Morgunblaðið - 11.12.1997, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
STRAX í byrjun aðventu fer fólk
að setja upp hjá sér jólaljós, að-
ventuljós, jólaseríur og annað
skraut með rafljósum. En þessi
ljós eru misjöfn að gæðum og fólk
þarf að huga að ýmsu þegar kaupa
á slíka vöru og sýna árvekni gagn-
vart bilunum í rafbúnaði og láta
viðgerð ekki dragast.
Athugasemdir við 22% jólaljósa
Á blaðamannafundi sem Raf-
magnsöryggisdeild Löggildingar-
stofu hélt nýverið kom fram að Aðal-
skoðun hf. í umboði Löggildingar-
stofu, væri að gera sérstakt átak í
skoðun á rafljósum til skreytinga.
Engar endanlegar niðurstöður liggja
fyrir en af þeim jólaljósum sem þeg-
ar höfðu verið skoðuð voru 78% í lagi
en athugasemdir gerðar við 22%
þeirra.
Að sögn Amar Guðmundssonar
fulltrúa Aðalskoðunar voru flestar
athugasemdir gerðar vegna þess að
viðvörunum var ábótavant. „Sam-
kvæmt reglum eiga að fylgja öllum
ljósakeðjum, sem aðeins eru til notk-
unar innanhúss, viðvaranir þess efn-
is. Verulega skortir á að farið sé að
reglum um merkingar. Ef merking-
ar vantar eru eru ófullkomnar eykst
hætta á að fólk noti ljósabúnaðinn
við rangar aðstæður, Ld. inniljós úti
sem getur verið lífshættulegt."
Sirma uppfyllir óskir um fyrirferóarlítið
veski meó fjötþætt notagildi.
Ókeypis nofngylling fylgir Atson ledurvörum.
Atson seðlaveski -peninganna virði
LEÐURIÐJAN ehf.
Verslun: Uugavegi 15.101 Reykjavfk, Simi: 561 3060
Skrifstofa: Hverfisgótu 52,101 Reykjavik, Simi: 561 0060, Fax: 552 1456
Löggildingarstofa, rafmagnsöryggisdeild
Jólaljósin á markaðnum
misjöfn að gæðum
- Ef seríur eru ekki merktar,
hvemig áttar fólk sig á því hvort
seríur eru til þess gerðar að vera úti
eða inni?
„Yfírleitt em útiseríur með
spennubreyti en inniseríur ekki.
Þar fyrir utan eiga leiðbeiningar að
fylgja seríum sem segja til um þetta
atriði.“
Öm segir að komið hafi upp tilvik
þar sem ómögulegt sé að rekja hver
framleiði jólaljós og það sé fyrsta
vísbending um að ekki sé allt með
felldu. „Jólaljós hverskonar eiga að
vera merkt framleiðanda og með
öðmm nauðsynlegum upplýsingum
eins og styrkleika þeirra pera sem
notaðar era og svo framvegis."
Haukur Ársælsson yfireftirlits-
maður rafmagnsöryggisdeildar
Löggildingarstofu segir að á mark-
aðnum séu jólaljós sem geti reynst
varasöm og hann nefnir sem dæmi
ljósakeðjur þar sem frágangur á
kló er ekki nógu góður og einangr-
un fullnægir ekki settum stöðlum.
Aðventuljósin öruggust
- Hvað þarf að hafa í huga þeg-
ar fjárfest er í jólaljósum?
„Sérlega ódýr jólaljós virðast
ekki eins vönduð og dýrari Ijós,
jafnvel þótt þau uppfylli helstu
kröfur um öryggi,“ segir Haukur.
„Ég hef aldrei vitað til að óhapp
hafi átt sér stað með aðventuljós
sem stundum era kölluð gyðinga-
ljós. Gæta þarf þó að því að ekki
liggi brennanleg efni við perarnar.
Utiseríur virðast nokkuð trygg-
ar ef þær era heilar, leiðslur ekki
farnar að trosna og perar geta ekki
slegist utan í og brotnað." Haukur
segir grandvallaratriði að jólaljósin
séu bæði merkt framleiðanda,
varnaðarorðum og allar nauðsyn-
legar upplýsingar sé að finna á
pakkningunum.
Öm bendir á að mörg inniljós
séu ekki það trygg að hægt sé að
láta loga á þeim yfir nótt. „Nýjar
ljósakeðjur era þannig gerðar að
þó slokkni á einni pera logar áfram
á hinum. Eftir því sem logar á
færri peram eykst styrkurinn og
hitinn á hverri pera. Skraut liggur
oft við peramar og ef margar per-
ur gefa sig er hætta á að kvikni í
vegna ofhitunar."
Ljósaperur með réttan
styrkleika
I bæklingi sem rafmagnsörygg-
isdeild Löggildingarstofu gaf ný-
verið út og dreift verður á heimili
landsmanna á næstu dögum er tal-
að um mikilvægi þess að hafa ljósa-
perur af réttum styrkleika og
stærð þegar þær era settar í jóla-
ljósin. „Eigi að nota 25 W pera í
ljósið á að fara nákvæmlega eftir
því. Sé peran 60 W getur umgjörð-
in hitnað það mikið að skaði hljótist
af, sérstaklega ef eldfim efni era
nálægt eins og t.d. gardínur,“ segir
Haukur. Til að vera öraggur um að
fá rétta pera er í bæklingnum ráð-
lagt að fara með bilaðar perar með
sér í raftækjaverslunina og fá ráð-
leggingar sölumanna.
Kannið ástand jólaljósa
1. Skiptið aldrei um Ijósapera með
viðkomandi ljósabúnað í sambandi
við raímagn og notið ávallt rétta
stærð og gerð af pera og af réttum
styrkleika. Áríðandi er að skipta
strax um bilaðar perur í ljósastæð-
um.
2. Ekki setja of sterkar pei or í jóla-
skreytingar því hitinn frá peranum
getur kveikt í. Látið ljósaperur aldrei
vera í nánd við brennanleg efni.
3. Skiptið tafarlaust um brotnar
klær og brotin perastæði og göng-
um úr skugga um að allar raf-
magnsleiðslur séu heilar, að ein-
angranin sé alls staðar í lagi og ekki
sjái í be ra víra. Óvarinn rafbúnaður
getur valdið raflosti.
4. Notum aldrei inniljós utandyra.
5. Forðumst slysagildrur með við-
vaningslegum viðgerðum. Leitum
til fagmanna eða fleygjum úr sér
gengnum jólaljósum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
PERUR þurfa alltaf að vera af réttri stærð og
styrkleika. 25 W pera verður 89° heit, 60 W pera
184° heit og 100 W pera verður 265° heit.
HAUKUR Ársælsson segir gæði jólaljósa afar mis-
jöfn og bendir fólki á að leita ráða hjá fagmönnum.
í{ittersport, lOOg
JCiberesse
Jrwisable
aeinA tmci
KAKAOHAtTi
conN
fLAKC*
Quality Street, 2 kg
JJjlxusJava, 400 g
JJikkrískonfekt,
hlaup og fl.eira,