Morgunblaðið - 11.10.1997, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
SIGRÍÐUR Hulda Sveinsdóttir og Þorgerður Guðfinnsdóttir,
kennarar í Álftanesskóla.
„Ekki fara!“
í ÁLFTANESSKÓLA í Bessastaða-
hreppi hafa 14 af 17 kennurum
sagt upp störfum. Þeirra á meðai
eru þær Sigríður Hulda Sveinsdótt-
ir og Þorgerður Guðfínnsdóttir, sem
báðar kenna 10 ára bekk, en af
þeim þremur sem ekki sögðu upp
eru tveir leiðbeinendur sem ekki
voru búnir að skrifa undir ráðning-
arsamning og einn nýráðinn kenn-
ari.
„Eg segi upp vegna langvarandi
óánægju með kjör og þeirrar stað-
reyndar að til þess að vera kennari
þarf maður eiginlega að hafa aðra
fyrirvinnu á heimilinu og það er lítil-
lækkandi þegar maður er búinn að
leggja á sig háskólanám. Þar að
auki sýnist manni að óskaplega lít-
ið hafi gerst í samningamálunum
og það litla sem boðið hefur verið
upp á er á þeim nótum að það er
bókstaflega móðgun. Það er í raun-
inni ekki launahækkun heldur ein-
hveijar tilfærslur eins og í síðustu
samningum og við ætlum ekki að
láta bjóða okkur það aftur,“ segir
Þorgerður.
Á að setja kennara í glerbúr?
Sigríður Hulda tekur í sama
streng og bætir við að hún sé afar
ósátt við að þurfa alltaf að vera að
afsaka það að hún sé kennari. Þá
sé neikvæð umræða í þjóðfélaginu
og ranghugmyndir meðal almenn-
ings um að kennarar séu alltaf í
fríi mjög þreytandi.
Þær tala um ófullnægjandi
vinnuaðstöðu í skólunum, sem geri
að kennarar neyðist enn frekar til
að taka vinnuna með sér heim.
„Hvað varðar þennan svokallaða
sýnileika vinnunnar sem formanni
samninganefndar hefur verið svo
tíðrætt um, þá mætti kannski spyija
hvort rétt væri að setja okkur í
glerbúr fyrir utan skólann svo að
það sæist örugglega að við værum
að vinna,“ segir Þorgerður. „Það
er mjög þreytandi að fá það í haus-
inn að maður geri ekki neitt, sé
alltaf í fríi og vinni ekki vinnuna
sína.“
Fögur orð um yfirfærsluna
Báðar tala þær um að kennarar
hafi bundið miklar vonir við yfir-
færslu grunnskólans til sveitarfé-
laganna. „Menn höfðu svo mörg og
fögur orð um þessa breytingu og
kennarar sáu fram á betri tíð og
betri samningsstöðu," segir Þor-
gerður. Sigríður Hulda segir að sér
þyki jákvætt að margir sveitar-
stjórnannenn hafí að undanförnu
lýst stuðningi við kröfur kennara.
Þeir séu hins vegar í erfíðri stöðu,
þar sem yfírfærslan hafi reynst
þyngri í vöfum en ráð var fyrir gert.
Þorgerður tekur fram að kennur-
unum sem nú hafa sagt upp hafí
öllum líkað vel að vinna í Álftanes-
skóla. „Þetta beinist ekki gegn hon-
um eða þessu sveitarfélagi sérstak-
lega, heldur er þetta bara almenn
óánægja með hvernig málin hafa
þróast. Þetta er mjög alvarleg
ákvörðun og það er ekki með glöðu
geði að maður segir upp en það er
bara ekki hægt að láta bjóða sér
þetta lengur," segir hún.
„Það sagði einn nemandi við mig
um daginn: „Þorgerður, þú ert búin
að kenna mér frá því ég var sex
ára, ekki fara!“ Það er ekki laust
við að maður fái svolítinn sting í
hjartað."
rrn iirn rrn 1 QTfilárusþ.valdimarsson,framkvæmdastjóri
Dj/ I IDU'DuL I u/U JÖHflMMPOROflRSOM,HRLLOGGILTUFIFASTEIGrjflSflLI.
Nýkomnar á söluskrá meðal annarra eigna:
Skammt frá Landspítalanum
Nýendurb. 3ja herb. jarðhæð, 71,8 fm, í þribýlishúsi. Sérinng. Sér-
hiti. 25 ára lán kr. 3 millj. Vrnsaéll staður, sanngjamt verð. Tilboð
óskast.
Ný úrvalsíbúð — skammt frá Gullinbrú
Mjög stór 3ja—4ra herb. íbúð á 1. hæð 118,3 fm. íbúðarhæf, ekki
fullgerð. Góð frágengin sameign. Sérþvottahús. Bílskúr. Gamla góða
húsnæðislánið kr. 5,4 millj. með 4,9% vöxtum. Trlboð óskast.
Sogavegur — sólrík — sérh. — bílsk.
Efri haeð 6 herb. um 150 fm. Sérinng. Sérhiti. Sérþvottahús á hæð-
inni. Sólsvalir, innb. bílsk., mikið útsýni. Tilboð óskast.
Einb.hús við Hrauntungu - eignaskipti
Vel byggt og vel með farið steinhús með 6 herb. íb. m.m. Góður
bílsk. Eignaskipti möguleg. Vinsamlegeist leitið nánari upplýsinga.
Þekktur athafnamaður óskar eftir
stóm og góðu einb.húsi, helst í Ártúnsholti.
Ennfremur fjöldi kaupenda á skrá að góðum eignum, m.a I vestur-
og miðborginni.
Fjöldi góðra eigna í skiptum.
Opið í dag, laugardag, kl. 10—14.
Opið mánudag—föstudag kl. 10—12 og ki. 14—18.
XXX
Viðskiptum hjá okkur fylgir ráð-
gjöf og traustar upplýsingar.
Almenna fasteignasalan sf. var
stofnuð 12. júlf 1944.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 552 1150 - 5521370
Orðnar þreyttar á að vinna
krefjandi starf fyrir lág laun
MARGRÉT Kristinsdóttir, kennari í
átta ára bekk Fossvogsskóla, hefur
starfað við kennslu í meira en tutt-
ugu ár. Henni þykir skemmtilegt að
vinna með börnum og vill helst halda
því áfram en nú er svo komið að
hún segir hingað og ekki lengra. Það
sama gerir Aðalheiður Bragadóttir,
kennari í níu ára bekk, sem hefur
starfað við Fossvogsskóla í átta ár
en áður hafði hún unnið sem leið-
beinandi í skóla úti á landi í nokkur
ár. Þær sögðu báðar upp störfum
um síðustu mánaðamót ásamt fimm
öðrum kennurum við skólann.
Þær eru sammála um að það hafi
verið sársaukafull ákvörðun að segja
upp og að hún hafi verið tekin að
vandlega íhuguðu máli. Þær segja
mikil vonbrigði með síðustu kjara-
samninga hafa gert útslagið. „Við
fengum eiginlega ekkert út úr þeim
nema aðeins meiri vinnu,“ segir
Margrét. Þær segja að óánægjan
hafi ólgað lengi og að kennarar hafi
margir hveijir verið að spá í uppsögn
í nokkur ár. Almenn óánægja hafi
verið með kjarasamninga eftir sex
vikna verkfall í hitteðfyrra. „Þannig
að mér finnst betri kostur að segja
upp og sjá svo hvað gerist í þessum
samningum. Ég er alveg tilbúin að
fara ef ég verð jafnóánægð með þá
og síðast, því að mér finnst ég ekki
geta sætt mig við það lengur að
þurfa sjáif að borga kauphækkunina
með meiri vinnu," segir Aðalheiður.
„Ég hef heyrt það á mörgum kenn-
urum, sem enn hafa ekki sagt upp,
að þetta verði síðasti veturinn þeirra
í kennslu ef ekkert róttækt gerist í
komandi samningum,“ segir Mar-
grét.
Umsjón með bekk í einsetnum
skóla á að vera fullt starf
Báðar gagnrýna þær harðlega
þá kjaraskerðingu sem fylgir ein-
setningu skóla og segja það hart að
ekki sé litið svo á að umsjón með
einum bekk sé fullt starf. Aðalheiður
nefnir sem dæmi að hún sé með 27
börn í bekk, sem hún kenni 20 tíma
á viku, og með því móti vanti hana
átta tíma upp á að fá fullt starf. „í
rauninni áttum við ekki að einsetja
skólana fyrr en búið væri að ganga
frá því að umsjón með bekk væri
fullt starf fyrir kennara í einsetnum
skóla en það er enn langt í Iand
með að svo sé,“ segir Aðalheiður.
Aðspurðar hvort nemendur þeirra
tali um uppsagnimar og hafí áhyggj-
ur af því að kennararnir yfirgefi þá,
segja þær báðar að aðeins sé farið
að bera á því. „Auðvitað er það sárs-
aukafullt. Þetta er þriðja árið sem
ég kenni þessum hópi og ég veit að
Morgunblaðið/Ásdís
AÐALHEIÐUR Bragadóttir og Margrét Kristinsdóttir, kennarar
í Fossvogsskóla.
það verður erfitt að skiija við hópinn
á miðjum vetri. Ég verð vör við viss-
ar áhyggjur hjá þeim, þau eru t.d.
farin að spyija hver eigi að kenna
þeim þegar ég fari frá þeim. Þetta
keir.ur losi á börnin, þar sem þau
yngri bindast kennaranum sínum oft
tilfínningaböndum, og það gerir
manni mjög erfitt fyrir með að fara,“
segir Aðalheiður. Nemendur Mar-
grétar eru nýbúnir að átta sig á því
að hún hefur sagt upp. „Þau eru
búin að vera eyðilögð í allan dag,“
segir hún.
Erfiðast gagnvart
börnunum
„Þetta er langerfiðast gagnvart
bömunum," segir Aðalheiður, „því
að við erum ekki að hætta vegna
þess að við séum orðnar svo ofboðs-
lega þreyttar á þeim eða starfinu.
Við erum einfaldlega orðnar þreyttar
á því að vinna erfitt og krefjandi
starf fyrir lág laun.“
Margrét segir við nemendur sína,
þegar þeir spyija hana hvers vegna
hún sé að fara, að hún geti ekki
sagt þeim af hveiju, ástæðurnar séu
svo margar. Það sé þó alls ekki
vegna þess að þau séu svo erfíð eða
ómöguleg. „Ég læt þau vita að mér
þyki vænt um þau, þó að ég sé að
fara frá þeim.“ Foreldrar eru einnig
farnir að hafa samband og láta í
ljósi áhyggjur sínar. „Fólk er að átta
sig á þessu og skilur að manni er
alvara," segir Aðalheiður.
Uppsagnir kennara
Sársaukafull
ákvörðun
MIKIL reiði ólgar meðal grunn-
skólakennara vegna stöðunnar í
kjaramálum þeirra og hefur fjöldi
kennara víða um land sagt upp
störfum, auk þess sem boðað hefur
verið verkfall 27. október nk., hafi
samningar ekki náðst.
í samtölum við kennara sem
sagt hafa upp kemur fram að þeir
hafi haft mikla ánægju af kennara-
starfínu en nú sé þolinmæði þeirra
á þrotum, þeim sé misboðið og
þeir geti ekki lengur unnið starf
sem krefjist annarrar fyrirvinnu.
Kennararnir fara þó ekki dult með
að ákvörðunin um að segja upp
hafi verið sársaukafull, ekki síst
vegna nemendanna.
Síðasti fundur í kjaradeilu
grunnskólakennara og sveitarfé-
laganna var 25. september en eng-
inn árangur varð af honum. Næsti
fundur hefur verið boðaður 14.
október nk.
Álit byggingarnefndar Hafnarhússins
Lækkun byggingar-
kostnaðar óraunhæf
BYGGINGARNEFND um Hafnar-
hús og Safnahús við Tryggvagötu
telur að lækkun byggingakostnaðar
miðað við fyrirliggjandi tillögur að
breytingum á Hafnarhúsinu sé
óraunhæf og skerði öryggi í rekstri
safnsins og hússins í heild. Minnkun
á húsnæðinu myndi leiða til endur-
skoðunar á forsenum og endur-
hönnun á húsnæði safnsins.
í minnisblaði borgarverkfræð-
ings með erindi byggingarnefndar-
innar til borgarráðs, kemur fram
að samkvæmt kostnaðaráætlun frá
því í september 1997 muni kostnað-
ur vegna breytinga á Hafnarhúsinu
vera 530 milljónir en eldri fram-
reiknuð áætlun frá því apríl 1995
gerði ráð fyrir að kostnaðurinn yrði
340 milljónir.
Borgai-verkfræðingur bendir á að
munurinn liggi í 200 fermetra ný-
byggingu í porti hússins og yfír-
byggðri bryggju á milli suður- og
norðurálmu safnsins á tveimur hæð-
um. Ennfremur 155 fermetra
stækkun á tækni- og lagnarými og
785 fermetra fullnaðarfrágangi á
1. hæð í suðurálmu, sem áður var
gert ráð fyrir að yrði skilað tilbúnu
undir tréverk. Miðað við fyrirliggj-
andi áætlun um byggingarkostnað
borgarsjóðs, án kaupverðs og bún-
aðar, er kostnaðurinn 130 þús. á fm.
Stækkun án
kostnaðaráætlunar
í greinargerð borgarráðsfulltrúa
Sjálfstæðisflokks kemur meðal ann-
ars fram að ekkert tillit sé tekið til
hugmynda starfshóps borgarráðs
um nýtingu á 1. hæð hússins. Ljóst
sé að málið hafí verið komið langt
áleiðis án þess að tekin hafi verið
formleg ákvörðun um þá stækkun
á aðstöðu undir listasafn sem nú-
verandi tillögur gera ráð fyrir og
án þess að fyrir lægi kostnaðaráætl-
un upp á tæpar 700 milljónir.
„Kostnaður þessa verkefnis er
of mikill og samræmist ekki þeirri
forgangsröðun sem sjálfstæðis-
menn telja að eigi að vera í nýtingu
skatta borgarbúa,“ segir í greinar-
gerðinni. „Ljóst er að uppbygging
á innra starfi grunnskólanna og
málefni aldraða munu kosta mikla
fjármuni og forgangsröðun í listum
á ekki að vera sú að byggja slíkt
safn á kostnað hugmynda um tón-
listarhús. Það mun óhjákvæmlega
gerast þótt R-listinn muni eflaust
gefa annað í skyn.“