Morgunblaðið - 11.12.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 15
FRETTIR
Varði doktors-
ritgerð í sjáv-
arlíffræði
•VIGGÓ Þór Marteinsson varði
21. febrúar sl. doktorsritgerð á sjáv-
arlíffræðisviði með hitakærar djúp-
sjávarörverur
sem sérsvið við
Bretónska Há-
skólann í Brest í
Frakklandi.
Viggó hlaut
styrk frá franska
sendiráðinu í
Reykjavík til
verkefnisins sem
var unnið á sjávarörverufræðideild
hafrannsóknastöðvarinnar Station
Biologique de Roscoff (Oceano-
logique de Roscoff, Université Pi-
erre et Marie Curie-Paris VI,
CNRS). Á íslensku nefnist ritgerðin
„Einangrun og greining á jaðarör-
verum upprunnum frá djúpsjáv-
arhverasvæðum. Áhrif hita og
þrýstings á lífeðlisfræðilega af-
komu örvera“.
Rannsóknin beindist að þremur
djúpsjávarhverasvæðum, við Fiji-
eyjar í Suðvestur-Kyrrahafi (2.000
m dýpi), við Guymas Basin í kalifor-
níuflóa (2.020 m dýpi) og við Sna-
kepit á 23° norðlægrar breiddar á
Atlantshafshryggnum (3.500 m
dýpi) þar sem Viggó tók þátt í
tveimur leiðöngrum. Loftháðar,
hitakærar bakteríur af ættkvíslun-
um Thermus og Bacillus voru ein-
angraðar í fyrsta sinn úr þessum
vistkerfum en þessar ættkvíslir eru
mjög algengar í hverum íslands.
Með greiningu þessara baktería og
lífeðlisfræðilegum prófum ásamt
erfðafræðilegum aðferðum greind-
ust nýjar bakeríur sem tilheyra
Thermus ættkvíslinni og var þeim
gefið nafnið Thermus profundus.
Onnur ný háhitakær örvera var ein-
angruð við 95°C og undir háum
þrýstingi (400 loftþyngdir) í þartil
gerðum ræktunarbúnaði sem var
þróaður í verkefninu. Slík einangr-
un á hitakærri örveru undir þrýst-
ingi hafði ekki tekist fyrr en örver-
an reyndist tilheyra svokölluðum
fornbakteríum (Árchaeon) og er ein
af fáum þrýstingskærum örverum
(vaxa best undir háum þrýstingi)
sem hafa einangrast úr sjó. Þessi
örvera var nefnd Thermococcus
barophilus og er sérstök meðal ann-
ars fyrir óvenjulega tjáningu á
tveimur próteinum. Þau tjáir hún
eftir þeim þrýstingi sem hún er lát-
in vaxa við.
Einnig var þróuð ný aðferð til
ræktunav örvera við djúpsjávar-
hveri. í verkefninu var reynt að
varpa ljósi á hvernig loftfírrðar, há-
hitakærar örverur svara tíðum
breytingum á utanaðkomandi að-
stæðum í djúpsjávarhverum. Breyt-
ingum eins og snöggum hitabreyt-
ingum, áhrifum nærveru súrefnis
og breyting á aðstæðum tl næring-
arnáms. Meðal annars kom í ljós að
þrýstingur jók lífslíkur við ofurhita
og örverur geta brugðist við hita-
breytingum með breytingum á fítu-
samsetningunni í frumuhimnunni.
Leiðbeinandi Viggós var Daniel
Prieur, yfirmaður sjávarörveru-
deildar CNRS í Roscoff og prófess-
or við Háskólann í Brest. Andmæl-
endur við doktorsvörnina sem hald-
in var í Roscoff voru dr. Guy Herve
og dr. Bernard Ollivier en um-
sagnaraðilar voru Pr. Anna-Louise
Reysenbach, Pr. Marie-Dominique
Legoy, Pr. Adrien Binet, dr. Jakob
K. Kristánsson og Pr. Daniel Prieur.
Viggó er sonur Perlu Guð-
mundsdóttur og Marteins Þórs
Viggóssonar. Eiginkona Viggós er
Þórhildur Þórisdóttir hjúkrun-
arfræðingur en börn þeirra eru
Marteinn Þór, Vera Rún og Kol-
brún. Viggó hlaut rannsóknar-
stöðustyrk frá Rannís til að kanna
neðanjarðarlífríki í borholum og
heitavatnskerfum og vinnur á lif
tæknideild Iðntæknistofnunar í:
lands.
Reykjavíkurlæknisumdæmi
Yfir tvö þúsund
manns með kvef
SAMKVÆMT skýrslum frá fimm
heilsugæslustöðvum og Lækna-
vaktinni sf. greindust 2.014 ein-
staklingar með kvef og aðrar
veirusýkingar í efri loftvegum og
168 með iðrakvef í Reykjavíkur-
umdærni í október sl.
Auk þess greindust 96 einstakl-
ingar með lungnabólgu, 73
greindust með hálsbólgu af völd-
um sýkla, en þar getur skarlas-
sótt fylgt, tólf greindust með
hlaupabólu, sjö með maurakláða
og tveir einstaklingar með eink-
irningasótt.
Enginn greindist með kíghósta,
mislinga, rauða hunda, hettusótt
eða inflúensu.
Jólagjöf
íþróttamannsins
oq þá sem vilja
vera í formi
nýtt útlit.
P- Olafsson hf. f*mLAR
Trönuhrauni 6, Hafnarfirði, sími 5651533 púlsmælar
Þetta hlýtur að vera
besta verðið í bænum!
Þú færð allar jólabækurnar í Hagkaupi Skeifu,
Kringlu, Eiðistorgi, Akureyri og Njarðvík.
í öðrum verslunum eru færri titlar í boði.
Tilboðið gildir aðeins fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag.
Það er alltaf ódýrasta bókin sem er í kaupbæti.
- fitrirfjölslqflduna -