Morgunblaðið - 18.11.1997, Side 72

Morgunblaðið - 18.11.1997, Side 72
Atvinnutryggingar MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Flak bresks togara fundið eftir 49 ár? Fara þarf óhefðbundna leið við fjármögnun Sundabrautar Ríkið greiði verk- taka fyrir hvern bfl HELGA RE-49 kom til hafnar í Reykjavík í gær með heldur óvenjulega veiði, reykháf af göml- um síðutogara. Hannes Þ. Haf- stein, fyrrverandi forstjóri Slysa- varnafélags íslands, telur líkur á að þar sé kominn reykháfur af breska togaranum Goth frá Fleetwood sem ekkert hefur spurst til frá því í desember 1948. Reykháfurinn kom í trollið í kantinum norðnorðvestur af Hala þar sem Helga var á veiðum á 343 faðma dýpi síðastliðinn laugardag. Hann er á sjöunda metra að lengd, að sögn skipstjórans á Helgu, Viðars Benediktssonar. {'CXgf - Togarinn sennilega seldur frá Hull til Fleetwood Hannes segir að á reykháfnum sjáist greinilega upphleyptir stafir, H 21 eða H 211, og flagg en ein- kennin á flagginu séu öll máð út. Hvorugt númerið er að finna í bók um togara frá Hull sem farist hafa á tímabilinu 1835-1987, að sögn Hannesar. Hann segir að svo virðist sem málað hafi verið yfir bókstafinn H, mjög sennilega með stöfunum FD, sem standa fyrir Fleetwood. „Þá getur verið að þessi togari frá Hull hafi verið seldur niður til Fleetwood. Og þá sló mig ákveðinn atburður sem ég þekkti úr sögunni. Fyrir nokkrum árum var ég staddur í Fleetwood og sá þá nafnið Goth á minningartöflu. Eg skráði ekki hjá mér númerið á honum, en Goth var einn af bresku togurunum sem fórust við Island,“ segir Hannes. Hann segir að talið sé að 15. desember 1948 hafi Goth farist á Islandsmiðum með allri áhöfn, sextán mönnum. „Það eina sem vitað er umþennan togara er að hann var á Islandsmiðum og dag- inn áður, eða 14. desember, hafði hann leitað landvars inni á Aðalvík vestra undan norðaustan áhlaupi. Þá hafði annar breskur togari, Lincoln City, samband við liann og það er það síðasta sem er vitað um hann,“ segir Hannes. Mikil leit var gerð að togaran- um, af skipum og flugvélum, en ekkert fannst sem bent gæti til af- drifa skips og áhafnar. TVEIR kostir þykja koma til greina við lagningu Sundabrautar, milli Sæbrautar og Vesturlands- vegar á Álfsnesi, þ.e. á kaflanum yfir Kleppsvík. Koma tvö brúarstæði til greina og hugsan- lega göng sem yrðu þó mun dýrari. Til greina kemur að bjóða verkið og fjármögnun þess út og að ríkið endurgi-eiði verktaka í hlutfalli við umferð um mannvirkið. Staða undirbúnings við hönnun Sundabrautar var kynnt borgaryf- irvöldum og samgöngunefnd Alþingis á fundi í síðustu viku. Kom þar fram að kostnaður við verkið allt gæti verið á bilinu 8 til 11 milljarðar króna. Tekur sú áætlun til íjögurra akreina vegar með brúm og gatnamótamann- virkjum á leiðinni milli Sæbrautar og Álfsness, þ.e. yfir Kleppsvík, Tvö brúarstæði eða jarðgöng und- ir Kleppsvflk koma til greina um Gufunes, Geldinganes og Álfs- nes, en síðar er einnig hugmyndin að brúa Kollafjörð. Jón Rögnvaldsson aðstoðar- vegamálastjóri segir að fram hafi komið á fundinum sú hugmynd að bjóða verkið út, svo og fjármögnun þess og rekstur í til- tekinn tíma. Endurgreiðslan færi síðan fram með svokallaðri skuggagjaldsaðferð. „Hún er í því fólgin að ríkið tekur að sér að greiða ákveðið gjald fyrir hvern bíl sem ekur um mannvirkið,“ segir Jón Rögnvaldsson. „Um- ferðin er mæld og verktakinn eða eigandinn fær greitt í hlutfalli við notkun. Þessa hugmynd nefndi samgönguráðherrann aðspurður um hugsanlega fjármögnunar- leið,“ sagði Jón og sagði einnig hugsanlegt að Vegagerðin tæki hreinlega 10-15 ára bankalán til framkvæmdanna. I skýrslu Vegagerðarinnar og borgarverkfræðings, sem lögð var fram á fundinum, kemur fram að framkvæmd sem þessi rúmist vart innan hefðbundinnar vegaáætlun- ar og því þurfi að koma til óhefðbundnari leið við fjármögnun. Vegtollur henti illa þar sem önnur leið framhjá toll- hliði sé nærtæk. ■ Gæti komist/6 Morgunblaðið/Þorkell REYKHAFURINN, sem Helga RE fékk í trollið í kantinum norðnorðvestur af Hala, er kominn á land í Reykjavík en trollið er ónýtt, að sögn Viðars Benediktssonar skipstjóra. Ölafur K. Magnússon ljós- myndari Morgunblaðsins látinn ÓLAFUR K. Magnússon, fyrrver- andi ljósmyndari Morgunblaðsins, er látinn, 71 árs að aldri. Ólafur fæddist í Reykjavík 12. mars árið 1926. Foreldrar hans voru Kristín Hafliðadóttir og ■^Magnús Jóhannsson skipstjóri, sem fórst með togaranum Jóni forseta árið 1928. Ólafúr lauk námi frá Ingimars- skólanum og hélt síðan til New York árið 1944 til náms í ljósmynd- un í eitt ár. Að því loknu fór hann til Hollywood og lærði kvikmyndun . hjá Paramount Pictures en sneri heim árið 1947 og hóf þá störf hjá Morgunblaðinu, þar sem hann starfaði fram til 1. janúar 1997. Eftirlifandi eigin- kona Ólafs er Eva Kristinsdóttir og áttu þau fimm börn. Ólafur K. Magnússon var aðalljósmyndari Morgunblaðsins um nær hálfrar aldar skeið, einstakur fréttaljós- myndari sem túlkaði umhverfi sitt með nærfæmum og skil- góðum hætti. Sem ljósmyndari Morgun- blaðsins um svo langan tíma var hann ein af máttarstoðum blaðsins og hafði mikil áhrif á þróun þessarar greinar íslenskrar blaða- mennsku. Samstarfsmenn hans á Morgunblaðinu sakna vinar í stað og minnast hans með hlýhug og virðingu og senda eftir- lifandi konu hans, börn- um og fjölskyldu allri innilegar samúðar- kveðjur með þakklæti fyrir langt og mik- ilvægt samstarf. Islensk erfðagreining bauð í Gagnalind Vísa ásökunum um misnotkun upplýsinga á bug KARI Stefánsson, forstjói'i Islenskrar erfðagreiningar, vísar á bug ásökunum um að fyrirtæki hans hafi ætlað sér að misnota upplýsingar úr sjúkraskrám og gert tilboð í hlutafé Gagnalindar hf. í því skyni. Kári segir að hlýðni við lög og siðferðisreglur sé forsenda vel- gengni fyrirtækisins. Þorsteinn Ingi Víglundsson, framkvæmdastjóri Gagnalindar, fyrirtækis sem hannað hefiu' hugbúnað fyrir sjúkraski'ár, segir að það hafi fylgt tilboði íslenskrar erfðagreiningar að ætlun fyr- irtækisins væri að byggja upp landsgrunn og selja erlendum tryggingafélögum og lyfjafyr- irtækjum upplýsingar. Hann segir að hann muni ekki selja íslenskri erfðagreiningu. Kári Stefánsson segir að tilboðið í hlutabréf Gagnalindar hafi einungis byggst á þörf fyrir aðgang að upplýsingum í heilbrigðisþjónustu, en fyrirtækið hafi engan áhuga á að tengja slíkar upplýsingar við nöfn einstaklinga og Gagnalind hafi ekki yfir slíkum upplýsingum að ráða, lögum samkvæmt. ■ Hlýðni við/4 Frumvarp um endurnýjun fískiskipa Rýmri reglur um stærð nýrra skipa RIKISSTJORNIN hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga, sem felur í sér rýmkun á gildandi reglum um endurnýjun fiskiskipa. Aður gilti sú meginregla að nýtt skip mætti ekki vera stærra en eldra skip, sem úrelt var á móti. Samkvæmt frumvarpinu verður leyft að hafa hið nýja skip allt að 100 rúmmetrum stærra en hið eldra auk þess sem stækka má það um 25% af rúmmetrafjölda hins eldra. Regla þessi er takmörkuð við skip sem hafa haft veiðileyfi innan íslenzku lögsögunnar í 7 ár eða meira. Nýtt skip má þó aldrei vera meira en 60% stærra en hið gamla, sem úrelt er á móti. Þetta frumvarp byggist á niðurstöðum starfshóps, sem sjáv- arútvegsráðherra skipaði í janúar síðastliðnum til að fjalla um end- urnýjunarreglur fiskiskipa. Meg- inverkefni hópsins var samkvæmt skipunarbréfi að gera tillögur um breytingar á endurnýjunarreglum fiskiskipa, meðal annars til samræmingar á þeim reglum sem gilda annars vegar um breytingar og hins vegar um nýsmíði. Frumvarpið er efnislega sam- hljóða því frumvarpi sem starfshópurinn skilaði til sjáv- arútvegsráðherra. Meginreglan er sú að við endurnýjun megi stækka skipin nokkuð og auk þess er sérstök undanþága frá end- urnýjunarreglum, vegna breyt- inga á skipum skráðum fyrir fyrsta janúar 1986, afnumin með 14 mánaða aðlögunartíma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.