Morgunblaðið - 18.11.1997, Side 24

Morgunblaðið - 18.11.1997, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU Morgunblaðið/Golli HJÁ ráðherra. Hvítrússar hafa mikinn áhuga á fiskkaupum frá íslandi. Tveir fulltrúar þeirra, Alexander Panov og Vladimir Pitukov, eru hér með Þorsteini Pálssyni, sjávarútvegsráðherra, og Rússanum Sergey Tsyvarev, sem túlkaði fyrir þá félaga. Hvít-Rússar vilja kaupa síld og loðnu frá Islandi Stefnt að því að auka fiskneyzlu í landinu um 150.000 tonn á ári TVEIR fulltrúar stjórnvalda í Hvíta- Rússlandi eru nú staddir hér á landi til að mynda viðskiptasambönd við íslenzk fyrirtæki og stjómvöld. Meg- intilgangurinn er að hefja kaup á fiskafurðum frá íslandi, koma á tengslum milli háttsettra ráðamanna á íslandi og í Hvíta-Rússlandi, und- irbúa heimsókn forseta Hvíta-Rúss- lands, Alexanders Lúkasjenkóvs, til íslands og koma á fót viðskiptaráði íslands og Hvíta-Rússlands. Þeir Alexander Panov, fram- kvæmdastjóri ríkisfyrirtækisins Belvneshtorginvest, og Vladimir Pitukov, rekstrarstjóri sama fyrir- tækis, eru hér fyrir milligöngu Jó- hanns A. Jóhannssonar, fram- kvæmdastjóra Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, og Sergey M. Tsyvarev, framkvæmdastjóra PKF Narvik, í Murmansk. Nú þegar starfa fimm manns frá Hvíta-Rússlandi hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar. Jóhann segir að miklir möguleikar virðist á útflutningi á físki, einkum síld og loðnu, til Hvíta-Rússlands, en engir samningar um slíkt hafí enn verið gerðir. Fiskneyzla hefur minnkað mikið Hvít-Rússar eiga ekkert land að sjó og hafa því átt erfítt með að nálgast sjávarafurðir síðan Sovétrík- in leystust upp. Á tíma þeirra fengu Íieir hins vegar mikið af saltsíld frá slandi, en enga nú. þeir hafa engar fískveiðar í sjó stundað, en eru nú að fá veiðileyfí frá Rússum. Fyrir um 10 árum var fiskneyzla í landinu um 200.000 tonn, en íbúar eru 10,5 milljónir alls. Á síðasta ári nam físk- neyzlan aðeins 50.000 tonnum, en stefnt er að því að auka hana mikið. Slysið í kjamorkuverinu í Tsjerno- byl kom mjög illa niður á Hvít-Rúss- um. Einn þáttur uppbyggingarinnar eftir það er að auka fískneyzlu, sem sögð er bæta heilsufar íbúanna mik- ið. Þvf er stefnt að því að ná árlegri fiskneyzlu upp í um 20 kíló á hvert mannsbarn, en það svarar til um 210.000 tonna af afurðum. Það er því ljóst að þörf fyrir innflutning á sjávarafurðum er mikil. Mælt með auknu fiskáti Þeir Panov og Pitukov segja í samtali við Morgunblaðið, að nú sé mikil þörf fyrir fiskafurðir í Hvíta- Rússlandi, enda hafi landið ekki aðgang að sjó. Því hafí fískneyzlan fallið úr 195.000 tonnum í 50.000 á síðustu tíu árum. Auk þess mæli heilbrigðisyfírvöld með því að físk- neyzla verði aukin verulega, til þess að bæta heilsufar íbúanna eftir Tsjernobyl-slysið. Því sé mikil áherzla lögð á aukinn innflutning á fiskafurðum. Keyptu áður saltsíld frá íslandi „Þess vegna komum við hingað til íslands, til að mynda viðskipta- sambönd við stærstu fyrirtækin í sjávarútvegi og koma á samskiptum stjórnvalda á sviði viðskipta. Við erum Jóhanni A. Jónssyni, fram- kvæmdastjóra Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, mjög þakklátir fyrir þá aðstoð, sem hann hefur veitt okkur við að koma þessum samböndum á. Við höfum mestan áhuga á að kaupa héðan síld og loðnu, sem eru þekkt- ustu fískafurðir íslenzkra framleið- enda í heimalandi okkar. Við fengum áður íslenzka saltsfld, þegar við vor- um hluti af Sovétríkjunum. Fólkið man enn eftir þessari stóru og fal- legu síld, sem við keyptum þá í mikl- um mæli, enda var hún mjög góð,“ segja þeir félagar. Þeir segjast ennfremur vilja nýta heimsóknina hingað til lands til að mynda önnur viðskiptasambönd. Þeir hittu bæði Þorstein Pálsson, sjávarútvesgráðherra, og fulltrúa frá utanríkisráðuneytinu, auk þess sem þeir ræddu við framleiðendur og útflytjendur fískafurða. Lítil síldveiði SÍLDARBÁTARNIR fyrir austan hafa verið að fá reytingsafla síðustu daga, það er að segja þeir, sem eru með troll. í nótina fæst ekkert frek- ar en verið hefur nokkuð lengi ef undan er skilið skotið fyrir helgi. Voru nótabátarnir farnir af miðun- um í gær. Á loðnunni hefur verið dálítið kropp austur af Kolbeinsey. Beitir NK og Þorsteinn EA hafa verið að landa í Neskaupstað 250 og upp í 400 tonnum af síld en þeir eru báðir með troll. Hefur þetta ásamt öðrum löndunum nægt til að halda uppi fullri vinnslu. Síldina fengu skip- in nokkru utar en fyrir helgi en hún heldur sig alveg niðri við botn og þess vegna fæst hún aðeins í trollið. Súlan EA landaði um 400 tonnum af loðnu hjá Síldarvinnslunni í gær og Björg Jónsdóttir ÞH var á leið til Seyðisfjarðar með um 800 tonn. Fengu skipin loðnuna á Kolbeinseyj- ar- og Grímseyjarsvæðinu. Óveiyuleg ördeyða Antares VE landaði um helgina 150 tonnum í Vestmannaeyjum og var að leita fyrir sé norðan við Glett- inganesgrunn í gær. Hafði þá lítið fundist og kvaðst skipstjórinn aldrei hafa upplifað jafn mikla ördeyðu á miðunum fyrir austan og nú. Jóna Eðvalds SF var á svipuðu slóðum og Antares í gær og höfðu menn sömu sögu að segja, lítil síld. í fyrradag landaði Jóna Eðvalds um 160 tonnum á Höfn og í fyrrinótt fékk hún um 40 tonn og 90 tonn eftir miðjan dag í gær. Samkomulag í Noregi um fj árlagafrumvaip STJÓRN norsku miðflokkanna og Hægriflokkurinn náði samkomulagi um frumvarp til fjárlaga næsta árs síðdegis í gær. Þar með tókst stjóm- inni að tryggja meirihlutastuðning við frumvarpið á þinginu. Jan Petersen, leiðtogi Hægri- flokksins, sagði að samið hefði verið um að lækka skatta og gjöld um milljarð norskra króna, andvirði 10 milljarða íslenskra. Daginn áður hafði stjórnin náð samkomulagi við Framfaraflokkinn, sem felur í sér skattalækkanir upp á um 2,3 millj- arða norskra króna, um 23 milljarða íslenskra. Hægriflokkurinn neitaði hins veg- ar að styðja fjárlagafrumvarpið nema skattar á einstaklinga yrðu lækkaðir enn frekar. Telur flokkur- inn að þrátt fyrir samkomulag stjómarinnar og Framfaraflokksins um skattalækkanir hefðu skatta- álögur aukist um 1.240 milljarða kr., um 12.400 milljarða ísl. kr., á næsta ári. Útgjöldin minnkuð Hægriflokkurinn krafðist þess að dregið yrði úr álögunum, auk þess sem talsmenn flokksins vildu sjá hvar ætti að skera niður. Til að koma til móts við hægrimenn lagði stjórnin fram tillögu um 1,5 millj- arða niðurskurð á útgjöldum ríkis- ins. Miðflokkarnir leggja allt kapp á að koma tveimur stærstu kosninga- málum sínum í gegnum þingið; greiðslur til foreldra sem vilja vera heima hjá bömum sínum og hækkun á ellilífeyri um 10.000 ísl. kr. á mánuði. Að kröfu Framfaraflokksins hefur hann verið hækkaður í 12.000 kr. og útgjöld til skóla og sjúkra- stofnana hækkuð. Miklar skattahækkanir voru í fjár- lagafrumvarpi Verkamannaflokks- ins, sem hann lagði fram daginn sem hann fór frá völdum, og leikurinn var endurtekinn í frumvarpi mið- flokkanna. Meðal þess sem hækkar eru álögur á tóbak, áfengi, sam- göngur, bíla og húsnæði. Kínveijar láta „föður lýðræðishreyfingarinnar“ lausan Hvattir til að veita fleiri andófsmönnum frelsi Peking. Reuters. KÍNVERSKI andófsmaðurinn Wei Jiangsheng var látinn laus úr fang- elsi af heilsufarsástæðum á sunnu- dag. Hann hélt til Bandaríkjanna þar sem hann var lagður inn á sjúkrahús í Detroit. Wei, sem hefur verið nefndur fað- ir lýðræðishreyfíngarinnar í Kína, er 47 ára rafvirki. Hann var fyrst dæmdur í 15 ára fangelsi árið 1979 fyrir baráttu sína fyrir lýðræði. Er hann hafði afplánað allt nema 6 mánuði af þeim fangelsisdómi var hann látinn laus í tengslum við til- raun kínverskra stjórnvalda til að bæta ímynd sína og ávinna sér rétt til að halda Ólympíuleikana árið 2000. Hann var handtekinn á ný einungis sex mánuðum síðar og haldið án ákæru til ársins 1995 er hann var dæmdur í 14 ára endurhæf- ingu í vinnubúð- um. Viðbrögð stjórnmálamanna og mannréttinda- samtaka vegna lausnar Weis hafa verið blend- in. Bill Clinton, Bandaríkjaforseti fagnaði lausn hans en Bandaríkjastjórn hefur að undanförnu lagt hart að kínverskum stjómvöldum að láta andófsmenn lausa. Sagðist forsetinn hlakka til að hitta hann að máli. Ávinningur fyrir Kínveija Þá segja stjórnmálaskýrendur að kínversk stjórnvöld hafí ótvíræðan ávinning af því að senda Wei úr landi. Hann hafí haft meiri áhrif á meðan hann var í fangelsi en hann muni hafa í útlegð. Kínastjórn hafí losnað við vandræðagrip en mann- réttindahreyfingar misst af mikil- vægu tákni. Mannréttindasamtök hafa í kjöl- far lausnar Weis hvatt kínversk stjórnvöld til að láta aðra andófs- menn lausa og beint því til Banda- ríkjaforseta að hann setji það sem skilyrði fyrir fyrirhugaðri Kínaför sinni á næsta ári að kínversk stjórn- völd láti lausa 27 andófsmenn. Þeirra á meðal er Wang Dan sem var einn af leiðtogum námsmanna á Torgi hins himneska friðar. Wang, sem einnig var tilnefndur til friðar- verðlauna Nóbels fyrr á þessu ári, er nú þekktasti andófsmaðurinn í kínversku fangelsi. Wei Jingsheng Danir segja EMU-ráð geta valdið klofningi Brussel. Reuters. MARIANNE Jelved, efnahagsmála- ráðherra Danmerkur, segir að tillaga Frakklands og Þýzkalands um óformlegt ráðherraráð aðildarríkja Efnahags- og myntbandalags Evr- ópu (EMU), sem ríki utan mynt- bandalagsins fái ekki að taka þátt í, geti haft alvarlegar afleiðingar. „Ég óttast að afleiðingin verði klofn- ingur sambandsins," segir Jelved. Tillaga Frakka og Þjóðveija var rædd á fundi fjármála- og efnahags- málaráðherra ríkja ESB í Brussel í gær. Samkvæmt henni munu ráð- herrar frá EMU-ríkjunum hittast óformlega fyrir slíka regiulega fundi ráðherraráðs ESB, ræða málefni sem snerta myntbandalagið og sam- ræma stefnu sína í efnahagsmálum. Á fundinum í gær mótmæltu ríkin fjögur, sem talið er víst að muni standa utan EMU í upphafi, þ.e. Danmörk, Svíþjóð, Bretland og Grikkland, þessum tillögum harð- lega. Peningamálanefndin skoðar málið Niðurstaða ráðherrafundarins varð sú að biðja peningamálanefnd ESB að skoða málið nánar. Jelved sagði á blaðamannafundi að hún vonaðist til að nefndin fyndi lausn á málinu og að henni fyndist að sum væntanleg EMU-ríki hefðu skilning á vanda ríkjanna, sem standa munu Reuters ÝMIS hitamál voru rædd á fundi fjármála- og efnahagsmálaráð- herra ESB og engu líkara en Sauli Niinisto, fjármálaráðherra Finna, gangi einum of langt er hann leggur áherzlu á orð sín við Ant- onio Sousa Franco, portúgalskan starfsbróður sinn. utan EMU fyrst um sinn. Jelved sagðist hafa farið fram á að nefndin kannaði hvort fransk-þýzka tillagan bryti í bága við sáttmála ESB og að hún biði svars við þeirri spurn- ingu. Stefnt er að því að leiðtogar ESB samþykki skýrslu um samræmingu efnahagsstefnu innan ríkja EMU á fundi sínum í Lúxemborg í næsta mánuði. Jelved sagði að eins og mál stæðu nú, gæti Danmörk ekki sam- þykkt skýrsluna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.