Morgunblaðið - 18.11.1997, Page 49

Morgunblaðið - 18.11.1997, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MINIMIIMGAR ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 49 | W > J » * » J í* » 0 - J I - ' 1 sem stendur á bökkum Hólmsár, gegnt Þykkvabæ. Þar var ætíð rennt fyrir fisk en að sjálfsögðu var Haukur eini maðurinn sem eitt- hvað veiddi enda fengsæll og lunk- inn veiðimaður til margra ára. Ferð okkar til Karíbahafsins verð- ur einnig til eilífðar greypt í minni okkar þar sem Haukur var hrókur alls fagnaðar og lék á als oddi, og þrátt fyrir að vera elstur í hópnum sló hann okkur öllum hinum yngri við. Okkur félagana langar til að kveðja Hauk og þakka honum fyr- ir allar þær samverustundir og góðu vináttu er hann sýndi okkur með eftirfarandi kvæði; Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Magnús og Erlingur. Elsku Haukur, nú ert þú horfinn frá okkur og farinn til bjartari vist- arvera. Ég þakka þér fyrir að hafa verið sú fyrirmynd sem þú varst okkur öllum sem nutum þeirra for- réttinda að kynnast þér og lundar- fari þínu. Þú tókst öllum vandamál- um lífsins með einstöku jafnaðar- geði og varst sá maður sem vaktir öðrum og yngri mönnum bjartsýni. Þú áttir stóra drauma og lést ekki standa við orðin tóm, byggðir upp fyrirtæki og framkvæmdaand- inn fylgdi þér alla ævi á öllum sviðum, hvort sem var í bygginga- framkvæmdum, viðskiptum eða í þínu hjartans máli, laxveiði og -eldi. Fram á síðustu daga ræddir þú framtíðaráætlanir þínar. Eins og þú hefðir sennilega sagt sjálfur máttir þú í rauninni ekki vera að því að hverfa frá okkur núna, en nú fara framkvæmdir þínar fram á hærra og bjartara sviði. Haukur, ég þakka þér enn og aftur fyrir vináttu þína í þau ár sem mér var auðið að umgangast þig- Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Níels R. Vendelbjerg. Haukur Þorsteinsson átti marga harða rimmu við dauðann, frá því hann fékk kransæðastíflu fyrir tíu árum, og þarðist af slíkum vilja og útsjónarsemi að andstæðingur- inn ósigrandi hlýtur að hafa verið orðinn óþolinmóður að fá sitt fram. Ein minni háttar viðureign Hauks við þennan andstæðing, í formi skrautlegrar veiðisögu, sem gerðist fyrir fimm árum, varpar nokkru ljósi á snilldina í hans fari. Haukur var á bakkanum ásamt félaga sínum sem er hreyfihamlað- ur og ferðast í golfvagni þegar vegi þrýtur. Það óhapp verður að hann nær ekki beygju og hafnar úti í miðri á, en golfvagninn svaml- ar með eitt hjól upp úr. Haukur grípur tiltæka stöng og tekst að skorða félaga sinn meðan hann veður til hans. Þegar þangað er komið eru veiðimennimir ekki bangnari en svo að þeir súpa hvelj- ur af hlátri og súpa á ánni í leið- inni. En björgunin var eftir, og ekki bætti úr skák að sá sem bjarga átti er líkamsþungur. í þessum sjaldgæfu aðstæðum voru góð ráð dýr og Haukur greip til óhefðbund- inna aðferða eins og honum einum var lagið. Hann velti veiðifélagan- um í land. Sömu sköpunargáfu og þarna kemur í ljós beitti Haukur við smíði ýmissa sérstæðra farar- tækja, í bissniss, og við það að lifa lífinu. Hann hafði magnað lag á því að hafa skemmtilegt í kring- um sig, og var sjálfur stór- skemmtilegur, til orðs og æðis^ án þess þó að vera plássfrekur. I umgengni var hann snilldarmaður og sjarmör. Leiðindi og vesen voru ekki til í hans orðaforða og um það get ég vitnað úr návígi eftir að hafa deilt íbúð með honum og fleira fólki í þrjár vikur í útlönd- um. Því má bæta við að aldrei hef ég átt skemmtilegri drykkjufé- laga. Eftirsjáin eftir þeirri ótrúlegu kempu sem Haukur Þorsteinsson var fylgir okkur svo lengi sem við lifum og líka þakklætið fyrir að hafa átt hann að. Steinunn Sigurðardóttir. Við samstarfsfélagar Hauks Þorsteinssonar viljum með þessum fátæklegu línum votta virðingu okkar við minningu þessa mikla heiðursmanns. Þótt Haukur sé ekki lengur meðal okkar, hafði hann svo mótandi og varanleg áhrif á sam- starf okkar í gegnum tíðina að þess mun lengi gæta. Við félagarnir komum hver úr sinni áttinni, af Suðurlandi, Aust- fjörðum, Norðurlandi og Vestfjörð- um, og vorum auk þess á nokkuð mismunandi aldri. Það er því um- hugsunarefni að þegar svo ólíkir einstaklingar leggja saman, geti orðið úr svo einstakur samstarfs- hópur, eins og í okkar tilviki. Okk- ur er það ljóst að nú þegar aldurs- forsetinn í hópnum fellur frá mun það skarð vandfyllt, en góðar minningar lifa. Á sama tíma og Smári starfaði hjá fyrirtæki Hauks, Hauki og Olafi hf., m.a. við nýlagnir í skip hjá skipasmíðastöðinni Stálvík hf. í Garðabæ, vorum við Snæbjörn enn við nám. Spæbjörn í rafmagns- tæknifræði í Árósum í Danmörku og ég í viðskiptafræði í Háskólan- um í Reykjavík. Árið 1971 stofnuðu Haukur og Smári ásamt skipasmíðastöðinni Stálvík hf. o.fl. síðan rafmagns- verkstæðið Rafboða hf. og fluttust þá öll verkefni fyrir Stálvík frá Hauki og Ólafi hf. til Rafboða hf. Við Snæbjörn þekkjum orðið and- rúmsloft þessara ára af frásögum Hauks og Smára og er ljóst að Stálvík og Rafboði gengu í gegnum mikla uppgangstíma í kringum skipasmíðarnar í Garðabæ. Uppúr 1980 kynntist Rafboði svokölluðum Auto-Trawl kerfum sem BBC í Þýskalandi sá um upp- setningu á fyrir Stálvík. Óhjá- kvæmilega leitaði BBC aðstoðar Rafboða við niðursetningu o.fl. sem leiddi til þess að síðar varð að samkomulagi að Rafboði annað- ist að öllu leyti smíði og niðursetn- ingu Auto-Trawl kerfanna, og 1986 var Snæbjörn ráðinn til Raf- boða til að hafa yfirumsjón með Blómöbóðih Ga^ðshom v/ FossvogskirUjugarð “ Sfmii 55 4 0500 þróunar- og tækniþjónustu Raf- boða. Þegar skipasmíðar Stálvíkur höfðu lagst af og verkefnaskortur varð hjá Rafboða, var engan bilbug að fínna á Hauki. Hann vildi ótrauður sækja fram, leita nýrra leiða og laga fýrirtækið að nýjum veruleika. A þessum umbrotatím- um liggja okkar leiðir svo saman, því 1990 hóf ég störf hjá Rafboða. Ég sá Hauk í fyrsta sinn á fýrsta hluthafafundinum í Rafboða sem ég sat. Hann kom mér fýrir sjónir sem æðrulaus og veraldarvanur maður með mikla útgeislun og töfrandi persónuleika. Hann var ævinlega tilbúinn að styðja tillögur sem fólu í sér að sótt var á, þó að líkur á árangri væru ekki mikl- ar. Uppgjöf var ekki til í orðabók Hauks Þorsteinssonar. Þrátt fyrir góðan árangur í að laga rekstur Rafboða að nýjum aðstæðum, varð ekki undan því komist að ábyrgðir, sem Rafboði sem undirverktaki Stálvíkur var flæktur í vegna smíði á svokölluðu raðsmíðaskipi fyrir ríkið, ollu gjaldþroti fyrirtækisins. Þegar fyrrverandi starfsmenn Rafboða tóku sig saman til að kaupa rekstur Rafboða af þrotabú- inu, var Haukur þar fremstur í flokki og stappaði stáinu í okkur hina. Þegar að því kom að hópur- inn, sem þá var 10 manns, legði fram hlutaféð, greiddi Haukur með reiðufé meðan við hin urðum að taka lán fyrir okkar hlut í banka. Þannig var ávallt reisn yfír Hauki í öllum hans gerðum. Við þremenningarnir erum afar þakklátir fyrir þá ákvörðun Hauks, að þegar ákveðið var að skipta fyrirtækinu sem stofnað var á rústum Rafboða hf., skyldi hann velja þann kostinn sem talinn var áhættusamari og ganga til liðs við okkur Smára og Snæbjöm um rekstur Naust Marine/Rafboða- Rafur hf. Haukur kom ævinlega við á skrifstofunni einu sinni í viku til skrafs og ráðagerða, og fylgdist vel með rekstrinum til hins síð- asta. Þær heimsóknir vera nú ekki fleiri, en minningin um góðan dreng mun lifa. Við félagamir vottum bömum Hauks og öðmm aðstandendum okkar dýpstu samúð. Ásgeir Erling, Smári og Snæbjörn. Crfisclrykkjur I^^TUcfHngohú/id IralcAn-inn SímÍ 555-4477 Útfararstofa íslands Veitir aðstandendum alhliða þjónustu við undirbúning jarðarfara tátinna aettingja og vina. AUan sólarhringinn. Áratðng reynsla. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfararstjóri Suðurhlíð 35 ♦ 105 Reykjavik Simi 581 3300 í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða úr íslenskum og erlendum steintegundum. Verið velkomin til okkar eða hafið samband og fáið myndalista. Sr? I SKEMMUVEGI 48, 200 KOP., SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410 + Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, PÉTUR SÍMONARSON frá Vatnskoti, Þingvallasveit, dvalarheimilinu Seljahlíð, lést þriðjudaginn 11. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 19. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Flugbjörgunarsveitina, gíró 5525851. Katrfn Símonardóttir, fvar Björnsson, Helga Símonardóttir Melsteð, Sveinborg Símonardóttir, Sverrir Steingrimsson, Sigurbjörg Pálsdóttir, Gunnar fvarsson, Símon fvarsson, Jónfna Melsteð, Pétur Melsteð, Sigursteinn Melsteð, Erlingur Aðalsteinsson, Kári Aðalsteinsson, Símon Aðalsteinsson. Innilegar þakkir sendum við ölium þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐLAUGAR MAGNÚSDÓTTUR, Jaðri, Höfnum. Jón H. Borgarsson, Borgar J. Jónsson, Magnús I. Jónsson, Sveinbjörn G. Jónsson, Rúnar K. Jónsson, Maria Rós Newman, Eygló B. Einarsdóttir, Helga Jónína Guðmundsdóttir, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Hallveig Fróðadóttir, Sigurður Ingimundarson, barnabörn og barnabarnabarn. + Inniiegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlý- hug við andlát og útför fööur okkar, tengda- föður, afa og langafa, FRIÐRIKS JÓNSSONAR organista frá Halldórsstöðum f Reykjadal. Sigurður Kr. Friðriksson, Emilía J. Friðriksdóttir, Páll Friðriksson, Kristjana G. Friðriksdóttir, Ómar Friðriksson, Sólrún Hansdóttir, Kristján Eysteinsson, Ragnar Eggertsson, Snjólaug Ármannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýnt hafa okkur samúð og vináttu við andlát og útför SIGURGEIRS GÍSLASONAR húsasmíðameistara, Grundarlandi 9, Reykjavík. Anna Rósa Sigurgeirsdóttir, Halldór Leifsson, barnabörn, barnabamabörn, Fanney Samsonardóttir, systur og mágar. + Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför MAGNÚSAR J. BJARNASONAR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Svöluhrauni 6. Fyrir hönd vandamanna, Sigmundur Bjarnason, Gunnur Salbjörg Friðriksdóttir. Lokað Lokaö verður eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar GARÐARS H. SVAVARSSONAR, kaupmanns. Fasteignasala íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.