Morgunblaðið - 20.12.1997, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 20.12.1997, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Stærðir 36-46, kr. 6.690 SKÓVERSLUNIN KRINOLUNNI SÍMI 888 8348 Stærðir 40-46, kr. 5.990 Halló Sláið saman í góða jólagjöf fýrir langömmu, ömmu, mömmu og ungu stúlkuna. Úlpur, kápur, ullaijakkar, pelsar. Kíldð inn Opið sunnudaga kl. 13-18 \<#HWSIÐ Mörkinni 6, sími 588 5518. Það er hagkvæmt að versla í Kolaportinu og mikið fjör um allar götur. Ojiið um helgina kl. 11-17. mánudag kl. 12-18 og á Þorláksmessu kl. 12-21: Otrúlega hagstæð kaup á jólagjöfum í Kolaportinu Jólamarkaður Kolaportsins verður opinn laugardag kl. 11-17 , mánudag kl. 12-18 og á Þorláksmessu kl. 12-21. A jólamarkaðinum er boðið upp á mikið úrval af vönduðum jólagjöfum fyrir alla fjölskylduna á verði sem á engan sinn líka. Mikill fjöldi seljenda tryggir fjölbreytni í vöruúrvali og verðið er oftast með því lægsta sem til er á landinu. Fleiri seljendur en nokkru sinni á Jolamarkaðinum Þátttaka seljenda á jólamarkað- inum er meiri í ár, en hefur verið síðstu fjögur árin. Vöruúrvalið er því mikið, gæðin meiri og verðið lægra en sést hefur um árabil. Umfanpsmikill Bóka- og geisladiskamarkaður í fyrsta skipti í mörg ár er veglegur bóka- og geisladiska- markaður í Kolaportinu. Þarna verður boðið upp á nýjar jólabækur frá fyrri árum á einstaklega góðu verði. Tveir aðilar verða með sölu á geisladiskum þar sem bæði verður að finna sígilda tónlist, íslenska tónlist og flest það heitasta í unglingamúsikinni í dag, allt á Kolaportsverði. Jólafótin í miklu úrvali Eins og fyrir undanfarin jól verða margir aðilar með glæsileg jólaföt, bæði sígildan nýjan tískufatnað og einnig notuð föt. Ekki má heldur gleyma fatnaðinum á bömin. Jólamatur á góðu verði a matvælamarkaði Vinsældir Matvælamarkaðarins um jólin aukast á hverju ári, en þar er boðið upp á úrval matvæla á hagstæðu verði og stemmningin er frábær. Síldin, laxinn, harðfirskur- inn og kjötið hjá Benna. Ótrúlega góð kaup á jólagjölum í Kolaportinu Samkvæmt könnun á vöruúrvali í Kolaportinu verður fyrir þessi jól boðið upp á enn meira vöruúrval en nokkru sinni áður. Hægt verður að kaupa vandaðar gjafir í jólapakkann fyrir alla fjölskylduna á verði sem á engan sinn lika. Jólastemmningin í Kólaportinu er einstök Mikið og fjölbreytt mannlíf er í Kolaportinu síðustu daganafyrir jól og vandfundið umhverfi þar sem hægt er að sameina betur notalega stund yfir kaffibolla, kaupa jólagjafirnar, hitta gamla vini og gera hagkvæm matarinnkaup. ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Útskot fyrir hópferðabíla í FERÐAÞJ ÓNU STUNNI eru ákveðnir aðilar sem em í nánari tengslum við far- þegana en aðrir þegar þeir eru á ferð um landið. Þess- ir aðilar eru t.d. bílstjórar, leiðsögumenn, starfsfólk hótela og veitingastaða og ýmsir aðrir. Þeir sem sitja inni á ferðaskrifstofunum og skipuleggja ferðimar og þeir sem eru í svokallaðri landkynningu á ferða- mörkuðum erlendis hitta sjaldnast ferðamennina sjálfa og vita þvi ekki hvemig þeir upplifa sjálfa ferðina og aðra þjónustu sem í boði er. í einn og hálfan áratug hafa hópferðabílstjórar og leiðsögumenn bent á ýmsa staði á landinu þar sem æskilegt væri að hafa út- skot við þjóðveginn til að auðvelda bflstjórum að stansa og leggja stómm hópferðabfl til að leyfa far- þegum að njóta fallegs út- sýnis eða til að taka ljós- myndir. í slíkum tilfellum þarf að gæta að annarri umferð. Einn er sá staður í Reykjavík sem bæði bfl- stjórar og leiðsögumenn hafa óskað eftir að fá slíkt útskot, en það er í Breið- holti. Oft var í neyð stansað á þvottaplani við ákveðna bensínstöð efst í Breiðholti, en þaðan er gott útsýni yfir borgina, sundin og Qöllin í kring. Og viti menn, loksins í sumar, eftir síend- urteknar beiðnir í sennilega 15 ár hefur nú verið útbúið sérstakt útskot í þessum tilgangi, þ.e. í brekkunni milli Hólahverfis og Stekkjahverfis. Ástæða er til að þakka þessar fram- kvæmdir, en vonandi þurf- um við ekki að bíða í önnur 15 ár eftir öðmm umbótum í umferðinni sem bent hefur verið á. Bílstjóri og leiðsögumaður. Góðir tónleikar VELVAKANDA barst eft- irfarandi: „Það var gaman að sjá Kristján Jóhannsson í kvöld ásamt fjölskyldu sinni í sjónvarpinu. Það minnti mig á alveg stór- kostlega tónleika í Lincoln Center í New York fyrir rúmu ári. Tónleikar í minn- ingu Richard Tucker, sem var frægur amerískur óperasöngvari. Þessir tó- leikar em fyrir styrktarfé- laga og veittir era styrkir til úrvalsnemenda. Þama komu fram flestir frægustu óperasöngvarar heimsins og flutti hver eina aríu. Þar á meðal var Kristján okkar Jóhannsson. Mikið var fagnað og klappað við inngöngu þess- ara frægu listamanna og vitanlega eftir flutninginn. Þegar Kristján Jóhanns- son gekk inn á sviðið var klappið ekki yfirmáta mik- ið. Hann söng sína aríu, ég man ekki hver hún var, en þegar hann hafði lokið söng sínum ætlaði þakið að rifna af húsinu. Hann var alveg frábær og mikið voram við tveir íslendingar stoltir af okkar manni. Ég sá hann einnig í næstsíðustu sýningu Tur- andot í Metropolitan óper- unni í New York í nóvem- ber sl. þar sem hann syng- ur hina frægu aríu Nessum Dorma. Hann var frábær. Uppselt var á hveija sýn- ingu löngu fyrirfram. Til hamingju, Kristján. Ingibjörg. Tapað/fundið Pelsí Skíðaskálanum HEIMASAUMAÐUR brúnn pels var tekinn í mis- gripum 28. nóvember sl. í Skíðaskálanum í Hveradöl- um, en annar var skilinn eftir. Viðkomandi er vin- samlega beðinn að hafa samband við Skíðaskálann og hafa skipti á pelsum. Gulleyrnalokkur týndist GULLEYRNALOKKUR með brilljöntum týndist miðvikudaginn 17. desem- ber frá Húsi verslunarinnar yfir í Kringluna. Þeir sem hafa orðið varir við eyma- lokkinn hafi samband í síma 553 1727. Góð fundarlaun. Myndbandsupp- tökuvél í óskilum MYNDBANDSUPPTÖKU- VÉl fannst í Seljahverfi. Uppl. í síma 557 5079. Bíllykill í óskilum BÍLLYKILL fannst 17. desember við Deildarás. Uppl. í síma 557 4611. Úr týndist TISSUT-úr týndist 17. des. í verslunarleiðangri um Laugaveg. Þeir sem hafa orðið varir við úrið hafi samband í síma 588 1116. (Guðrún) Dýrahald Skógarköttur týndist NORSKUR skógarköttur, loðin, kakóbrún og svört læða, týndist frá Skipa- sundi 62. Læðan er með kettlinga heima og því brýnt að hún komist heim til sín. Hún er með rauða ól en upplýsingar á ólinni era rangar. Þeir sem hafa orðið varir við hana hafi samband í síma 553 3727. Skógarköttur týndist SVARBRÚNN skógarkött- ur, fress, gæfur og góður, týndist frá Blönduhlíð. Kis- an er ómerkt. Þeir sem hafa orðið varir við kisu hafi samband í síma 551 2252. Yíkveiji skrifar... ARANGURINN af endurnýjun Iðnós hið innra hefur nú litið dagsins ljós. Af myndum frá hátíð- arsýningu Leikfélags Reykjavíkur á Dómínó má ráða að frábærlega hefur tekizt til. Þeir, sem sóttu Iðnó á síðustu árum þess sem heimilis Leikfélagsins, skilja nú fyrst hversu mikið var búið að spilla húsinu með síðari tíma „endurbótum". Það verður líka seint fullþakkað að gler- skálinn skelfílegi, sem klínt var utan á húsið fyrir nokkrum árum, skuli hafa verið fjarlægður þannig að það fái að njóta sín I uppruna- legri mynd. Burtséð frá deilum um kostnað, hagsmunatengsl og rekstraraðila, sem tengzt hafa Iðnó undanfarið, er ljóst að endurgerð hússins er hreinlega menningarvið- burður út af fyrir sig. Iðnó hefur nú endurheimt sinn forna glæsileika sem er til vitnis um stórhug reyk- vískra iðnaðarmanna fyrir méira en öld. Víkveiji er viss um að hið end- umýjaða Iðnó verður lyftistöng fyr- ir mannlífið í miðbænum. xxx VÍKVERJI hefur aldrei skilið þá áherzlu, sem stjómendur sjúkrahúsanna í Reykjavík hafa lagt á að fá að þræla ungum lækn- um út og láta þá vinna vel á annað hundrað yfirvinnutíma á mánuði. Víkveiji vildí ekki þurfa að láta fólk, sem er búið að vera vakandi sólarhringum saman og vinnur á annan tug stunda á dag, taka ákvörðun sem gæti skipt sköpum um hvort hann héldi líftórunni eða ekki. Víkveiji botnar ekki í því, fyrst svo mikill skortur er á ungum læknum, að það verður að þræla þeim út eins og kolanámumönnum á síðustu öld, hvers vegna fjöldatak- markanir í læknadeild Háskóla ís- lands eru jafnstrangar og raun ber vitni. Einhverjar breytingar hljóta að vera í vændum nú þegar þetta kerfi vinnuþrælkunar ungra lækna virðist loksins vera að hrynja. xxx NÝ BÓK frá Skjaldborg, Bókin um barnið, er auglýst í sjón- varpinu sem bók „fyrir alla for- eldra“. Ef svo er, hvers vegna eru það þá bara mæður, sem mæla með bókinni í auglýsingunni? Þurfa feð- urnir ekkert að lesa sér til? í kunn- ingjahópi Víkveija er það svo að það virðast frekar vera pabbarnir en mömmumar, sem taka sér hand- bók í hönd og lesa sér til þegar t.d. börnin veikjast, kannski vegna þess að það hefur ekki verið alið upp í þeim að þeir hafi sjálfkrafa vit á bamaumönnun. Er Skjaldborg ekki að miða á rangan markhóp?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.