Morgunblaðið - 09.01.1998, Side 29

Morgunblaðið - 09.01.1998, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 29 • MENNINGARÁRIÐ í Stokk- hólmi, menningarhöfuðborg Evr- ópu 1998, hófst á þrettánda dag jóla með opnun götulistasýning- ar. Hana getur meðal annars að Iíta á ljósastaurum og strætis- vagnaskýlum og taka þrjátíu listamenn og um fimmtíu mynd- Iistarnemar þátt í henni. Lista- verkin staldra stutt við á götum Stokkhólms, því sýningunni lýk- ur annan sunnudag, 18. janúar. • FYRSTA bók bresku gaman- leikkonunnar Pauline Melville, „The Ventriloquist’s Tale“ (Saga búktalarans) hlýtur Whitbread- bókmenntaverðlaunin fyrir byrj- endaverk. Bókin hlaut mikið lof gagnrýnenda er hún kom út á síðasta ári og munaði mjóu að hún yrði tilnefnd til Booker- verðlaunanna. Hún seldist hins vegar aðeins í um 3.000 eintök- um. Bókin verður lögð fram til að- alverðlauna Whitbread, sem verða veitt síðar í mánuðinum en meðal þeirra sem keppa munu við Melville um verðlaunin eru lárviðarskáldið Ted Hughes og Jim Crace. • GAMANLEIKARINN Ben Elton er orðinn einn hæstlaunaði rithöfundur Bretlands í kjölfar útgáfusamnings sem hann gerði og hljóðar upp á um 170 milljóna ísl. kr. greiðslu fyrir tvær bæk- ur. Er það hærri fyrirfram- greiðsla en Martin Ainis hlaut fyrir tveimur árum og nam rúm- um 120 milljónum ísl.kr. Elton hefur m.a. skrifað bókina „Popcorn11 sem seldist gríðarvel en ákvað fyrir skemmstu að skipta uin útgefanda, fór frá Transworld-útgáfunni til Simon & Schuster. Elton er þekktur fyrir að hafa munninn fyrir neðan nefið og þegar hann var spurður hvernig hann hefði tíma til að leika, semja leikrit og skáldsögur, svaraði hann því til að ástar- sagnahöfundurinn Barbara Cartland hefði skrifað yfir 1.000 bækur og hefði þó tíma til að snyrta sig. • NORSKI píanóleikarinn Leif Ove Andsnes hefur verið til- nefndur til bandarísku Grammy- verðlaunanna fyrir geisladisk þar sem hann flytur píanósónötu Schumanns no. 1. Andsnes er 28 ára og hefur hlotið geysilegt lof fyrir leik sinn en hann hefur komið þrisvar hingað til lands til að leika á tónleikum, í fyrsta sinn fyrir tíu árum. Andsnes er nú á tónleikaferð um Evrópu. Alls eru 92 verðlaunaflokkar og eru fimm tilnefndir í hverjum flokki. Grammy-verðlaunin verða afhent í lok febrúar í New York. STARFSMENN Sotheby’s setja upp sýningu á verkum Churchills. MALVERK Churchills af lafði Churchill. Myndir Churchills EKKI hefur enn verið ákveðið hvort myndir eftir Winston Churchill, fyrrverandi forsætis- ráðherra Bretlands, verða seld- ar á uppboði á næstunni en nú stendur yfír sýning í London á rúmlega 100 verka hans. Churchill þótti liðtækur frí- stundamálari og tóku sumir listrýnendur raunar svo djúpt í árinni að segja hann hafa verið atvinnumann í málaralistinni. Æ hærra verð fæst fyrir mynd- ir Churchills, sem sjálfur hafði litla trú á ágæti sínu sem list- málara, sú dýrasta seldist á uin 150.000 pund, um 17 milljónir ísl. króna, á uppboði í nóvem- ber sl. Nýjar bækur • STREYMANDI lindir er heiti ljóðabókar eftir Helga Sæmunds- Helgi kvaddi sér ungur hljóðs á skáldaþingi fyr- ir sextíu árum og gaf svo út æsku- ljóð tvítugur 1940. Þá hvarf hann að öðrum verkefnum um langt skeið en hóf loks kveð- skap á ný og hef- ur sent frá sér sex ijóðabækur síð- an 1975. I kynningu segir: „Streymandi lindir geyma ferðaminni víða að og minningakvæði um látna snilldar- menn eins og Hallgrím Pétursson, Bólu-Hjálmara, Fornólf, Ólaf Jó- hann Sigurðsson, Heiðrek Guð- mundsson, Sigfús Halldórsson og Friðrik Guðna Þórleifsson. Athygl- isverð munu og árstíðaljóðin um sí- fellda hringrás lífsins. Þau eru táknræn og sérkenniieg. “ Útgefandi er Skákprent. • TVÖFALT bókhald er eftir Kristján J. Gunnarsson. I kynningu segir að í þessari fjórðu ljóðabók sinni slái Krist- ján, sem áður, jafnt á strengi glettni og alvöru og beiti jöfnum höndum hefð- bundnu sem óhefðbundnu ljóðaformi eða samblandi af hvoru tveggja. Hér bryddi hann auk þess upp á þeim nýjungum að birta sem undan- fara hvers kvæðis, mottó sem opnar leiðina að efni þess gegnum eins konar tvöfalt bókhald. Utgefandi er Skákprent. Kristján J. Gunnarsson son. Helgi Sæmundsson Sýningar í gallerí- keðjunni Sýnirými ÞRIÐJA árs nemar Grafíkdeildar MHI opna sýningu á samvinnu- verkefninu „Box“ í galleríi Sýni- boxi við Vatnsstíg, laugardaginn 10. janúar. „Box“ er grafískur skúlptúr gerður fyrir Sýniboxið, sem fæst við tengsl tvívíddar og þrívíddar með vísun í Sýniboxið sjálft. Höf- undar eru Elínóra Kristinsdóttir, Fríða María Harðardóttir, Hadda Fjóla Reykdal, Halldór Eiríksson, Helga Fanney Jóhannesdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Karl Emil Guðmundson og Sigrún Þorsteins- dóttir. Húbert Nói er með sýningu jan- úarmánaðar í farandgalleríinu Barmi, og sýnir hann loftmynd af Reykjavík. Berandi~gallerísins er að þessu sinni Howie B. Afþreying fyrir tvo í Gallerí Hlust er leikin hljóð- mynd verksins „Afþreying fyrii- tvo“ eftir Pétur Örn Friðriksson en gerð hennar var í höndum Al- banian Sausage. Sími galleri Hlustar er 551 4348. Egill Sæbjörnsson sýnir í sýn- ingarrýminu 202m, Vesturgötu lOa, frá 10.-25. janúar og nefnist sýningin Leirhestar. Sýningar- rýmið er opið frá kl. 15-18 frá miðvikudegi til sunnudags. Ljósmynd/David Tv. EGILL Sæbjörnsson sýnir leirhesta í 202m. FRAMTÍÐARSTARFSKRAFTUR FRAMTÍÐARSTARFSKRAFTUR FRAMTÍÐARSTARFSKRAFTUR FRAMTÍÐARSTARFSKRAFTUR o* i- ec 9 ' Nýsköpun tölvuiðnaði . I Ll Tölvu- og kerfisfraiðingur Tölvu- og kerfisfræðinámið er tveggja ára nám. Kennt er tvö kvöld í viku frá kl. 18:00-21:30 og laugardaga frá kl. 8:30-12:00. Námið er að fiillu lánshæflt. RAFIÐNAÐARSKÓLINIM Skeifan 11 b ■ Sími 568 5010 lUgJRHUnNNIAJLV IU3fJIM3UnNNIAiV IU3fJIM3UnNNIAlV IM3fJIM3finNNIAlV IH3fJIM3finNNIAlV IM3fJIM3finNNIAiV VilTII BREYTfl TIL ? VILTU BREYTfl TIL ?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.