Morgunblaðið - 11.12.1997, Síða 74
74 FIMMTUDAGUR 11. DBSEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra st/iðið kl. 20.00:
HAMLET — William Shakespeare
Frumsýning á annan í jólum 26/12 uppselt — 2. sýn. lau. 27/12 nokkur sæti laus — 3.
sýn. sun. 28/12 nokkur sæti laus — 4. sýn. sun. 4/1 — 5. sýn. fim. 8/1 — 6. sýn. fös. 9/1.
GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir.
Þri. 30/12 - lau. 3/1.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Hamick
Fös. 2/1 - lau. 10/1.
Sýnt i Loftkastalanum kl. 20.00:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Lau. 3/1.
....GJAFAKORT ER GJÖF SEM GLEÐUR------------------
Miðasalan eropin mán.-þri. 13—18, mið.-sun. 13—20.
Simapantanir frá kl. 10 virka daga.
J LEIKFELAG J
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
GJAFAKORT LEIKFELAGSINS
VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI
Stóra svið kl. 14.00
eftir Frank Baum/John Kane
Lau. 13/12 örfá sæti, sun. 14/12 upp-
selt, lau. 27/12 uppselt, sun 28/12
uppselt, AUKASÝNING KL. 17, sun.
4/1, lau. 10/1, sun. 11/1 laus sæti.
GJAFAKORTÁ GALDRAKARLiNN
ER TILVALIN JÓLAGJÖF!
Stóra svið kl. 20.30
W /JM
Tónlist og textar Jónasar og
Jóns Múla. Ljósaljós og Ijúffengir
drykkir i anddyrinu frá kl. 20.
Lau. 13/12, örfá sæti laus, sun. 14/
12 uppselt, fös. 19/12 örfá sæti.
Aðeins þessar sýningar.
Kortagestir ath. valmiðar gilda.
Höfuðpaurar sýna á Stóra sviði:
HÁ/ycnl
Lau. 10/1 kl. 20, fös. 16/1 kl. 22.
tAstAÖMU
FJOGUR HJORTU
eftir Ólaf Jóhann Ólafsson
Miðasaia hefst 15. desember
Frumsýnt 30. desember
LISTAVERKIÐ
Sýning Þjóðleikhússins
lau. 3. jan. kl. 20
VEÐMÁLIÐ
Næstu sýningar milli jóla og nýárs.
Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI
lau. 13. des. kl. 20
Ath. aðeins örfáar sýningar.
Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775
Miðasala opin 10—18, helgar 13—18
Ath. Ekki er hleypt inn i sal eftir að
sýning er hafin.
HafíiLcifíhusirt
I HLADVARPANUM
Vesturgötu 3
„REVÍAN i DEN“
- gullkorn úr gömlu revíunum
fös. 12/12 kl. 21, laus sæti
lau. 13/12 kl. 21, laus sæti
Síðustu sýningar fyrir jól!!!
Miðasala opin fim-lau kl. 18—21.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 551 9055.
Nótt & dagur sýnir á Litla sviði
kl. 20.30:
ÍSfTALA
eftir Hlín Agnarsdóttur
Fös. 9/1, lau. 10/1.
Midasalan er opin daglega frá kl.
13 — 18 og fram að sýningu
sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10
Greidslukortaþjónusta
Sími 568 8000 fax 568 0383
MYNDBÖND
LEIKXISTARSKÓLI ÍSLANDS
LINDARBÆ húsið
Sími 552 1971
Börn Sólarinnar
eftir Maxim Gorki.
8. sýn. fim. 11/12
9. sýn. fim. 18/12, örfá sæti laus.
Sýningar hefjast kl. 20.
Síðustu sýningar fyrir jól.
Illvígt eldfjall
Tindur Dantes
(Dante’s Peak)_____________________
lS |i n ii ii iii y ii (I
'k'k1/á
Framleiðandi: Gale Anne Hurd,
Joseph M. Singer. Leikstjóri:
Roger Donaldson. Handritshöfund-
ur: Leslie Boden. Kvikmyndataka:
Andrzej Bartkowiak. Tónlist:
James Newton Howard og John
Frizzell. Aðalhlutverk: Pierce
Brosnan, Linda Iiamilton, Charles
Hallahan. 104 mfn. Bandarfkin. CIC
myndbönd 1997. Útgáfudagur: 9.
desember. Myndin er bönnuð börn-
um innan 12 ára.
TINDUR Dantes er önnur
tveggja kvikmynda sem komu út á
þessu ári og fjölluðu um gjósandi
eldfjöll. Hin var „Volcano" og fjall-
aði hún um eldfjall í miðri Los Ang-
eles borg. Tindur Dantes gerist í
öllu sennilegra umhverfi og segir
frá eldfjallafræðingi nokkrum, sem
leikinn er af Pierce Brosnan.
Brosnan er sendur til smábæjarins
Dante til þess að rannsaka hvort
eldfjallið þar sé að fara að gjósa.
Það. h'ður ekki á löngu áður en
Brosnan er orðin sannfærður um
að hættuástand ríki á svæðinu, en
flestir aðrir eru á öðru máli. Sú eina
sem trúir honum er borgastjórinn,
sem Linda Hamilton leikur. Til
þess að sann-
færa hina um
hættuna verða
þau að finna
haldbærar sann-
anir fyrir virkni
eldfjaÚsins áður
en það er orðið
of seint.
Gífurleg vinna
hefur verið lögð í
alla eftirvinnslu
þessarar myndar og það er grátlegt
að sjá allar þessar umbúðir um jafn
rýrt innihald. Atriðin sem gerast í
eldgosinu eru óaðfinnanlega unnin
frá tæknilegu sjónarmiði en þegar
Brosnan ekur jeppanum sínum yfir
rennandi hraunið er ekkert annað
hægt en að andvarpa og vona að
ekkert verra muni gerast - en því
miður kemur hvert fáránlegt atrið-
ið á fætur öðru. Til þess að hafa
gaman af Tindi Dantes verður að
steinhætta að hugsa og njóta í stað-
inn frábærra tölvubrellna og kröft-
ugrar hljóðvinnslu. Leikararnir
hafa ekki úr miklu að moða en þeir
gera sitt besta. Roger Donaldson
er góður spennumyndaleikstjóri og
sér til þess að það sé ávallt nóg að
gerast.
Ottó Geir Borg
FÓLK í FRÉTTUM
Ys og þys útaf litlu
TÖIVLIST
Geisladiskur
WOOFER
Fyrsta breiðskífa hafnfirsku
rokksveitarinnar Woofer, samnefnd
henni. Liðsmenn Woofer á skífunni
eru Hildur Guðnadóttir söngkona,
Egill Orn Rafnsson trommuleikari,
Kristinn A. Sigurðsson gítarleikari
og Ómar Freyr Kristjánsson bassa-
lcikari. Yrnsir Idjóðfæraleikarar
koma þeim til aðstoðar á plötunni.
Upptöku stýrir Rafn Jónsson. 52 mín.
R&R músik gefur út.
UNGMENNIN í Woofer vöktu
athygli fyrir frábæra frammistöðu
á Músíktilraunum Tónabæjar og
ekki minnkaði athyglin þegar sveit-
in sendi frá sér stuttskífu snemm-
sumars. Eftir að hafa hlýtt á þessa
fyrstu breiðskífu hennar vaknar þó
spurning hvort rétt hafi verið að
gefa út með henni breiðskífu svo
snemma; hvort sveitin hafi enfald-
lega haft úr nógu að moða áður en
farið var í hljóðver, þótt hún sé ein
sú efnilegasta sem lengi hefur látið
í sér heyra. A plötunni eru fjögur
framúrskarandi lög, en önnur frek-
ar prufuupptökur en marktækar
lagasmíðar.
Upphafslag plötunnar er ágætt
dæmi um það besta sem sveitin
getur gert; hugmyndaríki í laga-
smíðum, skemmtilega bernskur
texti og framúrskarandi söngur
Hildar, þó að útsetning sé ekki
nema hálfköruð. I upphafi næsta
lags má og heyra hnökra sem meiri
spilamennska hefði bætt úr, en það
er frá stuttskífunni sem áður er
getið. Horfðu er aftur á móti af-
bragðs lag sem Hildur ber uppi
með hugmyndaríkum söng, þó leið-
inleg villa í textanum í upphafi
spilli nokkuð fyrir ánægjunni: „Eg
krefst ekki mikils af þér. Nema ör-
litla virðingu kannski." Fiðluleikur
í laginu er til bóta. Grimmd er og
skemmtilegt lag með sterkum
texta; það fer Woofer vel að
spretta úr spori og gítarleikur er
vel af hendi leystur. Oðinn er aftur
á móti ósannfærandi; eftir góða
byrjun fellur lagið um sjálft sig að
segja og allur hamagangurinn
verður ys og þys útaf engu.
Þá er það góða á þessari plötu
upp talið, því lögin sem á eftir
koma eru varla á setjandi; til að
mynda Baywatch Obsession, með
kjánalegu ensku tali, Magnús Bert,
einfalt rokklag, Litli döðluleikarinn
og Bleikt ský, en allra síst er þó
lokalag plötunnar, Reyndu að
skilja, sem er reyndar það eina
sem ekki hefur texta, ef marka má
umslag plötunnar. Aftan í það er
síðan hnýtt tuttugu mínútna þögn
og síðan tíu mínútum af flissi og
prump- og pissbröndurum.
Kannski til þess ætlað að gefa plöt-
unni fulla lengd?
Eins og getið er í upphafi er
Woofer með efnilegustu hljómsveit-
um, en er lítill greiði gerður með út-
gáfu sem þessari. Ráðlegt hefði ver-
ið að gefa sveitinni meiri tíma til að
móta stefnu og stíl og ekki síst til að
semja fleiri lög og betri.
Umslagið er sérkennileg samsuða
og þó það sé í sjálfu sér ekki slæm
hugmynd er það afskaplega illa
unnið; til að mynda er lagsins „Ba-
ywatch Upsetion“ getið aftan á um-
slagi en inní heitir það „Baywatch
Obsession", sem verður að teljast
líklegra heiti.
Árni Matthíasson
Fóstbræður aftur á skjáinn
SJÓNVARPSSTÖÐVARNAR
tjalda vanalega því besta sem þær
eiga í kringum hátíðirnar en það er
ekki þar með sagt að ekkert
skemmtilegt verði á dagskrá þegar
hvunndagurinn tekir við eftir ára-
mót. Stöð 2 verður með ýmsa nýja
þætti á dagskrá í bland við nýjar
syrpur með góðkunningjum Stöðv-
aráskrifenda.
Af íslensku efni má nefna að í
janúar birtist syrpa sem nefnist
Heima. I henni heimsækir Sig-
mundur Ernir valinkunna einstak-
linga og spjallar við þá um lífið og
tilveruna. I mars fá stangaveiði-
menn svo nasaþefinn af ánægju
sumarsins en þá verða þættirnir
Sporðaköst á dagskrá. Fóstbræður
snúa síðan aftur á skjáinn í mars
en verið er að vinna að nýrri þátta-
röð um þessar mundir.
Af nýjum erlendum þáttaröðum
má nefna „Dangerous Minds“ sem
er nokkurs konar framhald af
kvikmynd með sama nafni með
Michelle Pfeiffer í aðalhlutverki.
Eins og myndin fjalla þættimir um
kennara og nemendur í skóla þar
sem félagslegar aðstæður eru
mjög bágbomar og ofbeldi og eit-
urlyf eru daglegt brauð. Þættirnir
hefja göngu sína í febrúar.
I mars byrjar ný gamanþáttaröð
sem kallast „Aliens in the Family".
Þættirnir eru framleiddir af Jim
Henson Productions og fá því leik-
ararnir brúður til að leika á móti.
Þættirnir segja frá Doug og
Cookie. Hann er einstæður faðir í
venjulegu úthverfi í Bandaríkjun-
um, hún er einstæð móðir og vís-
indamaður frá annarri plánetu.
Þau kynnast þegar Doug er
kippt upp í geimskip hennar til
rannsókna. Astin lætur ekki að
sér hæða og þau ákveða að
giftast og búa með fjöl-
skyldu sína heima hjá
Doug.
f mars verður einnig
sýnd bresk þáttaröð sem
nefnist „The Men’s Room“. Hún
fjallar um flókin ástamál Charity
Walton (Harriet Walter) og við-
halds hennar Marks Carletons
(Bill Nighy). Charity á erfitt með
að friða samvisku sína vegna ást-
arsambandsins enda gift og
fjögura barna móðir en Mark hef-
ur haldið fram hjá konu sinni áður
og hún fyrirgefið honum svo hon-
um finnst framhjáhaldið ekki mik-
ið mál. „The Men’s Room“ eru
vandaðir þættir um hjónaband, ást
og_girnd í lífi nútímafólks.
f apríl verður spennu-
þáttaröðin „Body-
guards“ á dagskrá.
John Shrapnel leikur
Maclntyre sem fær
það verkefni að
stofna sérsveit líf- ■
varða sem eiga að
vernda bæði með-
limi bresku kon-
ungsfjölskyldunnar
og aðra hásetta
menn, auk vitna í
veigamiklum sakamálum.
Honum til aðstoðar eru
Elizabeth
Shaw
(Louise
Lombard) og Ian Worrell (Sean
Pertwee). Þættirnir eru sjö að tölu
og er hver sjálfstæð saga.
Stöllurnar úr „Absolutely Fabu-
lous“ snúa aftur í mars. Stöð 2 ætl-
ar að endursýna þrjár syrpur með
Jennifer Saunders og Joanna
Lumley til að gleðja aðdáendur
þeirra. Einnig verður á dagskrá
kvikmynd með þeim vinkonum
sem þær gerðu eftir að þáttunum
lauk.
Nokkrir gamlir stofugestir snúa
aftur eftir jól. Má þar nefna nýja
syrpu af „Brotherly Love“ í
febrúar, „Peak Practice“ í
mars, og „Chicago
Hope“ í apríl. Á vor-
mánuðum eru síðan
væntanlegar nýjar
syrpur af „NYPD
Blue“ og „Hale &
Pace“.
„ALIENS in the
Family" segir frá
heimilishaldi í fjöl-
skyldu þar sem
móðirin er
geimvera en
faðirinn
jarðar-
búi.