Morgunblaðið - 09.01.1998, Síða 32

Morgunblaðið - 09.01.1998, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Nýr búvöru- samningur NÝR búvörusamn- ingur í mjólkurfram- leiðslu hefur verið gerður milli landbúnað- arráðherra og Bænda- samtaka Islands með fyrirvara um samþykki Alþingis. Byggist hann á hugmyndum svo- nefndrar sjömanna- nefndar og kröfum kúabænda. A þessum tímamót- um er ágætt að gera sér grein fyrir hver þróunin hefur verið í stjóm búvörufram- leiðslunnar, rannsaka og upplýsa stöðuna í hinum hefðbundna landbúnaði, rifja upp og bera saman hvemig nýr búvörusamningur virðist stangast í meginatriðum á við stjórnarskrá Islands, samkeppnis- löggjöf og nýlegan hæstaréttar- dóm um atvinnufrelsi borgaranna. Verndarsvæðin (kvótinn) Allt til 1979 bjó íslenskur land- búnaður við óhefta framleiðslu- möguleika. Hver og einn mátti framleiða og selja eins og hann vildi og fékk greitt fyrir. Landbún- aðurinn naut ríflegra framlaga af hálfu hins opinbera í formi jarð- ræktarstyrkja og búfjárræktar- styrkja ásamt því að verðbólga malaði skuldir niður. Öflugasti hvatinn í framleiðsluaukningunni var þó svokölluð 10% útflutnings- regla, sem byggðist á þeirri megin- reglu að bændur fengu útflutnings- bætur á 10% heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar. Að flestra mati gat þetta ekki gengið til lengdar. Því var útflutningsregl- an afnumin, framlög til landbúnað- ar dregin saman og framleiðslutak- markanir endanlega settar á árið 1986. HUGBÚNAÐUR FYRIR WINDOWS Má stækka og bæta við kerfum KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 • Sími 568 8055 www.islandia.is/kerfisthroun Glæsilegur nærfatnaður Laugavegi 4, sími 551 4473 Blað allra landsmanna! -kjarnimálsins! Kvótinn tók svo ýmsum breytingum í áranna rás: Búmark, fullvirðisréttur, greiðslumark og nú síðast beingreiðslur. Búin voru til ákveðin verndarsvæði fyrir einstaka bændur til starfa í kvótakerfinu. Þeir bændur sem ekki komust inn í það kerfi urðu undan að láta, ýmist hálfeignalausir eða í öskustó loðdýra- ævintýris. I sjávarútvegi var settur á magnkvóti til að draga úr sókn í takmarkaða auðlind vegna al- mannahagsmuna. I landbúnaði var settur á kvóti til að koma í veg fyr- ir verðstríð, þ.e. að framboð og eft- irspurn réði endanlegu verði til neytenda (bænda og úrvinnslufyr- irtækja annars vegar og markaðar- ins hins vegar). Sú aðgerð hafði ekki með almannahag að gera, heldur vemdaði ákveðinn markhóp í bændastétt. Niðurgreiðslur Niðurgreiðslur búvara (skattfé), segir Þorsteinn H. Gunnars- son í fyrri grein sinni, verða uppboðsgóss hæstbjóðanda. (beingreiðslur) I síðustu búvörusamningum var samið um, að niðurgreiðslur á heildsölustigi búvöruframleiðsl- unnar, sem stjómvöld höfðu notað í marga áratugi sem hagstjórnar- tæki til að hafa áhrif á lækkun verðlagsvísitölu, færðust beint til framleiðenda. Þessu niðurgreiðslu- fyrirkomulagi er fram haldið í nýj- um búvörusamningi. Gert er ráð fyrir að niðurgreiðslumar verði helmingur af framleiðandaverði. Greiðslumar era kallaðar bein- greiðslur og era greiddar af fjár- málaráðherra beint til bænda en Framleiðsluráð sér um uppgjör. Nýr búvörasamningur gerir áfram ráð fyrir að hægt verði að versla með þessi réttindi (beingreiðslurn- ar). Niðurgreiðslurnar hafa því verið að breyta um eðli og era orðnar verslunargóss og braskrétt- indi. Nokkurs misræmis gætir milli nautgriparæktar og sauðfjárrækt- ar varðandi kvótaverslun, þar sem verslun með mjólkurkvóta er leyfð en hún var bönnuð 1. júlí 1996 með sauðfjárkvóta. Það gæti aftur á móti haft þær afleiðingar að erfitt verði fyrir bændur að fækka sauðfé eða hætta sauðfjárbúskap án þess að skerða verðmæti eigna sinna þar sem þeir geta hvorki afsett kvótann né fjárstofninn. Kvótinn niðurgreiddur Verslun með kvóta er orðin hluti af hinu íslenska bændasamfélagi. Bændasamfélagið hefur talið hags- munum sínum borgið með þessu fyrirkomulagi og ekki reist sig upp á móti því. Ymsir hafa þó séð nokk- ur hættumerki í þessu fyrirkomu- lagi. Byggð mun grisjast skipu- lagslaust, atgervisflótti verður úr hinum dreifðu byggðum og endur- nýjun í bændastétt mun ekki eiga sér stað. Nokkur dæmi eru um að opinberir aðilar hafí greitt þessi kvótakaup niður. Hafa bændur haft af því nokkrar áhyggjur að með því væri verið að raska stöðu þeiri-a innbyrðis með ólögmætum hætti. Einu slíku máli hefur verið skotið til Samkeppnisstofnunar og hefur stofnunin lagt mat á niður- greiðslur á kvótakaupun. Kemur fram í áliti stofnunarinnar að nið- urgi-eiðslur til kvótakaupa raski samkeppnisstöðu bænda innbyrðis og hefur viðkomandi stjórnvaldi verið birt álitið til eftirbreytni. Því er eðlilegt að menn velti því fyrir sér hvort beingreiðslurnar raski ekki einnig samkeppnisstöðu bænda innbyrðis. Ýmsir telja þetta beingreiðslu- kerfi algjöra hengingaról fyrir bændastéttina, vegna þeirrar inn- byggðu mismununar sem í keifinu býr og hættu á spillingu. Því sé nauðsynlegt bæði fyrir bændur, af- urðastöðvar og ríkissjóð að oln- boga sig út úr þessu kerfi með áfangalækkunum á beingreiðslum á samningstímanum. Heilbrigðara væri að þessar niðurgreiðslur væru á heildsölustigi afurðanna eins og var og séu almennar en ekki sér- tækar. Svo era ýmsir sem telja nið- urgreiðslumar ónauðsynlegar. Bændablaðið greinir frá þvi ný- lega að mjólkurframleiðendur hafi keypt greiðslumark fyrir tæpa 2 milljarða á áranum 1991-1996. En hvaðan eru þessir peningar komn- ir? Bóndinn kaupir greiðslumark og staðgreiðir það eða skuldar eftir atvikum. Síðan fær hann ávísun mánaðarlega frá fjármálaráðherra, sem era beingreiðslur, en þær grundvallast á greiðslumarkinu sem hann keypti. Þegar upp er staðið hefur ríkissjóður greitt fyrir hann gi-eiðslumai-kið með afborg- unum. Kvótamarkaður í Bændahöllinni? Nýr búvörasamningur gerir ráð fyrir að komið verði upp kvóta-- markaði, sem Framleiðsluráð land- búnaðarins, eða annar aðili sem landbúnaðarráðherra ákveður, annist. Þar eiga allar falar bein- greiðslur (kvóti) að fara í gegn. Niðurgreiðslumar (skattféð) sem voru undirstaða að félagslegum réttindum og notaðar hafa verið til að lækka verð á mjólk til barnafjöl- skyldna era þá orðnar uppboðs- góss hæstbjóðanda. Var það upp- haflegur tilgangur? Svari hver fyr- ir sig. Talið er að með þessu móti verði verslun með þessi réttindi sýnilegri. Þessi viðskipti hafa verið í sviðsljósinu undanfarið og augljós öllum mönnum. Hætt er við að það skapi réttmæta tortryggni, verði þessi starfsemi færð inn í Bænda- höllina, eins og stefnt virðist að. Raunar er óskiljanlegt hvaða er- indi hún á þangað inn frekar en fóðurbætis- eða varahlutaverslun. Þá er gert ráð fyrir að greiðslu- mark verði framreiknað frá ári til árs og haldist hjá þeim sem nú hafa greiðslumark. Svo virðist sem samningurinn sé aðeins sértækur fyrir ákveðinn markhóp bænda í landinu, en ekki ríkisrammasamn- ingur, sem hinn almenni bóndi geti sótt réttindi til. Búast má við að t.d. riðubændur, sem æ ofan í æ hafa þurft að skera bústofn sinn niður og neyðast til að breyta yfir í mjólkurframleiðslu til að sjá fjöl- skyldum sínum farborða, verði ekki mjög ánægðir. Hvað með stjórnarskrárbundinn rétt manna til að nýta bújarðir sínar, véltækni, þekkingu og menntun að eigin vilja og hafa af því arð og atvinnu? Hverjir era kostir ungs fólks sem hefja vill búskap og hefur ef til vill erft kvótalaust höfuðból með gögn- um þess og gæðum? Hver er sam- keppnisstaða þess miðað við þá sem fengu úthlutað ókeypis kvóta? Höfimdur er búfræðikandídat, Þorsteinn H. Gunnarsson Orð og athafnir ÞEGAR ný fram- haldsskólalög voru samþykkt vorið 1996 voru með þeim m.a. lögfest innritunar- gjöld í framhaldsskóla en þau voru ætluð til þess m.a. að standa straum af kostnaði vegna kennsluefnis og pappírsvara sem skól- inn hafði látið nem- endum í té án sér- staks endurgjalds. Tiltekið var í lögunum að þessi upphæð mætti aldrei fara yfir 6.000 kr. á ári. Þegar lögin voru sett var þessari gjaldtöku ákaft mótmælt bæði á þingi og víða í þjóðfélaginu því menn töldu að með því að opna leið til þess að leggja á nemendur skólagjöld væri vegið að jafnrétti til náms. Það er ekki öllum foreldram kleift að styrkja börn sín til náms því heim- ili á Islandi eiga mörg í fjárhags- legum kröggum eins og alkunna er. Það er til dæmis augljóst að eifitt er fyrir sauðfjárbónda, en þeir hafa samkvæmt nýjustu upp- lýsingum um 6-700 þúsund krónu árstekjur að meðaltali, að kosta börn sín til náms, ekki síst þar sem styrkur til nemenda úr dreifbýli sem stunda framhaldsskólanám er alltof naumur. En þótt ótrúlegt kunni að virðast, miðað við þann velmegunarsöng sem ráðamenn þjóðarinnar kyrja nú með viðlag- inu hagvöxtur og kaupmáttar- aukning, þá eru æði margir í þessu þjóðfélagi sem mega sæta þvílík- um lífskjöram. Það er með öllu ástæðulaust að mismuna börnum og ungmennum eftir efnahag heimila með slíkum flötum skóla- gjöldum sem eru mjög íþyngjandi fyrir tekjulág heimili þó þau efna- meiri finni lítt fyrir þeim. I mörg- um tilfellum hafa ungmenni á þessum aldri mjög litlar sumar- tekjur þannig að oft eru það for- eldrarnir sem þurfa að reiða þessi gjöld fram. Nýlega birti Björn Bjarnason menntamálaráðherra gi-ein á al- netinu um skólagjöld í háskóla og verður ekki annað ráðið af þeirri grein en að þar fari sérstakur að- dáandi skólagjalda enda er gert ráð fyrir því í nýjum lögum um há- skóla sem samþykkt voru á Al- þingi íslendinga nú fyrir jólin að háskólar geti lagt aukin gjöld á nemendur til að mæta útgjöldum skólanna. Þótti nú ýmsum að nóg væri að gert í skólagjaldainn- heimtu á háskólastiginu. En ríkisstjórnin lét ekki þar við sitja og lét á síðasta þingi sam- þykkja lagabreytingar sem gerðu mögulegt að íþyngja sérstaklega þeim nemendum sem stunda verk- nám með því að innheimta af þeim efnisgjöld til viðbótar við skóla- gjöld og geta efnisgjöldin numið allt að 25 þús. krónum á skólaári og er þó enn gert ráð fyrir að til viðbótar því greiði nemendur kostnað vegna áhalda ýmiskonar, að ekki sé talað um kennslubækur en kostnaður við slíkt getur í sum- um tilvikum numið tugum þús- unda. Það eru ekki nema rúm 50% af hverjum árgangi á Islandi sem ljúka einhvers konar framhalds- námi og aukið atvinnuleysi ungs fólks er vaxandi vandamál. Ráða- menn þjóðarinnar þreytast því seint á áferðarfallegum yfirlýsing- um um að menntun unga fólksins sé besta fjárfestingin til nýrrar aldar. En hljómfagrar yfirlýsingar á tyllidögum orka á fólk nánast eins og fremur ósmekklegur brandari þegar litið er til verka ríkisstjórn- arinnar í þessum efnum. Beitt er lögum til þess að að gera ungu fólki erfíðara fyrir með að stunda framhalds- nám og svo rammt kveður að þessum hremmingum að sumir jafnvel hrekjast úr námi. Eitt það fráleitasta sem hæstvirtri ríkis- stjórn gat dottið í hug var þó er árinu 1996 var lagt til, í tengslum við ráðstafanir í ríkis- fjármálum, að tekin yrðu upp svonefnd endurinnritunargjöld, öðru nafni fallskattar. Þessa skatta átti að gera að sérstakri tekjulind fyrir skólana þegar yfir þá gekk einn niður- skurðarfaraldurinn enn. En þá var upphaflega meiningin að lækka framlög til þeirra um 200 milljónir en svo var að vísu hörfað með 40 milljónir af því samkvæmt þeirri sérstöku hernaðarkúnst sem hæst- virt ríkisstjórn hefur tileinkað sér. En hún felst í því að hóta fyrst öllu illu en draga svo lítið eitt í land þannig að þolendur ráðstafananna lofi bæði Davíð og skaparann að ekki fór alveg eins illa og upphaf- lega hafði verið ráð fyrir gert. Heilar 32 milljónir króna ráð- gerði hæstvirt ríkisstjórn að hafa í tekjur vegna ungmenna sem lentu í erfiðleikum í námi og er það ein- Beitt er lögum til þess, segir Sigríður Jóhannesdóttir, að gera ungu fólki erfíðara fyrir að stunda fram- haldsnám. hver ógeðfelldasta tekjuöflunarleið sem sögur fara af. Hæstvirtur menntamálaráðherra hefur lýst þessari skattlagningu sem leið til að bæta skipulag og auka sam- keppni. Það er að vísu rétt að það er af því óhagræði við skipulag skólastarfs að nemendur innriti sig í greinar og hætti síðan við í miðj- um klíðum en á því þarf að taka með aukinni námsráðgjöf og stuðningi við þá sem lenda í náms- erfiðleikum en ekki með niður- lægjandi refsiaðgerðum eins og fallskatturinn er. Það geta ýmsar ástæður verið fyrir lélegu gengi í námi, svo sem tilfinningalegar og félagslegar ástæður, sem þarf að taka mark- visst á af fagfólki en auknar álögur á námsörðugleika koma verst við þá er síst skyldi og era síst fallnar til þess að koma í veg fyrir það mikla brottfall úr framhaldsskól- um sem vissulega er mikið vanda- mál hér á landi. Undirrituð hefur á yfirstandandi þingi lagt fram framvarp til laga þar sem gert er ráð fyrir að þeirri skattlagningu á framhaldsskóla- nema sem hér hefur verið lýst linni og hefur það framvarp farið í gegn- um 1. umræðu og verið sent út til umsagnar og verður fróðlegt að sjá hvert framhaldið verður. Það er margsagt og ætti að vera öllum augljóst að á nýrri öld skiptir öllu máli, ekki síst fyrir smáþjóð eins og okkur Islendinga, að unga fólkið okkar sé vel menntað og fært um að tileinka sér nýjungar, hvort heldur í tækni eða hugsun. Fyrir okkur skiptir því öllu að sem stærstur hluti af hverjum ár- gangi ljúki framhaldsnámi af ein- hverju tagi. Ráðstafanir sem torvelda hluta ungs fólks að stunda nám era því heimskulegar jafnvel þótt með þeim megi krafsa saman fáeinar krónur. Meðal annarra orða er ekki ríkjandi góðæri þessa dagana? Höfundur er þingmaður Alþýðu- bandalagsins í Reykjaneskjördæmi. Sigríður Jóhannesdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.