Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 3

Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997 B 3 Guðmundar Sivertsen, greiðslu skólakostnaðar í þrjú misseri yfir- standandi árs. Guðmundur Sivert- sen var af Gaimard settur í mennta- stofnun de. M. Pelassy, rue des Postes, þar sem hann hlaut mjög góða menntun, þar á meðal í tónlist og skilmingum. Eftirfarandi bréf hans til Galmards frá 27. júní 1837 ber þess vitni, en þá virðist hann vera í góðri heimavist. Hann er m.a. óþolinmóður vegna tafa við innritun til prófs í Sorbonne og biður Gaimard um að kippa í tauminn, sem virðist hafa tekist, því Guð- mundur Sivertsen hlaut gráðuna Bachelier es Lettres frá Sorbonne. I bréfinu segir: Mér er heiður að því að flytja M. Gaimard virðingu mína og segja honum að ég kom heim til hans kl. 9.30 í morgun. Par sem ég hitti hann ekki heima lagði ég leið mín a til M. le Baron Taylor (hann var for- seti Minjanefndar borgarinnar og áhi-ifamaður í menningu og listum) þar sem ég beið til kl.11.30. Þar eð ég var úrkula vonar um að hitta hann þar og M. Taylor var að fara út fór ég. Eg vildi líka tilkynna M. Gaimard að ég er á kafí í að fínna flautu. Eg hefí sagt við einn af félög- um mínum, sem leikur fyrstu flautu í leikhúsinu, að einn bræðra minna, sem sé listamaður úti í sveit, vilji kaupa góða flautu og beðið hann um að segja mér hvert sé listamanns- verðið á slíkum grip. Hann segir að fyrir góða flautu þurfí 250-230 franka. Það er verðið sem amatörar eru látnir borga 300 fyrír. Hann kveðst mæla með þessu verði og að hann skuli fá það fyrir mig svo ég verði ekki hlunnfarinn...“ Að vel fór á með þeim Guðmundi og fóstra hans vitnar þetta bréf frá 12. júní 1837 til Gaimards um: „Við ætlum að hittast á miðviku- dag eða fímmtudag, en til að ég geti faríð út verðið þér að láta mig hafa nótu til M. Plassy, því annars segir hann að þér hafíð aðeins gefíð hon- um fyrírmæli um að ég megi fara út á sunnudögurn. I gær beið ég eftir yður fram að hádegi, en þar sem ég hélt að þér hefðuð farið til Versala þá notaði ég tímann til að spóka mig það sem eftir var dagsins og kom heim á réttum tíma. Eg eyddi 1 tveimur tímum í skotsalnum hjá M. , Ladez við að horfa á bróður hans skjóta með úrvalsgríp frá Italíu. Við gætum kannski faríð næsta mið- vikudag til M. Saint-Marc Géra- ' hardin: Mælt var með tveimur af nemendum M. Maury við hann og voru báðir teknir. Þó held ég að þeir hafí verið þeir lélegustu af okkur öllum." Og bókarhöfundur hefur bætt við eftir að hafa lesið heimildir, og sýnir i það að Guðmundur hefur verið fat- I aður á góðum stöðum: „Gaimard bar mikla umhyggju fyrir sínum unga skjólstæðingi. Hann lét klæð- skera Politekníska skólans sauma föt á hann, MM Vilmette og Vogt 25 rue Croix-des-Petit-Champs; en þessi ungi íslendingur, rótlaus og rómantískur að eðlisfari, hlaut í Frakklandi ömurleg örlög.“ Þarna vísar hann í endalok Guðmundar Sí- vertsen sem við komum að svolítið ' síðar. Benedikt Gröndal segir kald- | hæðnislega í Dægradvöl að hann , hafi komist í mikla hylli hjá Gaimard og öðrum höfðingjum, orð- ið embættismaður og steypt sér eða dottið út um glugga í Neapel og svo dáið. Gröndal vísar um þetta í La- bonne. Stökk út um glugga Dr. Henri Labonne, ritari Land- I fræðifélagsins í París segir svo frá ^ piltinum Guðmundi Theodori Sí- l vertsen í riti sínu 1888 um ferðalag ’ um ísland og Færeyjar, að hann sé annar þeirra ungu Islendinga sem voru menntaðir á kostnað frönsku ríkisstjórnarinnar: „Hann samdi sig á skömmum tíma að siðum Parísar- búa, talandi tungu okkar á jafnasna- legan hátt og varð í raun fósturson- ur Gaimards, sem kom honum í að verða aðstoðaryfirlæknir. Hann var I orðinn einn af glæsilegustu liðsfor- fc ingjum í Afríkuher okkar, þegar k velgerðarmaður hans gerði boð fyr- “ ir hann. Gaimard tilkynnti honum fírna glaður að til stæði að hækka hann til majórstignar og þeir ákváðu að ferðast saman um Ítalíu til að fagna þessum gleðilegu tíma- mótum. En í Napóli batt þetta ves- alings barn Norðursins af einhverj- um óþekktum ástæðum enda á líf sitt með því að kasta sér út um glugga". Óg Labonne bætir við að kannski hafi það að hafa fyrir aug- um Vesuvius fyllt þennan óláns- mann söknuði og heimþrá og minnt hann á eldfjöllin heirna..." Semsagt að heimþrá hafi grandað honum. Enginn veit í rauninni hvað kom yfir Guðmund og sumir trúa illa sögunni um að hann hafi ætlað að fyrirfara sér. Hann átti bróður í Kaupmannahöfn, Bjarna Sivertsen, og munu þeir bræður alltaf hafa skrifast á. Bjarni var mikill náms- maður, varð stúdent úr Bessastaða- skóla með mjög góðum vitnisburði 1836, sama árið og bróðir hans fer til Parísar og tók þar tvö lærdóms- próf 1837 með fyrstu ágætiseinkunn og lauk skriflegu prófi í málfræði 1843, en þá var heilsa hans, sem lengi hafði verið veil, að þrotum komin. Hann komst þó heim til for- eldra sinna og lést á heimili þeirra úr meinsemd í hné 1844. Bréfin milli þeirra bræðra virðast ekki hafa komið heim með honum. Hafa a.m.k. ekki fundist hér. Þarna endar saga þessa efnis- manns Guðmundar Sívertsen, sem var orðinn læknir og einn af virt- ustu liðsforingjum í her Frakka, l’Armé d’Afrique de Nord. Hvað gerðist veit enginn. Einhver heim- ildalaus orðrómur kom upp, kennd- ur við Benedikt Gröndal, um að hann mundi hafa verið fallinn fyrir absintinu, þeim hinum görótta anis- drykk, en ekki gat ég fundið þau ummæli Benedikts þar sem hann talar um Guðmund í Dægradvöl. Ekki er heldur vitað nákvæmlega um dánardægur hans né hvar hann er grafinn. E.t.v. má finna það í skráningarskýrslum hersins úti í Vincennehöll, sem ég hafði ekki tækifæri til að leita að, með reynslu af því hve óendanlega tafsamt og óaðgengilegt það er. Sigurður segir að Jean Lavie hafi ekki fundið neitt í plöggum Gaimards varðandi afdrif Guðmundar Sívertsens. Annar fslendingur í París Dr. Labonne talar í sinni grein um tvo íslenska pilta sem Paul Gaimard hafi fengið heimild hjá konungi til að mennta í París. Hvað varð um hinn? Benedikt Gröndal segir að „hinn var enginn kosinn". En í myndum þeim sem leiðangur Gaimards gerði af Islendingum er mynd af ungum manni, Kristjáni Gunnlaugi Briem, syni Gunnlaugs Briem sýslumanns og Valgerðar Ámadóttur prests í Holti, sem kann að vera ástæðan til þess að haldið var að hann hefði farið með Gaimard. En hann var þá þegar í París. Dr. Labopne segir í ferða- sögu sinni um Island frá þessum tveimur piltum undir sama for- merki, enda eru myndirnar af þeim úr „Myndum Mayers“ eins höfund- armerktar. Hann segir: „Þegai- ég kom inn í stofuna (í Hruna), sá ég þessum góða presti til mikillar furðu mynd sem ég þekkti strax eftir að hafa séð hana í frönsku riti. Þessi mynd var árituð af Mauri og letrað á hana „sam- Ert þú að tapa réttindum? Eftirtaldir lifeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 1996: Lífeyrissjóður Austurlands Lífeyrissjóður Norðurlands Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi Lífeyrissjóður Bolungarvíkur Lífeyrissjóður sjómanna Lífeyrissjóður Vestfirðinga Lífeyrissjóðurinn Framsýn Lífeyrissjóður Suðurnesja Lífeyrissjóður Vestmanneyinga Lífeyrissjóðurinn Hlíf Lífeyrissj. verkafólks í Grindavík Lífeyrissjóður Vesturlands Sameinaði lífeyrissjóðurinn FAIR ÞU EKKI YFIRLIT en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en I, nóvember nk, Við vanskil á greiðslum iðgjalda I lifeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna: ELLILÍFEYRI MAKALÍFEYRI BARNALÍFEYRI ÖRORKULÍFEYRI liðBIIU IGII3I pms í lögum um ábyrgdarsjód launa segir meðal annars: Til þes að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyris- sjóði til afrit launaseðla fyrir það tlmabil, sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður ein- ungis ábyrgur fyrír réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því markí sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunn- ugt um iðgjaldakröfuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.