Morgunblaðið - 09.10.1997, Page 56

Morgunblaðið - 09.10.1997, Page 56
5<J FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Að sjá fyrir vandamál ÞEGAR Ki-istinn Arason fæddist, hinn 17. júní 1971, var pabbi hans, Ari Krist- insson, hljómborðsleikari í hljómsveitinni Trix og hafði aldrei komið nálægt kvikmyndagerð. Arin liðu, drengurinn stækkaði, pabbinn varð kvikmynda- tökumaður og leikstjóri, en reyndi að forða drengn- um frá kvikmyndagerð- inni. I dag hefur Kristinn Arason, eða Diddi, samt sem áður verið fram- kvæmdastjóri þriggja kvikmynda í fullri lengd, og hefur ein þeirra, Blossi/810551, þegar ver- ið frumsýnd. - Hvenær byrjaðir þú að vinna í kvik- myndum? „Eg kom fyrst nálægt kvikmyndagerð þeg- ar pabbi og Friðrik Þór voru að gera Rokk í Reykjavík. Þá sást pabbi aldrei heima og til að sjá mig fékk ég stundum að fljóta með og var látinn búa til rafmagnssnúrur í kjallaran- ^iim hjá Villa Knudsen.“ - Hefur þú lært eitthvað í sambandi við kvikmyndagerð? „Nei, en ég var með mikla ljósmyndadellu þar sem ég lokaði mig inni í myrkrakompu í nokkur ár, en hef svo ekki tekið eina ljós- mynd síðan ég var 16 ára. Annars langar mig að læra framkvæmdastjórn og framleiðslu til að framleiða mínar eigin kvikmyndir. A Islandi hefur það aldrei verið virt að framleiðandinn á mjög stóran hluta í bíó- myndinni því það er venja að leikstjórar framleiða sjálfir sínar hugmyndir. Það mun breytast og framleiðandi mun velja handrit og leikstjóra til framleiðslu." - I hverju felst starf framkvæmdastjóra? „Framkvæmdastjóri bíómyndar tekur handritið, brýtur það niður og býr til tökupl- an. Hann ræður starfslið til myndarinnar í samráði við leikstjóra og framleiðendur. Hann sér um að leysa þau vandamál sem koma upp daglega, og að sjá fyrir vandamál svo þau komi ekki upp. Eftir upptökurn- ar fylgir hann myndinni alveg þangað til hún kemst á hvíta tjaldið." - Þurfa framleiðendur ekki að vera sérstakar manngerðir? „Þetta er bara sölu- mennska, og það er nú eitt sem eg hef ágætis reynslu af. Eg var sölustjóri hjá GP húsgögnum í tæp fjög- ur ár, og var ákveðinn í að snerta ekki kvikmyndagerð. Ég stefndi að því að reka mína eigin verslun en fékk nóg af sölumennskunni og fór í langt sumarfrí. Ég aðstoðaði reyndar þrjá daga í september við leikmynd Djöflaeyjunnar. I maí var ég ennþá í Djöflaeyjunni, og var að semja við Vilhjálm Ragnarsson, framkvæmdastjóra Blossa, um starf í þeirri mynd. Eftir nokkurt þvarg sam- þykkti ég að vera gripill, en heyrði svo ekkert frá Vilhjálmi í tvo daga. Ég fór niður á skrif- stofu Kvikmyndasamsteypunnar og var þá sagt að mæta á tökustað kl. sjö morguninn eftir. Þegar við pabbi vorum að keyra heim spurði ég hann hvað ég ætti að gera í mynd- inni. Þegar hann sagði að ég ætti að vera framkvæmdastjóri fékk ég smávægilegt taugaáfall! Villi var nefnilega búinn að taka við annarri mynd á Irlandi sem flýttist og þurfti því að fara þangað. Ég kom því inn á öðrum töku- degi og mæti á tökustað sem framkvæmda- stjóri, yngri og óreyndari en flestir, eða allir. Þannig byrjaði ég á þessari vitleysu." - __ Var þetta ekkigóð reynsla? „Ég fékk alveg ótrúlegt tækifæri til að læra því það eru forréttindi að fá að læra af mis- tökum. Það er stundum dýrt en maður lærir að kyngja mistökunum og að muna að gera öðruvísi næst. Eftir þetta var ég tökustaða- Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn stór? Sumir vita það strax, aðrir aldrei. Kristinn Arason sagði Hildi Loftsdóttur hvernig hann varð framkvæmdastj óri bíómynda. Morgunblaðið/Kristinn DIDDI ætlar að framleiða kvikmyndir í framtíðinni. stjóri í Maríu, og síðan framkvæmdastjóri dönsku myndarinnar Vildspor og fjölskyldu- myndarinnar Stikkfrí sem pabbi leikstýrir. - Lá beint við að þú tækir að þér fram- kvæmdastjórnina á Vildspor? „Sl. haust kom leikstjórinn Simon Staho til landsins með söguna sína sem hann vildi upp- haflega að gerðist í eyðimörk Arizona. Peter Aalbæk Jensen, sem er stærsti framleiðand- inn á Norðurlöndum, sagði honum að það væri miklu styttra til Islands og að hér væni miklu fallegri eyðimerkur sem hann trúði ekki en kom samt. Ég var fenginn til að sýna Simoni aðstæður á Islandi og seinna bað hann um að ég yrði framkvæmdastjóri. Það var mjög gaman að vera með í verkefni frá upphafi. Ég er nú reyndar búinn að fylgj- ast með þróun Stikkfrí síðan Hrafn Gunn- laugsson sagði pabba sögu sem síðar varð að þessu handriti. Vildspor er nú í eftirvinnslu í Danmörku og verður frumsýnd í mars. Stikk- frí verður íslenska jólamyndin í ár.“ - Ertu þakklátur pabba þínum fyrír að hafa ráðið þigíBlossa án þess að spyrja þigálits? „Já, ég verð að viðurkenna það, og ég er mjög heppinn að fá að starfa við það sem ég hef áhuga á. Eða það er kannski spurning um hvort maður sé heppinn að hafa áhuga á því sem maður starfar við.“ - Hvað er skemmtilegast og leiðinlegast við þetta starf? „Skemmtilegast er þegar maður er að sjá afrakstur þess leiðinlega verða að einhverju góðu.“ Skemmtanir ■ WALL OF SOUND er breskt plötufyr: irtæki sem sérhæfir sig í danstónlist. í vetur stendur Wall of Sound fyrir sérstök- um kvöldum í öllum helstu stórborgum Evrópu og í Reykjavík. Diskótekarinn Touche úr Wiseguys leikur á fyrsta Wall of Sound kvöldinu ásamt Agent Dan úr hljómsveitinni Agent Provocateur og Monkey Mafía. Fyrstu kvöldin verða sem hér segir: Tunglið fimmtudaginn 9. okt. 16 ára aldurstakmark. Sérstakir gestir verða hljómsveitin Súrefni. Föstudags- kvöldið 10. okt. Félagsmiðstöðin Fjörgyn kl. 20.30-23.30 og Tunglið kl. 24-3. Laugardagskvöld Dynheimar Akureyri, 16 ára aldurstakmark. ■ VEGAMÓT, Veghúsastíg, eru opin öll kvöld vikunnar til kl. 1 og til kl. 3 föstu- dags- og laugardagskvöld. ■ SMEKKLEYSUKVÖLD verður haldið í Þjóðleikliúskjallaranum fímmtudags- kvöld til að fagna útgáfu á fjórum fyrstu diskunum í svokallaðri Lúðraseríu Smekkleysu. Þær hljómsveitir sem koma fram að þessu sinni eru: Kvartett Ó. Jóns- son & Gijóni. Rokkabillýband sem leikur af breiðskífunni Karnival í Texas, tilrauna- hljómsveitin Sigur Rós sem gefur sýnis- horn af skífunni Von, PPPönk sem kynnir lög af plötunni PP.ep. og Bag of Joys sem kynnir smáskífuna Eins og ég var motta. Tónleikarnir hefjast kl. 23 en húsið opnar kl. 22. Aðgangseyrir er 300 kr. og verða diskarnir seldir á tilboðsverði á tónleikun- um. ■ KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI heldur tónleika á Gauk á Stöng fimmtudags- kvöid. Hjómsveitin er á forum til Lundúna til að spiia þar á tvennum tónleikum og taka upp nýtt myndband. Tónleikarnir hefjast kl. 22.30 og auk þeirra koma fram hljómsveitimar Emmet og Danmodan. Stínga bongó ber bumbur á milli atriða. Verð 400 kr. ■ GRANDROKK, Klapparstíg 30. Sýru- polkahljómsveitin Hringir leikur fóstu- dags- og laugardagskvöld lög úr ýmsum áttum. Hljómsveitina skipa þeir Hörður Bragason á Farfiza (hljómborð), Kristinn H. Arnason, gítar, og Kormákur Geir- harðsson á trommur. ■ KRINGLUKRÁIN Hljómsveitin SÍN leikur fimmtudags-, fóstudags-, laugar; dags- og sunnudagskvöld frá kl. 22. í Leikstofunni _ fostudags- og laugardags- kvöld leikur Ómar Diðriksson trúbador. ■ KAFFI AKUREYRI Á fimmtudags- og fóstudagskvöld leika Gulli og Maggi tón- list við allra hæfi og taka við óskalögum frá gestum. Á laugardagskvöld er dans- leikur með Rut Reginalds og hljómsveit. ■ VÍKIN, höfn í hornafirði á föstudags- og laugardagskvöld leikur hljómsveitin Lífvera. ■ DANSHÚSIÐ í GLÆSIBÆ Á fóstu- dags- og laugardagskvöld leikur hljóm- sveitin Upplyfting og Ari Jónsson. Húsið opnar kl. 22 báða dagana. ■ SIR OLIVER Gleðigjafínn André Bachman syngur og skemmtir gestum föstudags- og laugardagskvöld. í tilkynn- ingu segir að troðfullt hafi verið út úr dyr- um og að með Andra hafi troðið upp Mófreður gamli, Stefán frá Útistöðum og Laddi sjálfur. Brandarakeppni með bjór- bragði fór svo fram og er ætlunin að end- urtaka leikinn um þessa helgi. Aðgangur er ókeypis meðan húsrúm leyfír. ■ 8-VILLT leikur á írlandi, Kringlunni, föstudagskvöld og síðan á Herrakvöldi Fáksmanna laugardagskvöld. ■ VAGNINN, FLATEYRI Bubbi Morthens heldur tónleika frá kl. 21. Eftir tónleikana leikur Hljómsveit Ómars Diðrikssonar og hún leikur einnig laugar- dagskvöld. Októberfest stendur yfír í mat og drykk. ■ GAUKUR Á STÖNG Á fimmtudags- kvöld verða tónleikar með Kalla og stelp- unum í Kolrössu króknðandi. A föstu- dags- og laugardagskvöld leikur rokk- popp bandið Kirsuber og á sunnudags- kvöld verður síðan Bítlakvöld með Sixties. B.P. og þegiðu Ingibjörg blús-rokka á mánudags- og þriðjudagskvöld og á mið- vikudagskvöldið leikur Skítamórall. ■ NAUSTKJALLARINN er opinn fóstu- dags- og laugardagskvöld. Dúettinn KOS leikur til kl. 3. ■ REYKJAVÍKURSTOFA (áður Geirs- búð). Opið fostudags- og laugardagskvöld til kl. 3. ■ NAUSTIÐ Opið frá fimmtudegi til sunnudagskvölds til kl. 1 og föstudags- og laugardagskvöld til kl. 3. Eldhúsið opnað kl. 19. Marion Herrera frá Frakklandi leikur matartónlist á hörpu. ■ GRAND HÓTEL v/Sigtún Á fimmtu- dags-, föstudágs- og laugardagskvöld leik- ur Gunnar Páll fyrir matargesti frá kl. 19-23. ■ FJÖRUGARÐURINN er opinn um helgina. Veislur haldnar að hætti víkinga. KOLRASSA krókriðandi verður með tónleika á Gauknum fimmtudags- kvöld. Víkingasveitin leikur fyrir dansi. Veit- ingahúsið Fjaran er opið öll kvöld og í há- deginu fimmtudag til sunnudags. Jón Möller leikur ljúfa píanótónlist fostudags- og laugardagskvöld. ■ KÚREKINN, Hamraborg 1-3, verður með dansæfingu föstudagskvöld frá kl. 21. Þess má geta að Kúrekinn er með sýning- arhóp. ■ NÆTURGALINN, Smiðjuvegi 14, Kóp. Á föstudagskvöld leika Lúdó og Stefán. Á laugardagskvöld leikur Hljómsveit Önnu Vilhjálms og á sunnudagskvöld leikur Hljómsveit Hjördísar Geirs gömlu og nýju dansana frá kl. 10-1. ■ HÓTEL SAGA Fimmtudags- og sunnu- dagskvöld er Mímisbar opinn frá kl. 19-1. Föstudags- og laugardagskvöld opið frá kl. 19-3. Hilmar Sverrisson leikur fyrir gesti. ■ GULLÖLDIN Á föstudags- og laugar- dagskvöld leikur hljómsveit Stefáns P. og Pétur Hjálmarsson. Á þriðjudagskvöld fer fram Foster rafmagnspfiumót og hefst það kl. 20. Skráning stendur yfir. ■ FEITI DVERGURINN Á fóstudags- og laugardagskvöld leikur Rúnar Júlíusson. ■ CAFÉ AMSTERDAM Á fimmtudags- kvöld verður Hooch-kvöld. Þrír á 990 kr. SMEKKLEYSUKVÖLD verður haldið í Þjóðleikhúskjallaranum fímmtudagskvöld þar sem fram kemur m.a. hljómsveitin Ó. Jónsson & Grjóni. D.J. Fúsi froskur leikur. Á fóstudags- og laugardagskvöld leikur D.J. Birdie. ■ KAFFI AUSTURSTRÆTI Á fóstu- dagskvöld leikur dúettinn Hálfköflóttir frákl. 23-3. ■ ÍRLAND Á fímmtudagskvöld frá kl. 23.30 leikur Scruffy Murphi og á fóstu- dagskvöld leikur hljómsveitin 8-villt. Á laugardagskvöld leikur Ken Hennigan írska matartónlist og síðar um kvöldið leikur hljómsveitin Karma til kl. 3. * RÁÐHUSKAFFI AKUREYRI Nú um helgina leikur Dægurlagahljómsveit Eyj- ólfs Kristjánssonar. Hljómsveitina skipa auk Eyjólfs Kristjánssonar þeir Örvar Aðalsteinsson, Ingi Gunnar Jóhannsson og Bergsteinn Björgúlfsson. ■ THE DUBLINER Danshljómsveitin Yf- ir strikið leikur föstudags- og laugardags- kvöld. ■ SÓLDÖGG leikur laugardagskvöld á Inghóli, Selfossi. Hljómsveitin hefur verið iðin við spilamennsku að undanfórnu en hún er nú í Stúdíó Sýrlandi að taka upp geisladisk sem kemur út fyrir jól. ■ BUTTERCUP leikur föstudagskvöld á Rósenberg. Hljómsveitina skipa: Valur Sævarsson, Davíð Þór Hlinason, Heiddi og Símon Dungal. Stúlkur eru sérstak- lega boðnar velkomnar og er frítt inn fyrir þær í boði hljómsveitarinnar. ■ HÖRÐUR TORFA heldur áfram hring- ferð sinni um landið og leikur fimmtudags- kvöld á Hótel Reynihlíð, Mývatni, fÖstu- dagkvöld í Deiglunni, Akureyri, laugar- dagskvöld í Leikfélagi Dalvíkur - Ungó, sunnudagskvöld á Hótel Ólafsfirði og mánudagskvöld í Félagsheimilinu Múla, Grímsey. ■ SKÍTAMÓRALL leikur á Hótel íslandi laugardagskvöld á lokahófi KSÍ. Opnað fyrir almenning kl. 23.30. ■ BLUES EXPRESS leikur fimmtudags- kvöld á The Dubliner og laugardagskvöld á Blúsbarnum. ■ GREIFARNIR leika í Stapanum, Kefla- vík, laugardagskvöld. ■ KAFFI REYKJAVÍK Hljómsveitin Hunang leikur föstudags- og laugardags- kvöld. Á sunnudags- og mánudagskvöld leika þau Rut Reginalds og Birgir J. Birg- isson. ■ REGGAE ON ICE leikur föstudags- kvöld í Sjallanum, Akureyri. Með hljóm- sveitinni verður leynigestur. ■ GOS leikur föstudagskvöld í Gjánni, Selfossi, og laugardagskvöld á Kristjáni IX, Grundarfirði. ■ VESTANHAFS leikur um helgina á The Dubliner.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.