Morgunblaðið - 27.11.1997, Blaðsíða 70
70 FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
jfeííl/lí!
Morgunblaðið/Hinrik Bjarnason
„FRUMSÝNINGIN fór fram í rúmlega 18 alda gömlu útileikhúsi
Heródesar Attíkusar, þar sem bakhliðin er bergveggur Akrópólishæð-
ar en loftið himinhvolfin víð.“
GYÐJA viskunnar
Isabella Rosselini.
ARMAND Assante
er í hinu krefjandi
hlutverki Odysseifs.
hlutverk á sannfærandi hátt. Fyrir-
fram er ekki með öllu ljóst hvernig
haldið verði saman persónugervingi
þessa þrautakonungs á ótrúlegri
ferð hans um rúm og tíma, en
Odysseifur Assantes er trúverðugur
og hann, svo sem aðrir leikarar
verksins, virðist nálgast með virð-
ingu og skilningi það sem álíta má
hinn hómerska anda þess.
Greta Scacchi er Penelópa drottn-
ing í Iþöku og stendur mynduglega
af sér ágengni vonbiðla og búsorgir
hvers konar í langri bið og einlægii
trú á endurkomu bónda síns. Hún er
sterk í túlkun sinni á einni frægustu
kvenhetju sígildra bókmennta, en
það eru fleiri myndugar konur á
ferð: Isabelle Rosselini er Aþena,
gyðja viskunnar, Vanessa L. Willi-
ams leikur sædísina Kalypsó, en
tálmeyna Kirku túlkar Bernadette
Peters. Síðast en ekki síst skulu
nefnd til sögunnar Irene Papas, sem
er Antíklea móðir Odysseifs, Ger-
aldine Chaplin í hlutverki Evrýkleu,
hinnar dyggu fóstru hans, og svo Al-
an Stenson í hlutverki Telemakkusar
Odysseifssonar.
Frumsýning kvikmyndarinnar um
Odysseif eftir 2.700 ára gömlum
ljóðaflokki Hómers var
áhrifamikil og eftir-
minnileg. Kvöldið var
stillt og svalt og yfir
magnaðri myndsögu
fornkvæðisins á tjaldi
hins aldna sviðs
hreykti sér fullur máni
í austri, forkláraður
eftir tunglmyrkva gær-
kvöldsins, en stjarnan
Venus var ráðandi á
vesturhlið leikhúss-
hvelfingarinnar. Litlu
austar undir vegg
Akrópólis en leikhús
Heródesar Attíkusar
eru bogagöng Evmení-
usar; undir þeim var að
sýningu lokinni reidd-
ur fram bízanskur
náttverður. Það var létt yfirbragð á
gestum þeirrar samkomu og kátast-
ar voru þær jarðnesku stjörnur, sem
áttu hvað mestan þátt í þessu eftir-
minnilega sjónarspili.
Sjónvarpsmyndin Odysseifskviða
er í tveim hlutum og er hvor 90 mín-
útna langur. Hún er gerð af banda-
rísku fyrirtækjunum Hallmark og
American Isotrope og framleiðendur
eru Robert Halmi Sr. og Francis
Ford Coppola. Evrópskir meðfram-
leiðendur eru Beta Film, Mediaset
og Prosieben í Þýskalandi og Skai í
Grikklandi. Myndatakan fór fram í
Tyrklandi, á Möltu og í breskum
myndverum og verkið kostaði u.þ.b.
2,3 milljarða ísl. króna. Frumsýning-
in í maí sl. á NBC í Bandaríkjunum
laðaði að sér metfjölda áhorfenda.
Fyrir Islendinga er sérstök ástæða
til að muna einstakar þýðingar Svein-
bjai’nar Egilssonar á kviðum Hó-
mers, bæði Ilíonskviðu og Odysseifs-
kviðu, og vandaða útgáfu Menningar-
sjóðs á þeim. I þýðingu Sveinbjamar
öðlast þessir homsteinar vestrænnar
menningar ekki aðeins líf í nýju um-
hverfi, heldur verða hluti af sígildum
bókmenntum íslenskum. Færi vel ef
sýningin endui'vekti áhuga á lestri
Hómersþýðinga hans.
Odysseifskviða verður sýnd í Sjón-
varpinu á fóstudags- og laugardags-
kvöldi 2. og 3. janúar 1998.
Höfundur er dagskrárstjóri inn
kaupadeildar Sjónvarpsins.
. : ‘ . y
GERALDINE Chaplin leikur
fóstru Odysseifs.
Odysseifur á
hvíta tjaldinu
Sjónvarpsmyndin um Odysseif konung er
sú dýrasta sem gerð hefur verið. Evrópu-
frumsýning myndarinnar var eftir því.
Hinrik Bjarnason var á staðnum og fjallar
um það sem fyrir augu bar.
LÖNG og ströng var ferð Odysseifs
konungs heim til íþöku úr Tróju-
stríði; ógnvænlegir og undraverðir
voru þeir atburðir, sem urðu á leið-
um hans um hafið þann áratug og
ótrúleg staðfesta og hetjulund kon-
ungsins. Heim komst hann þó að lok-
FLOTT
FÖT
Cþú getur verið viss um að
finna jakkafötin þín í Herra-
garðinum. Við bjóðum vönduð
jakkaföt frá heimsþekktum
framleiðendum eins og Nino
Danielli, Benvenutto og Strellson
Mundu að gæði eru góð kaup.
' GARÐURINN
-klæðirþigvel
Laugavegi 13 • KRINGLUNNI
um tii sinnar elskuðu Penelópu
drottningar, sonarins Telemakkusar
og tryggra þegna sinna. Þá heim-
komu gerði skáldið og fræðaþulurinn
Hómer ódauðlega, svo sem alla ferð
Odysseifs, í kvæðum sínum um
þrautagöngu hans, Odysseifskviðu,
þar sem gullaldarskáld Grikkja lýsir
þolgæði hetjunnar í viðskiptum við
guð og menn og hinni verðugu
umbun að lokum fyrir það einkum að
halda ró sinni og láta ekki hugfallast.
Allt frá þessum tíma er Odysseifur á
sífelldri heimleið, - og endurkoman
gerist undir vökulum augum nýrra
áhorfenda með hverri kynslóð.
Síðasta heimkoma Odysseifs varð
17. september í haust, að vísu ekki til
íþöku, heldur Aþenu. í þetta sinn
laumaðist hann ekki til hirðar sinnar
einn og sér í gervi fórumanns, heldur
var brugðið upp á feikimikið tjald.
Þennan dag var Evrópufrumsýning
tveggja þátta sjónvarpsmyndar,
þeirrar dýrustu, sem gerð hefur ver-
ið: Odysseifskviðu, og til frumsýn-
ingarinnar boðið 250 fulltrúum
þeirra sjónvarpsstöðva, sem þegar
höfðu tryggt sér sýningarrétt á
verkinu, auk 1.700 grískra gesta.
Sýningarsalir gerast ekki glæsi-
legri enda þótt salarkynnin séu
nokkuð komin til ára sinna, því frum-
sýningin fór fram í rúmlega 18 alda
gömlu útileikhúsi Heródesar
Attíkusar, þar sem bakhliðin er
bergveggur Akrópólishæðar en loft-
ið himinhvolfin víð. Mikið hátíða-
kvöld, margar tilfinningaþrungnar
ræður, en fyrst og fremst áhrifamikil
sýning á afbragðsvel gerðu mynd-
verki, þar sem saman fer hugmynda-
flug og myndugleiki leikstjóra og
handritshöfundar, Rússans Andrei
Konsjalovskýs (sem hlaut Emmy
verðlaunin fyrir leikstjórn sína á
Odysseifskviðu), framúrskarandi
leikur heimsþekktra leikara og eftir-
minnileg tilþrif og tæknibrögð í svið-
setningu.
Armand Assante leikur Odysseif
og tekst á við erfitt, margslungið
Atson seðlaveski -peninganna virði
LEÐURIÐJAN ehf.
Verilun: Laugavegl 15,101 Reykjavík 5imi: 561 3060
Skrifstofa: Hverfisgötu 52, 101 Reykjavik, Simi: 561 0060, Fax: 552 1454
KRiSTiN
DVELUR
MEBAL
HiRBINGJA
m
GestarHstiérfc Stgaríw finarsson arkíiekt
MEÐAL EFNIS:
• Þrír frakkar og þrír
fiskar hjá Úlfari.
• Spænsk hönnun.
• Skondin teppi.
• Pottapiöntur.
• Cappuchino.
• Tölvurí hönnun.
ÞRJÚ HBMIU:
• Raðhús fær
andlitlyftingu.
• Stál í stái ásamt
viði og hlýlegum
húsbúnaði.
• Andlegt líf í
Þingholtunum.
ÁSKRIFTARSÍMI511 3099
€
í
c
í
(
i
í
i
i
:
í
í
i
(
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i