Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Öfgasinnaðir múslimar myrða tugi ferðamanna í Egyptalandi Tilræðið gæti lamað egypska ferðaþjðnustu Kafró. Reuters. EGYPSKIR ferðamálafrömuðir voru slegnir yfír fjöldamorðinu í Lúxor í gær en sögðu að atburður- inn hefði a.m.k. ekki við fyrstu sýn orðið til þess að ferðum til landsins hefði verið aflýst. Þeir voru hins vegar sammála um að tilræðið gæti haft mjög skaðleg áhrif fyrir eg- ypska ferðaþjónustu til lengri tíma litið. Að sögn lögreglu stóðu a.m.k. sex menn að tilræðinu við Hatsh- epsuthofið á vesturbakka Nflar, sem nýlega var umgjörð tilkomumikillar uppfærslu óperunnar Aidu eftir Verdi. Mennimir villtu á sér heimild- ir með því að klæðast sem lögregluþjónar. Gengu þeir ber- serksgang meðal ferðamanna og skutu án afláts á viðstadda. í valnum lágu a.m.k. 78 manns, þar á meðal ferðamenn frá Sviss, Japan og Þýskalandi. Þrír lögreglumenn biðu einnig bana og sex tilræðismenn. Er þetta blóðugasta tilræði öfga- sinnaðra múslíma frá 1992 er þeir hófu vopnaða baráttu fyrir stofnun íslamsks ríkis. Engin samtök höfðu lýst verknaðinum á hendur sér í gær en í þeim tilgangi að grafa undan stjómvöldum hafa öfgamennimir margsinnis haft ferðaþjónustuna að skotspæni á undanfómum ámm sak- ir mikilvægis hennar fyrir þjóðarbúið. Tekjur Egypta af ferðamönnum nema um þremur milljörðum dollara á ári, jafnvirði 213 milljarða króna, og er ferðaþjónustan ein helsta gjaldeyristekjulind þjóðarbúsins. Um það bil tvær milljónir erlendra ferðamanna hafa heimsótt Lúxor á ári. Mamdouh el-Beltagi ferða- málaráðherra tók þátt í ferðakaup- stefnu í London í gær, og lét þar í Ijós hryggð sína vegna fjölda- morðsins. Sagði hann verknaðinn Danir kjósa Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. RAUÐAR pylsur og rauðar rósir bjóða frambjóðendur til bæjar- og sveitarstjóma í Danmörku upp á, þar sem þeir norpa við kjörbúðir og aðra fjölfarna staði. Kosningarnar í dag hafa annars ekki verið áberandi í bæjarlífi Kaup- mannahafnar og annarra borga, en það fer meira fyrir kosningafundum í litlum bæjum. Aðstreymi útlendinga hefur verið til umræðu, en annars eru það sígild velferðarmál eins og skóla- og dagvistunar- mál og umönnun aldraðra, sem á hugi flestra. Þótt allir flokk- arnir, sem bjóða fram til þings, séu líka virkir í bæjar- og sveitastjómarkosningum em það þó víða staðarlistar og ein- staklingar, sem blanda sér í baráttuna, fyrir utan að ýmsir kynlegir kvistir nota tækifærið til að vekja á sér athygli með sérframboðum. í Kaupmannahöfn er spurn- ingin helst sú, hvort jafnaðar- menn og sósíalistar haldi meirihluta, en þeir eru i kosn- ingabandalagi saman. Straum- urinn til hægri jaðarsins og Danska þjóðarflokksins virðist í rénun, ef marka má síðustu spár. TILRÆÐI GEGN FERÐAMÖNNUM í EGYPTALANDI Hryðjuverkamenn úr röðum strangtrúaðra múslíma myrtu allt að 80 manns við fornt hof í Lúxor í Egyptalandi í gær. Erlendir ferðamenn hafa orðið fyrir barðinu á ofbeldismönnum þar í landi á undanförnum árum. vera glæp hugleysingja gegn gestum Egypta og egypsku þjóðinni einnig. „Eg get ekki ímyndað mér hvað verður um ferðaþjónustuna en ríkis- stjórnin mun gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að tryggja öryggi ferðamanna," sagði el- Beltagi. 57 öfgamenn líflátnir frá 1992 Fjöldamorðið í gær er fyrsta tilræðið sem á sér stað í Lúxor. Frá því hryðjuverkasamtökin Gama tóku að beina spjótum sínum gegn ferðaþjónustunni hafa ferða- mannahópar notið lögreglufylgdar í Lúxor og samtökin því ekki látið til skarar skríða þar. Arásin virðist því benda til að enn hættulegri hópur en Gama sé kominn á kreik. Hof faraóa og grafhýsi í Lúxor eru meðal eftirsóttustu viðkomustaða útlendra ferðamanna í Egyptalandi. Egypska ferðaþjónustan virtist vera að komast yfir tilræði sem framið var 18. september sl., en þá hófu tveir bræður skothríð og vörpuðu bensínsprengju á rútu fulla af ferðamönnum við þjóðminja- safnið í Kaíró. Myrtu þeir níu Þjóðverja og egypskan bflstjóra rútunnar. Mennirnir voru gripnir og reyndust þeir hafa fleiri morð á ferðamönnum á samviskunni, voru dæmdir til dauða og bíða þess að dómnum verði fullnægt. Frá 1992 hafa alls 57 öfgamenn múslima verið líflátnir eftir að hafa verið dregnir fyrir herdómstól. Voru þeir dæmdir sekir fyrir aðild að ofbeldisverkum strangtrúar- manna. Hafa öfgamenn hótað að hefna þeirra. Með tilræðinu í Lúxor hafa öfgamenn múslima myrt 103 erlenda ferðamenn í Egyptalandi frá 1992. @21. október, 1992 ðfgamenn ráðast á rútu, myröa breska konu og særa tvo breska ferðamenn. @26. febrúar, 1993 Svíi og Egypti bíða bana og 20 manns af ýmsu þjóðerni slasast er sprengja springur á kaffihúsi f Kaíró. @8. júní, 1993 Sprengja springur á Pýramídavegi, tveir Egyptar deyja og 22 manns slasast. @27. október, 1993 Strangtrúarmaður drepur tvo Bandaríkjamenn og einn Frakka á veitingahúsi í Kaíró. ftali sem særð- ist (árásinni lést síðar. @27. desember, 1993 Átta Austrríkismenn og átta Egyptar slasast alvarlega f árás á rútu í Kaíró. @ 4. mars, 1994 Öfgamenn gera skothríð á farþega- skip á Nfl, Þjóðverðji sem særðist dó sfðar. @ 26. égúst, 1994 Spænskur piltur bíður bana í árás á rútu. Samtökin Gama'a lýsa ábyrgð á hendur sér. @ 27. september, 1994 Þýskur ferðalangur myrtur og annar særður í Hurghada. Tveir Egyptar bfða einnig bana. @ 23. október, 1994 Breskur ferðamaður myrtur og þrír særðir í árás á rútu á leið að fomu musteri. @ 26. janúar, 1996 Egypti bíður bana í árás íslamskra múslíma á farþegalest sem erlendir ferðamenn ferðast oft með. @18. apríl, 1996 17 grískir ferðamenn og Egypti drepnir í fjöldamorði fyrir utan hótel í Kaíró. @ 18. september, 1997 Sex þýskir ferðamenn og þrír menn aðrir drepnir við þjóðminjasafn Egyptalands. Nfu manns særðust. Reuters Biskupar þinga með páfa JÓHANNES Páll páfi stýrði fundi á fyrsta degi biskupaþings er hófst í Vatíkaninu í gær. Er þetta fyrsta af fjórum sérstökum þingum biskupa meg- iniandanna sem páfi hefur boðað til fram til ársins 2000. Páfi leggur áherslu á að kaþólska kirkjan noti þann tíma til íhugunar á samtímanum, viður- kenni mistök er orðið hafi fyrr á tíð og leggi drög að áætlunum fyrir framtíðina. Arafat með Parkinsons- veikina? ÍSRAELSKUR læknir telur að Yasser Arafat, leiðtogi sjálfstjórn- arsvæða Palestínumanna, kunni að vera með Parkinsonsveikina. Avinoam Reches, tauga- sjúkdómafræðingur við Hadassah- sjúkrahúsið í Jerúsalem, segist byggja mat sitt að hluta á sjónvarpsviðtali við Arafat þar sem neðri vör hans titraði greinilega. „Lík- iegt er að skjálft- inn í kjálkanum og hæg viðbrögð hans séu ein- kenni Parkin- sonsveiki," sagði Yasser Arafat Reches VÍð frétta- stofuna AP. Aðstoðarmenn Arafats, sem er 68 ára gamall, röktu skjálftann til langs vinnudags og sögðu að viðtalið hefði verið tekið seint að kvöldi. Parkinsonsveiki er hægfara taugasjúkdómur sem lýsir sér með skjálfta í vöðvum í hvfld, hægum hreyfingum og svip- brigðaleysi. Fölari og grennri Að sögn fréttastofunnar Reuters virtist Arafat fölari og grennri en áður þegar hann ræddi við blaðamenn á fundi með Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á laugardag. Araf- at var með rauð augu, neðri vörin titraði og hann talaði með löngum hléum þegar hann svaraði spurn- ingum blaðamanna. „Ekki gleyma því að ég hef haft rauð augu frá flugslysinu," sagði Arafat og vísaði til slyss sem varð fyrir nokkrum árum. „Auk þess svaf ég ekkert í nótt. Eg þurfti að vinna í alla nótt og varð að fara snemma að heiman um morgun- inn, um klukkan fimm. En ég vil þakka þér fyrir umhyggjuna,“ svaraði Arafat þegar blaðamaður The New York Times innti hann eftir því hvort hann ætti við veik- indi að stríða. Bandarískur embættismaður, sem ræðir oft við Arafat, kvaðst ekki hafa orðið var við breytingar á framgöngu hans eða hegðun. ----------------- Vilja hrekja Netanyahu frá völdum Jerusalem. Reuters HÓPUR þingmanna innan Likud- bandalagsins í ísrael er að búa sig undir að reyna að hrifsa völdin af Benjamin Netanyahu, formanni bandalagsins og forsætisráðherra landsins, samkvæmt upplýsingum Roni Milo, borgarstjóra Tel Aviv. Milo sagði 1 viðtali við útvarpsstöð hersins í gær að hátt- settir menn innan bandalagsins væim búnir að fá sig fullsadda af forystu Netanyahus og ynnu nú að því að hrekja hann frá völdum. Dav- id Re’em einn þingmanna Likud- bandalagsins sagði aðspurður um málið að nú væri tími til aðgerða, það væri ljóst að það sem banda- lagið þyrfti að gera væri að losa sig við Netanyahu án þess að starfs- reglur þess yrðu brotnar. Stjómmálaskýrandinn Yaron Dekel sagði hins vegar ólfldegt að tíl- raunin mundi takast þar sem upp- reisnarmenn væru klofnir í afstöðu sinni til nýs leiðtogaefnis. „Netanyahu hefur þegar sýnt frábæra hæfni við að koma sér út úr vandræðum svo ég hef trú á því'að honum muni takast að komast klakklaust frá þessu.“ sagði hann. „Ég er hins vegar ekki viss um að honum muni takast að ljúka kjörtímabilinu, sem nær til aldamóta." » I | I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.