Morgunblaðið - 11.10.1997, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMIINIGAR
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 35
KRISTÓFER SIGVALDI
SNÆBJÖRNSSON
+ Kristófer Sig-
valdi Snæ-
björrisson fæddist i
Oiafsvík 6. maí
1918. Hann lést á
heimili sínu, Jökui-
grunni 6 í Reykja-
vík, að kvöldi mið-
vikudagsins 1. októ-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Guðrún Mar-
ía Vigfúsdóttir, hús-
móðir, f. 28. nóv.
1886 í Landakoti í
Staðarsveit, d. 8.
maí 1923, og Snæ-
björn Þorláksson,
húsasmiður á Búðum, í Ólafsvík,
á Hellissandi og í Reykjavík, f.
7. ágúst 1884 í Gilhaga, As-
hreppi, A-Hún., d. 19. okt. 1974.
Alsystkini Kristófers eru Ast-
hildur Gyða, f. 6. febr. 1911, d.
29. jan. 1914, Helga Ragnheið-
ur, f. 3. júlí 1913, húsmóðir í
Reykjavík, og Þorlákur, f. 23.
des. 1921, fyrrverandi vitavörð-
ur á Svalvogum, nú búsettur á
Þingeyri. Hálfsystkini Kristó-
fers samfeðra eru Guðrún Mar-
ía, f. 2. febrúar 1933, búsett í
Reykjavík, og Auðunn Svein-
björn, f. 4. ágúst 1936, vélfræð-
ingur í Reykjavík.
Kristófer kvæntist 1946 eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Svan-
hildi Snæbjörnsdóttur, en þau
höfðu hafið sambúð nokkru
fyrr. Hún fæddist 30. nóv. 1922
á Hellissandi, dóttir hjónanna
Steinunnar Valgerðar Bjarna-
dóttur, f. 23. okt. 1894 í Kefla-
vík, d. 17. nóv. 1925 á Hellis-
sandi, og Snæbjarnar Einars-
sonar, sjómanns á Hellissandi,
f. 11. des. 1893 á Hellissandi,
d. 26. des. 1990. Börn þeirra
eru: 1) Gunnar Már, f. 19. júlí
1944, fyrrverandi sveitarstjóri á
Hellissandi, síðar skrifstofu-
maður í Reykjavík, kona hans
var Guðrún Cyrus-
dóttir, en þau
skildu, þau eiga þrjú
börn. Sambýliskona
hans er Auður Jóns-
dóttir. 2) Steinunn
Jóna, f. 16. júlí 1945,
húsmóðir og starfs-
maður Pósts- og
síma í Reykjavík,
maður hennar er
Lúðvík Lúðvíksson,
trésmiður og
slökkviliðsmaður,
og eiga þau fjögur
börn. 3) Sigurjón, f.
21. mars 1947, bif-
reiðarstjóri á Hellis-
sandi, kona hans er Sigurlaug
Hauksdóttir, húsmóðir, og eiga
þau tvær dætur. 4) Snæbjörn,
f. 5. apríl 1950, verktaki á Snæ-
fellsnesi, kona hans er Kristín
Sigurbjörg Karlsdóttir og eiga
þau einn son. 5) Svanur Kristó-
fer, f. 29. des. 1953, bifreiðar-
stjóri og vélstjóri á Hellissandi,
kona hans er Anna Bára Gunn-
arsdóttir og eiga þau þrjú börn.
6) Þröstur, f. 18. maí 1956,
starfsmaður við höfnina á Rifi,
kona hans er Sigurbjörg Erla
Þráinsdóttir og þau eiga þrjú
börn. 7) Kristinn Valur, f. 10.
maí 1962, rafeindavirki í
Reykjavík, kona hans er Asdís
Marísdóttir Gilsfjörð og eiga
þau tvær dætur. 8) Guðmundur
Órn, f. 19. nóv. 1963, d. 18. okt.
1969.
Kristófer og Svanhildur áttu
heima á Hellissandi til ársins
1992 er þau fluttust að Hrafn-
istu í Reykjavík. Kristófer
stundaði lengst af bifreiðaakst-
ur, annaðist m.a. vöruflutninga
á milli Hellissands og Reykjavík-
ur um árabil. Einnig fékkst hann
við fiskverkun.
Útför Kristófers fer fram frá
Ingjaldshólskirkju í dag og hefst
afhöfnin klukkan 14.
Þegar vinur minn Kristófer Snæ-
björnsson er dáinn, vil ég sjálfur og
fjölskylda mín senda Svanhildi konu
hans og börnum þeirra og fjölskyld-
um þeirra innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Kristófer var góður drengur og
harðduglegur og fylginn sér. Marg-
an greiðann gerði hann mér og fjöl-
skyldu minni meðan hann var í vöru-
flutningum og eins eftir að hann fór
að stunda fiskverkun, var að gella
með góðum árangri.
Ég veit að Guð geymir og blessar
Kristófer og launar honum vel unnin
störf og alla hans hlýju og brosið
hans sem ég aldrei gleymi. Blessuð
sé minning hans og með mér mun
hún lifa, því minning um góðan
dreng lifir ævinlega.
Við sendum Svanhildi og börnun-
um innilegar samúðarkveðjur.
Eggert Ingimundarson,
Hellissandi.
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast tengdaföður míns Kristó-
fers Snæbjörnssonar, sem andaðist
1. október sl. Ekki er það meining
mín að skrifa neina lofræðu um
Kristófer, enda ekki þörf á því. Hann
kynnti sig best sjálfur með hógværð
sinni og hlýju.
Kristófer var einn af þeim bestu
og ljúfustu mönnum sem ég hef
kynnst. Þín er sárt saknað, en okkur
er sagt að við skulum ekki hryggj-
ast þegar við skiljum við vini okkar,
því að það sem okkur þykir vænst
um í fari þeirra verður ljósara í fjar-
veru þeirra.
Elsku Svanhildur og fjölskylda,
Guð styrki ykkur í sorginni.
Kæri Kristófer, við sjáumst síðar.
Þín
Sigurlaug.
Elsku afi.
Það er svo margt sem mig langar
til að segja en einhvernveginn skort-
ir mig orð. Ég veit bara að ég sakna
þín meira en þú getur ímyndað þér.
Aldrei datt mér í hug að ég þyrfti
að kveðja þig strax en svona er víst
lífið og verð ég líklegast að sætta
mig við það. Þó þú sért ekki lengur
til staðar þá á ég alltaf minninguna
um þig, hún verður aldrei tekin frá
mér, hún lifir í hjartanu mínu og
eflist hveija stund því þú verður allt-
af hjá mér, það er alveg sama hvar
ég verð.
Elsku afi, takk fyrir allt, takk
fyrir að hafa verið til, takk fýrir að
hafa verið afí minn, því betri afa
var ekki hægt að finna. Ég mun
alltaf elska þig og þú munt alltaf
verða hluti af mér.
Elsku amma, megi Guð vera með
þér.
Þín
Svanhildur.
Við sem skrifum þessar línur
þekktum Kristófer á mismunandi
hátt, annars vegar sem kæran
frænda og fjölskylduvin frá bam-
æsku, og hins vegar sem traustan
og góðan vin síðar á lífleiðinni. Kri-
stófer var aðeins fimm ára þegar
hann missti móður sína. Fjölskyldan
bjó í Ólafsvík og var í þann veginn
að flytjast til Hellissands, þegar móð-
irin dó. Kristófer fluttist með föður
sínum til Hellissands og ólst upp hjá
honum, en hin systkinin voru send í
fóstur. Fyrir ferminguna gekk Kristó-
fer til spuminga í Ólafsvík og hélt
þá til hjá móðurbróður sínum Guð-
brandi Vigfússyni og Elínu Snæ-
bjömsdóttur konu hans, sem þá höfðu
nýlega stofnað heimili. Var mjög
kært með þeim frændum og bundust
þau Elín sérstökum vináttuböndum.
Hefur móðurmissirinn ef til vill átt
sinn þátt í því. Var síðan alltaf mjög
náið samband á milli fjölskyldnanna
eftir að Krisófer stofnaði heimili, sem
haldist hefur óslitið síðan. Steinunn
dóttir þeirra dvaldist á barnsaldri oft
hjá Guðbrandi og Elínu í Ólafsvík,
var m.a. hjá þeim í tvo vetur þegar
hún gekk þar í skóla. Hefur hún
reynst þeim sem önnur dóttir. Eftir
að Elín dó 1993 hefur verið nær
daglegt samband á milli Kristófers
og Guðbrands, þannig að Kristófer
hringdi á morgnana, en Guðbrandur
á kvöldin, áður en hann fór að sofa.
Eitt af aðaláhugamálum Kristó-
fers var veiðiskapur, laxveiði og sil-
ungsveiði. Leitaði hann uppi veiði-
vötn og ár hingað og þangað á land-
inu og dvöldust þau hjónin þá oft í
sumarbústað í námunda við góðan
veiðistað. Eftir að þau fluttust til
Reykjavíkur notaði hann flestar
stundir sem gáfust til að fara upp
í Elliðavatn eða Reynisvatn og gerði
síðan að veiðinni af mikilli snyrti-
mennsku og vandvirkni, þegar heim
kom. Kom hann oft til okkar í Eikju-
voginn, færandi hendi með silung
eða lax tilbúinn í pottinn eða reykt-
an í neytendaumbúðum. Ef enginn
var heima þegar hann kom, skildi
hann pokann eftir við útidyrnar. I
þessum heimsóknum sínum var Kri-
stófer oftast á hraðferð og mátti
sjaldnast vera að því að stansa. Það
var þá helst að hann gæfi sér tíma
til að tína nokkra ánamaðka í garðin-
um fyrir veiðiferð næsta dags. Eftir
að þau hjónin fluttust suður, fór
Kristófer að stunda golf, pútt, á
Hrafnistu og náði þar góðum ár-
angri. Vann hann til margra verð-
launa í þeirri grein, enda var hann
mikill keppnismaður.
Svanhildur og Kristófer bjuggu
lengst af á Hellu á Hellissandi og
stundaði Kristófer vörubílaakstur.
Hann var mikill áhugamaður um bíla
og vildi ekki aka nema góðum og
traustum bíl. Þau fluttust til Reykja-
vík haustið 1992 og bjuggu síðan í
íbúð Hrafnistu við Jökulgrunn.
Kristófer var fremur alvörugefinn og
vildi lítið láta á sér bera, en hafði
þó fastar og ákveðnar skoðanir. Hann
var kappsamur og harðduglegur,
vandvirkur við allt sem hann gerði,
tryggur, traustur, örlátur og hjálp-
samur, en fyrst og fremst var honum
mjög annt um fjölskyldu sína. Er það
einkenni marga í móðurætt hans.
Kristófer varð bráðkvaddur á
heimili sínu að kvöldi 1. okt. sl. á
áttugasta aldursári. Hann hafði fyrr
um daginn verið uppi í vatni að veiða
og lauk við að gera að aflanum eins
og venjulega. Eftir kvöldmatinn sett-
ust þau hjónin fyrir framan sjón-
varpið og þar sofnaði hann. Fréttin
um lát hans kom skyndilega og á
óvart, enda þótt hann hefði kennt
nokkurs lasleika að undanförnu og
legið á Vífílsstöðum nokkra daga í
síðasta mánuði.
Við kveðjum Kristófer Snæbjörns-
son með söknuði og flytjum honum
sérstakar þakkir frá Guðbrandi móð-
urbróður hans fyrir langvarandi vin-
áttu. Svanhildi, börnum þeirra,
tengdabörnum, barnabörnum og
barnabarnabörnum vottum við inni-
lega samúð.
Guðrún Guðbrandsdóttir og
Guttormur Þormar.
Elsku afi, mig langar til að segja
bless við þig, og ég vildi að ég gæti
spólað til baka a.m.k. um nokkur
ár. Það er svo margt sem rennur
um huga minn og ég vildi að þú
værir hér en ég veit að þú verður
ætíð hjá okkur. Ég vona að þú eigir
góðar minningar um okkur, eitt er
víst að ég á margar fallegar minn-
ingar um þig, sérstsaklega þykir
mér vænt um þær stundir sem þú
áttir með okkur í sumarbústöðum á
liðnum sumrum, þú varst alltaf tilbú-
inn til að spila við okkur, fara með
okkur að veiða og manstu þegar við
bónuðum bílinn?
Þótt það sé erfitt að sætta sig við
það að þú sért horfinn og að við
eigum aldrei eftir að sjá þig aftur
hef ég altlaf minningarnar um allar
þessar stundir. Það er svo mikið sem
mig langar að segja en það myndi
ekki komast fyrir í þessu blaði. Ég
mun alltaf elska þig, afi.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Guð geymi þig, elsku afi.
Dagný Thelma Þrastardóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
systir og amma,
MARGRÉT EYRÚN HJÖRLEIFSDÓTTIR,
Grettisgötu 20a,
andaðist á Landspitalanum að kvöldi mánu-
dagsins 6. október.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 13. október kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Bernharð Guðnason,
Hjörleifur Guðni Bernharðsson, Hugrún Þorsteinsdóttir,
Ágústa Guðrún Bernharðsdóttir, Hákon Arnar Sigurbergsson,
Bernharð Margeir Bernharðsson,
Hrönn Bernharðsdóttir, Gunnar Haraldsson,
Guðmundur Hjörleifsson
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KLARA TRYGGVADÓTTIR,
áður búsett
í Vestmannaeyjum,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn
9. október.
Tryggvi Sigurðsson, Sigríður Ólafsdóttir,
Arndfs Birna Sigurðardóttir,
Garðar Sigurðsson, Bergþóra Óskarsdóttir,
Óskar Hallgrímsson, Kolbrún Óskarsdóttir,
Hallgrímur Hallgrímsson, Steinunn Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn og faöir okkar,
SVERRIR BJÖRNSSON,
Sólvailagötu 39,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 15. október kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á
Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Laufey Helgadóttir,
Matthias Sverrisson,
Þráinn Sverrisson.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við and-
lát og útför
DAGBJARTS SIGURÐSSONAR,
Álftagerði,
Mývatnssveit,
sem lést sunnudaginn 14. septmeber sl.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki sjúkra-
hússins á Húsavík fyrir hlýju og nærgætni við
umönnun hans síðustu misserin.
Börn hins látna og fjölskyldur þeirra.
+
FRÍMANN KRISTINN SIGMUNDSSON,
Grenibyggð 11,
Mosfellsbæ,
lést fimmtudaginn 9. október.
Aðstandendur.
+
Móðir mín elskuleg,
ÁSDÍS AÐALSTEINSDÓTTIR,
Efstasundi 96,
er látin.
Aðalsteinn Hallgrímsson.