Morgunblaðið - 08.01.1998, Page 20

Morgunblaðið - 08.01.1998, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Stjórn Alsírs hafnar alþjóðlegri rannsókn á fjöldamorðum Ibúar þorpa flýj a blóðsúthellingar Algeirsborg. Reuters. Vill ein- rækta fólk Washington. Reuters. BANDARÍSKUR eðlisfræðingur er reiðubúinn að hefja tilraunh- til að einrækta menn til þess að skapa börn handa ófrjóum for- eldrum, að því er bandaríska út- varpsstöðin National Public Radio (NPR) greindi frá á þriðju- dag. Eðlisfræðing- urinn, Richard Seed, hefur unnið að frjósernisrann- sóknum og vill hann læknastofu til þess að einrækta böm. Seed sagði í viðtali við NPR að hann hefði áhuga á að opna stofu í Chicago og nýta síðan ágóðan af rekstri hennar til að færa út kvíam- ar í Bandaríkjunum og jafnvel út um allan heim. Hann hefur átt í samn- ingaviðræðum við læknamiðstöð í Chicago sem hefur yfír að ráða öllum tækjabúnaði sem nauðsynlegur er til að hefja tilraunir. NPR segir Seed hafa átt samstarf við ónefndan lækni, en sá segðist ekki vilja hefja tilraunir nema Æxl- unarlækningasamtök Bandaríkjanna veittu samþykki sitt. Samtökin hafa lýst sig andvíg einræktun á fólki. Bill Chnton, forseti Bandaríkj- anna, mun leggja til við þingið að einræktunarrannsóknir verði bann- aðar í fímm ár, að því er talsmaður forsetans greindi frá í gær. Clinton reyndi að fá slíkt bann samþykkt á þinginu í fyrra. Brezhnev í lið með NATO- sinnum TÉKKNESK móðir gengur hjá veggspjaldi í Prag með mynd af tvífara Leoníds Brezhnevs sem á er letrað (á rússnesku) „Takk... NATO“. Veggspjaldið er hluti áróðursherferðar sem ýmsir aðilar í Tékklandi hafa tekið sig saman um að reka í fjölmiðlum landsins í því skyni að sannfæra Tékka um ágæti þess að gerast aðilar að Atl- antshafsbandalaginu. í sjónvarpsauglýsingu sem herferðin hófst á eru sýndar myndir frá því þegar sovézkir skriðdrekar kæfðu „vorið í Prag“, er tilraun var gerð til að byggja upp „sósíalisma með mannlegri ásjónu“. Þá segir Brezhnev: „Kæru borgarar, þakka ykkur fyrir að velja af fúsum og fijálsum vilja að ger- ast ekki aðilar að NATO.“ Tilganginn með þessu, segir Jan Urban, ritstjóri tímaritsins Transitions og einn aðstand- enda herferðarinnar, vera fyrst og fremst þann að vekja um- ræðu um kosti og galla NATO- aðildar Tékklands. Til þess væri mjög áhrifaríkt að minna þjóðina á þá „mestu niðurlæg- ingu sem hún hefur orðið fyr- ir.“ HUNDRUÐ íbúa þorpa í fjallahér- aði í vesturhluta Alsirs hafa flúið þaðan eftir að að minnsta kosti 600 manns biðu bana þar í árásum ísl- amskra uppreisnarmanna á dögun- um. Stjórnvöld í Alsír höfnuðu áskorunum um að fallast á að al- þjóðleg nefnd yrði send til landsins í því skyni að rannsaka drápin. Ekkert lát er á blóðsúthellingunum að sögn alsírskra fjölmiðla. Eitt blaðanna sagði að embættis- menn hefðu ráðið fólki frá því að fara til héraðsins Relizane, þar sem 412 manns voru myrtir á einu kvöldi í vikunni sem leið. Fólks- flóttinn úr héraðinu hófst eftir árásir á tvö þorp á sunnudag og mánudag sem kostuðu að minnsta kosti 200 manns lífið, að sögn íbúa héraðsins. 62 manns biðu bana í árásum í héraðinu aðfaranótt þriðjudags, að sögn ríkisútvarpsins í Alsír í gær. „Þessar nýju blóðsúthellingar hafa valdið miklum fólksflótta frá fjallahéraðinu og aukið alþjóðlegan þrýsting á alsírsk stjórnvöld, sem eru sökuð um að hafa ekki veitt borgurunum vernd gegn þessum grimmdarlegu árásum," sagði dag- blaðið Le Matin. Sendiherra Bandaríkjanna tekur við mót- mælum utanrík- isráðherra Alsírs Robin Cook, utanríkisráðhen-a Bretlands, kvaðst hafa miklar áhyggjur af drápunum í Alsír og sagði að Evrópusambandið kynni að senda þangað nefnd til að kanna ástandið. Drápsaðferðirnar sérlega grimmdarlegar „Manntjónið er ekki aðeins óskaplegt heldur eru drápsaðferð- irnar einnig sérlega grimmdarleg- ar,“ sagði Cook og vísaði til frétta um að hundruð manna hafí verið brennd lifandi og fjölmargir hafi verið skornir á háls. Breski utanríkisráðherrann sagði að málið yrði tekið upp á fundi utanríkisráðs Evrópusam- bandsins 26. janúar. Utanríkisráðherra Alsírs boðaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund á þriðjudag til að mótmæla tillögu Bandaríkjastjórnar um að alþjóðleg rannsóknarnefnd yrði send til landsins. FIS for- dærnir drápin Engin hreyfing hefur lýst fjöldamorðunum á hendur sér, en talið er að öfgamenn úr röðum heittrúaðra múslima hafi verið að verki. Rúmlega 65.000 manns hafa beðið bana í uppreisninni sem hófst í byrjun ársins 1992 þegar yfirvöld aflýstu þingkosn- ingum til að koma í veg fyrir að flokkur heittrúaðra múslima, fslamska frelsisfylkingin (FIS), kæmist til valda og stofnaði ísl- amskt ríki. Útlægur leiðtogi FIS, Rabah Kebir, fordæmdi drápin og kvaðst vilja að Sameinuðu þjóðirnar reyndu að binda enda á þau. Stjórnin í Alsír mætti ekki gefa „morðingjunum" lausan tauminn og yrði að semja við andstæðinga sína til að stöðva blóðsúthelling- arnar. Reuters CnACHBO Hefja samninga um greiðslu skulda í vor Þórshöfn. Morgunblaðið. POUL Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, lýsti sig ánægðan með efnahagsstefnu fær- eysku stjómarinnar eftir fund með ráðherrum stjórnarinnar í gær. Tveir ráðherrar Fólkaflokksins, An- fínn Kallsberg fjái’málaráðherra og John Petersen sjávarútvegsráðherra mættu þó ekki til fundarins til að mótmæla tímasetningu heimsóknar- innar. Nyrup sagði að stíf aðhaldsstefna landsstjómarinnar miðaði að því að halda opinberum útgjöldum í skefj- um. „Landsstjórnin sýnir mikla ábyrgðartilfinningu með skynsam- legri efnahagsstefnu sinni,“ sagði Nyrap og skýrði frá því að sam- komulag hefði orðið um það á fund- inum, að í vor myndu hefjast samn- ingaviðræður færeyskra og danskra yfírvalda um afborganir af milijarða- skuldum Færeyinga. Eftir marga fundi sfna í Þórshöfn í gær sagðist Nyrup Rasmussen vona, að honum hefði tekist að ryðja braut- ina fyrir nánari og umfangsmeiri samskipti færeyskra og danskra ráðamanna í framtíðinni. M.a. hefði orðið að samkomulagi að fjölga sam- ráðsfundum dönsku og færeysku þingmannanefndanna. í heimsókninni til Færeyja tókst Nyrup Rasmussen að bæta sam- bandið við Javnaðarflokkin, fær- eyskan systurflokk danska jafnaðar- mannaflokksins. Tilraunir leiðtoga Javnaðarmannaflokksins að undan- förnu til þess að koma á sambandi við Nyrap með bréfasendingum hafa mistekist og því var samband flokk- anna orðið stirt. Jóannes Eidesgaard flokksformaður hafði gagnrýnt stefnu dönsku stjórnarinnar í garð Færeyja harðar en margur og sagt Nyrup hrokafullan gagnvart eyja- skeggjum og skeytingarlausan um málefni þeirra. Eftir fund þeitra í gær sagði Jó- annes að það væri barnalegt að halda að samskipti flokkanna kæmust í samt lag á stuttri dags- stund þótt samband væri komið á með þeim aftur. Bretar boða aukna áherzlu á umhverfísmál London. Reuters. BRETLAND mun stuðla að því að Evrópusambandið leggi aukna áherzlu á umhverfísmál næsta hálfa árið, en þá eru Bretar í for- sæti ráðherraráðs sambandsins. John Prescott, aðstoðarforsætis- ráðherra og umhverfisráðherra Bretlands, sagði í gær að sem for- sætisríki ESB myndi Bretland leit- ast við að minnka mengun, vernda dýralíf og tryggja að væntanleg að- ildarríki ESB virði umhverfisstaðla sambandsins. A blaðamannafundi sagði Prescott að það yrði forgangsverk- efni að hrinda í framkvæmd sam- komulaginu um samdrátt útblást- urs gróðurhúsalofttegunda, sem náðist í Kyoto undir lok síðasta árs. Enn hefur ekki verið ákveðið hvernig útblásturskvóti ESB muni skiptast á milli aðildarríkjanna. „Það verður ekki auðvelt verkefni," sagði Michael Meacher, aðstoðar- umhveifisráðherra. Ný aðildarríki verða að leggja mikið á sig Þau málefni tengd umhverfis- vernd, sem Bretar hyggjast leggja mesta áherzlu á, eru loftslags- breytingar, loftmengun, líffræði- legur fjölbreytileiki, fiskveiði- stefna, flutningar og stækkun Evr- ópusambandsins. Prescott sagði að ríki, sem sækt- ust eftir aðild að ESB, myndu þurfa að leggja mikið á sig til að mæta þeim umhverfiskröfum, sem sambandið gerir. I núverandi aðildarríkjum verð- ur kapp lagt á að draga úr mengun frá flutningastarfsemi. Bretar vilja draga úr útblæstri frá sendibílum strax á fyrri hluta ársins en Prescott viðurkenndi að þess yrði lengra að bíða að hægt yrði að draga úr mengun frá stórum vöru- bílum. Umhverfisvæn farartæki verða prófuð í borgum ríkja Evrópusam- bandsins á næstu mánuðum og Prescott boðaði einnig hertar regl- ur um útblástur frá flugvélum og um losun sorps í sjó. Stefna ráðherraráði ESB HÓPUR tíu andstæðinga Evrópu- sambandsaðildar Danmerkur, sem höfðað hefur mál á hendur ríkis- stjórninni vegna Maastricht-sátt- málans, hefur nú ákveðið að stefna einnig ráðherraráði Evrópusam- bandsins fyrir Evrópudómstólinn. Hópurinn telur að aðild Dan- merkur að Maastricht-sáttmálan- um stríði gegn dönsku stjórnar- skránni og hefur því stefnt ríkis- stjórninni fyrir dóm. ESB-and- stæðingarnir ki'öfðust gagna frá ráðherraráðinu til að nota sem sönnunargögn í danska dómsmál- inu. Ráðherraráðið hefur að sögn tí- menninganna neitað að láta mikil- væg plögg af hendi og mun málið koma til kasta Evrópudómstólsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.