Morgunblaðið - 18.11.1997, Page 58

Morgunblaðið - 18.11.1997, Page 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 108 Reykjavík • Sími 5691100 • Simbréf 569 1329 Dýraglens ! V/£> fcnvM APMlpá til ,þAP STO&MUR. íAPStG! þO HÉWR. S/OQRprf Þefskvn J ( ZKSINLEGA EtCKl- W(. tfEÍRW VEÐORFZEGN 'RN/UZ / FEm/)Ú7lH&L\ /NU /Ut fJMU Grettir Þetta svæði er fremur ógreið- Ef við skiljumst að þá hittumst Finndu bara kúluna, Magga! fært, herra____ við ef til vill aftur i betri heimi___ Auðlindaskattur og fólksflótti Frá Guðmundi Jóhannssyni: FÖSTUDAGINN 24. okt. sl. komu formenn ríkisstjórnarflokkanna fram í ríkissjón- varpinu til að kynna rit um starf og stefnu ríkisstjómarinn- ar í tilefni af því að kjörtímabil hennar er hálfn- að. Að sjálfsögðu var þama ekki um neina maðka að ræða í mys- unni í þessu riti, heldur skein heiðríkjan út úr hveiju starfi blessaðra valdhafanna, svo þjóðin gat prísað sig sæla yfir því að eiga svona góða landsfeður. Þetta var svo endurtekið í Mbl. daginn eftir til öryggis um að þessi sæla færi nú ekki fram hjá nein- um. í þessu samtali kom fram hjá formanni Framsóknarfl. Halldóri Asgrímssyni, varðandi umræðuna um auðlindaskatt eða veiðileyfa- gjald, að ef það yrði sett á, þá þýddi það algjöra rúst og röskun á byggð landsins, þ.e. fólksflótti yrði til höfuðborgarsvæðisins og tók sem dæmi fólksfækkun í Vest- mannaeyjum undanfarin ár og undir þetta allt tók forsætisráð- herra. Þó í orði kveðnu sé talið að þjóðin eigi helstu auðlindir landsins á láði og legi þá er það aðeins í orði en ekki á borði. Því markvisst er stefnt að því að festa þessar auðlindir sem eign einstaklinga, og þá fyrst og fremst þær sem í sjónum synda. Hér skal ekki lagð- ur dómur á það hvort rök séu fyr- ir því að leggja þennan skatt á eður ei, hins vegar vil ég fara nokkmm orðum um hvernig þess- um auði er stjórnað. Eins og mál- um er háttað nú er hinum margum- rædda kvóta úthlutað til þeirra aðila sem geta gert sér hann að hreinni braskvöra eins og hin mörgu dæmi sanna, og hafa þessir handhafar það í hendi sér í fjölda tilfella hvort þetta eða hitt sjávar- plássið fer í eyði eða ekki. Því virð- ist eðlilegra að þessar veiðiheimild- ir séu bundnar stöðunum og óheim- ilt sé að ráðstafa þeim þaðan nema með samþykkt og leyfi viðkomandi sveitarstjórnar. Það liggur ljóst fyrir að atvinna hringinn í kringum landið byggist að stómm hluta á sjávarútvegi og það er líka ljóst að atvinna á hinum ýmsu stöðum er undirstaða þess að fólk flýi ekki staðina, þó fleira kunni að koma til, s.s. skóla- og læknaþjónusta og samgöngur. Lengst af hafa allir þessir þættir verið á valdi ríkisvaldsins, þó skólakerfið sé nú nýkomið til sveitarfélaganna sjálfra. Það má vera að ríkisstjórn- inni finnist hún nú þegar eiga nóga sök á búseturöskun þjóðar- innar, vegna kolruglaðs kvóta- kerfis, þótt hún setji ekki á auð- lindaskatt, sem ekki verður raunar séð með hvaða hætti hann sem slíkur einn og sér mundi hrekja fólk frá einum stað til annars. Oft hefur mér nú fundist utanríkisráð- herrann vera trúverðugri í mál- flutningi sínum en í þessu auð- lindamáli. Sjálfsagt ber nauðsyn til að hafa stjórn á veiðunum, en það er ekki sama með hvaða hætti það er gert. GUÐMUNDUR JÓHANNSSON, ellilífeyrisþegi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Á hljómdisknum cm 31 lag, mcðal þeirra em án efa einhver íppáhaldslaga þinna, s.s. Fuglinn í fjörunni, Á Sprengisandi, Gígjan, Enn syngur vomóttin, Sáuð þið hana systur mína. Fæst i flcstum hljómplötuvcrslunum. Útgcfandi: Eyjólfur Rúnar Sigurðsson Dreiflng: SPOR ■MMHmnHBBBBBHMHHKHWHHBHHWi *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.