Morgunblaðið - 09.10.1997, Síða 47

Morgunblaðið - 09.10.1997, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 47 ! ; i < i i i i i i Fyrirlestur um lýðskóla S0REN Juhl, starfandi rektor Brandbjerg-háskóla á Jótlandi, heldur fyrirlestur á vegum Rann- sóknarstofnunar Kennaraháskóla Islands og íslenska lýðskólans fimmtudaginn 9. október kl. 15.15. Fyrirlesturinn nefnist: Staðfest- ing á gildi lýðskólanna í fjöiþjóðlegu samfélagi. Juhl telur lýðskólahug- myndina hornsteininn í því menn- ingar- og velferðarþjóðfélagi sem Danmörk er. Lýðskólarnir hafa átt stóran þátt í því að ala fólk upp í anda lýðræðislegra samskipta og danskt þjóðfélag hafi notið þess að ýmsir forystumenn í dönsku þjóðiífí hafa fengið menntun sína í lýðskól- um og mótast af starfsanda þeirra. í Danmörku eru nú starfandi um níutíu lýðskólar og er Brandbjerg- háskóli á Jótlandi einn hinna stærstu og vinsælustu. Soren Juhl, starfandi rektor, hefur einnig margra ára reynslu af fullorðins- fræðslu og símenntun í heimspeki og menningarsögu. Með Soren kemur hingað til lands fimmtán manna hópur nemenda sem vinnur að nútíma uppsetningu á leikriti úr Völuspá í samvinnu við íslenska lýðskólann. Sýningar verða föstudaginn 10. október kl. 16 og 20 í Norræna húsinu. Málstofan verður haldin í stofu M-302 í Kennaraháskóla íslands. Flensborgar- kórinn syngur í Hafnarfjarð- arkirkju KOR Flensborgarskóla syngur við almenna guðsþjónustu sunnudaginn 12. október nk. Hefst guðsþjónustan kl. 11. Kórstjóri er Hrafnhildur Blomsterberg. Mun kórinn syngja almennan messusöng en einnig flytja kórverk. Organisti er Natalía Chow. Prestur guðsþjónustunnar er sr. Þórhallur Heimisson. Samtímis verður haldin sunnu- dagaskólahátíð í kirkjunni og safn- aðarheimiiinu og er börnum úr sunnudagaskólunum í Hvaleyrar- skóla og Setbergsskóla boðið sér- staklega í heimsókn en strætisvagn- ar fara frá skólunum kl. 11. Eftir guðsþjónustu og sunnudagaskóla er öllum boðið í kaffi og safa í safnað- arheimilinu. I tónlistarguðsþjónustu sem hefst kl. 18 mun María Weiss, fiðluleik- ari, kennari við Tónlistarskóla Hafn- arfjarðar, leika valin verk. Félagar úr Kór Hafnarfjarðarkirkju syngja, organisti er Natalía Chow og prest- ur sr. Gunnþór Ingasaon. Fyrirlestur um líf ungl- ingsins í Graf- arvogskirkju FYRIRLESTRAR verða haldnir í Grafarvogskirkju um unglinginn andspænis trúnni, voninni, foreldr- um og skóla, næstu fimmtudags- kvöld. Fyririestrarnir verða eftirfarandi: 9. október. Trúin og unglingurinn. Sr. Ágúst Einarsson, prestur í Sel- jakirkju. 16. október. Vonin og ungl- ingurinn. Sr. Sigurður Arnarson, prestur í Grafarvogskirkju. 23. október. Skólinn og unglingurinn. Sr. Bjami Þór Bjamason, prestur í Garðaprestakalli. 30. október. For- eldrar og unglingar. Sr. Þór Hauks- son, prestur í Árbæjarkirkju. Hver fyrirlestur er um 40 mín. í flutningi og á eftir gefst tækifæri til umræðna yfir kaffibolla. „Hér er kjörið tækifæri fyrir for- eldra og foreldra fermingarbarna og fyrir þá sem sinna og áhuga hafa á uppeldismálum að taka þátt í fræðslu og umræðum um ungling- inn,“ segir í fréttatilkynningu frá Grafarvogskirkju. BRIDS U m s j ð n Arnðr G. Ragnarsson íslandsmót í tvímenningi - undanúrslit UNDANÚRSLIT íslandsmótsins í tvímenningi verða spiluð helgina 11.-12. október. Spilaðar verða 3 lotur, hver 10 umferðir með 3 spilum á milli para. Fyrsta lota byijar á laug- ardeginum kl. 11 og stendur til u.þ.b. 15.30. Önnur lota byijar síðan 16.30 og áætluð lok eru um 20.15. Þriðja lotan byijar kl. 11 á sunnudeginum og reiknað er með staðfest úrslit liggi fyrir um 15.45. Þijátíu og eitt efsta sætið gefur rétt í úrslitin á íslands- mótinu í tvímenningi 1997. Fyrirkomulag mótsins er þijár lot- ur með Hipp Hopp-fyrirkomulagi. Pörunum er slönguraðað í riðla eftir meistarastigum að viðbættum stigum síðustu 5 ára. Keppnisgjald er 6.000 kr. á par. Tekið er við skráningu hjá BSÍ í sím 587-9360, skráningarfrestur rennur út föstudaginn 10. október kl. 17. Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 2. október lauk hausttvímenningnum með sigri Bernódus - Kristinsonar og Georg Sverrissonar sem hlutu 939 stig. Kvöldskorin: N&S Bernódus Kristinsson - Georg Sverrisson 352 Ámi Már Bjömsson - Leifur Kristjánsson 306 Gísli Tryggvason - Guðlaugur Níelssen 294 A-V: Rúnar Gunnarsson - Guðmundur Grétarsson 324 J akob Kristinsson — Sverrir Kristinsson 314 Guðni Ingvarsson - Jón Páll Siguijónsson 305 Lokastaðan. BemódusKristinsson-GeorgSverrisson 939 MuratSerdar-RaparJónsson 914 Helgi Víborg - Oddur Jakobsson 866 Guðm. Pálsson - Guðmundur Gunnlaugsson 866 Barómeterinn byijar næsta fímmtudag 9. október. Skráning er hjá Hermanni Lárussyni sími 554-1507 og Sigurði Siguijónssyni sími 554-0226. Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 6. október var önnur umferðin í minningarmóti Krist- mundar Þorsteinssonar og Þórarins Andrewssonar spiluð. Úrslit kvöldsins urðu þessi: N/S-riðill Allan Sveinbjömss. - Gunnar R. Péturss. 259 Guðm. Magnúss. -ÓlafurÞ. Jóhannss. 236 Ólafur Ingimundars. - Sverrir Jónss. 231 A/V-riðill Jón Gíslason - Snjólfur Ólafsson 271 Halldór Einarss. - Gunnlaugur Óskarss. 269 Atli Hjartars. - Júlíana Gíslad. 222 Að loknum tveimur kvöldum hafa eftirtalin pör bestu skor:_ Halldór Einarss. - Gunnlaugur Óskarss. 521 Siguijón Harðars. - Haukur Ámas. 508 Jón Gíslas. — Snjólfur Ólafss. 479 Guðni Ingvarss. - Sigurður Sigurjónss. 457 I móti þessu taka að þessu sinni þátt 20 pör og lýkur því mánudaginn 13. október, en þá tekur við barómet- er, A. Hansen mótið, sem jafnframt er aðaltvímenningur félagsins. i i i i i i i (i i i I i í AUGLYSINGA KENNSLA TILBOÐ / UTBOÐ cci A n Q Q T ADC Imw Imh %3i SHUp 5SH I Auglýsing frá prófnefnd verðbréfamiðlara Prófnefnd verðbréfamiðlara stendurfyrir nám- skeiði og prófi veturinn 1997—1998. Próf í námsefninu gefur réttindi til að stjórna verðbréfafyrirtæki eða verðbréfamiðlun sam- kvæmt lögum nr. 13/1996 um verðbréfavið- skipti. Námskeiðinu er einnig ætlað að nýtast öllum þeim sem starfa á fjármagnsmarkaði. Námskeiðið skiptist í þrjá hluta; A-hluta, lög- fræði, B-hluta, viðskiptafræði og C-hluta, fjár- magnsmarkað. Áætlað er að kennsla í fyrsta hluta hefjist 8. nóvemberog námskeiðinu Ijúki í þriðja hluta í júní 1998. Um námskeiðahaldið, fyrirkomulag kennslu, kennslugreinarog próf fer samkvæmt reglu- gerð nr. 138/1992. Þátttökugjald verður sem hér segir fyrir hvern hluta: • Fyrir A-hluta og C-hluta, hvorn fyrir sig: Kennslugjald kr. 50.000. Prófgjald kr. 20.000. • Fyrir B-hluta: Kennslugjald kr. 40.000. Prófgjald kr. 20.000. Innifalið í kennslugjaldi er óafturkræft innritun- argjald að upphæð kr. 10.000. Skráð er í námskeiðið hjá Endurmenntunar- stofnun Háskóla íslands dagana 20,—29. októ- ber nk. og skal þá greiða kennslugjald fyrir A- hluta. Kennslugjald fyrir B-hluta skal greiða fyrir 20. janúar 1998 og kennslugjald fyrir C- hluta skal greiða fyrir 15. mars 1998. Heimilt er að greiða með raðgreiðslum á greiðslukorti. Prófgjöld greiðast við skráningu í próf við lok hvers hluta. Verði námskeið ekki fullsetin verður þeim sem þess óska heimilað að sitja í einstökum grein- um gegn gjaldi. Nánari upplýsingar um námskeiðið veitir End- urmenntunarstofnun Háskóla íslands í síma 525 4923, 525 4924 og 525 4925 og Kristján Jó- hannsson, umsjónarkennari, í síma 525 4555. Tölvupóstur. Endurmenntunarstofnunar er endurm@rhi.hi.is Reykjavík, 9. október 1997. Prófnefnd verðbréfamiðlara. Rafveita Hafnarfjarðar Útboð Bygging steinsteypts rofastöðvarhúss Rafveita Hafnarfjarðar óskar hér með eftir til- boðum í byggingu steinsteypts hússfyrir rofa- stöð við Suðurholt 2a í Hafnarfirði. Stöðin er 460 rúmm. að stærð á tveimur hæð- um. Útboðsgögn verða afhent á innheimtudeild Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá og með föstudeginum 10. október 1997, gegn 6.500 kr. (með vsk) skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð í aðveitustöð Rafveit- unnar, Öldugötu 39, þriðjudaginn 21. október nk. kl. 11:00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Rafveita Hafnarfjarðar. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavíkur verður haldinn í Skipholti 50D, 3. hæð, föstu- daginn 17. október kl. 18.00. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lagabreytingar 3. Önnur mál Sjómannafélag Reykjavíkur. is $'O - o\ Aðalfundur SVG 22. október 1997 Aðalfundur verður haldinn 22. október 1997 á Hótel Bræðraborg, Vestmannaeyj- um, og hefst hann kl. 13.00. Stjórnin. Aðalfundur Fimleikafélagið Björk heldur aðalfund í veislu- sal Hauka v/Flatahraun fimmtudaginn 23. októ- ber kl. 20.00. Allir velkomnir. V Aðalfundur Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Lang- holti verður haldinn í Valhöll fimmtudaginn 16. október nk. kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. NAUÐUNGARSALA I Nauðungarsölur Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, fimmtudaginn 16. október 1997 kl. 14.00 á eftirtöldum eignum: Austurgata 22, Hofsósi, þingl. eigandi Sigfríður Sigurjónsdóttir, gerð- arbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna. Breiðsstaðir, Skarðshreppi, þingl. eigandi Benedikt Agnarsson, gerð- arbeiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins. Grenihlið 30, n.h., Sauðárkróki, þingl.eigendur Valdimar Örn Matt- híasson og Snjólaug S. Jónsdóttir, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Sauðárkróki. Heiði, Skarðshreppi, þingl. eigandi Búi Agnarsson, gerðarbeiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins. Miösitja, Akrahreppi, þingl. eigendur Jóhann Þorsteinsson og Sólveig Stefánsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Skagfirðingabraut37, n.h., sauðárkróki, þingl. eigandi Kristján Alex- andersson, gerðarbeiðandi Samvinnusjóður íslands. Suðurgata 22, Sauðárkróki, þingl. eigandi Sigurður Kárason, gerðar- beiðendur Gjaldheimtan í Reykjavik, Guðbjörg K. Jónsdóttir og Toll- stjórinn í Reykjavik. Sætún 2, Hofsósi, þingl.eigandi Stefán Gunnarsson, gerðarbeiðandi Landsbanki íslands. Öldustígur7, e.h. og bílskúr, Sauðárkróki, þingl. eigendur Jón B. Sigvaldason og Guðrún Stefánsdóttir, gerðarþeiðendur Lagastoð hf., og Kaupfélag Skagfirðinga. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 7. október 1997. Eitt blað fyrir alla! - kjarni málsins! Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.