Morgunblaðið - 11.12.1997, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Friðarsamningar Kóreuríkjanna
Akveðið að hitt-
ast aftur í mars
Genf. Reuters.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að ný lota í
fjórhliða samningaviðræðum, sem
hafa það að markmiði að koma á
friðarsamningi milli Kóreuríkj-
anna, verði haldin í mars.
Var það niðurstaða tveggja daga
samningafundar fulltrúa Kóreu-
ríkjanna, Kína og Bandaríkjanna í
Genf í gær.
Stanley Roth, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna í málefn-
um Asíu- og Kyrrahafslanda, sagði
að samningaumleitanir hefðu farið
vel af stað. Sagðist hann gera ráð
fyrir að næsti fundur, í mars, yrði
nokkrum dögum lengri.
Sagði í sameiginlegri yfirlýsingu
samninganefndanna, að vinnuhóp-
ur aðila myndi hittast í Peking í
febrúar til þess að móta tillögur og
kosti sem tekin yrðu fyrir á samn-
ingafundinum í mars.
Takmarkið með fundunum er að
vinna að friðarsamningi sem leysa
mundi af hólmi vopnahléssam:
komulag Kóreuríkjanna frá 1953. í
fundunum í Genf að þessu sinni
tóku þátt Tang Jiaxuan aðstoð-
arutanríkisráðherra Kína, norður-
kóreskur starfsbróðir hans, Kim
Gye-gwan, Lee See-young sendi-
herra Suður-Kóreu í Frakklandi og
Roth.
Viðræðumar í Genf eru söguleg-
ar vegna þess að þetta er í íyrsta
sinn frá því átökum í Kóreu linnti
1953 sem allir deiluaðilar hittast
formlega.
Það hefur tekið fjóra áratugi að
koma á eiginlegum friðarumleitun-
um og hefur upphaf þeirra vakið
bjartsýni. Þó er talið líklegt að við-
ræðumar eigi eftir að standa í
mörg ár.
ricLbrunn
l SJtýtíWiJ
fom u
Setið við
sagnabrunn
Þórður Tómasson í Skógum er
löngu orðinn þjóðþekktur fyrir
bækur sínar um þjóðhætti fyrri
tíma. í þessari bók er m.a
fjallað um huldufólk, siði serr
tengjast dauða og greftrun, aul
fjölda frásagna af einstaklingun
og horfnu mannlíf
Bók fyrir alla áhugamenn um
þjóðfræði og sögu
Perð höfundarins
eftir bandaríska bókmenntafræð-
inginn Christopher Vogler,
forstjóra Storytech í Hollywood.
Bókin lýsir því hvernig
hugmyndaheimur goðsagna
endurspeglast í kvikmyndum
sagnaþula á borð við Steven
Spielberg og George Lucas,
auk fjölmargra annarra
höfunda sem nýtt hafa sér
hugmyndir þessarar
bókar.
Frábær bók fyrir þá
sem unna kvikmyndum og skáldskap
Nýjar bsekur ftá
M&li og mynd
Bakkabræður
fslensk börn hafa gleypt í sig
sögur af Bakkabræðrum frá
því þær komu fyrst út
snemma á öldinni. f þessari
nýju bók birtast m.a.
nokkrar sögur sem hafa
ekki áður birst í bókum
um Bakkabræður. Bókin
er ríkulega myndskreytt
með vatnslitamyndum
Kristínar Arngrímsdóttur.
íslensk barnabók eins og hún gerist best
Reuters
EMBÆTTISMENN frá Saudi-Arabíu bíða eftir krónprinsi landsins, Abdullah ibn Abd al-Aziz as-Saud, við
mynd af Khomeini erkiklerki, leiðtoga íslömsku byltingarinnar í íran. Krónprinsinn var að ræða við Hafez
al-Assad, forseta Sýrlands.
Rafmagnsleysi truflar leiðtogafund araba í Teheran
Deila um friðar-
samninga við Israela
Teheran. Reuters.
DEILUR um friðarumleitanir í
Mið-Austurlöndum og öryggismál
vörpuðu skugga á leiðtogafund sam-
taka múslimaríkja, OIC, í Teheran í
gær og fresta varð umræðunni í
nokkrar klukkustundir vegna raf-
magnsleysis á fundarstaðnum.
Urhelli og síðan snjókoma olli raf-
magnsleysi í nýrri ráðstefnumiðstöð
í norðurhluta Teheran, þar sem leið-
togafundurinn er haldinn, þannig að
fresta varð frekari umræðum. Leki
á þaki byggingarinnar varð til þess
rafkerfið bilaði.
Rafmagnsleysið var mjög vand-
ræðalegt fýrir ráðamenn í Iran, sem
höfðu lagt áherslu á að tryggja að
leiðtogafundurinn heppnaðist vel og
sýndi að Iranar nytu virðingar í
múslimaheiminum þrátt fyrir til-
raunir Bandaríkjamanna til að ein-
angra þá.
Iranska fréttastofan IRNA
reyndi að gera lítið úr rafmagns-
leysinu og sagði það hafa veitt fund-
argestunum „tækifæri til að virða
fyrir sér stórkostlega snjókomu í
írönsku höfuðborginni".
Óánægja með
drög Irana
Nabil Shaath, fulltrúi heima-
stjórnar Palestínumanna, sagði að
nokkur ríkjanna, þeirra á meðal Eg-
yptaland og Sýrland, hefðu látið í
ljós efasemdir um þann hluta draga
að lokayfirlýsingu leiðtogafundarins
þar sem fjallað er um friðarumleit-
animar í Miðausturlöndum. íranar
eru í forsæti OIC og lögðu drög að
yfirlýsingunni.
Aðrir embættismenn staðfestu að
nokkur arabaríki væni óánægð með
drög Irana. Aðildarríki múslima-
samtakanna eru sammála um að
ísraelar hafi verið dragbítar á frið-
arumleitunum en samtökin hafa
stutt þá stefnu að arabar semji um
frið við Israela gegn því að þeir láti
hernumin svæði af hendi.
íranar hafa þó lengi lagst gegn
friðarviðræðum ísraela og Palest-
ínumanna og friðarsamningum sem
ísraelar hafa gert við Egypta og
Jórdani. AIi Khamenei erkiklerkur,
æðsti leiðtogi Irans, sagði á fundin-
um að óhjákvæmilegt væri að Pa-
lestínumenn töpuðu á friðarsamn-
ingunum og hvatti múslimaríkin til
að taka höndum saman og „endur-
heimta réttindi Palestínu-
manna“. Tillaga Irana um að
Persaflóaríkin mynduðu varnar-
bandalag til að þurfa ekki að reiða
sig á íhlutun annarra ríkja olli
einnig deilum á leiðtogafundinum.
Nokkur ríkjanna, þeirra á meðal
Saudi-Arabía og Kúveit, hafa verið í
nánum tengslum við Bandaríkin í
vamarmálum þar sem þau telja ör-
yggi sínu stafa hætta af írökum og
Irönum.
Leiðtogamir ræddu einnig drög
að ályktun þar sem múslimaríki eru
hvött til að hætta allri hernaðarsam-
vinnu við Israela og er þar greini-
lega vísað til Tyrkja, sem tóku á
móti Yitzhak Mordechai, varnar-
málaráðherra ísraels, fyrr í vikunni.
í annarri ályktun er lögð áhersla
á fullveldi Iraks og þess krafist að
landamæri ríkisins verði virt. Þar er
einnig skírskotað til Tyrkja, sem
hafa ítrekað sent hersveitir til íraks
í því skyni að ráðast á kúrdíska að-
skilnaðarsinna.
Kröfu um sæti í
öryggisráði SÞ hafnað
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, var staddur í
Teheran í tilefni af leiðtogafundinum
og hafnaði þeirri kröfu Irana að OIC
fengi fast sæti og neitunarvald í ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna. Ann-
an sagði að öryggisráðið væri skipað
fulltrúum ríkja en ekki samtaka sem
byggðust á trúarbrögðum. Hann
kvaðst þó hlynntur því að áhrif
þriðjaheimsríkja yrðu aukin í örygg-
isráðinu.
Annan minntist 49 ára afmælis
mannréttindayfirlýsingar Samein-
uðu þjóðanna og notaði tækifærið til
að skora á ráðamenn í íran að virða
mannréttindi. Mannréttindanefnd
Sameinuðu þjóðanna hefur gagnrýnt
mannréttindabrot írana og Annan
sagði að þeir gætu ekki valið milli
mannréttinda, virt sum þeirra að
vettugi og haft önnur í heiðri.
■
Ari Ingimundarson, Kópavogi,
hreppti glæsilegt Panasonic
myndbandstæki frá Japis,
að verðmæti 60.000 kr.
þegardregið varúr
síðasta Safnkortspotti.
í hvert skipti sem þú notar
Safnkortið fer nafnið þitt í
Safnkortspottinn. Vertu með!