Morgunblaðið - 09.01.1998, Page 8

Morgunblaðið - 09.01.1998, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýr leikskóli við Arnarsmára Morgunblaðið/Golli BARNAKÓR úr leikskólanum Grænatúni söng nokkur lög við opnun nýs leikskóla við Arnarsmára í Kópavoginum á miðvikudag. Tekur við 130 börnum Brunaslysin í Vopnafírði Gagnasöfn- un að ljúka GAGNASÖFNUN vegna rann- sóknar á tveimur brunum í Vopna- fírði í síðasta mánuði sem taldir voru orsakast af blöndun bensíns við steinolíu er nú á lokastigi hjá lögreglunni þar. í fyrra tilvikinu brann íbúðarhús í Böðvarsdal og í því síðara hlaut bóndinn þar alvar- leg brunasár og lést hann af völd- um þeirra. Sýslumaður ákveður framhaldið Lögreglan á Vopnafírði er að ljúka við töku á framburðarskýrsl- um, m.a. af umboðsmanni Oh'ufé- lagsins á staðnum, en rannsóknin beinist einkum að því að kanna með hvaða hætti bensín hefur blandast steinolíunni. Rannsókn á steinolí- unni á vegum Ohufélagsins sýndi að hún var blönduð bensíni og hef- ur nú einnig borist niðurstaða frá Rannsókhastofu Háskólans í lyfja- fræði um að svo hafí verið. Búist er við að lögreglan sendi sýslumanni á Seyðisfirði gögn málsins nú í vikulokin og mun hann ákveða hvort frekari rannsókna þarf við og, eða, hvort málið verður sent ríkissaksóknara. NÝR leikskóli við Arnarsmára í Kópavogi var opnaður við formlega athöfn á miðvikudag. Hann mun taka við alls 130 börnum frá tveggja til 5 ára aldurs og verða deildirnar fjórar. Brynja Björk Kristjánsdóttir er leikskólastjóri og mæta fyrstu börnin í skólann í dag. Hús leikskólans er byggt úr til- búnum forsteyptum einingum, sem Islenska stálfélagið reisti á sínum tíma á Kúagerði við Kapelluhraun, og var hafist handa við byggingu skólans í apríl á síðasta ári. Bygg- ingafyrirtækið Desember ehf. sá um alla verkþætti varðandi hús og lóð. Heildarkostnaður við byggingu skólans auk búnaðar og annars kostnaðar er 63 milljónir, sam- kvæmt fréttatilkynningu frá Fræðslu- og menningarsviði Kópa- vogs. Arkitekt hússins er Kristinn Ragnarsson og arkitekt lóðar er Ingibjörg Kristjánsdóttir. Heilsuleikskólinn Skólatröð Hvert barn fær sína heilsubók Unnur Stefánsdóttir FYRIR tveimur árum var leikskólinn Skólatröð í Kópa- vogi valinn til að verða heilsuleikskóli. Það voru forsvarsmenn Heilsuefl- ingar, verkefnis á vegum heilbrigðisráðuneytis og landlæknisembættis, sem völdu einn skóla á hverju skólastigi til að sinna þessu verkefni. Leikskól- inn Skólatröð er rekinn á vegum Kópavogsbæjar og leikskólastjóri þar er Unn- ur Stefánsdóttir. „Við höfum ætíð lagt áherslu á holla næringu, hreyfingu og listsköpun hjá börnum. Styrkinn sem við fengum síðan með til- nefningunni ákváðum við að nýta til að gera heilsu- bók fyrir hvert barn og fá nær- ingarráðgjafa til að gera mat- seðla fyrir nónhressingu." - Hvemig eru heilsubækur bamanna uppbyggðar? „Hvert barn fær sína heilsubók og getur haft hana meðan það dvelur í leikskólanum. Við skrá- um í hana þrisvar á ári. Þar kem- ur fram hvernig matarlyst við- komandi barns er og ýmislegt annað sem viðkemur matarvenj- um þess. Auk þess skráum við hæð, þyngd og almennt heilsufar bamsins í bókina, tökum púls í slökun og eftir ákveðna hreyf- ingu, könnum jafnvægi, hreyfí- færni, klifur, handstöðu, bolta- grip og ýmislegt fleira. Hvað snertir listsköpunina könnum við t.d. teiknifæmi barna og þekk- ingu á litum.“ Unnur segir að til viðbótar þremur meginþáttum starfsins í leikskólanum, þ.e. hollri nær- ingu, hreyfingu og listsköpun, hafi verið bætt í bókina nýjum þætti, félagslegri færni barnsins. „Hún er undirstaða þess að barninu líði vel og það njóti sín. Við könnum því hvernig barninu gengur að leika sér við önnur börn og hvernig leikur þróast hjá því. Þá veitum við athygli hvern- ig barnið er í samskiptum við aðra og hvernig það sýnir tilfinn- ingar.“ -Fá foreldrar síðan að skoða þessa bók reglulega? „Bókin er öll unnin í samvinnu við foreldra. Árlega koma þeir í viðtal og geta séð nákvæmlega hver staða bamsins er í þeim þroskaþáttum sem við mælum. Við mælingarnar koma stundum í ljós atriði sem við þurfum að at- huga betur. Síðastliðinn vetur höfðum við t.d. hjá okkur barn sem var með óeðlilegan púls eftir áreynslu. Foreldrar fóru með bamið til læknis og í ljós kom að það var með álagsastma." - Hvernig er nónhressingin skipulögð? „Næringarráðgjaf- inn skipulagði átta vikna matseðil sem er rnjög fjölbreyttur. Yfirleitt fá börnin þá gróft brauð og tvær áleggsteg- undir en ekkert sætabrauð nema pönnukökur einstaka sinnum. Matráðurinn bakar að minnsta kosti tvisvar í viku heilhveiti- brauð, bollur og kryddbrauð." - Hefur komið til álita að gefa út þennan 8 vikna matseðil? „Áhugi þeima sem hafa sótt leikskólann heim hefur verið mikill á þessum matseðlum og því ákvað Heilsuefling í sam- vinnu við leikskólann að gefa út bækling. Við unnum bæklinginn í ►Unnur Stefánsdóttir er fædd í Vorsabæ í Flóa árið 1951. Hún lauk námi úr Fóstruskóla Is- lands árið 1974. Hún hafði um skeið umsjón með daggæslu barna í heimahúsum og var leikskólafulltrúi ríkisspítala. Unnur fór í framhaldsnám í Fóstruskólanum í uppeldis- fræði og stjórnun árin 1983-84 og vann um tíma í heilbrigðis- ráðuneytinu við mótun mann- eldis- og neyslustefnu. Unnur kenndi í nokkur ár hagnýta uppeldisfræði við Fóstruskóla íslands og hefur verið Ieik- skólastjóri í Skólatröð frá haustinu 1995. Eiginmaður Unnar er Hákon Sigurgrímsson deildarstjóri í Iandbúnaðarráðuneytinu og eiga þau þijú börn. samráði við næringarráðgjafann. Honum hefur verið dreift í alla leikskóla landsins.“ - Hvernig em aðrar máltíðir leikskólans byggðar upp? „Við bjóðum upp á hefðbund- inn íslenskan mat en stillum notkun sykurs, salts og fitu í hóf. Að öðru leyti er fæðuvalið fjöl- breytt, við borðum kjöt, fisk, pastarétti, baunarétti, grænmet- isrétti, skyr og grjónagraut og ýmislegt annað sem er hollt og gott.“ -Hvað hafíð þið á boðstólum þegar börnin eiga afmæli? „Við biðjum foreldra um að koma ekki með neitt að heiman þegar börnin eiga afmæli. Þess í stað fær barnið að poppa og svo er boðið til afmælishátíðar í saln- um okkar.“ - Hvernig er listsköpun háttað hjá ykkur? „Ef börnin fá holla fæðu og næga hreyfingu eykur það vellíð- an sem skilar sér í aukinni sköp- unargleði. I listsköpun höfum við lagt áherslu á að nýta hráefni úr umhverfinu s.s. mold, sand, lauf og fleira sem finnst í gönguferð- um. Einnig er töluvert um pappírsendur- vinnslu hjá okkur.“ - Hvað er framund- an hjá heilsuleikskól- anum? „Næsta haust verðum við bún- ar að skrá í heilsubækurnar í tvö ár. Reynslan hefur sýnt okkur að við mælingamar höfum við mis- munandi skilning á hugtökum í heilsubókinni. Því var ákveðið að skrifa uppsláttarrit sem skil- greinir hvað felst í einstökum hugtökum. Hugmyndin er að kynna efni heilsubókarinnar á næstunni og ef áhugi er hjá leik- skólakennurum að nýta sér efni og útskýringar mun hún verða til sölu.“ Stilla notkun salts, fitu og sykurs í hóf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.