Morgunblaðið - 09.10.1997, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 51
|
I
I
I
I
I
I
I
5
I
BREF TIL BLAÐSINS
Heimsendi frestað
Frá Mikael Torfasyni:
ÞÚSUND ára ríkið nálgast og af því
mætti álykta að Vottar Jehóva biðu
í ofvæni. Allt frá því að hreyfingin
var stofnuð upp úr 1870 hafa Vott-
amir haldið því
fram að heimurinn
eins og við þekkj-
um hann færi að
enda. Samkvæmt
þeirra einstöku
Biblíureikningsað-
ferðum hófst niður-
talningin að loka-
orrustunni milli
góðs og ills árið
1914. Vottar Jehóva sögðu heims-
styijöldina fyrri vera stórkostlegt
tákn og að Kristur myndi staðfesta
konungdóm sinn áður en þeir sem
urðu vitni að atburðunum 1914
myndu deyja. Fyrir ótalmarga Votta
var þessi spá góð ástæða fyrir að
spara ekki peninga, hefja hvorki nám
né gera ráðstafanir til greftrunar.
Eins og einn leiðtogi þeirra orðaði
það: „Milljónir núlifandi munu aldrei
deyja.“
Nú sýnist sem allri spámennsku
um komu þúsund ára ríkisins sé lok-
ið. í nýlegu hefti Varðturnsins
(kennslurit Votta Jehóva) viðurkenna
leiðtogar safnaðarins hljóðlega að
Jesús hafi haft rétt fyrir sér þegar
hann sagði: „Enginn veit daginn né
tímann.“ Allar fyrri tilvísanir um
hvenær orrustan verði háð segir
Varðturninn aðeins getgátur. Árið
1914 boðar upphaf endalokanna. En
þeir sem vonuðust eftir að sjá loka-
orrustuna og stofnun ríkis Guðs á
jörð verða nú að bíða. Samt gæti
hver sú kynslóð sem upplifir stríð
og plágur eins og alnæmi orðið vitni
að endalokunum. í stuttu máli er
sagt að hin vaxandi stétt Votta Je-
hóva gæti gert verri hluti en að
kaupa sér líftryggingu.
Ef þessi alvarlega endurskoðun á
væntingum Votta Jehóva dregur úr
opinberuninni, þá er kosturinn sá að
þetta kaupir þeim tíma. Kynslóðin
sem lifði 1914 fer nú óðum hverf-
andi og núverandi trúarleiðtogar
sýna öll tákn um að halda út í heimin-
um, eins og við þekkjum hann, í lang-
an tíma. A síðustu árum hafa Vottar
Jehóva um allan heim verið að byggja
til frambúðar og er ísland engin
undantekning. Nú eru til dæmis sam-
komusalir þeirra hér á landi orðnir
fjórir. I Bandaríkjunum n.t.t. í New
York fylki, hafa þeir nýlega lokið við
byggingu 670 ekra Menntamiðstöðv-
ar. Á lóðinni eru 624 íbúðir, bílskúr-
ar fyrir 800 bíla og matsalur fyrir
1.600 manns. Öldungar safnaðarins
bæði hér á landi og erlendis segjast
ekki vera að fara að kröfum sam-
tímans. „Endalokin er enn nálæg,"
segir Bob Pevy, talsmaður Votta
Jehóva þar ytra. „Við getum bara
ekki tímasett orð Jesú.“
Enn sem komið er hafa þessar
áherslubreytingar ekki komið niður á
ijölda Votta. Þeir eru nú á fjórða
hundrað á íslandi, en um 5,1 milljón
í heiminum. Það sem einkennir þessa
Votta er aðallega þögnin. Þeir viðra
ágreiningsmál sín nánast aldrei við
utanaðkomandi og er nánast ómögu-
legt að fá Votta Jehóva á íslandi til
að ræða þau mál við innlenda fjöl-
miðla.
Hér heima er söfnuðurinn með
eldri sértrúarsöfnuðum íslands.
Fyrsti trúboðinn var Vestur-íslend-
ingurinn Georg Fjölnir Líndal og kom
hann hingað upp úr 1940. Á þessum
tímum voru Vottar Jehóva ofsóttir
um allan heim. í Bandaríkjunum var
þeim stungið í fangelsi fyrir að neita
að sýna hollustu við fánann, betjast
í seinni heimsstyijöldinni og svo
hættu þeir einnig lífi sínu fyrir trúna
með því að neita að þiggja blóðgjöf.
Mikael
Torfason
Allt þetta var gert með vissu um að
stutt væri í að þeir fengju að lifa í
Guðs ríki. Charles Krist, 73 ára eftir-
launaþegi frá Michigan, sat í þijú ár
í fangelsi með 400 öðrum Vottum
fyrir að neita að gegna herþjónustu
í seinni heimsstyijöldinni. „Þetta var
fangelsislíf, en ég notaði tímann til
að nema Biblíuna og bera fagnaðar-
erindið út til annarra fanga,“ minn-
ist hann. En fyrir Charles, og sér-
staklega fyrir yngri Votta (sbr. ís-
lenska Votta), sem ekki kynntust
ofsóknum fyrri tíða (Nasistarnir lok-
uðu marga Votta inni í einangrunar-
búðum), er predikun orða Guðs mikil-
vægari en að verða vitni að endalok-
unum. „Mig langar að lifa til að sjá
það gerast," segir Charles, sem enn
gengur hús úr húsi berandi út fagn-
aðarerindið. „En ef það verður ekki
um minn tíma, verð ég ekki fyrir
vonbrigðum." Við Islendingar meg-
um því eiga von á að um ókomna
framtíð munu Vottar Jehóva banka
uppá hjá okkur með beiðni um að
ræða fagnaðarerindið. Þeir eru
komnir til að vera.
Tilvitnanir og staðreyndir um
söfnuðinn í Bandaríkjunum fengnar
úr Newsweek.
3Myllan leggur
kr. af nverju
Heim i hsbrauði
j til hjálparstarfs.
MIKAEL TORFASON,
ungur rithöfundur,
Asparfelli 8, Reykjavík.
Æl
MYtLAN
<Jtr HJÁLPARSTOFNUN
\Q£/ KIRKJUNNAR
Mikíð væri mjúkur
malbikaði spottinn
Frá Erni Guðmundssyni:
VIÐ Kópavogsbúar höfum í gegnum
tíðina átt því láni að fagna umfram
marga aðra að hafa annað megin
umræðuefni en veðrið, en það eru
gatnamálin hér í bæ. Ár eftir ár,
sumar eftir sumar hafa yfirvöld ver-
ið með yfirlýsingar um að nú eigi
að gera
lokaátak á
götum bæjar-
ins. Gatan
mín er ein af
þeim sem allt-
af hefur verið
skilin eftir og
aldrei neitt
gert hér þar
til í sumar.
Um miðjan
ágúst birtust
hér nokkrir
menn með
stórvirkt
vinnutæki og hófu að grafa götuna
í sundur, gatan skyldi nánast endur-
lögð með öllu því sem tilheyrir.
Nokkuð fannst mér orðið áliðið sum-
ars fyrir svo mikið verk og kom það
líka á daginn, einn þriðji (‘/s) af
götunni var grafinn upp á nánast
einni viku og svo gerðist lítið meira
en það. Og gerist lítið meira en það,
hér mætir á hveijum degi hópur
manna sem messar yfir tólum og
tækjum (svo rækilega að vel má
heyra það inni í stofu), vélarnir eru
líka stundum settar í gang með til-
heyrandi skarki og látum, helst um
áttaleytið að morgni svo að við þessi
heimavinnandi komum okkur nú ör-
ugglega fram úr og tökum daginn
snemma; „morgunstund gefur gull
í rnund!" Rafmagnið er líka tekið af
í tíma og ótíma, án þess að látið sé
vita, yfirleitt þegar maður er að
vinna í tölvunni eða að baka nokkr-
ar kökur í kistuna . .. sérlega heppi-
legt að taka rafmagnið af svona
óforvarindis svo að vinnan sé nú
örugglega alveg ónýt og maður geri
helst ekkert næstu daga. Svo þegar
farið er að afla upplýsinga um hveiju
þetta sæti, þá er enginn ábyrgur.
Bæjaryfirvöld vísa á verktakana,
verktakarnir á vatnsveituna, vatns-
veitan á rafmagnsveituna og þeir
aftur á bæjaryfirvöld! Auðvitað enda
þetta allt með því að maður sest
niður og skrifar bréf í Velvakanda
til að reyna að fá útrás fyrir reiðina
og vonleysið sem grípur mann við
svona undirtektir. Löngu áður en
byijað var á þessum framkvæmdum,
ef framkvæmdir skyldi kalla, feng-
um við sent bréf heim um það hvað
hver og einn ætti að borga fyrir lag-
færingar á götunni, það vantaði
ekki. En allra best er að það virðist
enginn vera ábyrgur fyrir því sem
út af ber og fyrir seinaganginum,
enginn sem hægt er að snúa sér til
og biðja um aðstoð. Að minnsta
kosti ekki bæjaryfirvöld í Kópavogi
það er eitt sem víst er. Þetta er eins
fyrir allar kosningar, menn krossa
sig í bak og
fyrir og lofa
öllu fögru en
daginn eftir
kjördag er svo
bara öxlum
yppt og „því
miður, þetta
er bara svona
og því verður
ekki breytt.“
Gatan mín
er Melgerði í
Vesturbæ
Kópavogs og
einhverra
hluta vegna hafa yfirvöld ekki séð
ástæðu til að laga hana fyrr en núna
þegar allra veðra er von. Við óskuð-
um eftir því að hún yrði tekin fyrir
að vori og kláruð fyrir haustið því
á hveiju vori kemur hún eins undan
vetri, eins og þvottabretti sem veldur
langvarandi sjóveiki að keyra eftir
allt sumarið. I dag keyrum við ekki
út götuna og þeir sem eiga heima
hér í fyrstu húsunum geta ekki einu
sinni lagt bílunum sínum hér. Við
leggjum bílunum út við sundlaug ef
þar eru laus stæði, annars einhver-
staðar í nágrenninu öðrum til ama
og leiðinda. Ætli '/3 af Melgerðinu
(sem er í heildina ekki svo mjög löng
gata) klárist fyrir jól? Með þessu
áframhaldi megum við víst vera
þakklát ef það verður búið að sama
tíma að ári. Guði sé lof að það var
bara 'A sem byijað var á en ekki öll
gatan!
ÖRN GUÐMUNDSSON,
Meigerði 1, Kópavogi.
GATAN Melgerði í Kópavogi
i október 1997.
Lagerhillur
Gæðahirslur á besta verði.
Fagleg ráðgjöf - góð þjónusta.
J^Ofnasmiðjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiöja Ratahrauni 13 • Sími 555 6100
Þú færð varla betra verð...
Hefur þú kynnt þér kosti ISDN?
ISDN mótald, samnetssími, grunntenging
hjá Pósti og Síma, ISDN hugbúnaður og
internetáskrift frá kr. 25.825!
ISDN mótöld
'Meiri hraöi á Internetinu
Tvær símalínur - Aldrei á talil
Hagkvæmt
Gott verð
Þessi er frábær...
RffORE Pentlum 200
ASUS TX-97XE, ATX móðurborð
200 MHz MMX Intel örgjörvi
512K flýtiminni
32MB vinnsluminni SDRAM I Ons
3200MB harður diskur Ultra DMA
24 hraða geisladrif
15" ViewSonic 100 riða skjár
ATi 3D skjákort
Soundblaster h[jóðkort
Windows 95 lyklaborð
Microsoft samhæfð mús
Innbyggt eftirlitskerfi
Windows 95 á geisladisk
Mechwarrior 2 3D leikur
MPEG2 spilari og fleira og fleira...
kr. 1 59.900 stgr.
Móóurborð
Eins/tvcggja örgjörva
BOÐEIND
TðLVUVERSLUN - ÞJÓNUSTA
Mórkin 6 - 108 Rcyt^avik - »imi 588 2081 - fax 58« 20*2
www.bodeLnd.lt
sending af
Nýkomin
- T
Sofasett 3+1+1
stgr. aðeins kr. 205.000
Euro-raðsamningar ^fljhúsqöqn
ávísuná staðgreiðslu Ármúia e - ioe Reykjavik
-------------1 Síml 581-2275 >568-5375 ■ Fax 568-5275
Vönduð gædahúsgögn
á góðu verði!
•y