Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Svalbakur EA í jólatúrinn undir íslenskum fána
Morgunblaðið/Kristján
SVALBAKUR EA, frystitogari UA, er kominn undir íslenskan fána á ný eftir að hafa verið í leigu
hjá þýska fyrirtækinu MHF síðustu mánuði. Togarinn er nú á leið í jólatúrinn á vegum ÚA.
Ekkert vinnslustopp
milli jóla og nýárs
Morgunblaðið/Hermína Gunnþórsdóttir
Föndur-
dagurDal-
víkurskóla
Dalvík. Morgunblaðið.
ÁRLEGUR föndurdagur Dal-
víkurskóla var haldinn nýlega.
Foreldrar og börn áttu þar
ánægjulegar stundir við fjöl-
breytt jólaföndur, 10. bekkur
seldi að venju kaffi og kökur
gegn vægu gjaldi og kór Dalvík-
urskóla söng opinberlega í
fyrsta skipti. Að vanda var vel
mætt og hvert sæti setið.
----» ♦ ♦---
Aðventukvöld í
Möðruvalla-
kirkju
AÐVENTUKVÖLD verður haldið í
Möðruvallakirkju í Hörgárdal þriðja
sunnudag í aðventu, 14. desember
og hefst það kl. 21.
Kór kirkjunnar syngur nokkur
aðventu- og jólalög undir stjórn
Birgis Helgasonar organista, lesin
verður jólasaga, fermingarböm
flytja helgileik og telpur úr sunnu-
dagaskólanum syngja um heilaga
Lúcíu. Ræðumaður verður Trausti
Þorsteinsson forstöðumaður Rann-
sóknarstofnunar Háskólans á Akur-
eyri. Eftir athöfnina selja ferming-
arbörn friðarljós frá Hjálparstofnun
kirkjunnar.
SVALBAKUR, frystitogari Útgerð-
arfélags Akureyringa hf., er kom-
inn undir íslenskan fána á ný en
togarinn hefur verið í leigu hjá
Mecklenburger Hochseefischerei,
MHF, dótturfyrirtæki ÚA í Þýska-
landi frá 1. maí sl. Skipið kom til
Akureyrar á sunnudag, með rúm
230 tonn af karfa og grálúðu af
Reykjaneshrygg og miðunum við
Vestur-Grænland.
Stefnt var-að því að Svalbakur
héldi til veiða seint I gærkvöld und-
ir merkjum ÚA og yrði á íslands-
miðum fram undir jól. Sæmundur
Friðriksson, útgerðarstjóri ÚA
sagði að síðasti túr Svalbaks undir
merkjum MHF hefði gengið frekar
erfiðlega. „Tímabilið í heild var þó
alveg viðunandi en þó hefðu hlutirn-
ir mátt ganga betur strax í vor og
svo nú í lokin. Veiðin á Reykjanes-
hrygg var ekki eins góð og vonast
var til og það sést best' á því að
enn er töluvert eftir af íslenska
kvótanum þar.“
Hráefni fram á gamlársdag
Sæmundur sagði að það hefði
ekkert verið skoðað enn hvort skipið
yrði leigt aftur út til MHF síðar.
Þýsku skipveijarnir, sem voru allt
að 10-11 um borð síðustu mánuði,
hafa verið afskráðir af skipinu og
verða skipveijar nú eingöngu ís-
lenskir. Vinnsla verður í fullum
gangi í landvinnslu ÚA milli jóla og
nýárs en oftast hefur vinnsla legið
niðri á þeim árstíma undanfarin ár.
„Við komum til með að vera með
hráefni alveg fram á gamlársdag
en vinnsla gæti stöðvast í einn til
tvo daga í byijun janúar,“ sagði
Sæmundur og bætti við að eins
gætu verkfallsmál haft einhver áhrif
Harðbakur EA, ísfisktogari ÚA kom
inn til löndunar í gær. Aflinn var
um 85 tonn, mest þorskur, eftir sex
daga á veiðum. Hinir ísfisktogarar
ÚA, Kaldbakur EA og Árbakur EA
koma inn til löndunar í næstu viku
og að sögn Sæmundar fara allir
ísfisktogararnir þrír einn túr til við-
bótar fyrir jól.
Morgunblaðið/Hermína Gunnþórsdóttir
VILBORG Sigurðardóttir úr Grímsey sagði frá uppvaxtarárum
sínum í eynni en hún er í ræðustól. Við hlið hennar eru Heiða
Pálrún Leifsdóttir fundarritari og Þórunn Bergsdóttir skólastjóri.
U nglingaráðstefnan
„Okkar mál“ á Dalvík
UNGLIN G ARÁÐSTEFN AN
„Okkar mál“ var haldin í Dal-
víkurskóla fyrir skömmu en
ráðstefna af þessu tagi er orð-
in árviss viðburður í skólanum,
þar sem nemendur eldri bekkja
taka til umfjöllunar málefni
sem snerta unglinga á einn eða
annan hátt. Á dagskrá voru
erindi frá bæjarstjóra, fulltrú-
um nemenda í grunn- og fram-
haldsskóla, lögreglu á Dalvík
og Akureyri og Þorsteinn Pét-
ursson sagði frá foreldrarölt-
inu á Akureyri.
Þá var boðið upp á veitingar
og Friðrik Hjörleifsson kynnti
nokkur lög af nýútkominni
jólaspólu sinni. Mæting nem-
enda var góð en fjöldi fullorð-
inna var minni en vonast hafði
verið til.
FIMMTUDAG - FÖSTUDAG - LAUGARDAG - SUNNUDAG
PERSÓNULEG ÞIÓNUSTA - FRÁBÆRT ÚRVAL
BÓKVAL
HAFNARSTRÆTI 91-93 - SÍMI 461 5050
Kona ein-
sömul í
Deiglunni
„LOGANDI heitur föstudag-
ur“ er yfirskrift á dagskrá sem
Leikfélag Akureyrar og Kaffi
Karólína efna til í Deiglunni
föstudaginn 12. desember í
tilefni af því að Dario Fo tekur
við Nóbelsverðlaunum í bók-
menntum.
Fluttur verður einleikurinn
„Kona einsömul" eftir hjónin
Dario Fo og Franca Rame og
hefst dagskráin kl. 21. Guð-
björg Thoroddsen leikles ein-
leikinn og leikstjóri er Ásdís
Thoroddsen. Olga Guðrún
Árnadóttir þýddi leikritið og
Ingvar Björnsson sér um lýs-
inguna. Þessi einleikur er einn
nokkura einleikja fyrir konur
sem hjónin sömdu fyrir um 20
árum.
Aðventu-
kvöld í Greni-
víkurkirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í
Grenivíkurkirkju á sunnudag,
14. desember kl. 20.30. Kór
kirkjunnar syngur aðventu- og
jólalög. Fluttur verður leik-
þáttur um mikilvægi þess á
aðventunni að muna eftir þeim
sem bágt eiga. Nemendur
Tónlistarskóla Eyjafjarðar
leika á hljóðfæri og krakkar
úr kirkjuskólanum syngja. Þá
verður lesin jólasaga. Sr. Arn-
aldur Bárðarson prestur á
Hálsi flytur jóiahugvekju og
unglingar sýna ljósahelgileik.
Að síðustu safnast börnin við
altarið og fá ljós í hönd og
allir syngja jólasálminn Heims
um ból.
Eru karlar í
tilvistar-
kreppu?
ERU karlmenn í tilvistar-
kreppu? Hvað vilja konur fá
frá körlum? er yfirskrift um-
ræðukvölds sem efnt verður
til á Kaffi Karólínu á Akur-
eyri fimmtudagskvöldið 11.
desember kl. 21.
Hjónin Guðrún og Guðlaug-
ur Bergmann stjórna umræð-
um kvöldsins, en rætt verður
um tilfinningalíf karla, vænt-
ingar, vonir og þrár kvenna
og leitast við að svara þeim
spurningum sem upp koma í
samráði við gesti staðarins.
Einnig verður rætt um þau
vandamál sem kynin standa
frammi fyrir í samskiptum sín
á milli.
Aðventu-
kvöld í
Grundar-
þingum
AÐ VENTUK V ÖLD verða í
Grundarþingum í Eyjafjarðar-
sveit þar sem flutt verður dag-
skrá í tali og tónum.
Annað kvöld, fímmtudags-
kvöldið 11. desember kl. 21
verður aðventukvöld í Hóla-
kirkju og verður ræðumaður
þar Snorri Guðvarðarson. Á
föstudagskvöld, 12. desember,
verður aðventukvöld í Munka-
þverárkirkju og hefst það einn-
ig kl. 21. Ræðumaður verður
Sigurgeir Hreinsson.