Morgunblaðið - 11.12.1997, Qupperneq 72
72 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Bylting!
Fjölnota byggingaplatan
sem allir hafa beðið eftir!
Viroc utanhússklæÓing
Leitiö frekari upplýsinga
IÞ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29,108 REYKJAVÍK, SÍMI 553 8640 / 568 61
VIROC byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf.
VIROC byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin,
höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi.
VIROC byggingaplötuna er hægt
að nota úti sem inni.
VIROC byggingarplatan er umhverfisvæn.
VIROC byggingaplatan er platan sem
verkfræðingurinn getur fyrirskrifað nánast blint.
Staðalstært: 1200x3000x12 mm.
Aörar þykktir: 8,10,16,19,22,25,32 & 37 mm.
Mesta lengd: 305 cm. Mesta breidd: 125 cm.
FRABÆRT VERÐ
Wýtt kortatímabil
Skór frá...........kr. gfllllb
íþróttaskór fvjLgfm.kr. tJUlifr
Kjólar frá - ■--- kr. IHrtlTlb
Peysur frá........kr. CSXÞ
Ilerrabuxur f rá..kr. IHJliIft
Drengjajakkaföt frá - - - kr. Ifrfelllft
Grölfmottur frá -..kr. ilWIIft
ÞOKPII) G
Kjörgarði - Laugavegi 59,
símar 551 6400 og 551 4444.
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
Domus Medica - Kringlunni
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Vantar rækjur
NÝLEGA keypti ég 100 g
af rækjusalati. Þegar dósin
var opnuð heima var varla
nokkur rækja sjáanleg í
dósinni. Eftir nokkra leit
fundust þó 4 örsmáar og
bragðlausar rækutítlur,
nokkrir bitar af harðsoðn-
um eggjum og afgangur-
inn var mæjones-jukk.
Fróðlegt væri að heyra frá
N eytendasamtökunum
hvort engar reglur séu til
um lágmarksfjölda af
rækjum í því sem selt er
sem rækjusalat. T.d. mætti
hugsa sér ákveðinn fjölda
af rækjum í 100 g af
rækjusalati.
Útivinnandi húsmóðir.
Áramótabrennur
mengun og ósiður
NÚ UM áramótin stendur
til að brenna hundruðum
ef ekki þúsundum tonna
af timburdrasli, olíu,
dekkjum o.s.frv. á gaml-
ársbrennum og sér enginn
neitt athugavert við þetta.
Það á að stoppa þetta; að
verið sé að brenna að
óþörfu þessu gífurlega
magni af drasli að gamni
sínu. Þetta er ekkert annað
en mengun og losun á kol-
sýru í andrúmsloftið. Þessi
siður einn gerir okkur ís-
lendinga seka um hálf-
gerðan glæp gagnvart líf-
ríki jarðar og lofthjúpnum.
Við ættum að fara að
draga úr þessari vitleysu.
Valgeir Þormar.
Hrævareldar
HRÆVARELDAR hefur
nefnt verið samfélag
manna við meintan slæð-
ing framliðanna, eins og
kuklið í góðri og tímabærri
grein sr. Þóris Jökuls hér
í Morgunblaðinu 19. fyrra
mánaðar. Ásgeir Sigurðs-
son magister fjallar um í
löngu máli hér í blaðinu
6. þ.m. skáidverkið „Lífíð
eftir lífið“ sem metsöluhöf-
undur fyrra árs sendir nú
á jólabókamarkaðinn
ásamt annarri bók. Hann
telur greinilega rétt að
hamra jámið meðan það
er heitt, þ.e. að gera út á
frægðina í hagnaðarskyni
meðan hún endist. Það er
honum að sjálfsögðu heim-
ilt og mundi ég ekki skipta
mér af því nema af því
Ásgeir magister eyrna-
merkir í umfjöllun sinni
þessa ritsmíði „kærleika
Guðs og fordæmi Krists“,
sem er blekking sem vara
ber við, sbr. varnaðarorð
Ritingarinnar í II. Tím.
4,3-4: „. . .heldur hópa
þeir að sér kennurum eftir
eigin fysnum sínum til þess
að heyra það, sem kitlar
eyrun..Ásgeir segir
bókarhöfundinn hafa dval-
ið langdvölum á Indlandi
til að sjá og heyra gúrúana
þar. Margir hafa snar-
ruglast við að sitja við
fætur þeirra fræðara, sem
hollt er að lesa um í bók-
inni „Helstu trúarbrögð
heims“ eftir Sigurbjörn
biskup, er út kom hjá
AB-forlaginu á sínum
tíma. Frekar er mælt með
þeirri bók, en frásögunum
af hrævareldunum í hinni
umtöluðu jólabók.
H.R.
Góð mynd
á Stöð 2
MIG langar að þakka fyrir
bíómyndina sem sýnd var
mánudaginn 8. desember
á Stöð 2. Mér fannst þessi
mynd bæði einlæg og svo
var svolítill kærleikur og
hlýja í henni, sem sagt ljúf
mynd. Vil ég þakka Stöð
2 fyrir að sýna þessa
mynd.
Guðmunda.
Tapað/fundið
Gulleyrnalokkur
fannst í
Kolaportinu
GULLEYRNALOKKUR
fannst í Kolaportinu sl.
sunnudag. Uppl. í síma
567 3858 eftir kl. 19.
Barnagleraugu
týndust í Kópavogi
VINRAUÐ bamagleraugu
týndust í Smárahverfínu í
Kópavogi um miðjan nóv-
ember. Skilvís finnandi
hafi samband við Guðrúnu
í síma 564 1270.
Brún silkislæða
týndist
ER ég svo heppin að þú
hafir í síðustu viku (3.-9.
des.) fundið stóru, brúnu
silkislæðuna mína. Eg
sakna hennar mjög. Fund-
arlaun og þakklæti í boði.
Uppl. í síma 568 1854 og
553 4594.
immxm
mÍ
sáíLÍ.L.
Morgunblaðið/Krisatinn
rra n
1 SKÓR FYRIR KARLMENN |
Frábær þáttur um Lloyd skó
verður sýndur á Stöð 2
sunnudaginn 14. des. kl. 16.20
Víkveiji skrifar...
VISÖGUR eru vinsælt lestr-
arefni, eins og sést vel á
íslenska jólabókamarkaðnum þetta
árið. Ævisögur segja að jafnaði frá
ævi fólks, sem sker sig með ein-
hveijum hætti úr fjöldanum en á
fjörur Víkverja rak fyrir skömmu
öðruvísi ævisögu, sem ætti fuilt
erindi á íslenskan jólabókamarkað.
Þetta er ævisaga þorskins sem
nýlega kom út í Bandaríkjunum
eftir blaðamanninn Mark Kurlan-
sky. Höfundurinn hefur leitað fanga
víða um heim, meðal annars hér á
landi, og sagan spannar eittþúsund
ár og fjórar heimsálfur.
xxx
ARNA er að finna ýmsan fróð-
leik um þennan merkilega
físk, sem hefur um aldir haldið líf-
inu í heilum þjóðum. En hin raun-
verulega saga sem bókin segir er
af samskiptum manns og þorsks:
hrikalegum mannraunum við sjó-
sókn, átökum um mið og markaði
og hvernig þau átök hafa markað
djúp spor í mannkynssöguna. Og
um leið er þetta saga um breysk-
leika mannsins, sem svo sjaldan
kann sér hóf þegar hann heldur að
nóg sé til af einhveiju.
Þetta er m.a. undirstrikað með
sögum af sæförum sem sigldu um
Miklabanka austur af Nýfundna-
landi fyrr á öldum og sögðu frá
ótrúlegri þorskgengd. Nú er bannað
að veiða þorsk þarna, enda er hann
nánast horfinn af þessum miðum
sökum ofveiði og óvíst hvort hann
kemur aftur.
xxx
BÓKIN um þorskinn er krydduð
uppskriftum frá ýmsum tím-
um. Sú elsta er frá 14. öld, kennd
við Taillevent og er einfaldlega
svona: Saltur þorskur er etinn með
sinnepssósu eða með nýju bráðnu
smjöri.
Ónnur söguleg saltfískuppskrift
á rætur að rekja til Louis de Bécha-
mel markgreifa við hirð Lúðvíks
14. Sá hafði fjárfest í Nýfundna-
landsútgerð en gekk illa að fá
Frakka til að borða saltfisk; þeim
fannst hann þurr og ókræsilegur.
Markgreifínn fann því upp sósu
með saltfiskinum, sem nú er kölluð
béchamelsósa og er ein af undir-
stöðusósunum í matargerð og víða
borin fram með soðnum saltfiski
og öðrum mat. Upphaflega var sós-
an einföld ijómasósa krydduð með
múskati, en síðar var bætt í hana
eggjum, smjöri og hveiti.
I enskri matreiðslubók sem kom
út árið 1730 var þetta tilbrigði af
saltfiski með béchamelsósu: Takið
vænari þorsk og sjóðið, rífíð í sund-
ur og látið í pott með ijóma, krydd-
ið með dálitlum pipar, setjið í hnefa-
fylli af steinselju og hitið varlega,
hrærið síðan þykkt smjör og 2-3
eggjarauður saman við. Setjið á
disk og berið fram með linsoðnum
eggjum og sítrónusneið.