Morgunblaðið - 09.10.1997, Side 32

Morgunblaðið - 09.10.1997, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 33 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VIÐSKIPTIVIÐ KÍNVERJA ÞRÁTT FYRIR misjöfn stjórnmálaleg viðhorf milli íslands og Kína, sem fram hafa komið í sambandi við einkaheimsókn varaforseta Tævans hingað til lands, hafa viðskipti landanna aukizt mjög hin síðari ár. Raun- ar hafa viðskipti við Tævan einnig aukizt mikið. Við kaupum meira af kínverska alþýðulýðveldinu en við höfum selt þangað en hins vegar hefur andvirði útflutn- ings til Tævan verið mun meira en innflutningur þaðan. Kínverjar hafa undanfarin ár verið mesta fiskveiði- þjóð heims, sem framleiðir um fjórðung allra sjávaraf- urða í heiminum. Fiskneyzla þar hefur aukizt stórum og er nú svo komið að flytja verður inn fisk til þessa mannmarga ríkis. Þessi staðreynd gefur okkur íslend- ingum sem framleiðendum sjávarafurða mikla mögu- leika og í framtíðinni er sem næst óþrjótandi markað- ur fyrir fisk í þessu stærsta ríki heims. Það er því mikils um vert að menn haldi góðu vinfengi við Kín- verja, en virðing tveggja þjóða sem eiga viðskiptaleg samskipti verður að vera gagnkvæm. Þjóðir verða að sýna hver annarri umburðarlyndi og virða sjónarmið hver annarrar. Nýlega voru fulltrúar íslenzks sjávarútvegs á kynnis- ferð um Kína. Þar kynntu þeir sér m.a. kínverskar skipa- smíðar og leizt vel á. í ljós kom að Kínverjar geta smíðað og afhent mjög vönduð fiskiskip á verði, sem er mjög hagtætt. Kína er að opnazt. Þar er gríðarleg efnahagsleg uppbygging. íslendingar eiga að nýta sér þennan stærsta einstaka markað heims til fullnustu. En við látum ekki beita okkur skoðanakúgun vegna viðskiptalegra hagsmuna. VÍNVEITINGALEYFI KRAFA borgarráðs um að útgáfa vínveitingaleyfa verði í höndum borgaryfirvalda en ekki dómsmála- ráðuneytis er að öllu leyti eðlileg. Hefur borgarráð skor- að á dómsmálaráðuneytið að hið fyrsta verði lagt fram frumvarp á Alþingi sem feli sveitarstjórnum það verk- efni að úthluta vínveitingaleyfum jafnframt því sem hægt verði að ákveða sveigjanlegri afgreiðslutíma vín- veitingahúsa. Vínveitingahúsum hefur fjölgað hratt síðustu árin, ekki síst í miðborg Reykjavíkur. Um tvö hundruð vín- veitingastaði er að finna í höfuðborginni og um helming þeirra í miðborginni. Þessi fjölgun veitingastaða hefur að vissu leyti stuðlað að því að gera Reykjavík líflegri og fjölga kostum neytenda, jafnt íbúa sem þeirra tugþús- unda ferðamanna sem hana sækja heim ár hvert. Nær stjórnlaus fjölgun vínveitingastaða hlýtur hins vegar sömuleiðis að geta af sér vandræði. Það er ekki endalaust hægt að hlaða niður vínveitingahúsum í mið- borginni á kostnað annarra þjónustufyrirtækja og íbúa. Slíkt raskar því eðlilega jafnvægi er ríkja verður í þess- um efnum og getur verið íbúum einstakra borgarhluta til mikils ama. Ástandið í miðborginni um helgar er skýrt dæmi þess að margt mætti betur fara. Sá vandi sem af þessu leiðir mæðir mest á borgaryfir- völdum og því er eðlilegt að þau hafi þau tæki sem nauðsynleg eru til að reyna að viðhalda góðu jafnvægi í borgarlífinu. Einna verst er ástandið líklega í Grjóta- þorpi og víðar í miðbænum þar sem íbúar verða nokkr- um sinnum í viku að sætta sig við að drukkin mann- mergð leggi undir sig þeirra nánasta umhverfi. Þrátt fyrir að jafnt borgar- sem lögregluyfirvöld mæltu ný- lega gegn því að veitingahúsi í Grjótaþorpi yrði veitt vínveitingaleyfi var leyfinu engu að síður úthlutað. Það verður að vera hægt að sía út þá staði sem ekki standast eðlilegar kröfur, standa ekki skil á opinberum gjöldum eða trufla sitt nánasta umhverfi. Sveigjanlegri afgreiðslutími gæti sömuleiðis stuðlað að því að jafna út þann vanda er myndast um hverja helgi er öllum vínveitingastöðum er lokað á sama tíma. Fulitrúar ein- stakra sveitarfélaga hljóta að vera betur til þess fallnir að meta stöðu mála í þessum efnum en embættismenn í ráðuneytum. Utanríkisráðherra segir kröfur Kínverja vegna heimsóknar varaforseta Tævans afskipti af innanlandsmálum Dómur Hæstaréttar um makalífeyri AFN ÍSL . . Z Morgunblaðið/Rax DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra efndi tii fundar með íslenskum og erlendum blaðamönnum í Ráðherrabústaðnum í gær. Efnt var tii fundarins í kjölfar ákafra mótmæla Kínverja vegna heimsóknar Liens Chans, varaforseta Tævans, hingað til lands. íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að láta mótmælin ekki hafa áhrif á þá ákvörðun að leyfa heimsókn Liens hingað og sagði Davíð á fundinum að vildi forseti Tævans, Lee Teng-hui, koma í einkaheimsókn hingað með sama hætti væri ekkert því til fyrirstöðu. Morgunblaðið/Jim Smart LIEN Chan, varaforseti Tævans, með eigin- konu sinni og fylgdarliði á leið út úr Lista- safni íslands sem var einn viðkomustaða á skoðunarferð hans um borgina í gær. Sendiherra íslands kall- aðiir á ný í kínverska utanríkisráðuneytið Davíð Oddsson forsætisráðherra segist mundu samþykkja heimsókn forseta Tævans hingað til lands. Karl Blöndal fylgdist með þróun mála varðandi samskipti íslands, Tævan og Kína. DAVÍÐ Oddsson forsætis- ráðherra sagði á blaða- mannafundi í gær að hann mundi ekki standa í vegi fyrir því að Lee Teng-hui, forseti Tævans, kæmi hingað til lands færi hann fram á það. Blaða- mannafundurinn var haldinn vegna fimm daga heimsóknar Liens Chans, varaforseta Tævans, sem Kínveijar hafa krafist að verði vísað úr landi. Þetta mál var rætt á ríkisstjórnar- fundi í gærmorgun og var niðurstað- an sú að láta mótmæli Kínveija ekki hafa áhrif á þá ákvörðun að leyfa varaforseta Tævans að koma hingað til lands. Forsætisráðherra átti í gærkvöldi fund, sem hann kaus að kalla „kvöldstund“ af diplómatískum ástæðum, með varaforseta Tævans. Davíð sagði að fundinum loknum að þar hefðu aðallega verið rædd viðskiptamál, þar á meðal ferðamál og möguleikar Tævana á að opna hér viðskiptaskrifstofu. Sendiherra Kína á íslandi, Wang Jiangxing, gaf í gær út yfirlýsingu þar sem skorað var á stjórnina að binda enda á heimsókn Liens og athafnir hans á íslandi og til vara að banna íslenskum embættismönn- um að hitta hann. Sagði í yfirlýsing- unni að ella mundi heimsóknin hafa alvarlegar afleiðingar. Stjórnvöld i Peking líta svo á að Tævan sé upp- reisnarhérað í Kína. Ákveðum sjálf hverjir koma til Iandsins Davíð ítrekaði á blaðamannafund- inum að samstarf íslendinga við stjórn Kínverska alþýðulýðveldisins hefði um langt skeið verið gott. „Við hyggjumst halda því góða sam- starfi við Kínverska alþýðulýðveldið áfram,“ sagði Davíð. „Það hefur engin breyting orðið á þeirri stefnu. Sendiherra Kínverska alþýðulýð- veldisins hefur farið fram á fundi með fulltrúum mínum og utanríkisráðuneytisins og ég ræddi við sendiherrann í gær. Kínversk yfirvöld virð- ast líta á þessa heimsókn og óformlega kvöldverð- inn á Þingvöllum sem ógnun eða afskipti af málefnum Kínverska al- þýðulýðveldisins. Það var ekki ætlun okkar, en auðvitað myndi okkur aldrei dreyma um að hafa áhrif á ákvarðanir um það hveijir heimsæki Kínverska alþýðulýðveldið eða hverjum leiðtogar þess mikla lands kjósi að borða með kvöldverð eða ræða við. Þótt ísland sé lítið er það sjálfstætt land og við ákveðum sjálf hvaða fólk kemur til íslands og við hverja íslenskir embættismenn og jafnvel ég sjálfur ræða.“ Davíð lýsti yfir því að hann harm- aði að þetta mundi leiða til þess að samskipti íslendinga og Kínveija yrðu ekki jafnvinsamleg og þau hefðu verið. Hins vegar vonaðist hann til þess að stjórn Kina skildi að ákvörðun ríkisstjórnar sjálfstæðs lands um það hveijir kæmu þangað væri innanríkismál, jafnvel þótt landið væri lítið. „Vitaskuld hef ég áhyggjur af afstöðu kínversku stjórnarinnar og að þetta muni hafa áhrif á góð og vinsamleg samskipti við Kína,“ sagði Davíð. „Við viljum ekki að þetta hafi áhrif á samskiptin og telj- um að það eigi ekki að hafa áhrif. Við teljum ekki að þetta sé svo alvar- legt mál að stjórnvöld í Peking eigi að bregðast við með þessum hætti. Og auðvitað vonum við að samskipt- in verði eðlileg að nýju, þótt það geti tekið tíma.“ Forsætisráðherra sagði að við- skipti íslands við Kína og Tævan væru mikilvæg og bætti við að sennilega myndu viðskiptin við Kína aukast stórlega á næstu áram. „En það getur ekki haft áhrif á ákvarðanir okkar í þessu máli,“ sagði Davíð. „Þetta er ekki að- eins spurning um við- skipti, heldur grundvall- aratriði, um það hver ákveði hveijir komi hingað til lands og hverjir ekki.“ Stuðningur við viðurkenningu Tævans? Fjöldi tævanskra blaðamanna var á blaðamannafundinum í Ráðherra- bústaðnum og var greinilegt að þeim þótti fréttnæmt að Davíð skyldi ætla að hitta Lien í gærkvöldi. Hann var meðal annars spurður hvort líta mætti á fundinn á Þingvöllum sem táknræna athöfn og stuðning við viðurkenningu Tævans. „Ég er aðeins að hugsa um ís- land,“ sagði Davíð. „Ég er aðeins að hugsa fyrir sjálfan mig og ís- land, ekki einhver skref inn í fram- tíðina. Þetta er okkar ákvörð- un .. . hann vildi hitta mig og ég taldi að það væri rétt.“ Einn blaðamaður frá Tævan sagði að margir litu nú upp til Davíðs þar sem hann hefði ákveðið að eiga fund með Lien og aðrir stjórnmálaleiðtog- ar ættu að taka hann til fyrirmynd- ar. Davíð vildi ekki taka undir það. „Ég er ekki fyrimynd alþjóðlegra leiðtoga," svaraði hann. „Þeir verða sjálfir að ákveða örlög sín. Við tók- um þessa ákvörðun og stöndum við hana og teljum að Kínverska alþýðu- lýðveldið eigi að virða það.“ Davíð sagði að Kínverska alþýðu- lýðveldið hefði ekki verið látið vita af þeirri ákvörðun að veita Lien vegabréfsáritun, enda hefði ekki verið talin ástæða til þess. Að auki hefði hann sérstaklega rætt tengsl íslands og Tævans í ferðamálum við kínverska ráðamenn og þá hefðu engar athugasemdir komið fram: „Eftir að hafa fengið það svar er ekki hægt að draga íbúa Tævans í dilka og gera lista yfir þá, sem ekki megi koma sem ferðamenn til ís- lands. Það væri undarlegt að segja að sumir geti komið til íslands og ekki aðrir ... Það var því engin ástæða til að tilkynna Kínverska alþýðulýðveldinu að þetta fólk væri á leiðinni hingað, en það var heldur ekkert leyndarmál." Davíð var spurður hvort það sama mundi eiga við ef Lee Teng-hui vildi koma til íslands. „Ég mundi sam- þykkja það,“ sagði forsætisráðherra. Þegar Davíð var inntur eftir því hvort hann teldi að viðbrögð Kín- veija væra svo hörð, sem raun bæri vitni, vegna þess að hann hitti Lien svaraði hann að í upphafi hefðu stjórnvöld í Peking aðeins kvartað undan því að hann fengi að koma til íslands, en síðan hefðu mótmælin stigmagnast þar til farið var fram á að honum yrði vísað úr landi. Sendiherra íslands á fund varautanríkisráðherra Kína Hjálmar W. Hannesson, sendi- herra íslands í Kína, fór í gærmorg- un til viðræðna um þetta mál í kín- verska utanríkisráðuneytinu. Sagði Hjálmar í gær að hann hefði beðið um fund til að koma sjónarmiðum íslendinga á framfæri og á þriðju- dagskvöld hefði hann verið boðaður á fund varautanríkisráðherra Kína. Hjálmar sagði að á mánudag hefði hann rætt við deildarstjóra í Evrópudeiid ráðuneytisins og það að hann skyldi kallaður á fund va- rautanríkisráðherra í gær bæri því vitni að „aukinn þungi“ væri kominn í mótmæli Kínveija. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra, sem kom til landsins eftir heimsókn til Frakklands í gær, lagði áherslu á að Lien væri ekki hér í opin- berum erindum. „Það er alveg ljóst að við meinum fólki ekki að koma hingað til lands á grandvelli stöðu þeirra og kröfur um að við breytum þar til eru af- skipti af okkar innanlandsmálum,“ sagði Halldór. „Okkar viðbrögð eru fyrst og fremst þau að það hefur engin stefnubreyting átt sér stað varðandi samskipti okkar við Kína og það eru engar fyrirætlanir um það.“ Hann bætti við að utanríkisráðu- neytið hefði ekki haft og mundi ekki hafa nein afskipti af ferðalög- um ráðherrans á íslandi. Kvaðst hann ekki hafa heyrt á það minnst að Tævanar hefðu hug á því að opna viðskiptaskrifstofu á Islandi og engin slík erindi hefðu komið til ráðuneytisins. Viðskiptaskrifstofa Tævans á íslandi? Davíð kvaðst á blaðamannafund- inum ekki hafa heyrt opinberlega talað um að Tævanar opnuðu við- skiptaskrifstofu hér. Slíkar skrif- stofur væru hins vegar reknar á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu og gert gagn þannig að spyija mætti hvers vegna slík skrifstofa ætti ekki rétt á sér á íslandi. Mikið hefur verið fjallað um heim- sókn Liens í kínverskum fjölmiðlum. Málið hefur verið fyrsta frétt í fréttatímum kínverska útvarpsins. Einnig var fjallað um það í Dag- blaði alþýðurmar og China Daily, sem kemur út á ensku. Blöð í Hong Kong fjölluðu einnig um málið í gær. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er mikið um þetta mál talað meðal vestrænna stjórnarerin- dreka í Peking. Keðjuverkun í öðrum Evrópuríkjum Lien er á 12 daga ferð um Evr- ópu. Hann kom hingað á mánudag og fer á morgun. Ekki hefur verið sagt hvert för hans er heitið, en í dagblöðum á Tævan hefur komið fram að hann fari einnig til Spánar og sennilega Frakklands og Belgíu. Þá muni hann fara um Holland, Austurríki og Singapore. Tævan hefur ekki stjórnmálasamband við neitt þessara ríkja, fremur en ísland. Hermt var að sendiherrar Austur- ríkis og Spánar í Kina hefðu einnig verið kallaðir á fund í kínverska utanríkisráðuneytinu í Peking af því tilefni að Lien væri á leið til ríkja þeirra, en það fékkst ekki staðfest í utanríkisráðuneytum Austurríkis og Spánar. Dagblað á Tævan, China Times, sagði í upp- hafi vikunnar að Lien kæmi til Spánar 12. októ- ber og þar mundi hann hitta embættismann, sem væri jafn- háttsettur og hann sjálfur. í fjölmiðl- um í Hong Kong var í gær leitt að því getum að Spánveijar væru að heykjast á því að leyfa varaforsetan- um að koma til Spánar. Eva Mart- inez, talsmaður spænska utanríkis- ráðuneytisins, kvaðst í gær ekki geta sagt með vissu að Lien væri á leið til Spánar. Sagði hún að Kínveij- ar hefðu engin viðbrögð sýnt vegna málsins. Heimsóknin fyrsta frétt í kínverska útvarpinu Vilja banna embættis- mönnum ad tala við Lien Samning'sfrelsi um skilmála lífeyristryggingar ÞAÐ málefni sem kom til kasta Hæstaréttar í dómi 2. október síðastliðinn um rétt til makalífeyris úr líf- eyrissjóði er athyglisvert. Málavext- ir voru þeir í stuttu máli að kona missti mann sinn og naut þá maka- lífeyris úr Lífeyrissjóði starfsmanna Húsavíkurbæjar, sem maðurinn hafði greitt til. Konan byijaði svo að búa með öðrum manni og felldi þá lífeyrissjóðurinn niður greiðslur til hennar. Byggðist það á reglum sjóðsins um að réttur til makalífeyr- is félli niður ef viðkomandi gengi í hjónaband eða hæfi sambúð á ný. Konan vildi ekki una þessu og taldi þessa ákvörðun stríða gegn jafnræðisreglum og eignarnámsá- kvæði stjómarskrárinnar auk þess sem viðkomandi reglur hefðu ekki hlotið staðfestingu ráðherra eins og lög gerðu ráð fyrir. Ennfremur hélt hún því fram að sambúð hennar væri ekki þess eðlis að jafna mætti til hjúskapar. Meirihluti Hæstaréttar hafnaði kröfu konunnar en lýsti þó sam- úð með sjónarmiðum hennar. Einn dómari, Pét- ur Kr. Hafstein, vildi hins vegar dæma konunni í vil. Jafnræði Sú hlið málsins sem helst hefur almenna þýð- ingu snýr að grundvall- arreglum um jafnræði borgaranna og vernd eignarréttarins. Margir lífeyrissjóðir hafa ákvæði af þessu sama tagi í sam- þykktum sínum og gildir það einnig um lögbundinn lífeyrissjóð eins og lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Það er samt eðlilegt að spurt sé hvort það stand- ist gagnvart jafnræðisreglum stjórn- skipunar okkar að gera þann grein- armun á fólki að það fái makalífeyr- inn ef það býr eitt en missi rétt til hans ef það tekur upp sambúð að nýju eða gengur í hjónaband. Má ekki ennfremur, frá sjónar- hóli eignarréttarverndar, líta svo á að greiðsla í lífeyrissjóð sé nokkurs konar kaup á tryggingu sem menn ætli sér eða maka sínum að njóta á efri áram? Er líklegt að menn telji það skipta máli þegar þeir kaupa sér þessa tryggingu hvort eftirlif- andi maki hefji sambúð að nýju eða ekki? Vísað til venju Hæstiréttur leysir þannig úr vandanum að slík hefð sé fyrir regl- um af þessu tagi hjá lífeyrissjóðum landsins að ekki verði við þeim hrófl- að. Önnur rök og meira sannfær- andi eru þó í bakgrunni. Eins og fram kemur í dómnum var lífeyris- sjóðurinn stofnaður á samnings- grandvelli. Reglur hans voru settar með samþykki Starfsmannafélags Húsavíkurbæjar og má því líta svo á að samningur hafi verið gerður fyrir hönd lífeyrisgreiðanda með fyrrgreindum skilmálum. Sam- kvæmt því var rétturinn til makalíf- eyris bundinn því skilorði að viðkom- andi væri ekki í sambúð. Fram kem- ur að reglurnar voru komnar í þetta horf þegar viðkomandi byrjaði að greiða í sjóðinn. Álit umboðsmanns Alþingis Fróðlegar hugleiðingar um eðli lífeyrisréttinda er að finna í skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 1992 á bls. 92 til 93. Þar segir að í lögum nr. 55/1980 um starfskjör í máli konu sem missti makalífeyri við það að heija sambúð lét Hæstiréttur þess getið að spyrja mætti hvort þetta væri sanngjarnt og í takt við tímann. Hins vegar varð, að mati Páls Þórhallssonar, ekki fram hjá því litið að samningsfrelsi ríkir um skilmála lífeyristrygg- ingar og dómstólar geta vart gripið þar inn í. launafólks og skyldutryggingu líf- eyrisréttinda sé ekki að finna nein fyrirmæli um, með hvaða hætti líf- eyrisréttindi sjóðfélaga skuli ákvörðuð: „Samkvæmt því hafa launþegar og atvinnurekendur allmikið svig- rúm til að kveða nánar á um slíkt í samningum sín á milli. Svigrúm samningsaðila hlýtur þó jafnan að takmarkast við það, að náð verði því meginmarkmiði lífeyrissjóða, að tryggja mönnum, í samræmi við ið- gjaldagreiðslur þeirra, ákveðinn líf- eyri vegna elli, örorku eða and- láts ... Nánari ákvörðun þessara réttinda ræðst af samningum at- vinnurekenda og launþega. Hljóta slíkir samningar að taka mið af mati á því meðal annars, hvaða rétt- indi unnt er að tryggja, miðað við tekjur viðkomandi sjóðs og mögu- lega ávöxtun eigna þeirra, og af mati samningsaðila á því, hvað sé eðlileg og sanngjörn skipting í því efni milli sjóðfélaga innbyrðis ann- ars vegar og maka þeirra og barna hins vegar,“ segir umboðsmaður Alþingis. í því tiltekna máli lagði umboðs- maður blessun sína yfir reglur Líf- eyrissjóðs starfsmanna Aburðar- verksmiðju ríkisins sem skertu makalífeyri eftir aldri eftirlifandi maka. „Byggir þessi regla meðal annars á því sjónarmiði, að því yngri sem eftirlifandi maki er þeim mun meiri líkur séu á að aflahæfi hans sé óskert og þörf hans fyrir makalíf- eyri þess vegna minni en ella. Ég tel, að þetta sé ekki óeðlilegt sjónar- mið og sé samrýmanlegt megin- markmiði lífeyrissjóðsins,“ segir þar. Ekki verður betur séð en svipuð rök eigi við um regluna sem reyndi á í dómi Hæstaréttar. Ekki sé sama þörfin fyrir framfærslueyri þegar viðkomandi er kominn í sambúð. Þau rök eru vissulega nokkuð gamaldags en málefnaleg eigi að síður. Erfitt er að sjá að dómstólarnir hafi heim- ild til að víkja slíkum samnings-" bundnum ákvæðum til hliðar. Til þess þyrfti að túlka jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar með glannalega áræðnum hætti og þannig að hún hefði bein áhrif á samskipti einkaað- ila. Önnur hugsanleg leið framhjá reglunum er á grundvelli eignarrétt- arsjónarmiða eins og nú verður nán- ar vikið að. Sératkvæði Péturs Kr. Hafstein í sératkvæði Péturs Kr. Hafstein segir að eiginmaðurinn hafi áunnið sér og eiginkonu sinni rétt til lífeyr- is síðar á ævinni „í réttu hlutfalli við framlag sitt“. Þetta framlag var, tekið af launum hans og um leið skertust þá ráðstöfunartekjur þeirra hjóna á líðandi stundu. „Á móti sköpuðust mikilvæg rétt- indi fyrir þau bæði og er ekki vafi á því, að áfrýj- andi eigi á grundvelli hjú- skaparstöðu sinnar að njóta þeirra eftir fráfall eiginmanns síns. Hún verður ekki svipt réttind- unum nema með heimild í settum lögum og að full- nægðum ákveðnum skil- yrðum,“ segir Pétur. Þetta er vissulega sjón- armið og kemur að sumu leyti í framhaldi af sérat- kvæði Péturs í öðra líf- eyrissjóðsmáli, sem dæmt var i Hæstarétti síðastlið- inn vetur, en þá taldi hann skylduaðild ekki standast. Samt vakna tvær spurningar við lestur sératkvæðisins. í fyrsta Iagi hvort það sé rétt að lífeyrisgreiðendur ávinni sér rétt til lífeyris í réttu hlutfalli við framlag sitt því lífeyris- sjóðir hafa almennt ýmsa skilmála sem raskað geta þessu hlutfalli eins og vikið hefur verið að. Má nefná' reglur um að eftir að greitt hefur verið í 30 ár í lífeyrissjóð reiknist umframár einungis að hálfu. í öðra lagi hvort reglur lífeyrissjóðsins séu ekki samningsígildi sem konan var bundin af? Hins vegar er rétt að árétta að ágreiningur Péturs við aðra dómend- ur snýst væntanlega ekki um hvort lífeyrisréttindin séu eignarréttindi yfirieitt eða ekki. Það er almennt viðurkennt að þau séu eignarréttindi (sbr. Gaukur Jörundsson: Um eign- arnám, bls. 76). Ágreiningurinn snýst fremur um það hvort einhvem tíma varð til tilkall til óskerts maka- lífeyris. • Ýmsar spurningar í dómi Hæstaréttar er ábending um að reglan um missi réttar við það að hefja sambúð sé hvorki sann- gjörn né í takt við tímann. Taka má undir það og spyija hvort rétt- lætanlegt sé að hjúskapar- eða sam- búðarstaða ein og sér skipti hér sköpum? Hvernig samrýmist það viðurkenndum markmiðum um að styrkja hjónabandið? Er þetta ekki í raun kynbundin mismunun því hún kemur helst niður á konum? Ér þetta ekki úr takt við þjóðfélagsaðstæður þar sem hver einstaklingur, jafnt karlar sem konur, er fær um að sjá um sig sjálfur? Og þegar öllu er á botninn hvolft, er þetta ekki fullmik- il forræðishyggja? Þetta eru spum- ingar sem löggjafmn og aðilar vinnumarkaðarins verða að svara.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.