Morgunblaðið - 11.12.1997, Síða 43
42 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
+■
MORGUNBLAÐIÐ
JMtogtiiiHiifrft
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
KYOTO
HEFUR SKILAÐ
ÁRANGRI
Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um umhverfísmál í
Kyoto hefur nú þegar skilað miklum árangri. Ástæð-
an er sú, að í aðdraganda ráðstefnunnar hafa orðið mikl-
ar umræður víða um heim um þau áhrif, sem útblástur
gróðurhúsalofttegunda getur haft á næstu árum og ára-
tugum. Pjóðir heims hafa af þeim sökum betri skilning á
því en áður um hvað þetta mál snýst.
Það snýst einfaldlega um það, hvort hægt verður að
búa á jörðinni í framtíðinni. Að vísu eru skoðanir vísinda-
manna skiptar í þessum efnum en vísbendingar um það,
sem gæti gerzt, ef við breytum ekki um stefnu eru með
þeim hætti, að engin þjóð getur leyft sér að taka þá
áhættu að virða aðvaranir vísindamanna að vettugi.
í upphafi þessa áratugar voru nokkrar deilur hér á ís-
landi um það, hvort vísindamenn Hafrannsóknastofnun-
ar hefðu rétt fyrir sér um stöðu þorskstofnsins. Niður-
staðan varð hins vegar sú, að þjóðin gæti ekki leyft sér
að taka þá áhættu að hafa ráðleggingar þeirra að engu.
Það sama á við um útblástur gróðurhúsalofttegunda.
Þjóðir heims geta ekki tekið þá áhættu að hlusta ekki á
aðvaranir vísindamanna, þótt kenningar þeirra séu um-
deildar.
Ráðstefnan í Kyoto hefur opnað augu fólks um víða
veröld fyrir því, að við hljótum að breyta um lífshætti.
Margir hafa áreiðanlega tilhneigingu til að líta svo á, að
róttækar aðgerðir til þess að draga úr útblæstri muni
draga úr eða stöðva efnahagslegar framfarir. Aðrir
munu segja sem svo, að þeir sem tregðast við að viður-
kenna veruleikann í þessum efnum séu haldnir græðgi
þeirra, sem lifí einungis fyrir líðandi stund og hugsi
hvorki um hag barna okkar né barnabarna.
Er ekki hugsanlegt að báðir aðilar hafi rangt fyrir sér?
Standi heimsbyggðin frammi fyrir því, að núverandi
lífsmáti okkar sé óverjandi, þegar hugsað er um hag og
heill komandi kynslóða, getur það orðið til þess að stór-
aukin áherzla verður lögð á margvíslegar nýjungar, sem
leiði bæði til nýrra og betri lífshátta og aukinna efna-
hagslegra framfara á nýjum vígstöðvum, sem eru okkur
ef til vill ókunnar nú.
Kyoto getur orðið til þess að gífurleg áherzla verður
lögð á að þróa ný samgöngutæki, sem hafi ekki þau skað-
legu áhrif á umhverfí okkar, sem bifreiðin bersýnilega
hefur, svo dæmi sé nefnt. Sumir eru andvígir því að
leggja á svokallaða umhverfisskatta eða mengunar-
skatta. Sú andstaða er á misskilningi byggð. Slík skatt-
lagning getur einmitt orðið hvati til framfara og nýjunga
á öðrum sviðum, þegar óbreyttir lífshættir eru orðnir svo
dýrt spaug, að hvorki einstaklingar né fyrirtæki geta
undir þeim staðið.
í nýju tölublaði brezka tímaritsins The Economist er
stórathyglisverð grein, þar sem fjallað er um einn þátt
þessa máls, þ.e. bílaumferðina og þau mengunaráhrif,
sem hún hefur ekki sízt í stórborgum víða um heim.
Blaðið dregur í efa, að hækkun benzínverðs eða skatta á
bflana sjálfa dugi til þess að draga úr hinni mengandi
umferð heldur verði nauðsynlegt að skattleggja notkun
veganna sjálfra, þ.á m. gatnakerfí innan stórborganna. í
því sambandi eru nefnd dæmi um tilraunir af þessu tagi
m.a. í Noregi, sem hafi gefið góða raun.
Fyrir okkur íslendinga er um stórmál að ræða. Sterk
markaðsstaða íslenzkra sjávarafurða á erlendum mörk-
uðum byggist ekki sízt á því, að við búum hér í hreinu og
ómenguðu landi og að sjórinn í kringum landið sé hreinn
og tær. Yaxandi áhugi á íslandi sem ferðamannalandi
byggist á því sama.
Þess vegna er ástæða til að við mörkum alveg nýja og
skýra stefnu í umhverfismálum, þar sem við mætum
þeim kröfum, sem ný og gjörbreytt viðhorf munu gera til
okkar og annarra þjóða heims á næstu árum. Það er í
raun og veru ekki eftir neinu að bíða, hvað sem líður alls-
herjarsamkomulagi um þetta stærsta mál, sem heims-
byggðin stendur frammi fyrir.
Kyoto-ráðstefnunni um aðgerðir gegn upphitun lofthjúpsins lauk í nótt
Ös
rekja
AMKOMULAG var í sjónmáli
um klukkan átta í morgun að
staðartíma í Kyoto. Að svo
skyldi vera var sagt hægt að
til þess fyrst og fremst að
Bandaríkjamenn gáfu verulega eftir
af sínum helstu kröfum, þar á meðal
skiptum og sölu á útblásturskvóta
milli landa, en um þá var mest tekist
á síðustu klukkustundir viðræðn-
anna. Þeir voru sagðir hafa fallist á
6% lækkun á útblæstri frá 1990 og
ennfremur að hafa geflð eftir kröf-
una um að þróunarlöndin gangist
undir loforð um að taka í framtíðinni
þátt í aðgerðum til að draga úr út-
blæstri.
Eftir ítrekaðar frestanir á því að
nýtt uppkast að samningi um minnk-
un á útblæstri gróðurhúsaloftteg-
unda út í andrúmsloftið kæmist í
hendur samningamanna og annarra
ráðstefnugesta í ráðstefnuhöllinni í
Kyoto um klukkan 2 eftir miðnætti í
nótt að staðartíma, var textanum
dreift og umræður um hann hófust í
kjölfarið.
Breytingarnar í nýja uppkastinu
voru þessar helstar: Miðað var við
6% niðurskurð á útblæstri gróður-
húsalofttegunda á tímabilinu 2008 til
2012; í staðinn fyrir orða-
lagið „iðnríkin skulu
minnka prósentuhluta út-
blásturs síns“ er sagt
„stefna að minnkun útblást-
urs“, sem er mun veikara
orðalag en hið fyrra. Til að
vega upp á móti því var
bætt inn í klausu um að
hvert iðnríki skuli, fyrir ár-
ið 2005, hafa sýnt árangur í
því að ná þeim markmiðum
sem það skuldbindur sig til
að uppfylla í þessum samn-
ingi.
Miðað var við að taka all-
ar 6 aðalgróðurhúsaloftteg-
undirnar inn í tillöguna en í
tillögunni sem lögð var
fram í gær var aðeins geng-
ið út frá þremur, og meðal-
tal lækkunar á útblæstri
hafði breyst í 6% úr 5%.
Engar tölur voru nefndar í
nýja uppkastinu, fyrir utan
meðaltalstöluna 6%, en
heyrst höfðu mismunandi
tölur. Til dæmis 8% fyrir
ESB, 7% fyrir Bandaríkin
og 6% fyrir Japan. Einnig
höfðu heyrst lægri tölur, en
talið var að Bandaríkja-
menn hefðu fallist á 6% fyr-
ir sitt leyti.
í umræðunni í nótt kom
fram mikil andstaða gegn
ákvæði í tillögunni um sölu
á útblásturskvóta og hélt
umræða um það atriði í
áfram í rúmlega 2 klukku-
stundir og svo virtist sem nokkur
þróunarlandanna væru að reyna að
koma í veg fyrir samning á síðustu
stundu.
Raul Estrada, formaður allsherjar-
þings ráðstefnunnar, lagði fram til-
lögu til að koma til móts við deiluað-
ila sem liðkaði í kjölfarið fyrir af-
greiðslu á öðrum ákvæðum í tillög-
unni. Sáttatillaga hans miðaði við að
löndum leyfðist að byrja strax skipti
á kvóta en reglur um söluna yrðu
settar á næstu ráðstefnu þjóðanna,
COP4 sem fram fer á næsta ári.
Þetta þýðir í raun að ekki verður
hægt að hefja viðskipti með kvóta
fyrr en eftir hana, þar sem reglur
verða að vera fyrir hendi til að slík
viðskipti geti farið fram. Líkur eru
taldar á að það kunni að taka allt að
nokkrum árum að koma kerfi kvóta-
sölu í framkvæmd.
Sveigjanleiki á sfðustu stundu
Indland, Kína og Sádi- ----------
Arabía voru þau lönd sem
byrjuðu að gagnrýna
kvótasöluna og í kjölfarið
tjáði stór hluti aðildarríkja
ráðstefnunnar sig um
hana. Með tillögunni, sem Bandaríkin
halda mjög stíft fram og segja hana
algera forsendu fyrir því að landið
geti staðið við loforð sín um skerð-
ingu og samþykkt tillöguna, mæltu
meðal annarra Mexíkó, Rússland, Ar-
gentina og Japan. „Kvótaskipti eru
vélin sem knýr tillögu okkar áfram.
Við erum búin að gefa mikið eftir í
sjónarmiðum okkar og teljum að ekki
Banda-
ríkjamenn
gáfu eftir
Sáttatillaga, sem lögð var fram á síðustu
stundu, greiddi fyrir samkomulagi sem var í
sjónmáli undir morgun að staðartíma, eftir
þrotlausar samningaviðræður síðustu dægur
ráðstefnunnar, skrifar Þóroddur Bjarnason
frá Kyoto. Hann lýsir hér því sem tekist var
á um síðasta sólarhring viðræðnanna.
Reuters
JAPANSKUR lögreglumaður gætir aðalinngangsins að ráðstefnuhöllinni í Kyoto, þar sem
samningamenn 166 rílga sátu á rökstólum alla nóttina eftir áætlaðan lokadag ráðstefnunnar.
Hvert iðnríki
sýni árangur
fyrir 2005
megi láta þetta tækifæri á sögulegu
samkomulagi ganga okkur úr greip-
um,“ sagði samningamaður Banda-
ríkjanna á fundinum.
Raul Estrada, formaður allsherjar-
nefndarinnar og sá sem setti tillög-
una fram, minnti samningamenn,
þegar rætt hafði verið um málið í yfir
tvær klukkustundir, á hve málið væri
mikilvægt og hverjar afleiðingarnar
yrðu ef þetta yrði til þess að engin
niðurstaða næðist á ráðstefnunni.
„Það verður að sýna sveigjanleika á
þessari stundu. Við erum núna fjær
því að skrifa undir samning en við
vorum áður en þesssi umræða hófst
fyrr í morgun," sagði Estrada þegar
hann gerði stutt fundarhlé um klukk-
an 4 í morgun að staðartíma.
Grein 9 um þróunarlöndin var felld
út, en en um hana hafði mikið verið
bitist, einkum milli Kína og Banda-
ríkjanna, en í henni er gert ráð fyrir
að þróunarríkin geti sett sjálfum sér
mörk í losun gróðurhúsa-
lofttegunda, þegar þau séu
tilbúin til þess.
Heimildir segja að ríkin
deili um það atriði að ein-
hver þjóunarríki, sem
standa íyrir miklum útblæstri, eins og
til dæmis Kina, taki á sig einhverjar
skuldbindingar eða að hægt verði að
setja inn í samninginn eitthvað sem
hvetur þau til að ganga til verka innan
einhvers tiltekins tíma.
Kvöldið áður hafði Raul Estrada,
formaður allsherjarnefndarinnar,
skýrt frá gengi viðræðna um tillögu
sína. Hann talaði þá um að útblásturs-
mörk yrðu á bilinu 5-6% að meðaltali
fyrir iðnríkin.
Tafir urðu á þessu þar til um klukk-
an 2 að morgni þegar búið var að
klára uppkastið og dreifa því meðal
samningamanna og blaðamanna.
Eftir að hafa skýrt nánar frá gangi
viðræðnanna og hvatt samningamenn
til að líta á ákveðnar greinar hans þar
til nefndin kæmi aftur saman síðar
um kvöldið frestaði Estrada fundin-
um.
Bjartsýnir bandarískir þingmenn
Á blaðamannafundi í gær töluðu
nokkrir fulltrúar Bandaríkjaþings sem
hér eru og taka þátt í viðræðum á
þinginu og lýstu yfir bjartsýni.
„Við erum hér að gera það sem ekld
náðist í Ríó 1992, að setja tímamörk og
útlosunarmörk. Við vonum enn að
grein 10 verði inni í samningnum eins
og hún er í tillögunni," sagði einn þing-
mannanna.
„Eg tel að þessar samn- ---------
ingaviðræður séu einar
þær almikilvægustu al-
þjóðaviðræður sem farið
hafa fram því þær snerta
alla íbúa jarðarinnar og
jörðina sjálfa," bætti annar þeirra við.
Þeir sögðu einnig að þótt tillagan væri
ekki fullkomin væri hún þó mjög góð
byrjun á aðgerðum til að taka á vanda-
málinu.
Á meðan ráðamenn sátu á fundum í
gær, án þess að gefa neitt uppi um
hvað rætt væri um, héldu umhverfis-
samtök áfram mótmælum, bæði innan
ráðstefnusvæðisins og utan við höllina.
Meðal annars gengu umhverfissinnar
fylktu liði um blaðamannasvæði með
svarta hettu yfir höfðinu og henging-
aról um hálsins og kröfðust þess að
útlosunarsmugum væri lokað, að öðr-
um kosti þýddi samningurinn einung-
is hörmungar fyrir jörðina. Að öðru
leyti héldu umhverfissinnar að sér
höndum og biðu eins og aðrir eftir ein-
hverjum niðurstöðum úr viðræðunum.
Miklar vangaveltur voru á göngun-
um í Kyoto allan gærdaginn meðan
beðið var eftir viðbrögðum frá fulltrú-
um Bandaríkjanna, ESB og Japans
sem funduðu sleitulaust. Heyrst hafði
að Bandaríkjamenn ætluðu að ganga
enn lengra en tillagan hljóðaði upp á
og bjóða allt að 7-8% niðurskurð.
Þeir myndu enn halda fast við ætlanir
sínar um kvótasölu og skipti á kvóta
og heyrðist því fleygt að þegar hefði
verið nefnd tala um sölu á átta hund-
ruð milljónum tonna koldíoxíðígilda
til Rússlands. Kvótaskiptahugmyndin
hefur valdið nokkrum ótta á meðal
ríkisstjórna í Evrópu og einhverra
umhverfisverndarsamtaka sem segja
að Bandaríkin gætu allt eins verið lík-
leg til, ef tillagan verður samþykkt,
að kaupa frá Rússlandi allan útblást-
urskvóta sem þau þurfa á að halda til
að uppfylla mörkin sem
samið yrði um.
Bandaríkin hafa þó svarað
þessu með með því að lofa að
draga aðallega úr losun sinni
heima fyrir. „Það er ódýrara,
áreiðanlegra og auðveldara
að gera þetta heima,“ sagði
Mike Walsh frá Centre Fin-
ancial Products, bandarísku
ráðgjafaíyrirtæki. ESB vill
þó fá slíkar fullyrðingar
skriflegar.
Ef hægt er að gefa sér að
eitthvert ríki úr G77-hópnum
til dæmis, myndi vilja vera
með í regnhlífahugmyndinni
þá þyrfti viðkomandi ríki að
setja sér losunarmörk, sem
reyndar yrðu nokkuð há og
skiptu líklega tugum pró-
senta, en það er einmitt það
sem þróunarríkin eru ekki
tilbúin að gera.
Samkvæmt fyrri tillögu
Estradas var gert ráð fyrir
að grein 7 um svokallaða
sameiginlega framkvæmd
(joint implementatiorí) milli
iðnríkja og þróunarríkja sé
felld út úr samningnum.
Þetta viðkvæði í tillögunni
er umdeilt en það gerir ráð
fyrir því að iðnríki myndi
hljóta umbun af einhverju
tagi fyrir að hjálpa þróunar-
ríki að fjármagna og stuðla
að lægri útblæstri í viðkom-
andi landi.
Mikil óánægja var sögð
útblástursmörk hjá Úkraínu,
Rússlandi, Ástrahu, Noregi og íslandi.
Nálægt miðnætti í gær bárust óstað-
festar fréttir um að búið væri að loka
einhverjum þeim smugum sem mildð
hafa verið gagnrýndar og voru inni í
tillögunni frá því á þriðjudaginn en
það reyndist ekki fullkomlega rétt
þegar uppkastið var loks lagt fram.
Staða íslands vakið athygli
Staða íslands í samningnum og sú
staðreynd að landið hefur hæstu út-
blástursmörk allra ríkja, hefur vakið
mikla athygli hér á ráðstefnunni sem
hefur í leiðinni vakið áhuga manna á
sérstöðu landsins. Kalle Hestvedt frá
Alþjóðasamtökum Grænfriðunga
sagði aðspurður um skoðun sína á
stöðu íslands í viðræðunum að það
væri þónokkur samúð með landi eins
og íslandi og skilningur á sérstöðu
landsins og efnahag þess. „Ég veit að
Island notar nú þegar endurnýjanlega
--------- orkugjafa til bæði húshit-
unar og raforkuframleiðslu
en ég tel að ísland eigi líka
gríðarlega möguleika á því
______ að nota nokkra fleiri end-
umýjanlega orkugjafa eins
og vindorku til dæmis,“ sagði Hest-
vedt.
Hinn væntanlegi samningur er þó
ekki eins róttækur og stefnt var að í
upphafí en fulltrúar ESB hafa haldið
því fram af festu, allt fram á síðustu
stundu, að stóru þjóðunum bæri að
taka á sig 15% útblástursminnkun án
allra smuga eins og til dæmis kvótvið-
skipta.
með
Utblásturs-
hlutfall
íslands hæst
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 43
ísland er að auka losun gróðurhúsalofttegunda
Spáð er 26% aukningu
fram til ársins 2010
HOLLUSTUVERND ríkis-
ins spáir því að losun gróð-
urhúsalofttegunda aukist
um 26% fram til ársins
2010. Spáin byggir á orkuspá og þeim
ákvörðunum um nýja stóriðju sem
þegar hafa verið teknar. Hún byggir
einnig á þeirri forsendu að ekki verði
gerðar ráðstafanir til að draga úr los-
un. Samningur Sameinuðu þjóðanna
á loftslagsráðstefnunni í Kyoto gerir
ráð fyrir að ísland fái að auka losun
um 10% fram til ársins 2010.
Árið 1990 var heildarútblástur
gróðurhúsalofttegunda á íslandi jafn-
gildi 2.730 þúsund tonna af koltvísýr-
ingi. Áætlað er að í fyira hafi út-
streymið verið 2.694, sem er sam-
dráttur um 1,3%. Þetta er einkum að
þakka minni losun flúorkolefna frá ál-
verinu í Straumsvík, en hún hefur
minnkað um sem svarar 240.000
tonnum af koltvísýringi á þessu tíma-
bili. Á móti hefur útstreymi annarra
gróðurhúsalofttegunda aukist, eink-
um frá fiskiskipum, ökutækjum og
stóriðju.
Samkvæmt spá Hollustuverndar
ríkisins verður heildarstreymi gróð-
urhúsalofttegunda árið 2000 3.161
þúsund tonn, mælt í ígildum koltví-
sýrings. Það er 16% aukning frá
1990. Til samanburðar má geta þess
að því er spáð að Bandaríkin auki los-
un um 13% á sama tímabili. Því er
spáð að útstreymi gróðurhúsaloftteg-
unda hér á landi verði 3.445 þúsund
tonn árið 2010, sem er 26% aukning
miðað við árið 1990. Að mati Holl-
ustuvemdar verður losun komin í
3.821 þúsund tonn árið 2025, sem er
40% aukning.
Samningurinn útilokar frekari
uppbyggingu á stóriðju
Þessi útstreymisspá gerir ekki ráð
fyrir neinum aðgerðum til að draga
úr útblæstri. Hún er byggð á orkuspá
og þeim ákvörðunum sem þegar hafa
verið teknar um nýja stóriðju, þ.e.
stækkun í Straumsvík, stækkun
Járnblendiverksmiðjunnar og bygg-
ingu álvers Norðuráls. Þessar þrjár
framkvæmdir munu auka útstreymi
gróðurhúsalofttegunda um sem svar-
ar 385.000 tonnum koltvísýrings.
Spáin gerir ekki ráð fyrir því að ál-
ver Norðuráls verði stækkað, en hún
gæti aukið útblástur um 250.000 tonn
til viðbótar. í spánni er heldur ekki
gert ráð fyrir stóriðjuframkvæmdum,
svo sem magnesíumverksmiðju eða
álveri Norsk Hydro eða Atlantsáls.
50.000 tonna magnesíumverksmiðja
losar u.þ.b. 350.000 tonn af gróður-
húsalofttegundum á ári og 200.000
tonna álver losar um 300.000 tonn af
gróðurhúsalofttegundum. Hugmynd-
ir Norsk Hydro hafa snúist um að
byggja í þremur áföngum allt að 720
þúsund tonna álver, en slíkt álver
fullbyggt myndi losa um 1.000.000
tonn af gróðurhúsalofttegundum á
ári. Ekki verður séð hvemig hægt
verður að leyfa byggingu slíks álvers
hér á landi ef Island gerist aðili að
samningnum um takmörkun á losun
gróðurhúsalofttegunda.
Til skoðunar hefur einnig verið að
byggja olíuhreinsunarstöð hér á
landi, en slíkt fyrirtæki losar óvera-
legt magn af gróðurhúsalofttegund-
um út í andrúmsloftið þó að fram-
leiðsluvaran, olían og bensínið, mengi
að sjálfsögðu mikið við bruna.
Spá um 40% aukningu á losun
gróðurhúsalofttegunda til ársins 2025
Skipting koitvísýringsútstreymis á Islandi árið 1995
eftir uppsprettum _______ ..
c0 cKCn co, pBBM^Fiskiskipaflotinn
Samgöngutæki
innanlands
ðnaðarfyrirtæki
------^“3% Jarðhítavirkjanir
Aðrar uppsprettur
rft
Áætlun og spá um útstreymi gróðurhúsalofttegunda
Milljónir tonna
Gróðurhúsaiofttegundir
íC02- ígildum
á Islandi til 2020
1990
1995
2000
2005
2010
2015
2020
Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra
EKKERT nýtt hafði komið í Ijds
með stöðu Islendinga í sambandi við
tillögpt Rauls Estrada, formanns
allsherjarnefndarinnar á ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um loftslags-
breytingar, þegar Guðmundur
Bjarnason umhverfismálaráðherra
og fleiri úr sendinefnd fslendinga
yfirgáfu ráðstefnuna og héldu heim
til íslands snemma í morgun.
Guðmundur sagði, áður en hann
hélt frá Japan, að lítið væri hægt að
segja að svo stöddu um málið annað
en að tveir úr samninganefndinni
myndu sjá um að fylgja máli íslend-
inga úr hlaði á ráðstefnunni og
óljóst væri með niðurstöðu.
„Nú er búið að vera að tala um
sama ágreiningsefnið í tillögunni í
nær þijá klukkutíma, reyndar var
þrefað fyrst aðeins um gróðurbind-
inguna og það náðist gott samkomu-
lag um það en nú virðist kvótasalan
standa svolítið i þróunarlöndunum,"
sagði Guðmundur en stuttu seinna
leystist úr þeim hnút með málamiðl-
unartillögu settri fram af Raul
Estrada. íslendingar styðja hug-
myndina um kvótasölu á milli landa
sem er af mörgum talin geta stuðlað
að heildarminnkun útblásturs gróð-
urhúsalofttegunda.
Guðmundur sagði að lítið væri
hægd að gera núna nema að bíða en
hann óttaðist að samningamenn á
ráðstefnunni væru að falla á tíma
eins og hann orðaði það. Ráðstefnan
væri þegar búin að standa lengur en
áætlað hafði verið og óljóst hve
Ekki von á
miklum
breytingum
lengi væri hægt að halda áfram að
funda.
„Því miður verðum við að hverfa
af vettvangi núna en við skitjum eft-
ir tvo menn til að vera hér til enda.
Við sjáum ekki fram á að fá ein-
hverjar breytingar á okkar málum
héðan í frá, við höfum ennþá vænt-
ingar um að fá einhverja bókun
samþykkta um okkar mál sem gæti
hentað okkar sjónarmiðum en það
er of snemmt að segja neitt meira
um það.“
Samkvæmt fyrri tillögu Estradas
sem lögð var fram á þriðjudaginn
var gert ráð fyrir því að fslendingar
gætu aukið losun sína á gróðurhúsa-
lofttegundum um 10% frá því sem
hún var árið 1990 en það var ekki
talið nægja.
,,‘Eg tel varla líklegt að nærri því
allar þjóðir verði búnar að staðfesta
samninginn innan ársins og í nóv-
ember á næsta ári verður nýr fund-
ur þar sem umræðan heldur áfram.
Henni er að sjálfsögðu ekki lokið,
þótt menn hafi haft vonir um og
voni enn að hér náist gríðarlega
mikilvægur áfangi á þeirri leið sem
menn hafi verið að ganga."
Ekkert þessu líkt
Guðmundur sagðist aldrei hafa
upplifað neitt líkt þessari ráðstefnu
fyrr, þeirri spennu og þeirri miklu
vinnu sem farið hefði fram í ráð-
stefnuhöllinni.
„Þótt maður hafi tekið þátt í margs
konar kjaraviðræðum með þeirri
spennu sem þeim getur fylgt og öðru
svipuðu, þá er þetta engu l£kt,“ sagði
Guðmundur og brosti þrátt fyrir að
þreytan væri farin að segja til sín eft-
ir nær tveggja sólarhringa stanslausa
vinnu á ráðstefnunni.
Verulegur sveigjanleiki
Tryggvi Felixson formaður samn-
inganefndar íslands á ráðstefnunni
sagði að sér virtist vera búið að sýna
verulegan sveigjanleika og vilja til
að ná samkomulagi í Kyoto og því
erfitt að sætta sig við það ef engin
lausn næðist í samningaviðræðunum.
„Það er komin sátt um öll megin-
atriði tillögunnar að það yrði erfitt
að sjá þetta enda án árangurs.
Bandarikin hafa lagt sig mjög fram
um að greiða fyrir samningum hér í
nótt.“
Tryggvi sagði að ef ekki næðist
samkomulag um tillöguna þá væri
annaðhvort hægt að slíta viðræðum
eða fresta þeim sem yrði betri kost-
ur þar sem þá yrði hægt að taka upp
þráðinn að nýju að einhveijum tíma
liðnum.
gerir ráð fyrir að 27% aukningarinn-
ar komi frá fiskiskipaflotanum, 10%
vegna vegasamgangna og 6% vegna
stóriðju.
Eykur þrýsting á bílaiðnaðinn
Magnús Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, sagði ,
að vandi Islendinga væri að mest af
þeim gróðurhúsalofttegundum sem
við losuðum út í andrámsloftið kæmi
frá skipum og bílum og tæknin til að
draga úr losun á þessum sviðum væri
ekki fýrir hendi í dag. Hann sagði
hins vegar engan vafa leika á að
samningur Sameinuðu þjóðanna ætti
eftir að auka verulega þrýsting á bfla-
iðnaðinn að finna nýja tækni sem
mengaði minna en sú sem notast væri
við í dag.
„Ég spái því að ef þessi samningur
gengur í gegn þá munum við sjá eftir
5-8 ár alveg nýjan bflaflota. Ég var
að lesa viðtal við breskan vísinda-
mann sem hefur unnið við tilraunir á
eldsneytisrafhlöðum hjá bandarísku
geimferðastofnuninni í Texas. Hann
sagði að ef menn settu verulegt fjár-
magn í að þróa bíl sem gengi fyrir
eldsneytisrafhlöðu þá væri á fimm ár-
um hægt að koma á markað bfl sem
kostaði u.þ.b. 18.000 pund. Hann
kæmist 100 km á 2-3 lítrum og
mengaði aðeins 10% af því sem með-
albfll gerir í dag. Tæknin hefur
kannski komið okkur í þá stöðu sem
við erum í umhverfismálum í dag, en
tæknin getur jafnframt hjálpað okk-
ur að leysa vandann," sagði Magnús.
Varaformaður
umhverfisnefndar
Getum
ekki skrif-
að undir
GISLI Einarsson, varaformaður
umhverfisnefndar Alþingis, segist
telja að Islendingar geti ekki skrif-
að undir samning sem skuldbindur
okkur til að auka ekki losun gróð-
urhúsalofttegunda meira en 10%
fram til árins 2010.
„Ég dreg í efa að ríkisstjómin
geti við þær aðstæður sem nú em
skrifað undir. Það verður að nást
önnur niðurstaða en blasir við
vegna þess að í rauninni er búið að
semja um ákveðna hluti á íslandi
sem við getum ekki gengið til
baka með. Við þurfum að leita
leiða til þess að minnka losun
gróðurhúsalofttegunda út í and-
rúmsloftið. Ég horfi mest á
brennsluhvata, sem sýnt hefur ver-
ið fram á að nýtir betur olíu og
minnkar þar af leiðandi mengun.
Við þurfum að kanna betur hvort
þar leynist möguleikar."
Gísli sagði að íslendingar væm
að mestu hættir að hita hús sín
með olíu og við ættum m.a. þess
vegna mun takmarkaðari mögu-
leika en aðrar þjóðir til þess að
minnka mengun. Við þyrftum hins
vegar að gera allt sem við gætum
til að minnka mengun á móti
þeirri stóriðju sem af efnahagsleg-
um ástæðum væri okkur nauðsyn-
leg. Slík stóriðja væri betur sett
hjá okkur en öðrum þjóðum sem
notuðu mengandi orku til að knýja
þær áfram.
Gísli sagði að umhverfísráð-
stefnan í Kyoto hefði ekki verið til
umfjöllunar í umhverfisnefnd í
gær, en málið yrði rætt í nefndinni
eftir helgina þegar umhverfisráð-
herra og aðrir samningamenn ís-
lands kæmu heim.