Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Happdrætti HÍ
Vann 35
milljónir
DREGIÐ var í gær í Happ-
drætti Háskóla íslands og kom
hæsti vinningur á miða númer
15012. Tveir viðskiptavinir
áttu miða með þessu númeri
og fékk annar 5 milljónir en
hinn átti trompmiða auk
tveggja einfaldra miða og fékk
hann 35 milljónir.
Miðarnir sem gáfu 35 milij-
ónir voru seldir á Akureyri en
miðinn sem gaf 5 milljónir var
seldur á Eskifirði. Happdrætt-
ið greiddi því samtals 40 millj-
ónir í fyrsta vinning að þessu
sinni.
Síðasta jóla-
tréð skreytt
STARFSMENN Reylqavíkur-
borgar skreyttu síðasta jólatréð
við Tjörnina í gær. Það var ekki
seinna vænna því fyrsti jóla-
sveinninn, Steklqastaur, er vænt-
anlegur til byggða í nótt.
Sérstakar áherslur í eftirliti skattyfírvalda
Farið í saumana á húsfé-
lögum og bótagreiðslum
SKATTSTJÓRAEMBÆTTIÐ í Reykjavík hefur
undanfarið kannað sérstaklega fjáireiður húsfé-
laga og bótagreiðslur frá tryggingafélögum.
„Við höfum farið ofan í greiðslur frá trygginga-
félögum og gerðum almenna könnun á því hvem-
ig húsfélög stæðu að því að gefa upp laun og aðr-
ar greiðslur, sem þeim ber að telja fram,“ sagði
Gestur Steinþórsson, skattstjóri í Reykjavík, í
gær. „Að öðru leyti er ekld um neinar sérstakar
áherslui' að ræða. Eins og venjulega er farið ofan
í launamismun, sem gert er eftir skipulegri tölvu-
úttekt og nær til alls landsins, og síðan eru þau
mál, sem koma upp hverju sinni.“
Gestur sagði að bótagreiðslur væru tvískiptar.
Annars vegar væru bætur sem væru greiddar
fyrir varanlega örorku og ekki væru skattskyld-
ar.
„Hins vegar eru bætur fyrir tímabundna ör-
orku, sem geta verið í formi slysapeninga, dag-
peninga og þess háttar. Það hefur orðið mis-
brestur á því að slíkar bætur séu taldar fram og
sérgreindar í framtölunum. Það er sá hluti, sem
hefur verið skoðaður og upplýsingar fengnar frá
viðkomandi gjaldanda og tryggingafélaginu."
Gestur sagði að það breytti engu um skatt-
skyldu í hvaða trú skattgreiðandi hefði talið bæt-
ur fram, en það gæti haft áhrif á það hvort reikn-
að yrði álag á viðkomandi upphæð sem reyndar
væri yfirleitt ekki gert í málum af þessu tagi.
„Það er mjög algengt að fólk, sem hefur ekki
talið svona greiðslur fram, hvaða ástæður, sem
liggja að baki, ber því við að sá, sem innti greiðsl-
una af hendi, hafi sagt því rangt tíl. Ég veit ekk-
ert um það hvort sú er raunin, en það er hætta á
því þegar sumar greiðslur eru undanþegnar
skattskyldu en aðrar ekki að fólk eigi erfitt með
að átta sig á því hvernig skiptingunni er háttað.“
Heimilt að skoða aftur í tímann
Að sögn Gests er heimild til að fara sex ár aftur í
tímann hafi framtal ekki borið með sér að vit-
laust væri talið fram, en heimildin takmarkist við
tvö ár hafi mátt byggja rétta álagningu á fram-
talinu. Hann sagði þegar hann var spurður hvort
tilgangurinn með því að kanna húsfélög væri að
komast fyrir svarta atvinnustarfsemi að verið
væri að kanna hvort félögin gæfu upp þær
greiðslur, sem þau inntu af hendi, hvort sem það
væri vegna viðhalds, húsvörslu eða annarra )
hluta.
Skattheimtan hóf í ár tölvulestur á framtölum
sem skilað var fyrir árið 1996. Gestur sagði að
menn gerðu sér vonir um að það myndi spara
vinnu þegar hún væri komin í gagnið þannig að
meiri tími yrði til að sinna öðrum verkefnum.
Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri sagði að
komið hefðu fram ákveðnir erfiðleikar við tölvu-
lestur framtala, sem skilað var inn í upphafi j
þessa árs fyrir 1996 og tekið yrði tillit til þeirra í
framtalinu á næsta ári. Að sögn Garðars voru
erfiðleikamir fólgnir í pappírsþykkt og röstun. 1
Hins vegar hefðu framtölin einnig verið hand-
skráð til samanburðar þannig að hægt hefði verið
að leiðrétta vitleysui- áður en tilkynnt var um
álagningu.
Hann sagði að hagræðing af hinu nýja fyrir-
komulagi væri ekki farin að skila sér enn þá, en
stefnt væri að því að fleiri upplýsingar yrðu
skráðar á framtölin, þar á meðal laun og fast-
eignir, þannig að þeir sem hefðu einfalt framtal,
þyrftu í raun ekki nema að staðfesta upplýsing- I
arnar.
Sendiráð fslands í London hyggst endurnýja leigusamning til 99 ára
230 milljónir fyr-
ir hús hertogans
í BREYTINGARTILLÖGUM
meirihluta fjárlaganefndar við fjár-
aukalög er lagt til að 290 milljóna
króna hækkun verði gerð á fjárveit-
ingu vegna útgjalda til sendiráðs
íslands í London. Meginástæðan er
ákvörðun um að endumýja leigu-
samning á sendiráðinu og sagði
Stefán Haukur Jóhannesson, skrif-
stofustjóri í utanríkisráðuneytinu, í
gær að þetta hefði verið ákveðið að
vandlega athuguðu máli.
Stefán Haukur sagði að utanrík-
isþjónustan þyrfti að skila húsinu í
sama ástandi og tekið hefði veríð
við því. „Við gerum ráð fyrir því að
það þurfi að taka húsið í gegn fyrir
um 40 milljónir króna. Sú niður-
staða fékkst eftir að breskir verk-
fræðingar gerðu úttekt á ástandi
hússins."
í nefndaráliti með breytingartil-
lögunum segir að 230 milljónir
króna eigi að nota til að greiða end-
urnýjun lóðarleigusamningsins og
60 milljónum króna eigi að verja til
viðhalds.
Könnuðu
aðrar leiðir
Stefán Haukur sagði að kannað
hefði verið hvort fara ætti aðrar
leiðir í húsnæðismálum sendiráðs-
ins í London.
„Þetta hefur verið í skoðun í
nokkur ár,“ sagði hann. „Ýmsar
leiðir hafa verið skoðaðar og ýmis
hús, en niðurstaðan var sú að þetta
væri hagkvæmasti kosturinn. Leig-
an verður endumýjuð til 99 ára og
ráðist í viðhald og endurbætur."
Mikils viðhalds er nú þörf á hús-
inu. Skipta þarf um teppi á gólfum,
endurnýja böð, taka rafmagn í
gegn og laga þakið. Fyrirtæki sem
nefnist Grosvenor Estates rekur
húsið, sem er við Park Street í
London. Að sögn Stefáns Hauks
eru langflestar eignir á því svæði,
sem sendiráðið þarf að vera á, í
eigu fyrirtækja eða einkaaðilja og
leigð með þessum hætti. íhugað
hefði verið að kaupa nýtt sendiráð,
en bæði væru eignir fáar á mark-
aðnum og mjög dýrar.
Utanríkisráðuneytið þarf að
greiða leiguna fyrir fram og alla í
einu. Það getur síðan selt leigu-
samninginn öðmm verði ákveðið að
skipta um húsnæði síðar meir.
Benedikt Ásgeirsson, sendiherra
íslands á Bretlandi, kvaðst í gær
telja að byrjað hefði verið að skoða
húsnæðismál sendiráðsins í London
snemma á síðasta áratug. Hann
sagði að húsið væri í eigu hertogans
af Westminster, sem ætti miklar
eignir í hverfunum Mayfair og
Belgravíu í London og ætti fyrír-
tækið Grosvenor Estates. Islenska
ríkið hefði tekið húsið á leigu árið
1963.
Hertoginn af Westminster heitir
Gerald Cavendish Grosvenor og
komst í fréttir í upphafí þessa árs
þegar í ljós kom að hann var meðal
þeirra sem höfðu fengið eitt hæsta
framlagið sem féll í skaut Bretum
samkvæmt sameiginlegri landbún-
aðarstefnu Evrópusambandsins.
Beðið upplýsinga um stækkun Járnblendiverksmiðjunnar
Sölu á hlutabréf-
um ríkisins frestað
Morgunblaðið/Golli
STJÓRN íslenska járnblendifé-
lagsins og fulltrúar ríkisins við sölu
hlutabréfa þess í félaginu telja að
ekki liggi á þessu stigi fyrir nógu
nákvæmar upplýsingar um tilhög-
un stækkunar verksmiðjunnar og
að sala á hlutabréfunum geti því
ekki farið fram á þessu ári.
Hreinn Loftsson, formaður
framkvæmdanefndar um einka-
væðingu, segir að ekki liggi íyrir
nægilega nákvæmar upplýsingar
um stækkunina: „Þá er ég að tala
um tímasetningar, fjármögnun og
annað í því sambandi sem þarf að
liggja fyrir til að sala geti farið
fram. Það verður á næstunni en
okkur finnst ekki rétt að stefna að
sölu meðan svo er. Upplýsingar
ættu að liggja fyrir á næstu vikum
þannig að salan geti farið fram í
byi’jun næsta árs,“ sagði Hreinn.
Selja átti hlutabréfin
fyrir áramótin
Ráðgert hafði verið að salan færi
fram fyrir áramót og að almenningi
hefði þá gefist kostur á að kaupa
ákveðið hlutfall hlutabréfanna á
föstu gengi en síðan var hugmynd-
in að óska tilboða í eftirstöðvamar
að lokinni almennri sölu.
Framkvæmdanefnd um einka-
væðingu hefur unnið að undirbún-
ingi sölunnar ásamt Landsbréfum
hf. og fulltrúum iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytisins og stjórnend-
um félagsins. í frétt frá nefndinni
segir að vart hafi orðið mikils
áhuga fjárfesta á þessum hluta-
bréfum. Með samningi íslenskra
stjómvalda, Elkem í Noregi og
Sumitomo í Japan frá 12. mars sl.
var ákveðið að bæta þriðja ofninum
við hjá verksmiðjunni. Jafnframt
var ákveðið að eignaraðild núver-
andi hluthafa skyldi breytast og í
kjölfar þess átti ríkið 38,5% hluta-
fjár, Elkem 51% og Sumitomo
10,5%. í íramhaldi af þessu var
ákveðið að selja hlut ríkisins, allt
að 26,5%, en meðeigendur þess
eiga forkaupsrétt með ákveðnum
skilyrðum fram að miðju ári 1999
að þeim 12% sem eftir verða í eigu
ríkisins.
Tvö lög-
fræðiálit
vegna
flutnings
STJÓRN Byggðastofnunar hef-
ur aflað sér tveggja lögfræðiá-
lita varðandi tilhögun flutnings
þróunarsviðs Byggðastofnunar
til Sauðárkróks gagnvart
starfsmönnum. Var annars veg-
ar leitað til óháðs lögfræðings
utan stofnunarinnar og hins
vegar til Ríkisendurskoðunar,
að sögn Egils Jónssonar,
stjórnarformanns Byggða-
stofnunar. Egill segir að nið-
urstöður þessara álitsgerða
torveldi ekki flutning þróunar-
sviðsins til Sauðárkróks. Að-
spurður sagði hann að talið
væri vissara að farið yrði fram á
reglugerðarbreytingu um «
Byggðastofnun vegna flutning-
anna en stofnunin heyrir undir
forsætisráðuneytið.
Valt á Fróð-
árheiði
VÖRUBÍLL með gám seig útaf
þjóðveginum yfir Fróðárheiði í
gærmorgun. Ótrúlega litlar
skemmdir urðu á bílnum að
sögn lögreglunnar í Ólafsvík,
en bíllinn lagðist mjúklega >
snjóinn utan vegar.
Atvikið varð með þeim hætti
að bflstjóri vörubflsins var að
hleypa öðrum bfl framúr þegar
vegarkanturinn gaf sig undan
bílnum. Hann var með um sjö
tonn af frosnum fiski í gámin-
um og urðu litlar sem engar
skemmdir á bfl og gámi. Fá
þurfti öflugan krana frá Rifi til
að hífa bflinn inn á veginn að
nýju og tókst það um kvöldmat-
leytið í gær.