Morgunblaðið - 18.11.1997, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18.NÓVEMBER1997 19
VIÐSKIPTI
Fulltrúi Skanska fjallar um samningsstjórnun á hádegisverðar-
fundi Islensk-sænska verslunarráðsins
„Góð reynsla af stórum
verkefnum hérálandi“
STIG Eriksson hefur starfað sem
samningsstjóri (contract manager)
hjá sænska verktakanum Skanska
í nokkrum stórum verkefnum hér
á landi, sem Skanska hefur unnið
að með ístaki. Má þar nefna Vest-
fjarðagöng, Hvalfjarðargöng og
nú síðast Sultartangavirkjun.
Stig mun flytja erindi á hádegis-
verðarfundi íslensk-sænska versl-
unarráðsins nk. fimmtudag á Hót-
el Sögu, þar sem umræðuefnið
verður undirverktaka og fram-
kvæmd alþjóðlegra byggingar-
verkefna.
Þar mun hann fjalla um hvernig
verkefnum af þessari stærðar-
gráðu sé stýrt, hvernig gengið sé
frá undirverktöku og framkvæmd
verkefnanna sjálfra stýrt. Þá mun
hann fjalla um reynslu sína af slík-
um verkefnum hér á landi og víðar
í heiminum.
Stig hefur gegnt ýmsum störf-
um hjá Skanska í verkefnum í
Túnis, Indónesíu, Sri Lanka, Lesot-
ho og Zambíu. Undanfarin ár hef-
ur hann sinnt samningsstjórnun
fyrir Skanska í Svíþjóð, á Islandi
og í Afríku.
Aðstæður til framkvæmda
svipaðar hér og í Skandinavíu
Stig segir að framkvæmd stærri
verkefna hér á landi sé ekkert
flóknari heldur en í
öðrum þróuðum ríkj-
um og reynsla hans
af því að vinna hér sé
á heildina litið góð.
„Ef við berum þetta
saman við Asíu og
Afríku, þá er mun
meiri birgðir og þjón-
ustu að finna hér á
landi í þessum heim-
sálfum. Staðsetningin
hér á landi skapar því
engin vandamál og er
raunar ekkert frá-
brugðin því að vinna
verk annars staðar á
Norðurlöndum.
Hér getum við líka
fengið undirverktaka til flestra
þeirra verka sem við ekki getum
unnið sjálf. Við höfum líka átt í
mjög góðu samstarfi við umboðs-
aðila fyrir vinnuvélar, eins og Cat-
erpillar og Volvo. Þá höfum við
líka yfir að búa mjög fullkomnu
birgðabókhaldi og erum beintengd
við birgðastöðvar Skanska erlend-
is. Það gerir okkur kleift að fylgj-
ast mjög vel með því sem við eigum
á lager og hversu hratt við erum
að nota það. Þetta auðveldar okkur
mjög að panta viðbótarbirgðir auk
þess sem það tekur okkur aðeins
fáeinar sekúndur."
Nú hefur þú unnið
að stjórn framkvæmda
við Hvalfjarðargöngin.
Hefur sá mikli hraði
sem verið hefur á
framkvæmdum þar
skapað einhver vanda-
mál, t.d. hvað varðar
þátt undirverktaka?
„Það eru reyndar
ekki margir undir-
verktakar sem vinna
við Hvalfjarðargöng,
þó að íjöldi þeirra eigi
eftir að aukast nokkuð
á lokastigum verksins.
Hins vegar hefur hraði
framkvæmdanna ekki
valdið neinum veruleg-
um vandamálum. Verkið hefur
gengið hraðar fyrir sig en ráð var
fyrir gert af fáeinum ástæðum.
Meðal annars hefur vatn í göngun-
um verið mun minna en búist var
við, við bættum við fleiri vöktum
en gert var ráð fyrir í upphafi, auk
þess sem verkið hefur gengið mjög
vel. v
Við gröftinn sjálfan höfum við
hins vegar nánast ekkert reitt okk-
ur á undirverktaka. í lokafrágang-
inum reiðum við okkur hins vegar
meira á undirverktaka en þeir hafa
getað hafið verkið fyrr en upphaf-
lega var gert ráð fyrir.“
Stig
Eriksson
LIFEYRISSJOÐUR
STARFSMANNA
RÍKISINS
VELJIÐ FYRIR 1. DESEMBER
Sjóðfélagar sem kjósa að færa sig úr
B'deild sjóðsins í A-deild þurfa að
tilkynna sjóðnum þá ákvörðun sína
fyrir 1. desember 1997.
SVIPMIKILL
EÐALVAGN
Hyundai Sonata er flaggskip Hyundai flotans;
frá aðeins 1.778 þúsund krónum!
svipsterkur og glæsilegur bíll á góðu verði.
Hyundai er breiður og rúmgóður eðalvagn
með 139 hestafla 2000 vél og er einstaklega
lipur og mjúkur í akstri. Tveir liknarbelgir,
ABS bremsukerfi, styrktarbitar í hurðum o.fl.
tryggir öryggi farþeganna.
N Ú E R LAG - SONATA
B&L, Suðurlandsbraut 14 & Ármúla 13, Simi: 575 1200, Söludeild: 575 1220,
Fax: 568 3818, Email: bl@bl.is, Internet: www.bl.is