Morgunblaðið - 09.10.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 •' 13
LANDIÐ
Meðal tegunda á tilboð
Líka á Akureyri
Framleiðandi:
(Birgir íBröttuhlíð)
(Sigurður Þráinsson)
(Þowaldur í Grein)
(Rafn á Laugalandi)
(Gunnar íÁrtanga)
(Gunnar íÁrtanga)
(Birgir íBröttuhlíð)
(Gústaf á Sóleyjarst.)
(Þorvaldur í Grein)
(Sigurður Þráinsson)
Tegiind: verð:
Flöskuíilja kr. 240,-
Sánkti páiía kr. 350,-
Madagaskirpálnú kr. 380,-
Stofuaskiur kr. 380,-
Bergpáimi kr. 399,-
Burkni kr. 399,-
Jukka (30sm) kr. 490,-
Króton kr. 490,-
Burknl kr. 540,-
Havaírés kr. 590,-
ÍSLENSK
GARÐYRKJA
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
DAVÍÐ Halldórsson garðyrkjustjóri sem hefur haft yfirumsjón
með framkvæmdum af háífu Ólfushrepps og Davíð Ó. Davíðsson
sem hefur séð um alla verkstjórn á staðnum.
• •
Orfoka land grætt
og golfvöllur gerður
Sjávargarður
á Akranesi
Undirbún-
ingsnefnd
skilar af sér
Akranesi - Um nokkurra ára skeið
hefur verið kannað á Akranesi hvort
grundvöllur sé fyrir því að setja á fót
fiska- og sjávarútvegssafn á Akra-
nesi. Verkefnið er unnið af áhuga-
hópi sem notið hefur fjárstuðnings
ýmissa opinberra aðila og hefur
Akraneskaupstaður m.a. veitt um-
talsverða aðstoð og fjármuni til þess.
Á síðustu misserum hefur verkefn-
ið verið starfrækt undir vinnuheitinu
Sjávargarðurinn. Þátttakendur hafa
verið að reyna að stofna undirbún-
ingsfélag og hefur verið leitað til fjöl-
margra aðila varðandi þátttöku. Sér-
staklega hefur verið horft til ýmissa
hagsmunaaðila í sjávarútvegi, sam-
göngum og ferðaþjónustu á heima-
slóðum. Bæjarstjóm Akraness hefur
lýst yfir vilja til þátttöku í undirbún-
ingsfélaginu en margir aðrir aðilar
hafa ekki séð sér fært að vera með,
hvað sem síðar kann að verða.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
ÆVAR Harðarson, arktitekt, afhendir Gísla Gíslasyni bæjar-
stjóra, verkefnamöppurnar sem innihalda gögn um uppbyggingu
og rekstur fiska- og sjávarútvegssafns á Akranesi.
Mikið framfaramál
Undirbúningsnefndin hefur • í
framhaldi af tilraunum sínum til að
fjölga þátttakendum í þessu verk-
efni talið tímabært að slíkt fram-
faramál fyrir bæjarfélagið færist
frá áhugafélaginu til bæjarstjórnar.
Nefndin kom til fundar við bæjarráð
Akraness á dögunum og færði því
tvær verkefnamöppur alls um 560
bls.
Ævar Harðarson, arkitekt, sem
annast hefur að mestu fagvinnuna,
hafði orð fyrir nefndinni og afhenti
Gísla Gíslasyni bæjarstjóra möpp-
urnar sem innihalda verkefnið í
heiid sinni.
Með þessu vonast nefndin til að
málið sé komið í réttar hendur og
þetta mikla framfaramál í fræðslu-
starfsemi og ferðaþjónustu verði að
veruleika á Akranesi. Nefndarmenn
vonast til að sú forysta í faglegri
vinnu á þessu sviði sem stofnað
hefur verið til verði nýtt og slíkur
„sjávargarður" verði reistur á Akra-
nesi í náinni framtíð.
Þorlákshöfn - Á golfvellinum sem
verið er að koma upp rétt ofan við
byggðina í Þorlákshöfn eru nú til-
búnar níu holur og þegar byijað
að spila á þeim. Átján holu golfvöll-
ur verður væntanlega tilbúinn til
notkunar fljótlega upp úr aldamót-
um.
Fyrstu hugmyndir um golfvöll
komu fram árið 1989. Frá upphafi
var ákveðið að gera átján holu
völl, því landrými er nægilegt.
Hugmyndin var að nota golfvallar-
gerðina til að græða og hefta ör-
foka sand í leiðinni og virðist það
hafa tekist vonum framar.
Ölfushreppur sem á völlinn fékk
Hannes Þorsteinsson golfvallar-
hönnuð til að hanna völlinn, fram-
kvæmdir hófust síðan árið 1994
og var þá sáð í og mótaðar fjórar
brautir. Árið eftir voru mótaðar
fimm brautir og sáð í þær. Á síð-
astliðnu ári voru níu teigar og níu
flatir gerðar, þá var byijað að spila
á fjórum fyrstu brautunum. Nú í
ár var útbúið æfingasvæði og slétt-
að fyrir tveim nýjum brautum.
Davíð Halldórsson, garðyrkju-
stjóri Ölfushrepps, sem hefur yfir-
umsjón með vallargerðinni, og
Davíð Ó. Davíðsson, sem er verk-
stjóri á vellinum, voru sammála
um að ekki hefðu margir trúað á
að hægt væri að byggja upp svona
góðan golfvöll á þessum stað og
það á svo stuttum tíma. Síðan
vallargerðin hófst hefur það sýnt
sig að sandfok yfir þorpið hefur
stórlega minnkað frá þessu svæði.
Seglbretti og golf í sama skála
Nú sem stendur er Þráinn
Hauksson landslagsarkitekt í sam-
ráði við heimamenn og Hannes
Þorsteinsson að hanna allt svæðið
með göngustígum og fleiru. í fram-
tíðinni er hugmyndin að þarna
verði mikið útivistarsvæði fyrir al-
menna útivist. Hugmyndir eru uppi
um að þegar golfskáli verður reist-
ur komi hann til með að vera með
aðstöðu fyrir seglbrettaáhuga-
menn og aðra útivistarunnendur,
en aðstaða til seglbrettaiðkunar
er góð í Skötubótinni sem er hand-
an við kampinn.
Þeir nafnar Davíð Halldórsson
og Davíð Ó. Davíðsson sögðu að
þeir golfáhugamenn sem leikið
hefðu á vellinum til þessa segðu
hann lofa góðu og víst væri að þar
sem um væri að ræða sandvöll
alveg niður við sjó, mætti reikna
með að lengur væri hægt að spila
á honum en öðrum völlum. Hann
kemur fyrr til á vorin og endist
lengur fram eftir haustinu.
Undanfarin ár hafa tveir til þrír
starfsmenn Ölfushrepps ásamt
unglingum í unglingavinnunni
unnið við áburðargjöf, þökulagn-
ingu, sáningu og slátt, ásamt allri
umhirðu á vellinum. Golfáhuga-
menn í Þorlákshöfn hafa nú stofn-
að félag um starfsemi sína. Þeir
eru þegar búnir að fá kennara til
að leiðbeina og búið er að halda
mót, einnig hafa þeir hjálpað til
við þökulagningu og fleira.
jimmtudagy til óumwdag&
íslenskir garðyrkjubændur kynna pottaplöntuframleiðslu sína í Blómavali við
Sigtún þessa daga. Mikill fjöldi tegunda - margs konar tilboð. Um helgina gefst
fólki kostur á að hitta framleiðendurna og fá hjá þeim góð ráð.