Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Sekt fyrir að brugga HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 34 ára mann til greiðslu 300 þúsund króna sektar fyrir framleiðslu á áfengi. Maður- inn bar að hann hefði drukkið áfengið sjálfur og gefið vinum sín- um hluta þess. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa framleitt 250-300 lítra af sterku áfengi frá hausti 1996 og fram í mars á þessu ári og fyrir að hafa framleitt í lok mars 32,5 lítra af sterku áfengi og 211 lítra af gambra, sem hann hugðist breyta í sterkt áfengi með eimingu. Þetta áfengi lagði lögreglan hald á þegar leitað var á heimili hans í Mosfells- bæ. Skuldugur en seldi ekki Maðurinn játaði framleiðsluna sem blasti við lögreglu á staðnum, en hélt því fram að frá síðasta hausti og fram til mars hefði hann í mesta lagi framleitt 50-60 lítra. Framleiðslan hefði í fyrstu gengið illa, en í nóvember hefði hún verið orðin ágæt. Maðurinn kvaðst vera stórskuldugur, en hann hefði ekki bruggað til tekjuauka, heldur til að hafa nóg að drekka fyrir sjálfan sig. Morgunblaðið/Golli Borgin í jólaskrúðann ENN er rúmur mánuður til jóla en borgin er engu að síður smám saman að færast í jóla- skrúðann. Verið var að selja upp jólatré við verslanir á Lauga- veginum í gær og innan skamms lýsa marglitar skreytingar í skammdeginu á götum borgar- innar. Rannsókn á geðheilbrigði í átta evrópskum borgum Aldraðir Islendingar síður þunglyndir TÍÐNI þunglyndis meðal aldraðra á aldrinum 85-88 ára er mun minni á íslandi en í átta borgum í Evrópu, samkvæmt rannsókn, sem gerð hefur verið á geðheilsu rúm- lega 13 þúsund einstaklinga. Hallgrímur Magnússon læknir kynnti hluta af langtímarannsókn á geðheilsu aldraðra íslendinga og bar saman við rannsókn sem gerð hefur verið í átta borgum í Evr- ópu, á málþingi í geðheilbrigðis- fræðum, sem haldið var um síð- ustu helgi til heiðurs Tómasi Helgasyni prófessor en Hallgrím- ur tók við langtímarannsókninni af Tómasi. Úrtakið í íslensku rann- sókriinni er hópur einstaklinga, sem fæddir eru á þriggja ára tíma- bili og hefur verið fylgst með hon- um með tilliti til geðheilsu allt frá unglingsárum og fram undir ní- rætt. „Með þessu móti er hægt að sjá hvemig geðsjúkdómar þróast með aldrinum, fylgjast með tíðni sjúkdómanna og hvaða breyting- um þeir taka,“ sagði Hallgrímur. „Rannsóknin hefur frá upphafi vakið mikla athygli erlendis og er ávallt beðið með eftirvæntingu eft- ir niðurstöðum úr henni þegar þær eru birtar.“ Upphaflega beindist íslenska rannsóknin að öllum geðsjúkdóm- um en þegar úrtakið fór að nálgast efri ár beindist hún fyrst og fremst að þunglyndi og heilabilun en það eru erfiðustu geðsjúkdómarnir þegar fólk eldist. I ljós kom að 15% Þjást hins vegar af svefnleysi, slapp- leika, lystarleysi og missi áhuga reyndust þjást af alvarlegri heila- bilun og önnur 15% vom með væg- ari bilun þannig að um 30% á aldr- inum 85-88 ára reyndust vera með heilabilun. „Við vomm fyrst til að koma fram með öragga tíðnitölu yfir þunglyndi hjá fólki á aldrinum 85-88 ára,“ sagði Hallgrímur. „í ljós kom að um 7-10% þjáðust af þunglyndi hér á landi og er athygl- isvert að í samanburði við rann- sóknir sem gerðar hafa verið í átta borgum í Evrópu er tíðni þung- lyndis minnst hér á landi. Munchen er efst með tæplega 20%, Berlín er með rúm 13%, Liverpool er með 8% en London er með 14% og er það mjög áhugavert rannsóknar- efni að finna hvað það er sem veld- ur þessum mismun milli borga í sama landi á sama menningar- svæði þar sem trúarbrögð era þau sömu. Svo virðist sem trúarbrögð, menningarsvæði eða landfræðileg staðsetning hafi ekki áhrif á tíðni sjúkdómsins." Það er Evrópusambandið sem styrkir þann þátt rannsóknarinn- ar sem varðar borgirnar átta en auk borganna sem þegar hafa ver- ið nefndar nær rannsóknin einnig til Verona, þar sem tíðni þung- lyndis reyndist vera rúm 12%, Amsterdam með rúm 11%, Dublin með um 10% og Zaragoza með rúm 8%. Hallgrímur sagðist einnig hafa kannað hvort þunglyndi kæmi fram á mismunandi hátt hjá þess- um þjóðum en í ljós kom að staðir, menningarsvæði eða trúarbrögð hafa ekld áhrif á tíðni sjúkdómsins nema á Islandi. Sagði hann að skipta mætti þunglyndiseinkenn- um í þrjá flokka. Einn flokkurinn væri tilfinningaleg þjáning, t.d. þegar fólk væri langt niðri, fengi grátköst og vildi deyja. Annar flokkurinn ætti við um traflun á viljastyrk og áhugaleysi á umhverfi og sá þriðji nær til líkamlegra ein- kenna eins og svefntraflana, lyst- arleysis og slappleika. „í Ijós kom að á íslandi er ótrálega lítið þung- lyndi samkvæmt fyrsta flokki en mikið í hinum flokkunum tveimur í samanburði við borgimar átta,“ sagði Hallgrímur. „Með öðram orð- um, fáir íslendingar era langt niðri, þeir fá ekki mikið af grát- köstum og vilja gjarna lifa en þeir missa svefn og era mjög slappir og þjást af lystarleysi, auk þess sem þeir missa áhuga.“ Nefndi hann sem dæmi að á ís- landi væra 15% langt niðri en 50% í Múnchen. Grátköst fá 18-28% í öðram borgum en 7% á íslandi og í Munchen finnst 25% af fólki yfir 85 ára aldri lífið ekki þess virði að lifa því en á Islandi era það 5%. Islensk erfðagreining hf. gerði tilboð í allt hlutafé Gagnalindar hf. „fflýðni við lög og siðferðis- reglur forsenda velgengni“ „ÍSLENSK erfðagreining gerði eigendum Gagnalindar hf. tilboð í öll hlutabréf fyrirtækisins, en til- boðinu var hafnað. Það fylgdi til- boðinu að ætlun íslenskrar erfða- greiningar væri að byggja upp landsgrann og selja erlendum tryggingafélögum og lyfjafyrir- tækjum upplýsingar. Fjárhagslega var þetta tilboð, sem byggðist á skiptum á hlutabréfum, ekki slæmt en ég sel ekki Islenskri erfðagrein- ingu,“ segir Þorsteinn Ingi GiUir til 30.11 'Q7 staðgreiðsluafslattur af öllum vörum yfir 2.000,- hr. SILFURBÚÐIN KRINGLUNNI 8-12 S: 568-9066 Víglundsson, framkvæmdastjóri Gagnalindar hf. Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreining- ar, segir að tilboð fyrirtækisins í hlutabréf Gagnalindar hafí einung- is byggst á þörf fyrir aðgang að upplýsingum í heilbrigðisþjónustu, en fyrirtækið hefði engan áhuga á að tengja slíkar upplýsingar við nöfn einstaklinga og Gagnalind hefði ekki yfir slíkum upplýsingum að ráða, lögum samkvæmt. „ís- lensk erfðagreining er sökuð um að ætla sér að brjóta lög, þegar ekk- ert slíkt hefur hvarflað að okkur, enda hlýðni við lög og siðferðis- reglur forsenda velgengni okkar.“ Siv Friðleifsdóttir þingmaður bar fram fyrirspurn á þingi í gær um tilboð íslenskrar erfðagrein- ingar í hlutabréf Gagnalindar. Gagnalind hefur þróað sjúkra- skrárkerfi fyrir heilsugæslustöðv- ar, sérfræðinga, sjúkrahús og aðr- ar heilbrigðisstofnanir. Sjúkra- skrárkerfið er ætlað til skráningar og miðlunar upplýsinga sem notað- ar era á heilbrigðisstofnunum. Þró- unarfélag íslands á 43% í fyrii-tæk- inu, nokkrir læknar 17%, Þorsteinn Ingi á 12%, Apple-umboðið 10% og nokkrir smærri hluthafar eiga samtals 18%. Hafnað einröma Þorsteinn Ingi Víglundsson sagði að íslensk erfðagreining hefði áður gert tilboð í hlutabréf Gagnalindar. „Menn áttuðu sig kannski ekki alveg á hvað var á ferðinni þegar íyrra tilboðið barst og við veittum upplýsingar um fyr- irtækið. Ráðandi hópur hluthafa hafnaði því tilboði, en þegar annað tilboð barst var eigendum Gagna- lindar kynnt starfsemi íslenskrar erfðagreiningar. í ljós kom að ætl- unin var að byggja upp landsgrann með upplýsingum Gagnalindar og selja erlendum tryggingafélögum og lyfjafyrirtækjum. Hluthafa- fundur 2. október hafnaði þessu síðara tilboði einróma." Þorsteinn Ingi sagði að Gagna- lind hefði haft samráð við embætti landlæknis, heilbrigðisráðuneytið og sjúkrastofnanir sem íyrirtækið skiptir við. „Landlæknir telur hug- myndir íslenskrar erfðagreiningar um sölu upplýsinga alls ekki sam- rýmast lögum. Ég sel ekki Is- lenskri erfðagreiningu því það býð- ur hættunni heim ef fyrirtæki, sem lifir á að selja upplýsingar, kaupir fyrirtæki sem hannar og þjónustar upplýsingakerfi.“ Þorsteinn Ingi sagði að Gagna- lind nýtti fullkomnustu tækni til að tryggja að óviðkomandi kæmist ekki í viðkvæmar upplýsingar í sjúkraskrám. Efnisupplýsingar væra geymdar aðskilið frá per- sónuauðkennum, aðgangur að tölvukerfinu væri mismikill eftir því hvaða starfsmann væri um að ræða, ávallt mætti rekja slóð þeirra sem færa um kerfið og hver heilbrigðisstofnun yrði sjálf að taka ákvörðun um að senda upplýs- ingar frá sér. Nákvæma skráningu skorti Kári Stefánsson vísar því algjör- lega á bug að Islensk erfðagreining hafi ætlað sér að brjóta gegn lög- um um vemdun persónuupplýs- inga. „Þegar við byrjuðum að vinna að rannsókn á erfðafræði hinna ýmsu sjúkdóma, í samvinnu við lækna, kom í ljós að mikið vantaði á nákvæmni í skráningu í sjúkra- skýrslur. Við vildum því koma á al- mennilegum hugbúnaði fyrir heil- brigðiskei’fið. Ég ræddi við hátt- settan embættismann í heilbrigðis- ráðuneytinu og bauðst til að gefa hugbúnað til sjúkraskrárgerðar fyrir heilsugæslu og sjúkrahús. Mér var sagt að Gagnalind, sem ég hafði ekki heyrt um áður, væri með samning við ráðuneytið um gerð hugbúnaðar af þessu tagi. Þessi að- ili benti mér á að bjóða í fyrirtæk- ið, sem ég gerði. Viðbrögð land- læknis við því vora þau að hann sendi heilbrigðisráðherra bréf þar sem bent var á að við gætum notað eignarhald á Gagnalind til að stel- ast í heilsufarsupplýsingar. Þetta er mjög alvarleg ásökun." Kári sagði að tilboð íslenskrar erfðagreiningar hefði aldrei lotið að öðra en kaupum á fyrirtæki sem býr til hugbúnað til sjúkraskrár- gerðar. „Gagnalind vinnur ekki við að safna persónuupplýsingum og hefur enga heimild til þess. Það eina sem við vildum gera var að tryg&ja okkur aðgang að stöðluð- um upplýsingum í gegnum sam- starfsaðila okkar. Við tökum engar persónuupplýsingar inn í íslenska erfðagi-einingu, ekkert þeirra sýna sem við rannsökum eru merkt ein- staklingum. Starf okkar er og hef- ur verið undir eftirliti tölvunefndar og hinna ýmsu siðanefnda," segir Kári Stefánsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.