunina og gáfu tveir þeirra sig á tal við af- greiðslukonuna. Á meðan laumaðist sá þriðji á bak við án þess að hans yrði vart. Það var ekki fyrr en um 20 mínútum síðar að afgreiðslukon- áttaði sig á þjófnaðinum og gerði lögreglu viðvart. Rán í sömu verslun um síðustu helgi í rannsókn Lögreglan rannsakar rán sem framið var í sömu verslun sl. laugar- dag. Þá ógnuðu tveir hettuklæddir menn afgreiðslukonu með hnífi og néyddu hana til að afhenda sér pen- inga, um 60-70 þúsund krónur. ÍSLENZK stjórnvöld vilja fá nið- urstöðu sem fyrst í samningavið- ræður við Evrópusambandið um breytingar á samstarfssamningi þeim við aðildarríki Schengen- vegabréfasamstarfsins, sem undir- ritaður var í desember, að sögn Gunnars Snorra Gunnarssonar, sendiherra Islands í Brussel og að- alsamningamanns í viðræðum við ESB um Schengen. Noregur og Island hafa til þessa samið samhliða við ríki Schengen og munu fylgjast að í nýjum við- ræðum við ESB, sem eru nauðsyn- legar vegna þeirrar ákvörðunar að innlima Schengen í Evrópusam- bandið. Fram hefur komið að miðjuflokkarnir í Noregi, sem reyna nú að mynda starfhæfa ríkis- stjórn, vilji leitast við að draga það á langinn að fá niðurstöðu í viðræð- urnar við ESB, í von um að felli Danir Amsterdam-sáttmálann í þjóðaratkvæðagi’eiðslu næsta vor sé aðild Norðurlandanna að Schengen-samstarfinu úr sögunni. Línur verði lagðar fyrir leið- togafund í desember „Stefna íslenzkra stjórnvalda er að fá niðurstöðu í málið sem fyrst,“ segir Gunnar Snorri. „Þó vita menn af reynslunni af samskiptum við Evrópusambandið að hlutirnir taka tíma. En við munum reyna að fá niðurstöðu sem fyrst, að minnsta kosti þannig að línurnar hafi verið lagðar áður en til leiðtogafundar ESB kemur í desember." John Maddison, sendiherra Evr- ópusambandsins í Noregi og á fs- landi, segir að Lúxemborg, forsæt- isríki sambandsins, leggi áherzlu á að óformlegar viðræður við Noreg og ísland um aðlögun samstarfs- samninga þeirra að breyttri stöðu Schengen-samstarfsins hefjist sem fyrst eftir undirritu'n Amsterdam- samningsins, sem fram fer í Amst- erdam í dag. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er innan ESB gert ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í hin- um óformlegu viðræðum áður en' fullgildingu Amsterdam-sáttmál- ans verður lokið og að hinar form- legu samningaviðræður, sem síðan fari fram, verði í raun formsatriði. Þetta sé nauðsynlegt til þess að standa megi við það fyrirheit, sem gefið er í Amsterdam-sáttmálan- um, að samningarnir við ísland og Noreg taki gildi um leið og sátt- málinn sjálfur. Lagður fyrir Alþingi fljótlega íslenzk stjórnvöld hafa sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins komizt að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé að leggja sam- starfssamninginn, sem undirritað- ur var í desember, fyrir Alþingi sem fyrst. ■ Evrópumál/23

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.