Morgunblaðið - 09.10.1997, Page 58
58 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
SARAH Je^sonYoák blaða-
mannafund megrun-
Bandaríkjunum.
EPLIÐ fékk Sarah að gjöf frá Leonore
Tedeshi sem missti 40 kíló með hjálp
„Weight Watchers" megrunarkúrs.
íiniiimii
Gott vero
og lipur
þjónusto
SKUTAN
Hólshrauni Hafnarfirði
sími: 555 1810
► SARAH Ferguson kom
fram í fyrsta sinn opinber-
lega í Bandaríkjunum á
mánudag eftir lát Díönu
prinsessu. Fergie, eins og
hún er gjarnan kölluð, hóf
vinnu sína á vegum „Weight
Watchers International“ og
mun kynna nýjan megrun-
arkúr en markaðssetningu
hans var frestað þegar
prinsessan lést svo skyndi-
lega. „Ég veit að Díana
myndi vilja að ég héldi
áfram. Við verðum að
halda áfram, ekki satt? Við
verðum að gera það vegna
þeirra sem eru í kringum
----1 okkur,“ sagði fyrrum
H hertogaynjan Fergie. í
J nýlegu sjónvarpsvið-
«1 tali lýsti Fergie því yf-
ir að hún saknaði
Díönu og hugsaði til
hennar á hverjum
degi.
Rithöfundurinn
Andrew Morton, höf-
undur ævisögunnar
„Diana, Her True
Story“, bætti 18 þús-
und óhamingjuorðum
Díönu við bókina sem
var gefin út að nýju
eftir lát hennar í end-
urbættri útgáfu. Morton hefur
lýst því yfir eftir dauða
prinsessunnar að hún hafí verið
eina heimild bókarinnar. í bók-
inni kemur meðal annars fram
að nóttina áður en Diana giftist
Karli Bretaprins hafi hún feng-
ið mjög slæmt kast af lotu-
græðgissjúkdómnum sem hrjáði
hana. í bókinni segir ennfremur
að í brúðkaupsferðinni hafi
parið rifist heiftarlega vegna
ástar Karls á Camillu Parker
Bowles.
Þegar Sarah Ferguson var
spurð út í bók Andrew Mortons
sagði hún að bókin væri aðeins
ein af mörgum bókum um
prinsessuna og að hveijum sé í
sjálfsvald sett hvað hann geri.
Barist við
aukakílóin
USTAKOKKAR
OG DÁSAMLEGUR MATUR !
LancbArægur
& elskaðura
Tilboðsréttir
Þessi er sælgaeti:
HVÍTIAUKS-
PASTA
með ristuðum humri
og hörpuskel
AÐBNSKR.1290,-
IIMBaBIBBM
HLAÐBORÐ
SÆLKERANS
Frjálst val:
Súpa,salatbarogheitur
matur, margartegundir.
KR.790/
Barbequegrilluð GRÍSA- LUND meö kaldri grillsósu og rauölauksmarmelaði AÐBNSKR. 1390,- Grillaður LAMBA- VÖÐVI með bakaöri kartöflu og bemaisesósu AÐBNS KR. 1490,-
Glóðuð KJÚKLINGA BRINGA með engifer og hunangl AÐÐNSKR. 1390,- Hún er engri lík þessi LÚÐU- PIPARSTEIK með hvítlauks- og Pernod-rjóma AÐBNSKR. 1390,-
ffimifuliti í o/tmntvindtim réttiun er rjómuliiyutl
xm/ýmt’tþc ^JjöllireijUtir mlatlmrinn otj hinn
ómótsltvSileiji tnlmr ú ejlir.
Tilboð öll kvöld PÖTTURINN
I og um helgar. OG
pflNI
Bamamatseðill
fyrir smáfólkið!
BRRUTfiRHOLTI 22
SlMI 551-1690
FÓLK í FRÉTTUM
STEINUNN Ólína, Þröstur Leó, Ólafur Darri og María í hlutverkum sínum sem starfsmenn Lísubakarís.
Karólína fær sér sopa
bakvið hveitipoka
Eg leik Karólínu sem er kökugerðar-
kona í Lísubakaríi. Hún er um sextugt
og má muna sinn fífil fegri, hún er
orðin ansi drykkfelld," segir María Guð-
mundsdóttir um hlutverk sitt í kvikmyndinni
Perlum og svínum, sem frumsýnd verður í
kvöld. Þar fer þessi óþekkta leikkona með
hlutverk Karólínu kökugerðarmeistara.
„Hún er að laumast með pela bakvið hveiti-
poka í vinnunni,“ heldur María áfram. „Hún
var ágætis kona en hefur lent á skjön við lífið.
Hún á dótturina Mörtu sem hún býr með en
þær eru ekki miklar vinkonur og geta hvorki
verið sundur né saman. Karólína var mjög
flink og gerði góðar kökur og var mikils met-
in hjá sælkerum bæjarins, þannig að vinur
hennar kemur að heimsækja hana eftir að
kökurnar hennar fara að seljast því hann
þekkti aftur handbragðið á kökunum.“
- Hvernig fékastu þetta hlutverk?
„Ég er hjúkrunarfræðingur, komin á eftir-
laun, og byrjaði að leika með Leikfélagi
Mosfellssveitar fyrir 5-6 árum. Það var al
veg frábært að sldpta svona um og fara að
leika. Við höfum verið að taka að okkur
aukahlutverk í bíómyndum, og ég var í
„Djöflaeyjunni“ en var reyndar klippt út.
Þar kynntist ég Óskari og hann hringdi svo í
mig og spurði hvort ég vildi koma og lesa
hlutverk Karólínu. Ég var nú aldeilis hissa
því það eru stórir atvinnuleikarar í þessari
mynd eins og Ólafía Hrönn, Jóhann og Stein-
unn Ólína og allt þetta yndislega fólk. En
Oskar er alveg frábær og kenndi mér mikið,
svo þetta gekk upp þótt ég viti ekki enn
hvemig útkoman er. Það verður að sýna sig
hvort ég passa í hlutverkið eða ekki. Ég held
að Óskar hafi tekið talsverða áhættu með
svona óreynda leikkonu."
- Hvernig leið þér að leika á móti þessum
frægu leikurum?
„Mér fannst nú stundum eins og ég væri
amma þeirra, en þetta er svo skemmtilegt og
hresst fólk að maður fann ekkert fyrir því að
ég ætti ekki heima á meðal þeiiTa. Þau hjálp-
uðu mér öll heilmikið, studdu við bakið á mér
og sýndu mér að ég gæti þetta.
Ég hef ekkert séð myndina ennþá, þetta -
kemur því allt í ljós á frumsýningunni. Ég
kvíði ekkert fyrir, hlakka bara til. Hinir leik-
ararnir eru allir svo góðir að það horfa allir á
þá.“
- Hvað tekur við eftir frumsýninguna?
„Við eram á kafi í leikfélaginu að leika leik-
ritið „Stálblóm“ eftir Robert Harling. Það var
sett upp á Akureyri 1991 og Signý Pálsdóttir
þýddi það. Við erum sex konur með kvenleik-
stjóra og stefnum á að frumsýna í næsta
mánuði.
Hvað varðar kyikmyndaframann held ég að
honum sé lokið. Ég get ekki ímyndað mér að
það sé mikill áhugi fyrir mér, við eigum svo
gott og ungt fólk í leikarastéttinni. En ég
mundi ekki hugsa mig um tvisvar ef mér yrði
boðið annað hlutverk," sagði María Guð-
mundsdóttir leikkona reynslunni ríkari.