Morgunblaðið - 11.12.1997, Síða 36

Morgunblaðið - 11.12.1997, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Umfjöllun um NORDIKA sýninguna í Helsinki List sem hverfur í hversdags- leikann NORDIKA, sýning á norrænni og baltneskri samtímalist var haldin i Helsinki í síðasta mánuði. Um síðustu áramót var norræna list- amiðstöðin í Sveaborg lögð niður og hefur NORDIKA, norræna samtímalistastofnunin í Helsinki tekið við hlutverki hennar. Sýn- ingin, sem er sú fyrsta á vegum NORDIKA stofnunarinnar, var sett upp á ýmsum fjölförnum, opinberum stöðum í miðborginni í þeim tilgangi að færa listina nær fólkinu. Listamennirnir 12 sem þátt tóku í verkefninu eiga það sam- málefni i listsköpun sinni, tengsl stjórnmála og lista og samband hvors tveggja við almenning. I dagblaðinu Helsinkin Sanomat var fjallað um sýninguna undir yfirskriftinni Listin færð til fólks- ins. Greinarhöfundur telur marg- víslegan vanda fólginn í þvi að gera list hluta af hversdagsleik- anum. Hann tekur dæmi af verk- um finnska myndhöggvarans Kirsi Mikkola, andlitslausum fíg- úrum sem settar voru upp á póst- húsi. Bendir á að svipmikill arki- tektúr byggingarinnar og rusl sem fylgi starfseminni hafi þegar kæft skúlptúra Vainö Alto sem þar séu fyrir. Besta framlag sýn- ingarinnar segir höfundur vera verk Superflex hópsins frá Dan- mörku, þeirra Björnstjernes Christiansens, Jakobs Fengers og Rasmus Nielsens. Heimildarmynd þeirra fjallaði um þróunarverk- efni sem þeir unnu með verkfræð- ingum og hjálparstofnun og reynt var í Tanzaníu. Miðað er að því að endurvinna rusl svo úr verði HEIMILDARMYND um vinnslu lífræns gass í Afríku vakti athygli á NORDIKA sýningunni. STARFSMAÐUR og viðskiptavinir á Skrif- stofu drauma eftir Þorvald Þorsteinsson. gas sem nýta megi við elda- mennsku. Verkið er í senn nyt- samlegt og vekur fagurfræðileg- ar vangaveltur um það hvað er list. Norska listakonan Annelise Steinseth vakti athygli fyrir upp- lýstar ljósmyndir sínar af dúkkum með Downs heilkenni. Markmiðið var að vinna með ímynd veikra. í Hufvudstadsbladet, aðaldag- blaði sænskumælandi Finna, skrifar gagnrýnandinn Dan Sund- el. Hann lýsir tilviljanakenndum og óvæntum stefnumótum sínum við listina í miðborg Helsinki. „Markmiðið er örugglega að vekja viðbrögð fólks með sjón- rænum upplifunum sem fá okkur til að staldra við og kannski bregðast við. Markm- iðið er sennilega líka að fóik rekist á þessa list af tilviljun, óvið- búið og með opnum huga. En raunin er því miður sú að fólkið á götunni gengur fram- lyá án þess að merkja neitt sérstakt," segir Sundel. Hann segir að þrátt fyrir ýtrustu leit hafi sér ekki tekist að finna nema helming- inn af þeim verkum sem sögð voru á sýningunni. Við leit sina í stórmarkaðnum SOKOS fann hann enga list, bara síðar nærbuxur. Greinarhöfundur lýsir vonbrigðum sínum yfir því að dömur tvær við afgreiðsluborð í Arsenal skrifstofubyggingunni, sem voru tilbúnar til að uppfylla alla hans drauma, hafi við nánari eftirgrennslan ekki reynst vera englar heldur starfsmenn Þor- valdar Þorsteinssonar myndlist- armanns og skrifstofu drauma. „Mér finnst líklegf að einhver annar hafi rekist á allt önnur listaverk, en ég er ánægður," seg- ir Sundei að lokum. Jörfagleði og gömul vers TONLIST Illjómdiskar HÁSKÓLAKÓRINN Hlust lögð við stein í Jörfa & íslensk kórlög. Kórstjórar: Hákon Leifsson og EgiII Gunnaxsson. H\jóðritað í kapellu Háskóla Islands, vor og haust 1997, og í Seltjarnameskirkju 22.-23. mai 1996 og 13. apríl 1997. Lag nr. 7 var hljóðritað í kapellunni 1994, upptökum. þá var Páll S. Guð- mundsson. Upptaka og hljóðvinnsla: Halldór Víkingsson. Háskólaútgáfan. Fermata 1997. ÞESSI hljómdiskur er annar tveggja sem koma út í tilefni af 25 ára starfsafmæli Háskólakórsins. Á honum eru íslensk þjóðlög, öll í frá- bærum útsetningum Hjálmars H. Ragnarssonar, Atla Ingólfssonar, Jakobs Hallgrímssonar og Árna Harðarsonar; einnig tvö lög Atla Heimis Sveinssonar úr Dansleik O.B., 4 lög Egils Gunnarssonar (starfandi stjórnanda kórsins) við ljóð Þórbergs Þórðarsonar; Hákon Leifsson (stjórnandi kórsins 1992-97) á hér tvö lög við ljóð Halldórs Laxness, Hjálmar H. Ragn- arsson iag við gamla barnabæn og Leifur Þórarinsson lög við Helgisögu Stefáns frá Hvítadal, Maríuljóð Vil- borgar Dagbjartsdóttur og latneska Maríubæn (Ave Maria). Loks kemur svo mikið og magnað kórverk eftir Hákon Leifsson, Hlust lögð við stein í Jörfa, unnið upp úr ballettinum Jörfagleði sem Hákon samdi ásamt danshöfundinum Auði Bjarnadóttur árið 1994. Þessi hljómdiskur er í fáum orðum sagt einstaklega vel heppnaður, enda fer hér saman góður og vel agaður söngur, framúrskarandi fín- ar útsetningar á þjóðlögum - og hin frumsömdu lög einsog þau gerast best á „síðustu og verstu tímum“, sem að vísu eru ansi góðir - á stund- um. Það skal játað að útsetningar „ís- firðinganna", Hjáimars H. Ragnars- sonar og Jakobs Hallgrímssonar (Móðir mín í kví, kví - látlaus og fallegur seiður ...) hrifu mig alveg sérstaklega. Annars er Jakob ekki nógu duglegur að semja lög, þau fáu sem ég hef heyrt eru mjög góð. „Madrigalar" Atla Heimis úr Dans- leik eru frábærlega fallegir, enda mikið fluttir á seinni tímum. Hér djarflega sungnir með kiárum stfl. Lög stjórnendanna, Egils og Há- kons, við texta Þórbergs og HKL, eru mjög góð og spáð langlífi. Loks koma barnabæn Hjálmars og lög Leifs Þórarinssonar við texta um Maríu Guðsmóður, gagnort, fallegt og satt. Öllum þessum fína flutningi stjórnar Hákon Leifsson. Um lokaverkið, Hlust lögð við stein í Jörfa, undir stjórn Egils Gunnarssonar, er hægt að skrifa töluvert mál, en textinn er m.a. unn- inn upp úr Biblíunni, helgisiðabók- um, annálum, vikivökum og rímum. Verkið fjallar um vinnufólk fyrr á öldum sem sækir Jörfagleði (í Döl- um) í sumarlok og upphefur heiðið ritúal: biður Óðin alföður um leyfí til að sleppa fram af sér beislinu - sem hafði, á dögum Stóradóms, hörmungar í för með sér. M.ö.o. „orgía“ og afieiðingar. Við flutning- inn koma fram (ásamt kór) ein- söngvari (Silja Björk Ólafsdóttir) og upplesarar (Ellert Þór Jóhannsson, Gunnar Örn Ingólfsson, Hjalti Már Björnsson). Gísli Leifsson og Gunnar Benediktsson sjá um ógurlegan áslátt. Verkið er að sjálfsögðu mjög dramatískt, enda er höfundurinn handgenginn leikhúsinu ekki síður en tónlistinni. Magnað og mjög vel flutt. Hljóðritun fín - og þá er bara að segja amen eftir efninu. Oddur Björnsson Lesið úr fjórum bókum á Súfistanum UPPLESTUR úr fjórum nýjum bókum verður á Súfistanum, Laugavegi 18, fimmtudaginn 11. desember kl. 20.30, en það er Mál og menning og Súfistinn sem standa fyrir þessu upp- lestrarkvöldi. Árni Óskarsson les þýðingu sína á bókinni Fellur mjöli í Sedrusskógi eftir David Guter- son. Símon Jón Jóhannsson les úr ljóðabók Stefáns Snævarr, Ostraka, Thor Vilhjálmsson les úr bók sinni Stórbók Thors Vilhjálmssonar og Kristján Kristjánsson les úr bók sinni Af tvennu illu. RR SKÓR “■ 4.990 mm Kringlunni 12, sfmi 568 6062, Skemmuvegi 32L, sími 557 5777 Lofsöngvar Ólafar Kolbrúnar LOFSÖNGVAR _ heitir ný geisla- plata, þar sem Ólöf Kolbrún Harð- ardóttir sópransöngkona syngur lof- söngva af ýmsu tagi, innlenda ög erlenda, við undirleik Jóns Stefáns- sonar organista, Gunnars Kvarans sellóleikara, Moniku Abendroth hörpuleikara og Daða Kolbeinssonar óbóleikara, auk þess sem Kór Lang- holtskirkju, Kammerkór Langholts- kirkju og Gradualekór Langholts- kirkju leggja henni lið. Segir Ólöf plötuna ekki endilega bundna jólum, þótt hátíðarstemmning ríki. „Þetta er tónlist sem ég vona að geti gert huggulegar stundir fyrir fólk við öll hátíðleg tilefni.“ Ólöf sendi síðast frá sér einsöngs- plötu fyrir eilefu árum, þar sem Anna Guðný Guðmundsdóttir lék undir á píanó. Segir söngkonan þetta langa hlé eiga sér eðlilegar skýring- ar. „Um langt skeið hefur tími minn að verulegu leyti farið í að byggja upp fyrirtækið sem ég starfa hjá, íslensku óperuna. Ég hef því einfald- lega ekki verið í þeim sporum, eða öllu heldur ekki haft tíma, til að hugsa um plötu, hvað þá að taka hana upp.“ Það er kannski dæmigert að tvær af hljómplötum Ólafar Ljóðakvöld, með Erik Verba, og á Hátíðarstund, með Garðari Cortes, Jóni Stefáns- syni, Kór íslensku óperunnar og Kór Langholtskirkju, voru gefnar út til styrktar íslensku óperunni og Söng- skólanum í Reykjavík. „Flest sem ég hef gert á undanfömum árum hefur verið meira og minna í þágu þessara aðila og gott eitt um það að segja - ég hef notið þeirrar vinnu út í ystu æsar.“ Ólöf kveðst svo sem hafa sungið og „múslserað" mikið þennan tíma, tekið þátt í óperuuppfærslum og komið fram á tónleikum. „Það hvarflaði hins vegar aldrei að mér að ég „þyrfti“ að setja eitthvað af því efni á plötu, þó fólk hafí orðað það við mig. Þar fyrir utan fínnst mér ekki viðeigandi að syngja óperu- tónlist með píanói einu saman og þar sem því fer fjarri að ég sé í stakk búin til að kaupa mér heila hljóm- sveit hafa upptökur eiginlega aldrei komið til tals.“ Að sögn Ólafar eru að vísu til óperuupptökur sem gerðar hafa ver- Harðardóttir. ið á sýningum í íslensku óperunni í gegnum árin og kveðst hún eiga sér þann draum að þær verði gefnar út síðar meir - ekki sín vegna, heldur íslensku óperunnar. Ánægð með umgjörðina Ólöf og félagar fengu aðstöðu til hljóðritunar í Langholtskirkju. Hafði Jón Stefánsson allar útsetningar með höndum, utan tvær sem nafni hans Þórarinsson, tónskáld, gerði við eigin lög. Segist söngkonan virkilega ánægð með umgjörð plötunnar, það sé alltaf skemmtilegast að „músís- era“ með öðru fólki, ekki síst fóiki sem kunni vel til verka. „Þótt ein- söngvarinn þurfí að æfa sig mikið í einrúmi kemur árangurinn best í ljós í samstarfí við aðra.“ Segir hún nærveru hljóðfæraleik- aranna og kóranna jafnframt hafa létt sér lífíð meðan á upptökunum stóð. „Ég sakna þess óskaplega að hafa ekki áheyrendur með mér í upptökum, það kviknar svo margt við nærveru þeirra. Það gerir gæfu- muninn að hafa viðbrögð áheyrenda þegar sungið er - svörun, hvatn- ingu. Mér fínnst því erfítt að standa ein í upptökusal og vinna að „lifandi fullkomnun" sem getur aldrei orðið eins og á tónleikum. Að mínu viti eru plötur sem teknar eru upp á tónleikum því mun betri en stúdíó- plötur. Því varð aftur á móti ekki við komið að þessu sinni." Ber Ólöf mikið lof á upptökustjór- ann, Bjarna Rúnar Bjarnason, sem sé sannkallaður tónmeistari. „Það var mikils virði að hafa jafn reyndan mann og Bjarna Rúnar við stjórnvöl- inn en þess er því miður alltof sjald- an getið hve mikilvægur upptöku- stjórinn er í þessu vinnuferli." Þrátt fyrir „einsemdina" gerir Ólöf ekki ráð fyrir að hafa „sungið sitt síðasta" í hljóðveri enda séu geislaplötur, þrátt fyrir allt, ágætis heimild. Og á henni er að skilja að fólk þurfi örugglega ekki að bíða í önnur ellefu ár eftir næstu plötu. „Ég held að mér sé óhætt að segja frá því að við Edda Erlendsdóttir píanóleikari erum með plötu á pijón- unum, samantekt af því efni sem við höfum unnið í gegnum árin.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.