Morgunblaðið - 18.11.1997, Page 34

Morgunblaðið - 18.11.1997, Page 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ _______________________________MEIMIMTUIM______________________________ íslensk mæðgin útskrifuðust saman frá Strathclyed-háskólanum í Skotlandi Móðir og sonur út- skrifast Mæðginin Valdís Jónsdóttir og Gunnar B. * Olason fengu saman afhentan vitnisburð um masters- og doktorsgráðu í Glasgow. Gunnar Hersveinn spurði þau um rann- sóknarverkefnin að baki gráðunum. Ljósmynd/Glasgow Herald GUNNAR B. Ólason og Valdís Jónsdóttir við útskriftina. ÍSLENSK mæðgin útskrifuðust saman föstudaginn 7. nóvember frá Strathclyde-háskólanum í Skot- landi. Útskrift mæðgina er svo fá- tíð að frétt birtist um hana í skoska blaðinu Glasgow Herald um liðna helgi. Móðirin Valdís Jónsdóttir, sem var fjarnemandi frá Strathclyde, útskrifaðist með mastersgráðu í talmeinafræðum og sonurinn, Gunnar B. Ólason, útskrifaðist með doktorsgráðu í efnafræði. Valdís segir að útskriftin hafi verið mjög hátíðleg á breska vísu og að hún hafi verið látin útskrifast með deild Gunnars til að þau gætu útskrifast samtímis. „Skólinn er í miðborg Glasgow og skapaði skipulagið og formlegheitin mjög hátíðlegan brag,“ segir hún. Gunnar er fæddur í Reykjavík árið 1965 en ólst upp í Eyjafirði frá þriggja ára aldri til tvítugs er leiðin lá aftur suður fyrir fjöll. Foreldrar hans eru Valdís Jónsdóttir og Óli Jakobsson rafeindavirki. Valdís er fædd árið 1943 í Reykjavík og er alin þar upp. Hún er dóttir Jóns Sveinssonar, fyrrverandi bæjar- stjóra á Akureyri, og Gunnhildar Önnu Valdimarsdóttur, fyrrverandi verslunarstjóra í Verslunarbúð Ingi- bjargar Johnson. Gunnar varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureryi árið 1985 og skólar/námskeið skjalastjómun Inngangur að skjalastjórnun Námskeið haldið 24. og 25. nóv. (mánud. og þriðjud.). Gjald kr. 13.000. Bókin, „Skjalastjómun“ innifalin. Skráning hjá Skipulagi og skjölum í síma 564 4688, fax 564 4689. f ýmislegt ■ Tréskurðarnámskeið Örfá pláss laus. Hannes Flosason, sími 554 0123. tölvur mm ifF Nýi tölvu- & l yf viðskiptasknlinn ■ Tölvunám 48 klst. (72 'kennslustundir). Kennt er á Windows 95, Word '97, Excel '97 og notkun Internetsins. Næsta námskeið byrjar 25. nóvember. Kennt er þrjá morgna í viku (8—12) í fjórar vikur þ.e. til 18. des. Öll kennslugögn innifalin. Úrvals aðstaða og tækjakostur. Nýi tölvu- & viðskiptaskólínn 4------------------------ Hólshrauni 2 - sími 555 4980 útskrifaðist með BS:gráðu í efna- fræði frá Háskóla íslands. Hann hefur stundað háskólanám í Skot- landi frá árirtu 1992 og verið í laun- aðri rannsóknarvinnu þar frá 1996. Valdís hefur á hinn bóginn stundað fjarnám og farið út endrum og eins og dvalið í allt að tvær vikur í senn. Efnafræðirannsóknir Gunnars „Lokaverkefnið mitt fjallar um efnahvörf mettaðra og ómettaðra kolefna við tert-butyl hydroperoxíð (lífrænt vetnisperoxíð) eða súrefni þegar fjölliðubundnir hvatar eru notaðir. Við rannsóknirnar var megináhersla lögð á polybenz- imidazole bundna molybdenum- hvata, sem eru einkaleyfisbundnir og er ég einn af einkaleyfishöfum,“ segir Gunnar B.. Ólason, „og notast við tert-butyl hydroperoxíð til að epoxídera alkena, en molybdenum hvatar eru jafnan góðir til epoxíð- myndana." Gunnar segir epoxíðframleiðslu vera eina af stærstu framleiðsluferl- um í efnaiðnaði og framleiðsla á epoxíðum nemur hundruð milljóna tonna á ári. Epoxíð eru mjög mikil- vægar framleiðslueiningar vegna þess að þær eru að mestu notaðar í plastefnaframleiðslu, s.s. polypropylenexide, epoxíðlím o.fl. Þau eru einnig mjög mikiivægar einingar í lyfjaiðnaði og öðrum efnaiðnaði vegna þess hve auðvelt er að nýta hvarfgjarna hluta tvíveg- is, því epoxíð eru efnasambönd þar sem tvö kolefni tengjast hvort öðru og líka einu súrefni. „Verkefnið innihélt líka tilraunir til að finna útópíuhvatann sem not- ar súrefni undir þrýstingi og gefur eitt hvataefni," segir Gunnar. „Nú- tímahvatar þurfa að vera sérlega sérhæfðir til þess að þeir séu nýttir í iðnaði. Þessar tilraunir lofa góðu fyrir áframhaldandi rannsóknir. í aðalatriðum er hér um að ræða verkefni sem snýr beint að iðnaði og iðnaðarframleiðslu, þótt ekkert hindri það að notast við þessa hvata við smáframleiðslu líkt og í lyfjaiðn- aði eða á tilraunastofu. Gunnar lýkur við rannsóknar- verkefni sín um mánaðamótin jan- úar ferbrúar og ætlar þá að koma heim. Hann hefur bæði fengið inn- lenda og erlenda styrki til að vinna að rannsóknum sínum. Rannsakaði raddheilsu kennara Valdís Jónsdóttir gerði rannsókn á raddheilsu kennara á Norðurlandi eystra. Niðurstaðan var að megin- þorri kennara finni fýrir óþægind- um í hálsi sem rekja má til afleið- inga af misbeitingu raddar. „Það hefur sýnt sig bæði hérlend- is og erlendis að aðalástæðan fyrir misbeitingu raddar er fyrst og fremst þekkingarleysi á rödd og hvernig hægt er að viðhalda henni,“ segir Valdís, „kennarar þurfa sér- staklega á þessari kunnáttu að halda þar sem þeir þurfa oft að beita röddinni í hávaða og í húsa- kynnum með slæman hljómburð - ólíkt öðrum stéttum sem nota rödd- ina sem atvinnutæki." Valdís segir kennurum hætt við að tapa raddgæðum og samkvæmt hennar rannsókn eru íþróttakennar- ar í mestri hættu. Þeir þurfa senni- lega að nota mesta raddstyrkinn. Hún telur mikilvægast að kennarar öðlist þekkingu til að vernda rödd sína og hlúa að henni og því ætti að kenna þeim það í kennaradeild- unum. Valdís er með talmeinastofu á Akureyri og segist ætla að vinna að bættri raddheilsu kennara. Sker rödd kenn- arans sig úr hávaðanum? Valdís Jónsdóttir hefur í mörg ár unnið að rannsóknum á áhrífaþáttum á mannsröddina og hún hefur unnið að raddvemd. Hér eru nokkur brot úr fórum hennar. FRÆÐSLA um raddvernd og gildi þess að halda heilbrigðri rödd virðist hafa gleymst á öld upplýsinganna," segir Valdís Jónsdóttir talmeinafræðingur, „má vera að ástæðan sé meðal annars sú að röddin hefur þá sérstöðu að myndast án þess að fólk finni fyrir flókinni og marg- þættri líkamsstarfsemi sem þar er á bak við og hætti því til að taka röddinni sem sjálfsögðum hlut sem slitni við notkun." Valdís heldur því fram að með réttri meðferð sé hægt að halda röddinni heilbrigðri fram eftir öllum aldri - og nefnir stór- söngvara því til sönnunar. Eins og fram hefur komið útskrifað- ist hún 7. nóvember með mast- ersgráðu í talmeinafræðum frá skoskum háskóla og verður hér aðeins stiklað á niðurstöðum hennar sem hún hefur líka Sagt frá í Nýjum menntmálum 1. tbl. 15. árg. 1997. ► Ástæður fyrir raddmeinum geta verið af ýmsum toga, en það sem fyrst og fremst hefur verið horft á sem orsök fyrir raddmeinum er vankunnátta um raddbeitingu og raddvernd. ► Röddin er í raun og veru at- vinnutæki fjölda fólks, tæki sem getur brugðist og ekki er hægt að endurnýja. En mörgum eru jafnvel búnar kringumstæður sem í raun bjóða upp á eyðilegg- ingu á röddinni og má þar sér- staklega nefna kennara sem oft á tíðum verða að beita röddinni í hávaða og í húsakynnum sem hafa ófullnægjandi hljómburð. Hávaði í umhverfi er skaðvaldur og raddir hækka í hlutfalli við aukinn hávaða. ► Raddböndum má að sumu leyti líkja við streng í hljóðfæri. Ef strengurinn er þaninn of mikið slitnar hann. Á sama hátt gefa raddböndin sig ef álagið á þau verður of mikið og við það missir röddin hljóm og styrk. Þar sem röddin byggist upp á styrk (db) og mismunandi tíðni (Hz) þá getur raddveila komið fram í því að ein- stök hljóð eða hljóðasambönd detta niður í styrk á ákveðinni tíðni. Þannig geta nemendur átt erfitt með að heyra rétt það sem kennarinn segir þar sem orðin skila sér ekki nema að hluta. Ekki er víst að kennarinn geri sér grein fyrir þessu þar sem hann veit sjálfur hvað hann er að segja og röddin berst öðruvísi til hans en annarra. ► Við rannsóknir hefur komið fram að tíðnisvið i rödd kennara getur fallið saman við tíðnisvið frá skvaldri bama. Það hefur í för með sér að rödd kennarans nær ekki að skera sig úr hávað- anum og bömin heyra því ekki hvað hann er að segja. ► Ymislegt í aðbúnaði kennara getur reynst röddinni skeinu- hætt. Nefna má þurrt og mengað loft vegna lélegr- ar loftræstingar. Vitað er að of þurrt loft veldur því að fólki finnst erfiðara að tala. Og ef ekki er hægt að endurnýja andrúmsloft í skólastofu með 20-30 nemend- um hlýtur að safnast fyrir of mikið magn af C02 og er þá hætt við að nemendur verði syfj- aðir og sljóir. Þannig getur álag á rödd kennara orðið mikið ef hann þarf að beita röddinni í of þurru lofti við að halda syfj- uðum nemendum við efnið. ► Svo virðist sem leikskóla- kennurum og íþróttakennurum sé einna hættast við að fá skemmdir í raddbönd. Reyndar ætti það ekki að koma á óvart þar sem þessir kennarahópar þurfa oft að beita röddinni í miklum hávaða, jafnvel oft við slæmar kringumstæður. ► Hér á landi hafa kennarar og kennaranemar fengið tilsögn í raddbeitingu og framsögn hjá leikurum og málfræðingum. En skort hefur fræðslu um radd- heilsu og raddvernd og að þeir fái raddprófun og leiðsögn í hvernig þekkjamegi takmörk raddar sinnar. f Bretlandi hefur veikindadögum kennara sem sótt hafa kerfisbundin námskeið um rödd, raddbeitingu og radd- vernd fækkað umtalsvert. ► Ymislegt í skólum getur reynst rödd kennarans skeinu- hætt. Hér eru nokkur atriði nefnd: Ryk sem kemur frá blöð- rum og bókum. Endurunninn pappír sem er með örfínar beitt- ar agnir sem geta sært slímhúð- ina á raddböndunum. Ljósritun- arvélar og geislaprentarar geta gefið frá sér um 50-60 skaðleg efni og truflað rödd. Kalkduft veldur þurrki í hálsi. Tússpenn- ar á tússtöflur gefa frá sér leysi- efni sem líka geta valdið þurrki og ertingu. ► Valdís segir að kennarar eigi út frá vinnuverndarsjónarmiði kröfu um að vel sé búið að rödd þeirra. Hér á landi er full þörf fyrir átak í þessum málum. Góð byrjun væri að hennar mati að koma fræðslu um rödd og radd- heilsu til kennara og huga að því hvernig draga megi úr skað- vænlegum áhrifum umhverfis á röddina. Morgunblaðið/Úr safni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.