Morgunblaðið - 09.10.1997, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir b
WAM &6N BH i þ\/i f*
þÆR ENO/t EINS A
'ÓlLU/u TunguaaXlu/H
YES, YOUR H0N0R,THI5 IS MY
CUENT, ALICE, THE INJOREP
PARTY, UUHO FELL DOUIN
LUE INTEND TO PROVE
NE6LI6ENCE ON THE PART
0F THE PROPERTY OWNER FOR
FAILIN6 T0 POST A WARNIN6
SI6N BY THE RA00IT-HOLE..
HOLUOIO tTHE JUP6E TOLP'
YOUR CASE METOTAKEMY
COMEOUT HATOFFINTHE
TOPAY? A COURTROOM.
Já, herra dómari, þetta er skjól-
stæðingur minn, Lísa, hinn slas-
aði aðili sem féll niður í kanínu-
holuna...
Við ætlum að sanna vanrækslu
að hálfu eiganda landareignar-
innar, sem lét undir höfuð leggj-
ast að setja upp aðvörunarskilti
við kanínuholuna ...
Hvernig lyktaði málinu þínu í
dag? Dómarinn sagði mér að
taka ofan hattinn inni í réttar-
salnum...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Hvað felst í starfi
þroskaþjálfa?
Frá Þroskaþjálfum á Lækjarási:
VIÐ starfandi þroskaþjálfar á þjálf-
unarstofunni Lækjarási, Stjörnu-
gróf 7, lýsum yfir áhyggjum okkar
á seinagangi samninganefndar rík-
isins og Reykjavíkurborgar í samn-
ingaviðræðum við Þroskaþjálfafé-
lag Íslands.
Lækjarás er þjálfunarstofnun
ætluð fötluðum einstaklingum frá
17 ára aldri, sem hafa takmarkaða
færni sökum aldurs og/eða mikillar
fötlunar til að nýta sér aðra þjón-
ustu.
Markmið okkar er m.a. að veita
fötluðu fullorðnu fólki sérhæfða,
einstaklingsmiðaða þjálfun og
umönnun sem miðast að því að efla
líkamlegan og andlegan þroska,
sjálfstæði og frumkvæði hjá ein-
staklingum. Að viðhalda þeirri
færni sem er til staðar og ennfrem-
ur að mæta minnkandi færni ein-
staklingsins. Þessi upptalning er
langt frá því að vera tæmandi fyrir
það starf sem innt er af hendi á
Lækjarási, en ábyrgð þroskaþjálfa
er mjög mikil gagnvart skjólstæð-
ingum sínum, foreldrum/aðstand-
endum, ófaglærðu starfsfólki,
læknum, sjúkraþjálfurum o.s.frv.
Eða eins og segir í hluta af starf-
slýsingu okkar:
- Þroskaþjálfi ber ábyrgð á fag-
legu starfi á sinni deild.
- Þroskaþjálfi hefur eftirlit og
umsjón með daglegu starfi deildar-
innar og veitir starfsfólki faglega
ráðgjöf.
- Þroskaþjálfí sér um að efla og
viðhalda fæmi skjólstæðinga sinna
og einnig að mæta minnkandi getu
þeirra, t.d. þegar þeir veikjast/eldast.
- Þroskaþjálfí hefur umsjón með
samstarfí við aðstandendur,
tengslastofandi og aðra fagaðila í
samvinnu við forstöðumann og yfir-
þroskaþjálfa.
- Þroskaþjálfí ber ábyrgð á að lyf
séu gefín eftir fyrirmælum læknis
og á geymslu lyíja.
Hér hefur verið stiklað á stóru
um starfslýsingar þroskaþjálfa á
Lækjarási, en störf okkar og skyld-
ur gagnvart okkar skjólstæðingum
eru mun viðameiri.
Ekki má líta fram hjá námi
þroskaþjálfa, en til að komast í
Þroskaþjálfaskóla íslands er krafíst
stúdentsprófi og starfsreynslu með
fötluðum. Námið sjálft er 3 ár og
árið 1999 útskrifast fýrstu þroska-
þjálfamir með B.ed. próf í þroska-
þjálfun.
Að starfa með þroskaheftum ein-
staklingum er mjög sérstakt, vegna
þess að þroskaþjálfinn verður að
þjálfa upp hjá sér ákveðið næmi og
mikla eftirtekt, sem ekki er krafíst
í öðrum mannlegum samskiptum.
Því vegna fötlunar sinnar tjá ein-
staklingarnir sig á mismunandi
hátt s.s. með máli, líkamstjáningu,
svipbrigðum og hljóðum. Því verð-
um við að vera vakandi fyrir ýmsum
smáatriðum eins og svipbrigðum,
breytingum á öndun, húð og lykt.
Við verðum að læra að greina á
milli hvort sé verið að gefa frá sér
vellíðanar- eða vanlíðanarmerki.
Þolinmæði, rólegheit og glaðværð
eru þeir þættir í fari þroskaþjálfa
sem eru hvað nauðsynlegastir til
að geta þjálfað með sér næmi og
eftirtekt sem eru svo mikilvæg fyr-
ir skjólstæðinga okkar.
Þroskaþjálfum og starfsfólki
Lækjaráss finnst sorglegt hvað það
hefur dregist að endurnýja samn-
inga og er það spurning hvort hér
er um þekkingarleysi og/eða
áhugaleysi við okkar samningsaðila
að ræða.
Fyrir hönd þroskaþjálfa á Lækjarási,
HANNA DÓRA STEFÁNSDÓTTIR.
Þroskaþjálfar
á heimilum
Frá þroskaþjálfum á Skálatúni:
ÞROSKAÞJÁLFAR sem vinna á
heimilum þroskaheftra eiga í raun
tvær fjölskyldur. Það er inni á sínu
eigin heimili og á heimili hinna
þroskaheftu.
Allir vita hvað það er að sinna
fjölskyldu og hvað það er að hugsa
um allar þarfir heimilismanna.
Þroskaheftir hafa sömu þarfn og
aðrir þjóðfélagsþegnar og þær
hvorki hverfa né eru settar í bið-
stöðu þegar við förum heim. Þarf-
irnar eru alltaf fyrir hendi og okkar
hlutverk, meðal annars, er að hjálpa
þeim að uppfylla þær eftir bestu
getu. Þetta gerir okkur nær ómiss-
andi í starfi og því virðast launa-
greiðendur okkar (ríki og sveit)
gera sér grein fyrir þar sem þroska-
þjálfar á heimilum geta ekki nýtt
sér verkfallsleiðina í kjarabaráttu.
Við sem störfum innan sambýla
og sólarhringsstofnana megum ekki
fara í verkfall. Hugsanlega gætum
við farið í fjöldauppsagnir vegna
óánægju með launakjör, en þá kem-
ur í ljós að innan þessara heimila
og annarra vinnustaða þroskaþjálfa
eru ekki eyrnamerktar starfsstöður
fyrir þroskaþjálfa.
Hvorug þessara leiða hefur mikil
áhrif út í þjóðfélagið að öðru leyti
en því að launagreiðendur okkar
verða að kosta til aukastarfsfólki.
Þjóðfélagið fínnur ekki fyrir því en
það gera hin þroskaheftu, sem ekki
kvarta eða láta í sér heyra þannig
að almenningur verði þess var.
Finnst ykkur, launagreiðendum,
til of mikils mælst að við förum
fram á mannsæmandi laun þannig
að við getum séð eigin fjölskyldu
farborða og starfað þar sem þörfin
fyrir okkur, þroskaþjálfa, er mikil?
Fyrir hönd þroskaþjálfa á Skálatúni,
JÓNÍNA ÁRNADÓTTIR,
ANNA KR. GUNNLAUGSDÓTTIR,
KOLBRÚN JÓNSDÓTTIR.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fróltir 569 1181, fþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.1S / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 125 kr. eintakið.