Morgunblaðið - 11.10.1997, Síða 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
231. TBL. 85. ÁRG.
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kommúnisk endurreisn vill mynda samsteypustjórn á Italíu
Prodi tekur dræmt
í tilboð kommúnista
Reuters
IBUI í Acapulco í Mexíkó tekur mynd af eyðileggingunni
á bílasteeði símafyrirtækis þar í borg.
Fellibylurinn Pálína
verður 400 að bana
Strassborg, Róm. Reuters.
ROMANO Prodi, fráfarandi forsæt-
isráðherra Italíu, tók í gær dræm-
lega í tilboð kommúnista um að
mynda samsteypustjórn með þeim er
sæti í eitt ár. Kvaðst hann ekki
myndu leiða slíka stjórn en neitaði þó
tilboðinu ekki, sagði að ræða yrði það
af alvöru og ekki í fjölmiðlum. Prodi
baðst á fimmtudag lausnar eftir að
stjórn hans hafði mistekist að fá
þingmenn Kommúnískrai' endur-
reisnar til að samþykkja fjárlaga-
frumvarp minnihlutastjórnar hans.
Lagði hann áherslu á að fall stjórnai’
hans þýddi ekki að möguleikar Italíu
á þátttöku í Efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópu væru fyrh- bí.
Prodi, sem var í gær viðstaddur
setningu leiðtogafundar Evrópu-
A
Arlegir
samráðs-
fundir með
Rússum
Strassborg. Reuters.
RÚSSAR, Pjóðverjar og Frakkar
hyggjast eiga árlega samráðsfundi
til að samræma stefnuna í ýmsum
vandamálum sem að steðja.
Þetta kom fram á leiðtogafundi
Evrópuráðsins sem hófst í Strass-
borg í Frakklandi í gær. Á meðal
þeirra sem stigu í ræðustól var Bor-
ís Jeltsín Rússlandsforseti sem not-
aði tækifærið til að beina spjótum
sínum að Bandaríkjamönnum.
Vandamálin heima fyrir skyggðu á
þátttöku nokkurra þjóðarleiðtoga,
en margir þeirra stöldruðu stutt við
á fundinum sem lýkur í dag.
Aðeins einu sinni áður hefur verið
efnt til leiðtogafundar Evrópuráðs-
ins enda er um fjölmenna samkomu
að ræða því aðildarríki ráðsins eru
nú fjörutíu talsins.
Rússar eru eitt nýjasta ríkið í
ráðinu og í ræðu sinni í gær hvatti
Jeltsín til þess að áhersla yrði lögð
á „óskipta Evrópu". Réðst hann á
Bandaríkjamenn fyrir að reyna að
einangra Moskvu með því að
stækka Atlantshafsbandalagið,
NATO, í austur. Hvatti Jeltsín til
þess að staða ráðsins yrði styrkt en
Rússar líta á það sem nauðsynlegt
mótvægi við NATO og Evrópusam-
bandið.
Svipuð vandamál
Jeltsín tilkynnti ennfremur um
fyrirhugaða samráðsfundi Rússa,
Frakka og Þjóðverja en hann sagði
þjóðirnar eiga við svipuð vandamál
að stríða og að þær ættu að vinna
sameiginlega að lausn þeirra.
Þjóðverjar og Frakkar hafa um
nokkurt skeið hist á hálfs árs fresti
til að ræða stefnuna í
Evrópumálum. Verður fyrsti fundur
ríkjanna þriggja í Sverdlovsk í
Rússlandi.
■ Kohl vill aukið/18
ráðsins í Strassborg, sagðist ekki
reiðubúinn að ræða tilboð kommún-
ista svo fremi sem það byggðist enn
á andstöðu við fjárlagafrumvarpið.
Reyndi hann ekki að dylja reiði sína
er hann hi-eytti út úr sér að „svona
krísa hefði ekki verið nauðsynleg“.
Talsmenn flokks Prodis, Lýðræðis-
lega vinstriflokksins, ítrekuðu orð
Prodis og sögðu flokkinn reiðubúinn
til viðræðna ef kommúnistar létu af
andstöðu sinni en gagnrýndu þá
jafnframt fyrir að leggja fram tilboð-
ið degi eftir að þeir hefðu fellt
stjórnina.
Fausto Bertinotti, leiðtogi komm-
únista, sagði tilboð þeirra, sem kom
flestum í opna skjöldu, ekki þýða að
Kommúnísk endurreisn hefði fallið
Strassborg, Washington. Reuters.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
kvaðst í gær vera hlynntur alþjóð-
legu banni við jarðsprengjum og
hvatti Bandaríkjamenn til að taka
sömu afstöðu.
Jeltsín lýsti þessu yfir nokkrum
klukkustundum eftir að skýrt var
frá því að samtökin Alþjóðleg her-
ferð fyrir jarðsprengjubanni, ICBL,
og leiðtogi þeirra, Jody Williams,
fengju friðarverðlaun Nóbels í ár.
„Jafnvel þótt mikil herveldi á
Vesturlöndum segi nei styð ég
bannið og við ætlum að beita okkur
fyrir því markmiði þar til það næst
og sáttmáli verður undirritaður,"
sagði Jeltsín á blaðamannafundi í
frá fyrri kröfum sínum um að fellt
yrði út ákvæði úr fjárlagafrumvarp-
inu um lækkun lífeyrisgreiðslna. Ný
stjóm yrði að bregðast við „þeim at-
riðum sem við vöktum athygli á“,
sagði Bertinotti en þau voru m.a.
kröfur um styttri vinnuviku, að fjölg-
að yrði störfum og að ekki yrði hrófl-
að við lífeyrisgreiðslum.
Oscar Luigi Scalfaro, forseti ítal-
íu, mun funda með leiðtogum stjórn-
málaflokkanna fram á mánudag en
þá er búist við því að hann ákveði
hvort ástæða sé til að fela einhverj-
um þeirra umboð til stjórnarmynd-
unar eða boða til kosninga, hinna
þriðju á sex árum.
■ Ítalía verður/19
Strassborg þar sem hann sat fund
Evrópuráðsins.
Oljóst var þó hvort Rússar myndu
samþykkja sáttmálann um bann við
jarðsprengjum, sem ráðgert er að
undirrita í Ottawa í desember, eða
hvort þeir vilja frekari'viðræðúr um
málið. Rússneska stjómin gagn-
rýndi sáttmálann þegar um hundrað
ríki samþykktu hann á ráðstefnu í
Osló í liðnum mánuði.
Clinton gagnrýndur
Bandaríkjamenn höfnuðu einnig
sáttmálanum og Jody Williams
gagnrýndi Bill Clinton, forseta
Bandaríkjanna, og kvaðst ætla að
Bonn, Acapulco. Reuters.
ERNESTO Zedillo, forseti Mexíkó,
snéri heim í gær vegna náttúruham-
fara er orðið hafa að minnsta kosti
hringja í hann til að skora á hann að
samþykkja sáttmálann. „Clinton
forseti er helsta hindrunin,“ sagði
hún.
Forystumenn ICBL kváðust telja
að markmið verðlaunanefndarinnar
í Ósló hefði verið að hafa áhrif á al-
menningsálitið í Bandaríkjunum og
knýja Bandaríkjastjórn til að fallast
á sáttmálann um jarðsprengjubann-
ið. Talsmaður Clintons sagði þó að
forsetinn teldi sig ekki undir mikl-
um þrýstingi vegna ákvörðunar
nefndarinnar og myndi ekki breyta
afstöðu sinni.
■ Eykur líkur á/20
400 manns að bana í suðurhluta
landsins. Zedillo var í opinberri
heimsókn í Þýskalandi, en frestaði
henni síðdegis í gær. Fellibylurinn
Pálína hefur valdið mannskæðum
náttúruhamföruni í ríkjunum Guer-
rero og Oaxaca á Kyrrahafsströnd
Mexíkó. Fregnir hermdu í gær að
hundraða manna væri enn saknað.
Veðrið varð hvað verst í borginni
Acapulco síðla á fímmtudag (í fyrri-
nótt að íslenskum tíma), en borgin
er einn vinsælasti ferðamannastað-
ur landsins. í gær höfðu fundist yfír
100 lík, en margra manna var sakn-
að. Mexíkóskir fjölmiðlar greindu
frá því, að um tuttugu þúsund
manns væru heimilislausir og nær
ekkert drykkjarvatn væri að hafa í
Acapulco. Um ein milljón manna
býr í borginni.
Veðurfræðingar sögðu á fimmtu-
dagskvöld að vindstyrkur Páh'nu
hefði minnkað og væri hún nú skil-
greind sem hitabeltisstormur.
Sögðu veðurfræðingarnir að búast
mætti við að Pálína bærist aftur út
yfir sjó og myndi eflast aftur í felli-
byl.
Dómsátt
vegna
óbeinna
reykinga
Miami. Reuters.
FULLTRÚAR tóbaksfyrir-
tækja í Bandaríkjunum
greir.du frá því í gær að þeir
hefðu fallist á að leggja af
mörkum 300 milljónir Banda-
ríkjadala, eða sem svarar 21
milljarði ísl. kr., til að koma á
fót sjóði er úr verði greiddar
árlega 100 milljónir dala, um
sjö milljarðar ísl. kr. Varð
þetta niðurstaða dómsáttar.
Þetta er í fyrsta skipti sem
skaðabótamál, sem höfðað er
gegn tóbaksfyrirtækjum
vegna óbeinna reykinga, fer
fyrir dómstóla. Þúsundir flug-
freyja og -þjóna í Bandaríkj-
unum höfðuðu málið á þeim
forsendum að reykingar í flug-
vélum í innanlandsflugi yllu
þeim heilsutjóni.
Reuters
ÞAÐ var handagangur í öskjunni er leiðtogar fjörutíu aðildarríkja Evrópuráðsins stilltu sér upp til mynda-
töku í gær. Aðstoðarmenn þeirra reyndu að greiða úr flækjunni á meðan leiðtogarnir biðu sallarólegir.
Jeltsín mælir með
j arðsprengj ubanni