Morgunblaðið - 09.01.1998, Page 14

Morgunblaðið - 09.01.1998, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Háskólinn á Akureyri Námsbraut í tölvu- og upplýsinga- tækni NÁMSBRAUT í tölvu- og upplýsingatækni verður sett upp við Rekstrardeild Há- skólans á Akureyri næsta haust, en háskólinn fékk þriggja milljóna króna aukn- ingu við afgreiðslu fjárlaga í lok liðins árs til að geta farið af stað með þessa námsbraut. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri sagði að verið væri að leggja lokahönd á vinnu við náms- skrá og innan tíðar yrði aug- lýst eftir kennurum að braut- inni. Braut sem þessi ætti sér enga beina samsvörun hér á landi, en markmiðið með þessu námi væri að mennta stjómendur og millistjórn- endur í fyrirtækjum sem hefðu traustan bakgrunn í hagnýtingu í tölvu- og upplýs- ingatækni við rekstur fyrir- tækja. „Það er mikill skortur á þekkingu af þessu tagi víða í fyrirtækjum og einkanlega á landsbyggðinni," sagði Þor- steinn. „Þörfin íyrir þetta nám er því mikil.“ Bókasafn Háskól- ans á Akureyri Kynning á dönsku kennsluefni Á TÍU ára afmæli Háskólans á Akureyri síðastliðið haust barst peningagjöf frá danska sendiráðinu á Islandi en henni skyldi varið til kaupa á kennsluefni svo að efla mætti dönskukennslu í grunnskól- um. í vikunni var opnuð sýning á þessu kennsluefni í húsa- kynnum safnsins á Sólborg. Þar gefur t.d. að líta ýmsar handbækur og alfræðirit, orðabækur, kennslubækur í dönsku fyrir böm á ýmsum aldri, myndbönd, margmiðlun- ardiska, hljóðbönd, skyggnur, bækur um sögu og landafræði Danmerkur, sögu Grænlands, barnabókmenntir, ævintýri og kennslufræði. Sýningin er öllum opin á af- greiðslutíma safnsins frá kl. 8 til 18 alla virka daga og frá 12 til 15 á laugardögum. Séra Pétur í Laufási í frí SERA Pétur Þórarinsson sóknarprestur í Laufáspresta- kalli verður í fríi í útlöndum frá 9. janúar til 3. febrúar. Sr. Arnaldur Bárðarson sóknar- prestur á Hálsi í Fnjóskadal sinnir prestverkum fyrir sr. Pétur á meðan. Sími hans er 463-6605. Aglowfundur AGLOW, kristilegt félag kvenna, heldur fyrsta fund ársins næstkomandi mánu- dagskvöld, 12. janúar, kl. 20 í félagsmiðstöðinni Víðilundi 22 á Akureyri. Stella Sverrisdótt- ir leikskólakennari flytur hug- leiðingu, boðið verður upp á fjölbreyttan söng og kaffihlað- borð á 350 krónur. Allar konur hjartanlega velkomnar. Borgarbraut og ný brú yfír Glerá Útboð tilbúið í rúmt hálft ár , Morgunblaðið/Kristján STARFSMENN Akureyrarbæjar eru þessa dagana að gera við skemmdir á malbikinu á götum bæjarins. Tíu tímar í snjó- mokstur í haust HEILDARKOSTNAÐUR við snjó- mokstur á Akureyri á síðasta ári nam 9,4 milljónum króna en í fjár- hagsáætlun ársins var gert ráð fyrir kostnaði við snjómokstur upp á tæp- ar 14 milljónir króna. Kostnaðurinn er eingöngu tilkom- inn vegna snjómoksturs á fyrri hluta ársins. Guðmundur Guðlaugsson, yf- irverkfræðingur Akureyrarbæjar, sagði að aðeins hefðu verið skráðar um 10 klukkustundir á veghefil bæj- arins vegna snjómoksturs nú í haust og sagði hann það einsdæmi í sinni tíð. Tíðarfarið hefur verið mjög óvenjulegt í vetur og í stað snjó- moksturs hafa starfsmenn bæjarins unnið að lagfæringum á götum bæj- arins. „Við erum að vinna við verk sem alla jafna er unnið við undir vor, þegar frost er að fara úr jörðu,“ sagði Guðmundur. Akureyringar eru „duglegir" við að nota nagladekk undir bíla sína og spæna naglarnir upp bert malbikið á götum bæjarins. Guðmundur sagði það sína skoðun að of margir aki á nagladekkjum og sjálfur segist hann aka á grófkorna dekkjum á jeppa sínum. AKUREYRARBÆR hefur verið tilbúinn með útboð á byggingu nýi-rar brúar yfir Glerá og lagningu Borgarbrautar frá 20. júní í fyrra. Vegurinn var samþykktur inn á vegalög á síðasta ári og mun Akur- eyrarbær fjármagna framkvæmdir, lána ríkissjóði sinn hluta þeirra, en að sögn Gísla Braga Hjartarsonar, formanns skipulagsnefndar Akur- eyrarbæjar, strandar einkum á því að ríkið ákveði hvenær endur- greiðslur til bæjarins vegna verks- ins hefjist. „Það er allt tilbúið af okkar hálfu og hefur verið í meira en hálft ár, eða frá því í júní í fyrra. Við bíðum raunar bara eftir grænu ljósi frá ríkisstjórninni," sagði Gísli Bragi. Samþykkt var á síðasta ári að skil- greina veginn sem þjóðveg þannig að framkvæmdimar eru að stærst- um hluta kostaðar af ríkissjóði. Akureyrarbær hefur samþykkt að fjármagna verkið og sagði Gísli Bragi að málið snerist í raun um það hvenær endurgreiðslur hæfust, en bærinn gerði engar sérstakar kröfur í því sambandi og skipti engu hvort það yrði eftir fjögur eða sex ár eða þegar best hentaði. „Þetta er grátleg staða,“ sagði Gísli Bragi, en í byrjun síðasta árs var unnið við hönnun brúarinnar og Borgarbrautar, framkvæmdir áttu að hefjast síðasta sumar og brúin að vera tilbúin á liðnu hausti. „Þessar framkvæmdir eru afskaplega mikil- vægar og miðað við nýtingu sem áætlað er að verði á þessu mann- virki munu þær borga sig fljótlega," sagði hann. Áætlað er að bæjarbúar muni spara um 40 milljónir króna árlega í rekstri bifreiða eftir að þessi nýja leið opnast, samgöngur munu batna til muna úr nyrstu hverfum bæjar- ins við miðbæjarsvæðið og aðgengi að háskólasvæðinu á Sólborg gjör- breytast. Um er að ræða tvær aðskildar brýr yfir Glerá, hvor fyrir sinn veg- arhelming, og verða þær 34 metrar að lengd og munu hvíla á tveimur súlum. Borgarbraut, sem liggur frá brúnni niður með Glerá að Glerár- götu við Tryggvabraut, verður tæp- lega 1,5 kflómetrar að lengd. — S S "1—1 • /j* v. • Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Vetrarsol 1 Eyjafirði Skýrsla rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri fyrir síðasta ár Fíkniefnamálum fjölgar HELDUR fleiri mál komu til kasta rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri í fyrra en árið áður, eða 1.475 á móti 1.462. Daníel Snorra- son, lögreglufulltrúi rannsóknar- deildar, sagði það út af fyrir sig já- kvætt að málum fjölgaði ekki meira milli ára. „Hins vegar er um of mörg mál að ræða og það er æski- legt að snúa þessari þróun við,“ sagði Daníel. Fíkniefnamálum fjölgaði um fjög- ur milli ára og voru 40 í fyrra. Að sögn Daníels var yngsti einstakling- urinn sem kom við sögu í slíku máli í fyrra 15 ára gamall. Fíkniefnamál- um hefur fjölgað síðustu ár en árið 1994 komu 11 slík mál til kasta lög- reglunnar, 21 mál árið eftir og 36 mál árið 1996. Daníel sagði að á síð- asta ári hafi verið lagt hald á öll þau fíkniefni sem eru á markaði hér á landi, hass, amfetamín, LSD, E- töflur og kókaín. Tvö íkveikjumál Olvunarakstursmálum fjölgaði einna mest milli ára og voru 135 í fyrra en 99 árið 1996. Til viðbótar komu upp 19 slík mál sem jafnframt tengdust umferðaróhöppum. Mál vegna minni háttar líkamsárása voru 108 og fjölgaði um 23 milli ára en mál vegna meiriháttar líkams- árása voru 9. Innbrotsmálum fjölg- aði um 20 milli áranna 1996 og 1997 og voru alls 98 í fyrra. Lögreglan glímdi við tvö íkveikjumál á árinu, annars vegar á Dalvík og hins vegar í Ólafsfirði og var um að ræða millj- ónatjón í báðum tilvikum. Ekki hef- ur verið gefín út ákæra vegna meintrar íkveikju í þriggja hæða húsi við Aðalgötu í Ólafsfírði en starfsmaður fiskvinnslu Norður- strandar hf. á Dalvík viðurkenndi íkveikju þar.Þá voru 2 nauðganir kærðar á síðasta ári og 10 önnur kynferðisbrot komu til kasta lög- reglunnar. Tékkafalsmálum hefur verið að fækka jafnt og þétt síðustu ár og þá vegna tilkomu greiðslu- kortanna. í fyrra komu 11 slík mál upp en 51 árið áður. Grímsey- ingar færri en hundrað ÍBÚAR í Grímsey eru nú komnir niður fyrir 100 íbúa markið, voru 99 1. desember síðastliðinn, 53 karlar og 46 konur. Fækkaði íbúum milli ára um 2,9%. Mikil fólksfækkun hefur orðið í Grímsey á síðustu ár- um, þannig voru 117 íbúar skráðir í eynni 1. desember árið 1995 en árið á eftir fluttu um 20 manns í burtu. Tæp tuttugu ár eru frá því Grímseyingar náðu 100 íbúa markinu, en 100. Grímseying- urinn fæddist árið 1979. ► i i i 1' t r > t r i i i i i i w I i \ ►

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.