Morgunblaðið - 18.12.1997, Síða 49

Morgunblaðið - 18.12.1997, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997 49 MINNINGAR ANNA SOFFÍA STEINDÓRSDÓTTIR + Anna Soffía Steindórsdóttir fæddist í Reykjavík 4. janúar 1923. Hún Iést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 10. desember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Stein- dór Gunnlaugsson, lögfræðingur, f. 1889, d. 1971, og kona hans Bryndís Pálmadóttir, hús- móðir, f. 1897, d. 1988. Bróðir Önnu Soffíu er Gunn- laugur Pálmi Steindórsson, framkvæmdastjóri, kvæntur Guðrúnu Haraldsdóttur, hús- móður. Anna Soffía ólst upp í Reykjavík og stundaði nám við Barnaskóla Reykjavíkur og Verzlunarskóla íslands þaðan sem hún lauk verzlunarskóla- prófi árið 1940. Hún hóf þá störf hjá Rafmagnseftirliti rík- isins þar sem hún vann fram á mitt ár 1953. Hinn 26. júní 1948 giftist Anna Soffía Páli Sigurðssyni rafmagnsverkfræðingi. Páll var fæddur á Vífils- stöðum 24. október 1917, sonur hjón- anna Sigurðar Magnússonar, yfir- læknis, og Sigríðar Jónsdóttur Magnús- son, hjúkrunar- konu. Páll lést 16. desember 1966. Árið 1967 hóf Anna Soffia störf hjá Do- mus Medica og starfaði þar sem skrifstofustjóri til ársins 1993 er hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Páll og Anna Soff- ía eignuðust tvo syni: Sigurð, f. 1952, matvæla- og lyfjafræð- ing, og Gunnlaug Þór, f. 1957, kvikmyndagerðarmann, dag- skrárgerðarmann hjá íþrótta- deild Sjónvarps. Gunnlaugur er kvæntur Kristínu Björgu Þor- steinsdóttur, dagskrárgerðar- manni og húsmóður og eiga þau tvær dætur: Önnu Kristínu, f. 1993, og Bryndísi Sæunni Sig- ríði, f. 1995. Útför Önnu Soffíu fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Elskuleg tengdamóðir mín Anna Soffía Steindórsdóttir er látin á 75. aldursári. Þegar ég kynntist Gunn- laugi mínum þá eignaðist ég ekki aðeins mína aðra fjölskyldu heldur líka elskulega vinkonu sem var hún Anna Soffía mín. Samverustundirn- ar urðu fjölmargar og koma þá fyrst upp í hugann heimsóknir okkar í sumarhúsið í Hestlandi í Gríms- nesi. Bústaðurinn var reistur sum- arið 1989 og var það Önnu Soffíu mikið gleðiefni. Hún sá þaðan heim að Kiðjabergi þar sem hún dvaldist löngum sem barn hjá afa sínum og ömmu. Anna Soffía kaus að nefna sumarbústaðinn Höfða eftir fæð- ingarstað móður sinnar á Höfða- strönd í Skagafirði og sameinaði þarna tvo staði sem voru henni kærir. Anna Soffía var þó Reykjavíkur- barn. Hún var fædd og uppalin í höfuðstaðnum og bjó þar alla tíð. Eftir verzlunarskólapróf hóf hún störf hjá Rafmagnseftirliti ríkisins og þar kynntist hún mannsefni sínu, Páli Sigurðssyni rafmagnsverk- fræðingi. Þau gengu í hjónaband 1948 og bjuggu fyrst í stað á Öldu- götunni en reistu sér síðan glæsi- legt hús í Snekkjuvogi 9 og bjó Anna Soffía þar til æviloka. Hún hafði gaman af að segja frá því hvernig umhorfs var í hverfinu 1953 er þau fluttu inn; gengið á plönkum yfír moldarsvað og í næsta nágrenni var ijós og kýr í haga. Synirnir urðu tveir, Sigurður og Gunnlaugur Þór. Lífið brosti við fjölskyldunni, en þá kom reiðardag- ið er Páll varð bráðkvaddur 16. desember 1966. Páll var mikill mannkostamaður og öllum harm- dauði. Ég hef á tilfinningunni að Anna Soffía hafí aldrei borið sitt bárr eftir fráfall Páls. Ekki var bara að hún missti eiginmann, vin, félaga og föður drengjanna sinna, heldur fannst henni að eftir að hún varð ekkja þá sneri fólk baki við henni og hún væri ekki lengur gjald- geng meðal þeirra sem hún hafði áður umgengist og litið á sem vini sína. Það var mikil blessun að foreldr- ar hennar, Steindór og Bryndís, fluttu til hennar og drengjanna og héldu með þeim heimili, Steindór til dauðadags og Bryndís meðan heilsa hennar leyfði. Anna Soffía hafði yndi af ferða- lögum og fór talsvert víða, m.a. til gömlu Sovétríkjanna, Grikklands og Ungveijalands. Ég kynntist Önnu Soffíu árið 1989 og minnist margra gleði- stunda. Bestu minningarnar tengj- ast þó fæðingu dætra okkar Gunn- laugs en þær voru ömmu sinni til mikils yndis og gleði. Síðustu árin hallaði undan fæti heilsufarslega hjá Önnu minni. í sumar greindist hún svo með krabbamein og lést eftir erfíða sjúk- dómslegu 10. þessa mánaðar. Elsku Anna Soffía, ég þakka þér fyrir allt, nú ertu komin til Páls þíns sem þú elskaðir svo heitt og saknaðir svo mikið. Þín tengdadóttir, Kristín Björg Þorsteinsdóttir. Anna Soffía Steindórsdóttir, Snekkjuvogi 9 hér í borg, andaðist í Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Fossvogi þann 10. desember sl. tæpra 75 ára að aldri. Hún hafði undanfarna mánuði verið haldin heilsumeini, sem fór sífellt versnandi, unz yfir lauk. Við þau endalok vil ég með fáeinum orðum minnast þeirrar mætu konu. Svo sem hér að framan greinir var hún dóttir Steindórs Gunnlaugs- sonar lögfræðings og konu hans Bryndísar Pálmadóttur. Hún átti því til trausts og góðs uppruna að telja í báðar ættir. Hún ólst upp á heimili foreldra sinna til fullorðins aldurs. Ég kynntist henni og fólki hennar á námsárum mínum, en þær Anna Soffía og kona mín voru systradætur. Var því mikil og ein- læg vinátta milli fjölskyldu Önnu Soffíu og fjölskyldu konu minnar og samgangur mikill milli þessa fólks. Frá þeim árum á ég góðar minningar af þeim kynnum, eigi hvað sízt af mikilli gestrisni og al- úð, sem ég átti að fagna hjá þessu góða fólki. Anna Soffía gekk í Verzlunar- skóla íslands og lauk þaðan brott- fararprófi. Að námi sínu loknu gerðist hún aðstoðarmaður Jakobs Gíslasonar verkfræðings, sem þá hafði með höndum skipulagningu rafmagnseftirlits og annarra raf- orkumála þjóðarinnar. Þar reyndist hún dugandi starfsmaður. Þessum störfum gegndi hún þar til nokkrum árum eftir að hún gifti sig. En hinn 26. júní 1948 giftist hún Páli Sigurðssyni verkfræðingi. Páll var hæfileikamaður og glæsimenni. Hjónaband þeirra var ástríkt og farsælt. Þau hjón eignuðust tvo syni, sem hér að framan eru greind- ir, mestu myndarmenn, sem eru góðum hæfileikum gæddir. Var greinilega mikil ánægja og ham- ingja ungu hjónanna, eftir að þau eignuðust þessa syni sína. Þau komu sér upp og eignuðust stórt og glæsilegt íbúðarhús, þar sem þau bjuggu um sig fagurlega og á smekklegan hátt. Var mjög ánægjulegt að heimsækja þau þar, njóta gestrisni og eiga með þeim ánægjustundir. En skjótt skipast veður í lofti og sorglega atburði getur borið að höndum. En þann 16. desember 1966 varð eiginmað- urinn Páll Sigurðsson bráðkvaddur. Það þarf ekki mörg orð til að skýra það hvílíkt feikna áfall dundi þá þar með yfir konuna ungu og synina þeirra ungu, að missa með svo svip- legum hætti góðan og ástríkan eig- inmann og föður í blóma lífsins. En Anna Soffía lét ekki hugfall- ast, heldur brást hún skynsamlega og af myndugleika við þeim mikla vanda, sem við . blasti við fráfall Páls. Hún hóf brátt störf hjá Dom- us Medica og varð þar skrifstofu- stjóri. Þau margvíslegu störf leysti hún af hendi með dugnaði og vand- virkni. Hafði hún þau störf á hendi til loka leyfilegs starfsaldurs. Hún bar ætíð heill og heiður sona sinna fyrir btjósti. Henni tókst að láta þá njóta góðrar skólagöngu og menntunar, enda hafa þeir bræður kunnað sem bezt má vera að meta og þakka sinni góðu móður fyrir dýrmæta umönnun hennar þeim til handa. Þeir hafa líka lagt sig fram um að styðja og styrkja móður sína og gera henni til hæfis sem bezt mátti vera. Svo sem um er getið hér að fram- an varð Anna Soffía þeirrar ánægju aðnjótandi að eignast tvær fallegar og efnilegar sonardætur, sem bera nöfnin Anna Kristín og Bryndís Sæunn Sigríður. Þessar litlu telpur voru henni til ómetanlegrar gleði síðustu æviár hennar. Anna Soffía var fríðleikskona, vel viti borin, og að öllu vel á sig komin. Hún var alla tíð einstaklega prúð og háttvís í allri framkomu, glaðleg og hlýleg í viðmóti og hafði jafnframt til að bera tilhlýðilega virðingu. Við hjón vottum öllum aðstand- endum innilega samúð. Ég og kona mín Sesselía Helga söknum Önnu Soffíu sárt. Jóhann Salberg Guðmundsson. Okkur langar til að minnast föð- ursystur okkar, Önnu Soffíu Stein- dórsdóttur, nokkrum orðum. Við minnumst þess hlýhugar sem ætíð mætti okkur á heimili þínu. Sérstaklega eru okkur jólin minnis- stæð sem við héldum sem börn á heimili þínu og eigum við okkar bestu minningar frá hátíðarstund- unum með þér. Alltaf tókstu á móti okkur opnum örmum. Sem böm fengum við oft að gista og var þá setið við spil langt fram eftir kvöldi. Einnig minnumst við, nú fyrir hátíðirnar, laufabrauðsbakst- ursins hin síðari ár sem þú kallaðir litlu jólin. Það var okkur mikið hryggðar- efni þegar faðir okkar sagði okkur að þú ættir við alvarleg veikindi að stríða, en við dáöumst að lífsvilja og baráttuþreki þínu í þeim hremm- ingum, sem gaf okkur aukinn kraft og sannfæringu þess að lífið sé gjöf sem skal njóta og aldrei má láta deigan síga. Elsku Gulli og Siggi, við sendum okkar innilegustu samúð og biðjum góðan Guð að leiða okkur í gegnum sorgina. Haraldur Páll Gunnlaugsson, Steindór Gunnlaugsson. prrxirrrrxr^ H H H Erfidrykkjur Simi 562 0200 xxxxxxixx: t Ástkær móðir okkar, tengdmóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, Austurbrún 6, Reykjavík, áður búsett í Vestmannaeyjum, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 16. des- ember. Jarðarförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 22. desember kl. 15.00. Jón Rúnar Sigurðsson, Sigrún Birgitt Sigurðardóttir, Eðvald Sigurðsson, Vignir Sigurðsson, Díana Sigurðardóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Friðrik Ólafur Guðjónsson, Þórunn Ingvarsdóttir, Hanna Björg Bergmann, Kristinn Ingi Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, HANS KR. EYJÓLFSSON, andaðist á Droplaugarstöðum 15. desember. Útför auglýst síðar. Lára Hansdóttir, Bragi Hansson, Grétar M. Hansson. t Faðir minn, sonur og bróðir, HEIMIR GUÐMUNDSSON, Varberg, Svíþjóð, er látinn. Matthildur Bjömsdóttir og aðstandendur. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA SOFFÍA STEINDÓRSDÓTTIR, Snekkjuvogi 9, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, fimmtudaginn 18. desember, ki. 10.30. Sigurður Pálsson, Gunnlaugur Þór Pálsson, Kristín Björg Þorsteinsdóttir, Anna Kristín og Bryndís Sæunn Sigríður Gunnlaugsdætur. t Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÞORGEIRS SVEINSSONAR bónda, Hrafnkelsstöðum, Hrunamannahreppi, Árnessýslu. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Ljósheima og Sjúkrahúss Suðurlands, Selfossi Svava Pálsdóttir, Pálmar Þorgeirsson, Hrafnhildur Þorgeirsdóttir, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Sveinn S. Þorgeirsson, Aðalsteinn Þorgeirsson, Ragnhildur Þórarinsdóttir, Guðmundur Auðunsson, Anna Ringsted, Margrét Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður okkar, tengdamóður og ömmu, EYRÚNAR GÍSLADÓTTUR hjúkrunarkonu, Byggðarenda 19, Reykjavík. Ámi Sigurðsson, Amór Árnason, Ásta Rögnvaldsdóttir, Hildur Árnadóttir, Pétur Böðvarsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.