Morgunblaðið - 09.10.1997, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 09.10.1997, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ 1 AKUREYRI Bæjarsljórn Akureyrar um aðgengi fatlaðra að sundlaugum Olíkir hópar með ólíkar þarfir Búnaðarbankinn á Akureyri Hraðbank- ar á tveim- ur stöðum BÚNAÐARBANKINN á Akureyri hefur opnað hraðbanka í útibúi sínu í Geislagötu og er þar með fyrstur banka á Akureyri að bjóða upp á hraðbankaþjónustu á tveimur stöð- um í bænum því hraðbanki er einnig í afgreiðslu bankans í Sunnuhlíð. Nýlega var lokið við að útbúa aðstöðu nýja hraðbankans á austur- stafni útibúsins í Geislagötu og þangað geta viðskiptavinir komið á öllum tímum sólarhrings ef svo ber undir. Hraðbankinn í Sunnuhlíð er mikið notaður að sögn forsvars- manna bankans, þó svo að af- greiðslutími sé takmarkaður við þann tíma sem verslunarmiðstöðin er opin, til kl. 20 á kvöldin og lokað er á sunnudögum. Til stendur að gera breytingar þar á, bankinn verð- ur innan tíðar staðsettur þannig að hann verði aðgengilegur allan sólar- hringinn. NOKKRAR umræður urðu um bætta aðstöðu fyrir fatlaða í sundlaugum á Akureyri á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag, en fulltrúar 8 félagasam- taka og stofnana í bænum hafa beint þeim eindregnu tilmælum til bæjar- yfirvalda að gangskör verði gerð að því að bæta þar úr. Fyrir nokkru tók bæjarráð þá afstöðu að raunhæfast væri að þeir sem mest eru fatlaðir muni í framtíðinni nota þjálfunar- laug sem verið er að byggja við Kristnesspítala. Væri þá æskilegast að Akureyrarbær muni stuðla að því að byggingu hennar ljúki sem fyrst. Þjálfunarlaug sem byggð var fyrir söfunarfé við vistheimilið Sólborg á sínum tíma hefur verið lögð niður. Jakob Björnsson bæjarstjóri sagði að forsvarsmenn hagsmunasamtaka fatlaðra hefðu lýst þeirri skoðun sinni að óhentugt væri að sækja sundlaugina við Kristnesspítala. Benti hann á að ekki væru nema um 10 kílómetrar frá bænum og að Kristnesi og fólk þyrfti á annað borð að fara í bíl á sundstað. Forgangsröðun Fram kom í máli Ástu Sigurðar- dóttur, Framsóknarflokki, að um ólíka hópa fatlaðra væri að ræða, sem hefðu ólíkar þarfir, ekki væri unnt að uppfylla ítrustu þarfir allra hópa og lagði hún því til að komið yrði á fundi með fulltrúum samtak- anna og bæjarins þar sem farið yrði yfir málið og þarfir og kröfur settar upp í forgangsröð. Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu- bandalagi, benti á að fötluðum væri nauðsyn að hreyfa sig í vatni og því brýnt að aðgengi að sundlaugum væri gott. Vildi hún að betur yrði farið yfir máiið. Sigurður J. Sigurðsson, Sjálfstæð- isflokki, taldi góða lausn að styðja uppbyggingu laugarinnar á Krist- nesspítala, þó svo að það hefði í för með sér aukna akstursþjónustu. Sagði hann alvarlegt fyrir bæinn að standa andspænis því að aðgengi í sundlaug sem verið er að byggja við Sundlaug Akureyrar væri ekki nægi- lega gott, en athugasemdir hefðu borist þar að lútandi á lokastigi framkvæmda. Ófremd- arástand yfirvof- andi FULLTRÚARÁÐ grunnskóla á Akureyri samþykkti ályktun á fundi sínum nýlega, þar sem ráðið lýsir áhyggjum sínum vegna þess ófremdarástands sem yfirvofandi verkfall grunnskólakennara og fjöld- auppsagnir þeirra munu hafa í för með sér í skólum lands- ins. Fulltrúaráðið skorar á samninganefnd sveitarfélaga að skoða vel kröfur kennara, svo varanlegur friður komist á svo hægt verði að byggja upp öflugt skólastarf. Álykt- unin var send samninganefnd sveitarfélaga og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Morgunblaðið/Kristján „Reykj avíkumgning“ SÍÐUSTU daga hefur rignt duglega á Akureyri og reyndar víðar um Norðurland. Finnst mörgum nóg um, líkja ósköpunum helst við rigningar á sunnan- verðu landinu. Virðist ekki ætla að stytta upp í bráð og því eins gott að búa sig eftir veðri, taka fram gúmmístígvélin og regnúlpurnar. Félagarnir Eyþór, Daníel, Heimir og Elmar voru ekkert að vola yfir hellidembunni og skelltu sér út í næsta poll. Seinni Kröflu- vélin gangsett í næsta mánuði BORFRAMKVÆMDIR við Kröflu, sem staðið hafa yfir frá því í lok apríl sl., hafa gengið vel og að mestu samkvæmt áætlun. „Við vor- um að ljúka við holu 31 sem er næstsíðasta verkefnið af fimm. Sú hola lofar góðu að því er best verð- ur séð á þessu augnabliki," sagði Ásgrímur Guðmundsson, verkefnis- stjóri við gufuöflun hjá Orkustofn- un,_í samtali við Morgunblaðið. Ásgrímur segir að eftir sé að hleypa holunni upp en eftir það verði hægt að mæla hversu mikla gufu hún gefur. Holan þarf að hitna upp eftir borframkvæmdirnar og í næsta mánuði ætti að liggja fyrir hversu öflug hún er. Starfsmenn Jarðborana hf. í áhöfn Jötuns, hafa borað þijár nýjar háhitaholur, end- urunnið eina holu og eru að hefjast handa við holu sem byijað var á í fyrra. „Þar með verður þessum framkvæmdum líklega lokið sam- kvæmt áætlun i ár,“ sagði Ásgrím- ur. 15 MW til viðbótar í byrjun í stöðvarhúsi Kröfluvirkjunar er unnið að niðursetningu á seinni vélasamstæðunni. Kristinn Ingason staðarverkfræðingur segir að gang- setning hennar sé fyrirhuguð eftir næstu mánaðamót og að rafmagns- framleiðsla ætti að geta hafist í kringum miðjan nóvember. Rafmagnsframleiðsla í virkjun- inni er nú um 30 MW með einni vél en stefnt er að því að auka hana um 15 MW með gangsetningu seinni vélasamstæðunnar í næsta mánuði og um 15 MW til viðbótar á næsta ári. Kristinn segir þó ljóst að áður en hægt verði að framleiða full 60 MW í virkjuninni þurfi að fara í framkvæmdir við skiljustöð og að- veitu og verði það gert á næsta ári. Um 70 starfsmenn á svæðinu AIls eru um 70 manns að vinna á Kröflusvæðinu þessa dagana, við borverkið, tengingn borhola veit- unnar, niðursetningu vélasamstæð- unnar, rafmagnsmál og fleira. Vet- urinn hefur ekki gert vart við sig enn að neinu marki, ef undanskild- ir eru dagar í byijun september. „Menn hafa ekki átt í vandræðum með útivinnuna en hún er nú langt komin,“ sagði Kristinn. Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri og kennaradeild Háskólans auglýsa ráðstefnuna: Gildi mats og matsaðferðir í skólastarfi Tími: Laugardagurinn 11. október kl. 9.00. Staður: Fiðlarinn, ráðstefnusalur, 4. hæð Alþýðuhússins. Meðal efnis: Félagslegur veruleiki skólastarfs, sjálfsmat í framhaldsskóla, prófatriðabankar sem leið til gæðastjórnunar, umfjöllun um TIMSS rannsóknina og margt fleira. Þátttakendur: Fagfólk sem starfar að skólamálum. Ráðstefnugjald kr. 3.000, hádegisverður innifalinn. Skráning fer fram í afgreiðslu háskólans, sími 463 0900, bréfsími 463 0999, netfang: maria@unak.is HASKÓLINN A AKUBEYBI Morgunblaðið/Kristján Viðskiptabanni á Kúbu mótmælt NEMENDUR í Menntaskólanum á Akureyri mótmæltu viðskipta- banni Bandaríkjanna á Kúbu með fundi í Borgarbíói í gær, en þann dag, 8. október, voru 30 ár liðin frá því Che Guevara féll í Bólivíu. Fundurinn var haidinn í samvinnu við ýmis sam- tök á höfuðborgarsvæðinu. Safnast var saman við Iþrótta- höllina og farið í kröfugöngu á fundarstað. Framlög til fíkniefnavarna 1 verði stóraukin ALÞÝÐUSAMBAND Norðuriands tekur undir áhyggjur og variíaðar- orð þeirra sem beijast gegn þeirri sífellt vaxandi neyslu fíkniefna sem íslenskt samíélag stendur frammi fyrir. í ályktun þingsins sem haldið var á Illugastöðum um síðustu helgi kemur fram að brýna nauðsyn beri til að þeir sem að baráttunni koma efli samvinu og samstarf sitt, svo vænta megi árangurs í glímunni við vímuefna- vandann. Stjórnvöldum og sveitarstjórn- um beri skylda til að auka stórlega fjárframlög til þessara mála svo auka megi fræðslu og forvarnir gegn þessum vágesti. Eina raun- hæfa vonin um árangur í barátt- s unni gegn fíkniefnabölvaldinum sé samstillt átak þjóðfélagsins alls.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.