Morgunblaðið - 09.10.1997, Síða 11

Morgunblaðið - 09.10.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 11 FRÉTTIR Tölvunefnd beinir fyrirspurn til samgönguráðherra Notendur fjarskiptaþjón- ustu sviptir persónuvernd? TÖLVUNEFND hefur beint þeirri fyrirspurn til samgönguráðherra hvort notendur fjar- skiptaþjónustu hafi með ákvæði 17. greinar laga nr. 143/1996 um fjarskipti verið sviptir þeim réttindum sem þeim eru tryggð í lögum nr. 121/1989 um skráningu og meðferð per- sónuupplýsinga til að njóta verndar að þvi er varðar meðferð upplýsinga um einkalíf sitt og persónulega hagi. í erindinu er vísað til þess að í fyrrgreindum lögum hafi rekstrarleyfishöfum fjarskipta- virkja verið heimilað að skrá upplýsingar um fjarskipti og samgönguráðherra falið að setja reglur um meðferð upplýsinga um fjarskipti að fengnum tillögum Póst- og fjarskiptastofn- unar. í greinargerð með viðkomandi lagaákvæði segir: „Er heimild þessi í samræmi við þær heimildir sem tölvunefnd, sem starfar sam- kvæmt X. kafla laga nr. 121/1989, um skrán- ingu og meðferð persónuupplýsinga, hefur veitt Póst- og símamálastofnun. Jafnframt er gert ráð fyrir því að samgönguráðherra setji sérstak- ar reglur um skráningu og meðferð slíkra upp- lýsinga, að fengnum tillögum Póst- og fjar- skiptastofnunar. Að mörgu leyti er heppilegra að samgönguráðherra setji reglur hér að lút- andi þar sem um sérsvið er að ræða, en tölvu- nefnd, sem starfar samkvæmt X. kafla fyrr- greindra laga, hefur hingað til látið málið til sín taka.“ Friðhelgi einkalífs í bréfi Tölvunefndar segir að friðhelgi einka- lífs sé varin af 71. grein stjórnarskrárinnar og hlutverk laga nr. 121/1989 sé að tryggja mönnum slíka vernd að því er varðar skrán- ingu og meðferð persónuupplýsinga. Hafi meðferð persónuupplýsinga á sviði fjarskipta verið viðfangsefni persónuverndarlöggjafar hér á landi með sama hætti og í grannlöndum okkar. Fyrrgreind ákvæði í fjarskiptalögum og ummæli í greinargerð með þeim séu til þess fallin að skapa vafa um mörk forráða- svæðis Tölvunefndar annars vegar og sam- gönguráðherra hins vegar um vernd persónu- upplýsinga í fjarskiptum. Loks segir: „Tölvunefnd hefur nú til meðferð- ar erindi varðandi notkun svokallaðs „Call Cent- er“ símbúnaðar sem gerir kleift að hlusta og hljóðrita símtöl fólks. Með vísun til framan- greinds er rétt að Tölvunefnd berist skýringar ráðuneytisins á framangreindu ákvæði laga nr. 143/1997 áður en hún tekur málið til efnislegr- ar afgreiðslu. Er þess óskað að skýringar ráðu- neytisins berist Tölvunefnd eigi síðar en 20. október nk.“ Iðnlána- sjóður áfrýjar líklega EKKI hefur verið tekin ákvörðun um hvort Iðnlánasjóður áfrýi niðurstöðu Héraðsdóms til Hæsta- réttar um að honum sé skylt að afhenda Einari S. Hálfdánarsyni, lögmanni og löggiltum endurskoð- anda, upplýsingar um úthlutun styrkja sjóðsins árin 1990-1996, en líkur eru til þess að málinu verði áfrýjað. Um er að ræða fyrsta dóminn í þessum efnum eftir setningu upp- lýsingalaga. Úskurðarnefnd hafði áður úrskurðað að sjóðnum væri skylt að verða við beiðni um að- gang að gögnunum og varð niður- staða dómsins á sama veg. Bragi Hannesson, forstöðumað- ur Iðnlánasjóðs, sagði að stjórn Iðnlurstöðu Héraðsdóms, en hann ætti frekar von á því að úrskurðin- um yrði áfrýjað. ilJnB ' 1 i 9 , W Wt Jp- i' 1 8 % ■bsL. 1», 'i 1* i K' ■ 1 vl P I 1 'Í F r g Mpis I -J VEIÐI er yfirleitt lokið í fjallavötnum og var veiði upp og ofan eins og fyrri daginn. Afar góð veiði var þó bæði á Arnarvatnsheiði, þar sem þessi bleikjuhrúga var tekin á hálfum degi á tvær stangir, og norður á Skaga. Feiknagóð urr- iðaveiði í Laxá GÓÐ urriðaveiði var á veiði- svæðum Laxár í Þingeyjar- sýslu ofan Brúarfossa á nýl- iðnu sumri. Að sögn Hólm- fríðar Jónsdóttur á Arnar- vatni veiddust 2.700 urriðar á Mývatnssveitarsvæðinu og 1.020 urriðar í Laxárdal. „Líklega er veiðin í Haganesi upp á 500 fiska til viðbótar," sagði Hólmfríður í samtali við blaðið. Veiðin á Mývatnssveitar- svæðinu er þúsund fiskum meiri en í fyrra og þótti veiðin þá nokkuð góð. I Lax- árdal veiddust til samanburð- ar 700 fiskar í fyrra. Þá var stærð og gæði urriðans með albesta móti. „Menn hafa talað um að þetta hafi minnt á gamla góða daga. Meðal- þyngdin er sennilega milli 2,5 og 3 pund og það var óvenjulega mikið af 4-6 punda urriða. Meðalþyngdin í Laxárdal var enn meiri og ekki óalgengt að einstakir veiðimenn væru með meðal- vigt upp á 5 pund eftir dag- inn. Það var mikill mývargur í sumar og var alveg fram í september. Menn eru al- mennt á því að það valdi góðu holdafari urriðans,“ sagði Hólmfríður. Gamlar og þrautreyndar straumflugur voru sterkast- ar í sumar og má nefna Þin- geying, Black Ghost, svartan Nobbler og Hólmfríði. Einnig voru svokallaðir „kúluhaus- ar“ sterkir, en það eru púpu- flugur hnýttar með litlum málmhausum. „Það var óveiyulítil smá- fluguveiði í ánni í sumar, hvað sem því veldur,“ bætti Hólmfríður við. Það færist mjög í vöxt að erlendir veiði- menn veiði urriða í Laxá og sagði Hólmfríður að þeir kæmu mest seinni hluta júlí og í ágúst, eða á tímum sem eru ekki eins vinsælir hjá innlendum veiðimönnum. Meirihluti borgarráðs samþykkir tillögu borgarstjóra Við Tjörnina og Leik- félag Islands fá Iðnó BORGARRÁÐ samþykkti á þriðju- dag með þremur atkvæðum meiri- hlutans tillögu borgarstjóra um að ganga til samninga við fulltrúa veitingahússjns Við Tjörnina og Leikfélags íslands um rekstur í Iðnó á grundvelli skilmála borgar- innar um reksturinn. Leynimakk gagnrýnt í greinargerð með tillögunni seg- ir að ellefu hafi sótt um rekstur Iðnó og að borgarstjóri hafi falið þriggja manna vinnuhópi að ræða við umsækjendur. Miðað var við að í húsinu yrði rekin fjölbreytt menn- ingarstarfsemi og veitingasala. Fram kemur að nefndin hafi verið sammála um að leggja til að við- ræður yrðu teknar upp við tvo að- ila, annan á sviði veitingareksturs, hinn á sviði menningar um rekstur á húsinu á grundvelli ákveðinna skilmála. Meirihluti nefndarinnar lagði til að samið yrði við veitinga- húsið Við Tjörnina og Leikfélag íslands. í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf- Listastarfsemi til að skreyta ákvörðun um veitingarekstur, segja sjálfstæðismenn stæðisflokks, er leynimakk borgar- stjóra gagnrýnt við val á rekstrar- aðilum í Iðnó. Fjallað hafi verið um málið í sjö mánuði og allan þann tíma reynst erfitt að fá fram í borg- arráði við hveija væri verið að ræða og hvaða áherslur lægju að baki. „Augljóst er að sú tillaga sem nú er komin fram hjá borgarstjóra ber með sér að þar hefur fyrir löngu verið áveðið að tiltekinn veitingaað- ili fengi húsið, en leitað að lista- starfsemi til að skreyta þá ákvörð- un,“ segir í bókuninn. Enn eitt veitingahús „Þeim aðilum sem sóttu um rekstur á húsinu og tengjast list- og menningarstarfsemi ber saman um að þeim hafi verið stillt upp við hliðina á veitingaaðilanum og kannað hver hefði áhuga á sam- starfi við hann. Þetta er alröng og gagnrýniverð nálgun." Fram- kemur að listastarfsemin hafi átt að hafa forgang sam- kvæmt ákvörun borgarstjórnar um uppbyggingu og nýtingu Iðnó. Með því að veita tveimur aðilum rekstrarumsjón sé ljóst að veit- ingarekstur muni ráða ferðinni því þar væri hagnaðarvon. Þar með sé verið að bæta við enn einu veit- ingahúsi í miðbænum á sama tíma og öðrum aðilum er meinað að kosta eigin breytingar og hefja rekstur á öðrum stöðum í miðbæn- um. Nýr veitingaaðili fái inni í Iðnó í húsnæði, sem ekki sé þörf á að breyta og kostað er af skattfé Reykvíkinga. Sjálfstæðismenn telja að semja hefði átt við einn aðila, sem hefði reynslu af listastarfsemi, en veit- ingasala hefði átt að vera með svip- uðu sniði og áður var í Iðnó. í bók- uninni er ekki gerð athugasemd við Leikfélag íslands en aðrir aðilar með víðtækari reynslu hefðu vissu- lega komið til greina. SARSAUKA - ORVÆNTINGU - S0RG 0G ÞJANINGU VILL ENGINN BERA FVririestrar á Hótel íslandi Peter Roennfeldt frá Ástralíu, reyndur prédikari sem flytur lifandi og kröftugan boðskap í stuttum námskeiðum um ein mikilvægustu efini Biblíunnar. Athyglisvert efni, sem snertir hverja manneskju. Fimmtudagur 9. október: SKÍRN HEILAGS ANDA í hverju felst hún? Hvað felst í því að fyllast Heilögum anda? Hvaða máli skiptir þetta í k'fi okkar Sunnudagur 12. október: HEILAGUR ANDIOG KRAFTAVERK Hvemig bregst þú við frásögnum af kraftaverkum? Hver eru viðbrögð Heilags anda gagnvart þér, þegar þú gh'mir við sársauka, örvæntingu, sorg og þjáningu? Þriðjudagur 14. október: HEILAGUR ANDIOG TUNGUTALSGÁFAN Hefur þú einhverjar af gjöfum Heilags anda? Er hægt að biðja í andanum án þess að tala tungum? Fimmtudagur 16. október: HEILAGUR ANDIOG TORONTÓFYRIRBÆRK) Túlkur er dr. Steinþór Þórðarson, sem veitir nánari upplýsingar í síma 898 8403. Samkomumar hefjast kl. 20 hvert kvöld. _______Aðgangur cr ókeypis.__ Furðulegir atburðir. Hvað mun gerast um aldamótin? Milljónir manna beina sjónum srnum til Maríu, móður Jesú. Sunnudagur 19. október: NÝQLDIN OGINNSIGLIHINS UFANDA GUÐS Sá tími kemur senn, þegar allir verða að velja á milli innsiglis Guðs og merkis dýrsins. Þú getur öðlast frið sem aðeins andi Guðs getur gefið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.