Morgunblaðið - 09.10.1997, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Meta þarf umhverfisáhrif
vegna Búrfellslínu 3
UMHVERFISRÁÐHERRA hefur
úrskurðað að fram skuli fara mat
á umhverfisáhrifum framkvæmdar
við fyrirhugaða lagningu 400 kíló-
vatta háspennulínu Landsvirkjunar
frá Búrfellsvirkjun að Sandskeiði,
Búrfellslínu 3. Samkvæmt staðfestu
skipulagi var gert ráð fyrir 220 kV
línu á þessari leið, en vegna þess
að fyrirsjáanlegt er að flutnings-
þörfin verður meiri hefur Lands-
virkjun hins vegar undirbúið bygg-
ingu 400 kV háspennulínu.
Stjóm fyrirtækisins ákvað í gær
að línan verði byggð á þann hátt
sem stefnt hefur verið að að undan-
gengnu umhverfísmati, en forstjóra
fyrirtækisins hefur verið falið að
halda þeirri leið opinni að geta
byggt línuna með 220 kV spennu
í stað 400 kV spennu ef slíkt þyki
nauðsynlegt til að tryggja næga
flutningsgetu raforkukerfisins á
Suðurlandi haustið 1998.
Lagning 220 kV háspennulínu
frá Búrfellsvirkjun að Sandskeiði
var samþykkt árið 1991, en Lands-
virkjun ákvað eftir það að auka við
spennu línunnar þannig að hún
gæti flutt 400 kV. Við þessa breyt-
ingu hækka möstur línunnar og
stækka. Skipulagsstjóri ríkisins
taldi ekki að þessi breyting kallaði
á mat á umhverfísáhrifum sam-
kvæmt lögum frá 1993, en Náttúru-
verndarsamtök íslands annars veg-
ar og landeigendur í Grímsnes-
hreppi hins vegar kærðu málið til
umhverfisráðuneytisins.
Að sögn Magnúsar Jóhannesson-
ar, ráðuneytisstjóra í umhverfísráðu-
neytinu, féllst ráðuneytið á það með
kærendum að breytingamar á lín-
unni væm of miklar til að leyfið sem
gefíð var út á sínum tíma gæti fall-
ið að framkvæmdinni, og af þeim
sökum bæri að setja 400 kV línuna
í mat á umhverfísáhrifum.
„Þær framkvæmdir sem búið var
að veita leyfí fyrir áður en lögin um
mat á umhverfisáhrifum tóku gildi
em ekki matsskyldar. Það er því
þama ótvírætt leyfi fyrir 220 kV
línu en það er ekki leyfí fyrir 400
kV línu án þess að hún fari í mat
á umhverfísáhrifum," sagði Magnús.
Rannsókn
kostaði
4,5 m.kr.
KOSTNAÐUR við rannsókn á
samskiptum fíkniefnadeildar lög-
reglunnar í Reykjavík og fíkniefna-
sala var 4,5 milljónir króna á síð-
asta ári. í fjáraukalögum fyrir árið
1997 er farið fram á að Alþingi
samþykki fjárveitingu til þessa
verkefnis.
Ákveðið var að rannsaka þær
ásakanir sem bornar vom á fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Reykjavík
og var skipaður sérstakur saksókn-
ari til að fara með málið. Hann
skilaði skýrslu til ríkissaksóknara,
sem taldi ekki ástæðu til að gefa
út ákæru í máiinu.
Ljósmynd/Gunnar Þór Hallgrfmsson
FUGLASKOÐARAR hafa flykksttil Stokkseyrar á undanförnum
dögum til þess að virða fyrir sér nýjasta flækingsfuglinn,
pálmaskríkju.
Pálmaskríkia á Stokkseyri
AÐ UNDANFÖRNU hafa sést
hér á landi nokkrir mjög sjald-
gæfir amerískir spörfuglar sem
hafa villst verulega af leið og
eiga sér litla lífsvon á svo norð-
lægum slóðum. Hinn agnarsmái
fugl sem hér má sjá heitir pálm-
askríkja og sást á Stokkseyri á
dögunum. Skríkjur verpa flest-
ar í Norður-Ameríku og eru á
leið til Karíbahafsins og Suður-
Ameríku, svo að pálmaskríkjan
litla, sem er innan við 20 grömm
að þyngd, er komin langt frá
upphaflegum ákvörðunarstað.
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem fugl þessarar tegundar
berst lifandi yfir Atlantshafið
og því hafa margir fuglaskoð-
arar lagt leið sína til Stokkseyr-
ar síðustu dagana. Að sögn
Kristins Hauks Skarphéðins-
sonar, fuglafræðings hjá Nátt-
úrufræðistofnun, hafa þijár
nýjar tegundir af amerískum
skríkjum sést hér á landi á að-
eins tíu dögum, á Garðskaga,
Eyrarbakka og nú síðast á
Stokkseyri. Segir hann þær
sennilega allar hafa komið með
suðvestanveðrinu sem gekk yfir
landið fyrir um það bil hálfum
mánuði.
Kristinn Haukur segir það
gerast á hveiju hausti að hing-
að komi fuglar sem hafi hrakist
af leið og flestir þeirra farist.
Þannig að jafnvel þó að það sé
afrek fyrir þá að komast alla
leið hingað sé það skammgóður
vermir, þar sem þeir séu skor-
dýraætur og finni ekki fæðu við
sitt hæfi hér.
Hins vegar segir hann sjald-
gæfa flækinga eins og amerísku
skríkjurnar kveikja mjög i söfn-
unarnáttúru hjá þröngum hópi
fuglaskoðara sem hafi gaman
af að sjá svona furðudýr fjarri
heimkynnum sínum.
Sigurður Björnsson læknir um einkavæðingu heilbrigðiskerfis
Lítil áhrif starfsfólks
ókostur við ríkisrekstur
FÁKEPPNI, biðlistar sem hag-
stjórnartæki, flatur niðurskurður,
stækkandi yfirbygging, hverfandi
áhrif starfsmanna og hugmynda-
duttlungar embættis- og stjóm-
málamanna eru meða ókosta við
ríkisrekstur í heilbrigðiskerfi sem
Sigurður Björnsson læknir taldi
upp í ræðu sinni á fundi sem BSRB
efndi til í gær um einkarekstur í
heilbrigðiskerfínu.
Sigurður Björnsson sagði að
tregða væri við allar breytingar
og taldi blandað kerfi gott. Hann
taldi ekki sjálfgefið að ríkið ræki
alla heilbrigðisstarfsemi, ekki
væri sjálfgefíð að sá sem greiddi
fyrir þjónustuna veitti hana einn-
ig. Hann benti á rekstrarform eins
og hlutafélög, sjálfseignarstofn-
anir eða rekstur í höndum líknar-
félaga.
Umræðan ætti að snúast
um sjúklinga
Árni Björnsson, fyrrverandi
yfirlæknir, taldi umræðu um heil-
brigðiskerfíð snúast um of um
peninga en ekki sjúklinga sem
þjónustan ætti þó að snúast um.
„Hættan sem vofir yfir íslenska
velferðarkerfinu virðist mér vera
sú að kerfið fari að lifa fyrir kerf-
ið sjálft en ekki til að þjóna til-
gangi sínum,“ sagði Árni meðal
annars. Hann sagði nauðsynlegt
að gera stóran uppskurð á velferð-
arkerfinu, gera það skilvirkara svo
það nýttist betur þeim sem á
þyrftu að halda. Fyrstu aðgerðina
sagði hann vera þá að aðskilja
sjúkratryggingar og lífeyristrygg-
ingar og færa ætti heilsugæslu til
sveitarfélaga sem myndu inn-
heimta sjúkratryggingagjöld til
að fjármagna hana.
Morgunblaðið/Ásdls
FJÓRIR frummælendur voru á fundi BSRB um einkarekstur í
heilbrigðisþjónustu. í ræðustól er Sigurður Björnsson, næstur
honum situr Árni Mathiesen, þá Margrét Frímannsdóttir og
loks Árni Björnsson.
Ámi Mathiesen alþingismaður
taldi rétt að fá einkaaðila til að
reka ákveðna hluta í heilbrigðis-
kerfinu, rekstur og viðhald fast-
eigna og ýmsa stoðþætti þjón-
ustunnar, beita mætti útboðum eða
fela einkaaðilum rekstur, m.a.
heilsugæslustöðva.
Hið opinbera reki heil-
brigðisþjónustuna
Margrét Frímannsdóttir taldi
það vera hlutverk-hins opinbera
að veita heilbrigðisþjónstu og
kvaðst ósammála því að færa heil-
sugæsluna til einkaaðila. Ríkið
ætti að veita grunnþjónustu án
gjaldtöku, búið væri að greiða fyr-
ir hana með sköttum. Hún sagði
að með því að endurskipuleggja
ríkisreksturinn væri hægt að
standa myndarlega að rekstri heil-
brigðisþjónustunnar, það ættu ríki
og sveitarfélög að gera.
Fundur í
kennara-
deilunni
RÍKISSÁTTASEMJARI hefur
boðað samninganefndir
sveitarfélaganna og grunn-
skólakennara til samninga-
fundar 14. október. Hann
ræddi við forystumenn samn-
inganefndanna í síðustu viku,
en ekkert nýtt mun hafa kom-
ið fram í þeim samtölum. Stað-
an í kjaradeilunni er því
óbreytt.
Síðasti fundur í deilunni var
haldinn 25. september og var
hann árangurslaus.
Tölvubilun hjá Reiknistofu bankanna
Unnið að stækkun tölvu
UM miðjan dag í gær bilaði tölvu-
kerfí hjá Reiknistofu bankanna enn
á ný og leiddi bilunin til þess að um
klukkustundar töf varð á afgreiðslu
í bönkum og sparisjóðum. Að sögn
Bjama Grétars Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra vinnslusviðs hjá
Reiknistofu bankanna, er unnið að
stækkun á megintölvu og yrði því
ferli væntanlega lokið 26. október
nk.
„Við lentum í hremmingum um
miðjan dag með einn gagnagrunn
sem tók um klukkustund að lag-
færa,“ sagði Bjarni. Bilunin varð á
álagstíma um miðjan dag og fór
saman að verið er að undirbúa fyrir-
hugaðar breytingar síðar í mánuð-
inum og því datt kerfið niður um
tíma.
Bjarni sagði að álagið hefði auk-
ist töluvert hjá Reiknistofu, sem
hefði í för með sér að ekki væri
auðvelt að breyta kerfinu. „Ekki síst
þar sem við erum mjög sýnileg á
öllum vettvangi," sagði hann.
„Við erum með 3-4.000 banka-
menn, 4-5.000 fyrirtæki og heimili
og 7-8.000 kaupmenn, sem hafa
beint samband hingað inn. Svigrúm
okkar til lagfæringa er því ákaflega
lítið. Það má segja að þegar sólin
sest í vestri eru menn komnir á
fætur í austri því þetta nær yfír öll
tímabelti og fólk er að nota bæði
debetkort og kreditkort í útlöndum.
Þannig að svigrúm okkar er lítið og
þegar kemur að því að breyta eins
og nú þá tekur það í fyrsta lagi lang-
an tíma og í öðru lagi er slíkt alltaf
áhættusamt eins og allar breytingar
sem gerðar eru.
Við stefnum að því að ljúka þessu
ferli 26. október með því að stækka
sjálfa megintölvuna en hvort hægt
er að lofa betri tíð eftir það þori ég
ekki að segja til um en viðleitnin er
fyrir hendi.“