Morgunblaðið - 26.11.1997, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hjólreiða-
maður
alvarlega
slasaður
FRETTIR
LÍÚ leggur fram kröfugerð í viðræðum við sjómenn
Sjómenn greiða atkvæði
um verkfallsboðun
MAÐUR á fimmtugsaldri á reiðhjóli
slasaðist alvarlega er hann varð fyr-
ir bíl á mótum Kringlumýrarbrautar
og Háaleitisbrautar í gærmorgun.
Var hann fluttur á slysadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur og telur lögreglan
að hjálmur hafi forðað manninum
frá enn alvariegri höfuðmeiðslum.
Maðurinn, sem var á leið yfir
Kringlumýrarbraut, varð fyrir bíl
sem ók götuna til suðurs. Sögðu
sjónarvottar manninn hafa kastast
af hjólinu eina 15-17 metra. Hann
slasaðist allmikið og hjálmur hans
er illa farinn. Er talið að hann hafi
tekið af manninum mesta höfuð-
höggið. Maðurinn er á gjörgæslu-
deild og verður áfram og er að sögn
lækna talsvert mikið slasaður.
Jón Baldursson, yfirlæknir á
slysadeild, segir að margt bendi til
þess að vandaðir hjálmar dragi oft
úr höfuðmeiðslum hjólreiðafólks.
Það væri reynsla lækna á slysadeild
að þeir sem notuðu hjálma fengju
oft minni höfuðáverka og hvatti
hann böm sem fullorðna til að nota
hjálma. Hjálmar vernduðu hins veg-
ar ekki aðra líkamshluta og ekkert
kæmi í stað þess að fara varlega.
GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasambands-
ins, sagði eftir samningafund með
útvegsmönnum að engu líkara væri
en að útvegsmenn væru að biðja um
verkfall. Á fundinum hafi LÍU lagt
fram kröfur um lækkun á launum
yfirmanna. Sjómannasambandið og
Farmanna- og fiskimannasamband
íslands hafa ákveðið að beina því til
aðildarfélaga sinna að fara í at-
kvæðagreiðslu um verkfallsboðun.
Búast má við því að atkvæða-
greiðsla um boðun verkfalls heflist í
félögunum fyrstu dagana í desember
og standi í um það bil mánuð eða
fram yfir áramót. Verkfall sjómanna
og farmanna þarf að boða með
þriggja vikna fýrirvara og gæti því
hafist um mánaðamótin janúar/febrú-
ar verði verkfallsboðunin samþykkt.
Á samningafundinum í fyrradag
lögðu útvegsmenn fram kröfugerð í
þremur liðum. í fyrsta lagi, að þegar
fækkað væri í áhöfn skipa skiptist
hlutur skipveijans jafnt á milli áhafn-
ar og útgerðar. Kristján Ragnarsson,
formaður LÍÚ, sagði að í dag leiddi
fækkun í áhöfn til þess að útgjöld
útgerðarinnar hækkuðu.
I öðru lagi kröfðust útvegsmenn
þess, að hlutur skipstjóra á loðnu- og
síldarskipum lækkaði úr þvi að vera
tæplega þrefaldur í að vera tvöfaldur
eins og á öðrum fiskiskipum. Kristján
sagði að engin rök væru fyrir því að
það væri erfiðara að vera skipstjóri
á loðnu- eða sfldarskipi en skipstjóri
á öðrum skipum. Þessir menn væru
með svipuð laun fyrir einn dag og
fólk, sem reiknaði út laun þeirra, fengi
í kaup á heilum mánuði.
í þriðja lagi krafðist LÍÚ, að leyft
yrði að fjölga í áhöfn frystiskipa um
tvo menn án þess að það hefði áhrif
á hlutaskiptin. Kristján sagði að við
þessa breytingu yrðu verðmætin sem
skipin flytja að landi meiri og hlutur
hvers og eins yrði eftir sem áður
jafnmikill þó að mönnunum yrði
fjölgað.
Guðjón Amar sagði að þessar
kröfur væru fallnar til þess að færa
menn fjær samningum. Hann sagði
furðulegt að leggja til að laun þeirra
sem störfuðu á skipum sem skiluðu
mestum hagnaði, þ.e. síldar- og
loðnuskipum, væru lækkuð. Sama
ætti við um kröfu LÍÚ um breyting-
ar á frystitogurum. Hún fæli í sér
að skiptaprósenta yrði lækkuð um
1%. Afkoma á frystiskipum hefði
verið ágæt og tæplega væri þörf á
að lækka laun sjómanna á þeim.
„Það er engu líkara en að þessir
menn séu að biðja um verkfall," sagði
Guðjón Amar.
Öll verðmyndun fisks
verði á markaði
Forsvarsmenn Sjómannasam-
bands fslands og Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands hafa undan-
famar vikur og mánuði verið í funda-
herferð um landið og búast þeir við
að hún standi fram að jólum. „Ef
ég met fundina, þá era þeir allir á
einn veg. Menn hafa bara sagt að
þeir vilji fá sinn kjarasamning, eins
og aðrar stéttir og þeir fundir, sem
við Guðjón A. Kristjánsson höfum
haldið vítt og breitt um landið, hafa
verið mjög afdráttarlausir," sagði
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands.
Að sögn Sævars hafa engar við-
ræður verið í gangi við viðsemjendur
upp á síðkastið ef undan er skilinn
stuttur fundur í síðustu viku þar sem
ekkert gerðist. „Okkar krafa um að
öll verðmyndun fisks verði á markaði
stendur enn óhögguð en LÍÚ hefur
fram að þessu hafnað henni alfarið,“
sagði Sævar.
Kristján sagði að útvegsmenn
hefðu ekkert umboð til að verða við
kröfunni um allan fisk á markað.
Einn af kostum íslensks sjávarútvegs
væra tengsl veiða og vinnslu og út-
vegsmenn vildu ekki stuðla að því
að ijúfa þau.
Þing Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins hefst í dag. Kjaramál
verða stærstu mál þingsins.
Vera og gæsimar
HÚN Vera Knútsdóttir gengur oft meira en Htið forvitnar og jafnvel
niður að Tjöm, heilsar upp á gæs- ágengar, þegar þær elta hana í
imar og hefur gaman af. Og svo stómm hóp. Kannski er ástæðan
virðist sem gæsimar hafi líka gam- sú að Vera á það til að stinga að
an af heimsóknum Vem og séu þeim brauðmola - hver veit?
Gildirtil 30.11 '97
yfir 2.000,- kr.
©SILFURBÚÐIN
KRINGLUNNI 8-12 S: 568-9066
Morgunblaöið/Ásdís
Sinfónían
í verkfall?
HUÓÐFÆRALEIKARAR í
Sinfóníuhljómsveit íslands hafa
boðað til verkfalls á fimmtudag
og föstudag. Samningafundur
er boðaður í dag, en Bjöm Th.
Ámason, formaður Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna, seg-
ir að enn beri mikið S milli.
Bjöm segir að eitt megin-
ágreiningsefnið sé skilgreining
á vinnutíma og íjárframlög til
hljómsveitarinnar séu of lág.
Það sé í raun ekki hægt að
reka hljómsveitina miðað við
núverandi fjárveitingar.
Leitað á
heimavist
LÖGREGLAN á Selfossi fór í
heimavist Menntaskólans á
Laugarvatni í gær og leitaði að
fíkniefnum. Ekkert fannst við
leitina.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu barst ábending um meinta
fíkniefnaneyslu. Nokkrir lög-
reglumenn fóra á staðinn með
leitarhund og leituðu í hveiju
herbergi heimavistarinnar.
Þrymur á 40 metra dýpi í Tálknafirði
Segir skipið hafa
sokkið í drætti
VARÐSKIP Landhelgisgæslunnar
fann kl. 14 í gær stálskipið Þrym
BA á um 40 metra dýpi í Tálkna-
firði eftir að eigandi skipsins hafði
upplýst hvar skipið lægi. Staðfestu
kafarar frá varðskipinu að um Þrym
væri að ræða, en leitað hefur verið
að skipinu undanfarna daga eftir að
fregnir bárast um að skemmtiskipið
Linda hefði dregið Þrym frá Tálkna-
firði þar sem hann hefur legið lengi
í höfninni og snúið til baka án hans
fyrir rúmlega viku síðan.
Þórólfur Halldórsson, sýslumaður
á Patreksfirði, sagði að eigandi
Þiyms hefði gefið þá skýringu að
skipið hafi sokkið þegar hann hafi
verið að draga það út Tálknafjörð.
Hann hafi ætlað að færa skipið á
land í eigu eiginkonu sinnar við utan-
verðan fjörðinn. Hafnaryfirvöld
höfðu stefnt manninum vegna þess
að hann hafði ekki orðið við kröfu
um að fjarlægja skipið úr höfninni
þar sem það hafði verið árum saman.
Þórólfur segir mál þetta litið mjög
alvarlegum augum þar sem það varði
brot á lögum um vernd gegn meng-
un sjávar. Hafði hann fengið dóms-
úrskurð um heimild til þess að leggja
hald á skipsdagbók Lindu og sigl-
ingatæki áður en eigandi Þryms
upplýsti hvar skipið væri. Sagði hann
að málið yrði væntanlega sent Ríkis-
lögreglustjóra um næstu helgi þegar
rannsókn sýslumannsembættisins á
málinu væri lokið.
Óvíst er hvort reynt verður að ná
Þrym upp. Þórólfur sagði heilbrigðis-
yfirvalda að taka ákvarðanir um
það. Hins vegar skipti miklu máli
að vitað væri hvar skipið lægi þann-
ig að hægt væri að vara sjófarendur
við hættu sem af því gæti stafað.
Ríkisstofnanir í samkeppnisrekstri
Fjárhagslegnr aðskiln
aður í rekstri 1999
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ gaf í
gær út reglur um hvemig ríkisstofn-
un, sem að hluta til sé í umtals-
verðri samkeppni við fyrirtæki á
opinberum markaði, skuli aðgreina
þann rekstur fjárhagslega frá öðram
rekstri. Stefnt er að því áð reglurnar
verði komnar til framkvæmda í árs-
byrjun 1999.
I formála Friðriks Sophussonar
fjármálaráðherra að reglunum segir
að talsmenn einkarekstrar hafi
stundum talið á sig hallað þar sem
ríkisstofnanir og einkafyrirtæki
starfi á sama markaði. Þeir hafi
haldið fram að ríkisstofnanir niður-
greiddu samkeppnisrekstur með fé
frá starfsemi, sem nyti einkaréttar
eða framlaga úr ríkissjóði.
Kveðst Friðrik vona að með útgáfu
reglnanna verði stuðlað að jafnræði
I samkeppni milli einkarekstrar og
ríkisrekstrar. Að auki sé markmiðið
að gera allan kostnað við samkeppn-
isstarfsemi á vegum ríkisins sýnileg-
an til að auðvelda mat á því hvort
henni verði betur sinnt af einkafyrir-
tækjum um leið og kostnaðarvitund
í stofnunum verði efld og hag-
kvæmni opinbers rekstrar aukin.
Miðað við markaðs-
hlutdeild og tekjur
Fjármálaráðuneytið hefur gefið
út reglur um hvað fjárhagslegur
aðskilnaður eigi að ganga langt eft-
ir umfangi samkeppnisrekstrar.
Ekki þarf aðskilnað séu tekjur sam-
keppnisrekstrar lægri en fimm millj-
ónir króna á ári og markaðshlutdeild
minni en 5% af skilgreindum mark-
aði. Má ríkisfyrirtækið hins vegar
ekki verðleggja þjónustu sína lægra
en keppinauturinn.
Séu tekjur ríkisstofnunar af sam-
keppnisrekstri á bilinu 5-50 milljón-
ir króna eða markaðshlutdeild
rekstrarins 5-15% af viðkomandi
markaði ber að skilja að fjárhag
samkeppnisrekstrarins og annarrar
starfsemi stofnunarinnar.
Ef tekjur ríkisstofnunar af sam-
keppnisrekstri era hærri en 50 millj-
ónir króna eða markaðshlutdeildin
yfir 15% skal fara fram fjárhags-
og stjórnunarlegur aðskilnaður.
I
I
I
I
v
í
í
i
>
i
L