Morgunblaðið - 11.12.1997, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 37
Jólatónleik-
ar Tónlist-
arskólans í
Keflavík
TÓNLEIKAHALD Tónlistarskól-
ans í Keflavík verður með hefð-
bundnum hætti fyrii' þessi jól. Um
næstu helgi munu nemendur og
kennarar halda deildartónfundi á sal
tónlistarskólans á Austurgötu 13 þar
sem nær allir nemendur í söng- og
hljóðfæranámi munu koma fram og
syngja eða spila, einir síns liðs eða
með öðrum.
I næstu viku munu hljómsveitir og
kórar skólans koma fram á tveimur
tónleikum í Keflavíkurkirkju. Hinir
fyrri verða þriðjudaginn 16. des. kl.
20. Þar koma fram lúðrasveitir,
djasshljómsveit og léttsveit. Seinni
tónleikarnir verða á sama stað
fimmtudaginn 18. des. og hefjast kl.
20. Þar koma fram strengja- og for-
skólanemendur ásamt kórum.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
----------------
Jólatónleikar
Tónlistarskóla
Njarðvíkur
TÓNLISTARSKÓLI Njarðvíkur
heldur tvenna jólatónleika og fara
þeir báðir fram í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju laugardaginn 13. desember,
kl. 14 og kl. 16.
Fyrri tónleikarnir hefjast á leik
yngri lúðrasveitarinnar. Síðan taka
forskóladeild og Suzukideild við
ásamt fjölda annarra samleiks- og
einleiksatriða. M.a. koma nemendur
tölvutónlistardeildar I fram.
A seinni tónleikunum byrjar eldri
lúðrasveitin, en síðan rekur hvert at-
riðið annað og meðal þess sem tón-
leikagestir fá að heyra og sjá er gít-
arhljómsveit, málmblásarakvartett
og nemendur tölvutónlistardeildar II
koma fram. A efnisskrá eru jólalög í
bland við aðra tónlist.
Dagana 15., 16. og 17. desember
fara nemendur og kennarar skólans í
ýmis fyrirtæki og stofnanir í Reykja-
nesbæ og leika fyrir viðskiptavini,
starfsfólk og vistmenn.
------♦-♦-♦-----
Tímarit
• BÖRN og menning er komið út,
en það er málgagn Barnabókaráðs-
ins, íslandsdeildar IBBY.
I blaðinu er m.a. hugleiðing Vig-
dísar Finnbogadóttur um barna-
menningu, rithöfundapistill Guð-
rúnar Helgadóttur, ritdómar um
bækur og viðtöl við Brian Pilk-
ington, Pétur Eggerz í Möguleik-
húsinu og Sigríði Matthíasdóttur
bamabókavörð á Selfossi.
Blaðið er til sölu í Bókabúð Máls
og menningar á Laugavegi.
Yfírlit listaverkakaupa Listasafns íslands
Keypt fyrir um 100
milljónir á 10 árum
LISTAPÓSTURINN sem gefinn er
út af Galleríi Fold birtir í sérútgáfu
nóvembermánaðar yfirlit listaverka-
kaupa Listasafns Islands á 10 ára
tímabili, frá ársbyrjun 1988 til apríll-
oka 1997. Heildarkaupverð áranna
eru um 100 milljónir en safnið hefur
nú um 12 milljóna króna ráðstöfun-
arfé til listaverkakaupa á hverju ári.
Söluhæsti listamaðurinn á tímabilinu
er Erró.
Alls hefur Listasafnið fjárfest í
verkum 177 listamanna á síðustu 10
árum, þar af eru allflest verkin eftir
íslenska listamenn. Samtals hafa 383
tilgreind verk verið keypt af safninu
á þessum tíma en heildarfjöldi verka
mun þó vera hærri því í fáeinum tU-
fellum er um að ræða kaup á fleiri
verkum, svo sem skissum og smærri
málverkum, saman.
Eins og áður segir er Eitó efstur á
lista þegar raðað er eftir upphæð
keypfia verka. Listasafnið keypti 5
verk listamannsins á þessu tímabili
og samtals var kaupverð þeirra tæp-
ar 8,4 mUljónir en þar. af voru 2/3
Snæfellsbæjar voru lialdnir í Fé-
lagsheimilinu Klifi í Ólafsvík 7. des-
ember sl. Ásamt lúðrasveitinni Snæ
komu fram kirkjukórar Ólafsvíkur-
kirkju, Ingjaldshólskirkju og kóra-
fólk frá Staðarsveit og Breiðuvík
og bjöllusveit frá Hellissandi.
Stjórnandi lúðrasveitarinnar er
Ian Wilkinson tónlistarkennari frá
South Shibs í Englandi. Hljómsveit-
ina skipa 38 hljóðfæraleikarar frá
Ólafsvík, Hellissandi, Staðarsveit
og Breiðuvík. Auk þess að leika ein-
ir og sér léku þeir undir með kór-
unum og bjöllusveitinni. Ian sljóm-
aði einnig kórfólkinu frá Staðar-
sveit og Breiðuvík.
hlutar einnar myndar greiddir síðar,
um 3 milljónir. Næstm- á efth’ Erró
kemur Svavar Guðnason en fyrir 6
verk hans greiddi Listasafnið um 5,3
milljónir. Þá kemm- Magnús Pálsson
með 5 verk að kaupvirði um 3,6 mUlj-
ónir. Fjórði efsti listamaðurinn er
Jón Gunnar Ai’nason en fyiir 3 verka
hans greiddi safnið um 3,2 milljónir.
Næstur kemur Jón Stefánsson með 4
verk fyrir um 3,1 mUljón. Söluhæsta
listakonan síðustu 10 árin er Júlíanna
Sveinsdóttir, í 14. sæti, en fyrir 4
verk hennar greiddi safnið um 1,2
mUljónir og efst af núlifandi listakon-
um er Louisa Matthíasdóttir í 22.
sæti með sjálfsmynd íyrir um 1 mUlj-
ón. Efsti erlendi listamaðurinn á
sölulista er Matti Kujasalo í 25. sæti
með 6 verk sem keypt voru fyrir
tæpa eina mUljón.
Mestu fé varði safnið til Usta-
verkakaupa á tímabilinu árið 1992 en
núvirði yfir kaup þess árs eru um
16,6 mUljónir. Það sem af er þessu
ári hefur Listasafnið fjárfest í verk-
um fyrir um 6 milljónir.
Bjöllusveitin er skipuð börnum
frá Hellissandi og er stjórnandi
hennar tónlistarkennari á Hell-
issandi, Kay Wiggs. Hún er komin
frá Bandaríkjunum, North Carol-
ina, og er búsett á Hellissandi.
Einnig stjórnaði hún Ingjaldshóls-
kirkjukórnum á tónleikunum.
Kjartan Eggertsson skólastjóri
tónlistarskólans stjórnaði
'Kirkjukór Ólafsvíkur.
Félagsheimilið var fullsetið
áhugasömum áheyrendum, bæði
börnum og fullorðnum og var
flutningi tónlistarfólksins vel fagn-
að. Mörg aukalög voru flutt og að
lokum sungu allir saman við undir-
leik lúðrasveitarinnar.
Davíð Einar Már
Oddsson Guðmundsson
Bókalestur
á Gráa
kettinum
LESIÐ verður úr fimm nýjum bók-
um á Gráa kettinum, Hverfisgötu
16a, laugardaginn 13. desember, kl.
15. Það er félagsskapurinn Besti vin-
ur Ijóðsins sem stendur fyrir upp-
lestrinum í samvinnu við Gráa kött-
inn.
Davíð Oddsson les úr smásagna-
safni sínu, Nokkrir góðir dagar án
Guðnýjar, Einar Már Guðmundsson
les úr skáldsögunni Fótspor á himn-
um, Didda flytur kafla úr bók sinni,
Erta. Páll Bergþórsson les úr ritinu
Vínlandsgátan og Steingrímur Gaut-
ur Kristjánsson les úr Ijóðaþýðing-
um sínum sem bera nafnið Austur-
ljóð. Kynnir er Hrafn Jökulsson. Að-
gangur er ókeypis.
------♦♦♦------
Upplestur í
Kaffistofu
Gerðarsafns
RITLISTARHÓPUR Kópavogs efn-
ir til upplestrar í Kaffistofu Gerðar-
safns, Listasafni Kópavogs, fimmtu-
daginn 11. desember kl. 17.
Að þessu sinni koma fjórar skáld-
konur í heimsókn og lesa úr núút-
komnum verkum sínum. Það eru
þær Elín Ebba Gunnarsdóttir, sem
fékk Tómasai-verðlaunim fyrir smá-
sagnabók sína Sumar sögur; Anna
Valdimarsdóttir les úr ljóðabók sinni
Úlfabros; Ágústína Jónsdóttir, les úr
ljóðabók sinni Lífakur og Hallfríður
Ingimundai’dóttir les úr ljóðabók
sinni Ljóðlýst.
Dagskráin stendur yfir í klukku-
tíma og er aðgangur er ókeypis.
------♦-♦-♦----
Jólakort búin til
í Listasafni
NÚ LIÐUR að lokum sýningarinnar
Gunnlaugur Scheving - Úr smiðju
listamannsins en sýningunni lýkur
21. desember.
Sunnudaginn 14. desember kl. 14
verður dagskrá fyrir böm í Lista-
safni íslands, þar sem m.a. gestum
verður boðið að búa til jólakort.
Póstkassi verður á staðnum og era
allir velkomnir. Sjónvarpsmyndin -
Hið hljóðláta verk, um líf og starf
Gunnlaugs Scheving er sýnd daglega
kl. 12 og kl. 15 en myndin er um 40
mín. að lengd.
Morgunblaðið/Guðlaugur Wium
GÓÐUR rómur var gerður að leik Lúðrasveitarinnar Snæs ásamt Ieik
og söng annarra er fram komu.
Jólatónleikar
í Snæfellsbæ
Ólafsvík. Morgunblaðið.
JÓLATÓNLEIKAR Lúðrasveitar
Litskyggnuvélar
Þýsk gæðavara
Verð frá kr. 16.600
BECO
Barónsstí" 18. sími 552 341 !
Kraftmeiri, nú með 1400W mótor.
Fislétt, aðeins 6.5 kg.
Biðstöðufesting fyrir rör og slöngu.
Og hinn frábæri Nilfisk AirCare®
síunarbúnaður með HEPA H13 síu.
Komdu og skoðaðu nýju
Nilfisk GM-400 ryksugurnar
/FOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Tónleikar söng-
hópsins Sólarmeg’in
SÖNGHÓPURINN Sólarmegin frá
Akranesi heldur þrenna tónleika fyr-
ir þessi jól.
Fyrstu tónleikarnir verða í Borg-
arneskirkju fimmtudaginn 11. des-
ember kl. 20.30, í Hallgrímskirkju í
Saurbæ laugardaginn 13. desember
kl. 16 og í safnaðarheimilinu Vina-
minni á Akranesi mánudaginn 15.
desember kl. 20.30.
Á efnisskránni eru hefðbundin
jólalög ásamt lögum sem ekki hafa
áður verið flutt af íslenskum kórum.
Við sum þessara jólalaga hafa verið
gerðir nýir íslenskir textar í tilefni
tónleikanna og eitt lagið á efnis-
skránni er útsett sérstaklega fyrir
sönghópinn. Sönghópurinn Sólar-
megin hefur verið starfandi síðastlið-
in átta ár og haldið fjölmarga tón-
leika víða um land. Einnig hefur hóp-
urinn farið í tónleikaferð til annarra
Sönghópurinn Sólarmegin
Norðurlanda og sungið við margvís-
leg önnur tækifæri, m.a. í útvarpi og
sjónvarpi. Á söngferli sínum hefur
Sólarmegin lagt ríka áherslu á fjöl-
breytilegt lagaval.
Fyrir ári gaf sönghópurinn út
geislaplötuna „Sólarmegin“ með úr-
vali laga, sem hann hefur sungið.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
JÓLAUPPBOB-nJÓLAHÁTÍD
Gallerí Borg heldur jólauppboð þriðjudaginn 16. desember.
DIDDÚ kemur og syngur jólalög af nýja diskinum sínum.
Boðið verður uppá veitingar.
ATH! 15% afsláttur af smávöru fram að jólum
í Antik-og gjafavöruversluninni.
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 12-18,
sunnudaga kl. 14-18.
BORG
Síðumúla 34, sími 581 1000
Sýning uppboðs-
verka hefst
laugardaginn
13. des. kl. 12.00