Morgunblaðið - 09.01.1998, Side 41

Morgunblaðið - 09.01.1998, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 41 . + Guðmundur Friðfinnur Lúð- víksson fæddist á Húsavík 17. aprfl 1930. Hann lést á heimili sínu Vestur- götu 4, Keflavík, hinn 29. desember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Arngrímur Lúðvík Friðfinnsson, f. 29. ágúst 1895, á Kota- mýri, Ljósavatns- hreppi, Suður-Þing- eyjarsýslu, d. 31.10. 1973, og Kristrún Dorothea Þorsteinsdóttir, f. 4.6. 1899, í Krosshúsum í Flatey á Skjálfanda, Suður-Þingeyjar- sýslu, d. 4.10. 1989. Systkini Guðmundar eru: Sig- ríður, f. 3.3. 1921, búsett í Hafn- arfirði, Birgir Þorsteinn, f. 5.9. 1925, Kristinn, f. 12.10. 1934, Minningarnar sem ég á um Mumma bróður minn eru bæði margar og góðar, en hann var sá af bræðrum mínum sem stóð mér næst. Fyrsta minning mín um hann er mér ógleymanleg. Hann var ný- fæddur, afskaplega fallegur svart- hærður drengur, og lá til fóta í rúminu hjá mömmu. Eg var níu ára þegar hann fæddist og byrjaði fljót- lega að passa þennan litla bróður minn sem mér hefur alltaf þótt svo óskaplega vænt um. Mummi ólst upp, einsog önnur börn á Húsavík, við ýmsa leiki. Fjaran var mikið leiksvið fyrir börnin og þar skemmti hann sér með öðrum drengjum. Þeir léku sér einnig mikið uppí læk, einsog það var kallað. Þar var mikið af lontum, og þeir gátu unað sér heilu dagana við að vaða, veiða og annað slíkt sem litlum strákum dettur í hug. Oft komu þeir heim rennandi uppundir hné eftir annasaman dag í fjörunni eða læknum, og voru að vonum skammaðir af mæðrum sín- um og ábyrgðarfullum eldri systr- um. Mummi tók alltaf ávítunum vel enda ákaflega rólyndur að eðl- isfari. Þær vora líka margar ferðirnar sem ég og Bubba vinkona mín fór- um með Mumma. Ævintýraferðir þarsem við vinkonurnar bösluðum með hann þetta tveggja, þriggja og fjögurra ára, yfír læki og aðrar tor- færar til að komast í berjamó. Mummi og aðrir húsvískii' dreng- ir voru ekki gamlir þegar bernsku- leikjunum sleppti og þeir voru komnir niður í beituskúra að stokka og beita. Þrjú sumur var Mummi svo í sveit hjá sæmdarhjónunum Baldri og Sigurbjörgu á Ófeigsstöð- um í Köldukinn. Þrettán ára varð hann svo fyrir miklum brana á báð- um fótum og lá heilan vetur í brunasáram. Þegar barna- og unglinsáranum sleppti fór hann á vertíðir og var margar vertíðir fyrir sunnan. Þa. kynntist hann Ester Einarsdóttur, glæsilegri stúlku sem síðar varð eiginkona hans. Hann starfaði svo við sjómennsku til ársins 1965 en þá veikist hann lífshættulega og þurfti af þeim sökum að fara í að- gerð til Danmerkur. Hann fékk heilsu á ný þó hann yrði aldrei sam- ur aftur. Eftir þetta vann hann við ýmis störf sem tengdust útgerð. Þrátt fyrir að hann hafí búið í Keflavík öll sín fullorðinsár kom hann á hverju sumri, stundum oftar en einu sinni, í heimahaga sína á Húsavík. Fylgdu honum þá oft kon- an hans og börnin þeirra fjögur, sem öll era mikið myndar- og menntafólk. Á síðastliðinni Þorláksmessu sá- umst við í síðasta sinn. En þá heim- sótti hann mig og við áttum góða stund saman við ánægjulegt spjall. Hann var glaður og reifur, nýkom- inn úr skötuveislu hjá Einari syni sínum. Ekki óraði mig fyrir að báðir búsettir á Húsavík. Guðmundur kvæntist Oddnýju Ester Einarsdóttur 21. maí 1955 í Keflavík. Börn þeirra era: Kristrún, f. 22.7. 1953, Einar, f. 14.12. 1954, Helga, f. 23.7. 1956 og Erla, f. 26.6. 1958. Barnabörn hans eru tíu. Guðmundur stundaði sjó- mennsku framan af ævinni en eftir að hann hætti henni starfaði hann lengst af hjá Járniðnaðar- og pípulagninga- verktökum á Keflavíkurflugvelli. Guðmundur var jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju fimmtudag- inn 8. janúar og fór athöfnin fram í kyrrþey að ósk hins látna. þetta yrði okkar síðasta stund sam- an. Kæra Ester og fjölskylda, Gleði og sorgir þær ganga einn stig, gæfa og ólán við hvors annars hlið. Andstreymi breytist í ágætan byr, aftur skín sól eftir élin sem fyr. (Gamall danskur sálmur, þýð. Gunnlaugur R. Jónsson.) Eg kveð þig bróðir minn, guð blessi minningu þína. Sigfríður (Fri'ða). „Komnir eru dagarnir sem þú segir um: mér líkar þeir ekki.. (Snorri Hjartarson). Ljóðlínur þessar komu upp i huga minn er ég heyrði að Guð- mundur Lúðvíksson hefði skyndi- lega verið kallaður úr þessum heimi. Guðmundur var mér traust- ur og hjálpsamur. Hann kom óbeð- inn ef þannig stóð á og hann sá að not væra fyrir krafta sína. Undan- farin ár hefur hann hvert vor og sumar hjálpað mér við endurbygg- ingu frambæjar norður í Skagafírði og átti hann drjúgan þátt í því að verkinu miðar vel áfram. Við voram þegar farnir að skipuleggja næstu ferð. Guðmundur var duglegur til vinnu svo eftir var tekið. I þessum ferðum okkar norður kynntist ég Guðmundi náið. Hann var ekki maður sem flíkaði tilfinningum sín- um, því síður hæfileikum. Hann var hreinskilinn en aldrei heyrði ég hann tala niðrandi um annað fólk. Það fann ég að þar fór fjölhæfur maður. Hann kunni mjög góð skil á landi sínu og honum var annt um ís- lenska tungu. Hann naut sín í fal- legiá náttúru Skagafjarðar og fylgdist grannt með fuglunum. Guðmundur hafði ríka kímnigáfu og var hláturmildur mjög. Það var gott að vera í návist hans. Guðmundur var sérstaklega bón- góður. Það kom því af sjálfu sér að ég leitaði alltaf fyrst til hans ef ég þurfti á hjálp að halda. Fyrir það og alla þá umhyggju sem hann sýndi mér og fjölskyldu minni þakka ég af alhug. Eg er þakklátur forsjóninni fyrir það að hann fékk að fara á þann hátt sem hann helst vildi. Síðustu mínútur lífs síns not- aði hann til að hringja til dóttur sinnar, sem hafði verið í heimsókn hjá honum fyrr um daginn, til þess að athuga hvort hún væri nú örugg- lega komin heim í skjól, honum leist nefnilega ekkert á veðrið. Hann fékk að heyra að allt væri í lagi með hana og hneig síðan niður. Ósk hans uppfyllt svo óvænt. Guð fylgi honum á nýjum vegum. Þórhallur Hólmgeirsson. Elsku afí minn, þú hafðir svo gaman af hljóðfæraleik mínum. Eg spilaði fyrir þig í hvert skipti sem þú komst í heimsókn. Eg komst ekki undan því. Helst vildir þú heyra í horninu. Þó fannst þér allt í lagi svona inn á milli að heyra í pí- anóinu. Fyrir rétt rúmri viku fékk ég nýtt horn. Þú varst glaður fyrir mína hönd og þér þótti þetta glæsi- gripur. Þú fékkst að heyra mig spila á nýja hornið. Þú spurðir mig hvort þetta væri ekki betra horn að spila á. Eg hélt það nú. Og þú hlóst með mér. Alltaf varstu tilbúinn að keyra mig í tónlistarskólann, nú síðast fyrir jólin. Eg þurfti ekki að biðja þig um það, þú sagðir alltaf „á ég ekki að fara með þig“. Eg er viss um að við hittumst aft- ur. Þú verður alltaf í huga mínum. Eg held áfram að spila fyrir þig, elsku afi. Þín einlæg, Svafa Þórhallsdóttir. Ég teiknaði mynd af rjúpu og hann afi Gummi hætti ekki að nauða í mér fyrr en hann eignaðist myndina. Bæði þótti honum mynd- in góð og svo hafði hann sérstakt dálæti á rjúpunni. Rjúpan óhlýðnaðist sjálfri himnadrottningunni og varð fyrir bragðið meinlausari og varnarlaus- ari en allir aðrir fuglar. En Man'a var líka góð við rjúpuna. Hún lét rjúpuna skipta litum eftir árstím- um. Hún er hvít á vetrum en mógrá á sumrin svo fálkinn geti ekki eins vel þekkt hana frá snjónum á vet- urna og lyngmóunum á sumrin. Þessa sögu sagði hann afi mér fyrir langa löngu. Þegar ég var lítil dvaldi ég mikið hjá afa og ömmu. Þá fór ég oft með honum afa mín- um um Reykjanesið eða til Krýsu- víkur og alltaf hafði hann kíkinn sinn með. Hann sagði mér frá mörgu og brýndi jafnframt fyrir mér að bera virðingu fyrir náttúr- unni. Hann sagði að ég væri svo lít- il en náttúran voldug og hún gæti verið hættuleg ef maður gætti ekki að þegar hraunlandslag Reykja- nesskagans væri annars vegar. Hann var sífellt að minna mig á sprungur og gjótur sem væra í fel- um. Árin liðu en alltaf var afi sam- ofinn mínu daglega lífi. Afi las mikið og var stálminnug- ur. Það kom mér sífellt á óvart hversu næmur hann var á málfar. Er mér sérstaklega minnisstætt at- vik þar sem ég var í vandræðum með túlkun á málshætti. Afi var ekki lengi að ráða hann fyrir mig. Hann var ekki mikið fyrir að tala um sjálfan sig og laus við frama- gimi. Hins vegar vildi hann fá að heyra af mínum högum og hafði brennandi áhuga á öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. Það var gott að finna fyrir umhyggju hans og ástúð. Lífið hefur breytt um stefnu, hann afi minn sem hefur lengi varð- að veg minn er ekki lengur hér á jörðu. Nú held ég áfram með það veganesti sem hann gaf mér. Ég sakna hans sárt en styrkur hans fylgir mér. Ég bið góðan guð að varðveita hann að eilífu. Ester Þórhallsdóttir. Ég hef þekkt Guðmund Lúðvíks- son í hartnær 20 ár eða frá því að ég kynntist Helgu dóttur hans. Samskipti okkar þessi ár hafa ætíð verið með ágætum, enda var Guð- mundur mikill öðlingur og einstak- lega bóngóður maður. Ég minnist allra þein-a ferða sem við fjölskyldan fórum til Keflavíkur í heimsókn til þeirra hjóna. Ég not- aði yfirleitt tækifærið og fékk lán- aðan bílskúrinn til þess að þrífa bfl- inn og alltaf kíkti Guðmundur á vél- ina eða eitthvað sem honum þótti að betur mætti fara hjá mér í bfln- urn og var það vel þegið. Ég minnist ferðanna okkar í Kol- beinsdalinn, þar sem við höfum undanfarin sumur verið að hjálpa Þórhalli við að gera upp eyðibýli. Alltaf passaði Guðmundur upp á að til væri heitt kaffi á könnunni og að hiti væri í húsinu. Það var unun að sjá hversu vel hann naut sín úti í náttúrunni. Hann átti einstaklega auðvelt með að vinna með barna- bömunum og umgekkst þau ávallt sem jafningja. Það mun verða fá- tæklegra í dalnum í sumar þegar Guðmundur verður ekki á meðal okkar eins og undanfarin sumur. Ég minnist heimsókna þeirra Guðmundar og Esterar til okkar í Reykjavík um helgar. Ég held að varla hafi liðið sú vika að ekki væri skroppið í bæinn til að heimsækja börnin og barnabömin. Slík var umhyggja þeirra hjóna fyi-ir börn- um sínum og fjölskyldum þeirra. Guðmundur var fyrirvaralaust kallaður frá okkur og ég held að þannig hafi hann viljað mæta örlög- um sínum. Það hefði eflaust ekki átt við hann að liggja í einhverjum veikindum. Eftir stöndum við sorg- mædd að hafa misst góðan og traustan félaga svo skyndilega. Hvíl í friði, kæri vinur. Þinn tengdasonur, Sæmundur R. Þorgeirsson. Elsku afi minn, ég sakna þín mjög mikið. Ég sakna þess mest þegar við fóram í bfltúr saman og í fuglaskoðunarferðir í nágrenni Keflavíkur. Ég get enn ekki trúað því að þú sért dáinn, því þetta gerð- ist allt svo snöggt. Þú vildir allt fyrir mig gera og fylgdist vel með því hvernig mér gekk í skólanum og körfuboltanum. Við áttum margar góðar stundir saman í bflskúmum þínum þar sem þú kenndir mér til verka. Það verður tómlegt að koma á Vesturgötuna og amma saknar þín mjög mikið, því þú varst svo góður við hana. Elsku afi minn, ég skal passa ömmu fyrir þig. Guð blessi þig og geymi. Þinn nafni, Guðmundur Sæmundsson. Elsku afi minn, nú ertu farinn frá okkur. Ég á mjög erfitt með að trúa því, það gerðist svo snöggt. Þú áttir svo mikið eftir af lífinu, fannst mér. Við áttum margar góðar stundir saman. Það sem er mér minnis- stæðast era erðir okkar saman til Húsavíkur, bara ég og þú. Það var frábær tími þessi tvö sumur er við heimsóttum ættfólk okkar þar, al- veg einstakt fólk. Ekki gleymi ég heldur ferðunum í Kolbeinsdal. Þar smíðuðum við og máluðum hús saman, eina húsið í dalnum. Þú naust þín svo vel úti í náttúranni, vissir heiti á öllum fjöllum og hól- um. Ég mun sakna heimsóknanna ykkar ömmu til okkar í Rofabæinn. Þá horfðir þú oft á eina kvikmynd með mér. Þú hafðir mikla ánægju af glímu- og karateköppum. Ég held að þú hafir verið búinn að sjá allar myndirnar mínar. Ég mun aldrei gleyma þér, elsku afi minn, og geymi allar stundir okkar saman í hjarta mínu. Ég mun heldur ekki gleyma því sem þú kenndir mér í gegnum tíðina. Það mun reynast mér gott veganesti í framtíðinni. Blessuð sé minning þín, elsku afi minn. Þinn, Þorgeir Sæmundsson. „Enginn veit hvað átt hefur, fyrr en misst hefur.“ Þetta spakmæli kemur upp í hugann þegar ég minnist Guð- mundar Lúðvíkssonar, tengdafóður míns, sem lést 29. desember sl. Við erum oft fóst í hlutunum eins og þeir era og tökum sem gefnu að þeir verði áfram óbreyttir og gefum því hvort öðru ekki gaum sem skyldi. En ekkert er óbreytilegt og við verðum því að reyna að sætta okkur við sáran missi. Það er einhvem veginn ekki hægt að tala um Guðmund án þess að hugsa til Esterar, svo samrýnd vora þau hjónin í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Kynni okkar Guðmundar hófust þegar ég hóf sambúð með yngstu dóttur þeirra hjóna. Hvorki mig né nokkurn annan ói’aði fyrir því að þau kynni yrðu ekki lengri, svo fyr- irvaralaust var fráfall hans. Guðmundur var einstakur öðling- GUÐMUNDUR LÚÐVÍKSSON ur, sem alltaf var boðinn og búinn til að aðstoða og hjálpa hverjum þeim sem þurfti. Vinnusemi hans var mikil og það átti ekki við hann að dútla við hlutina eða hætta við hálfnað verk. Mér verður hugsað til ferðanna í Kolbeinsdal, sem vora ófáar síðustu árin. Þar kunni Guð- mundur vel við sig, enda var hann mikill náttúruunnandi og hafði yndi af fuglaskoðun. Hann var gaman- samur og alltaf stutt í hláturinn hjá honum. Guðmundur var umhyggju- samur eiginmaður og börnum sín- um ástríkur faðir. Þegar ég kveð góðan dreng í hinsta sinn bið ég almáttugan Guð að styrkja Ester og fjölskylduna alla í sorg sinni. Friðrik. Elsku afi Gummi! Núna kemur þú ekki aftur í heimsókn til okkar með ömmu Est- er, eins og þú gerðir svo oft. Það verður heldur ekki eins að koma til Keflavíkur þegar þú ert ekki þar. Mig langar til að kveðja þig með bæninni sem mamma kenndi mér. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer, sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Einar. V* Stund kveðju kemur ávallt eins og þrama úr heiðskíra lofti. Ekki datt mér í hug á jóladag að þetta væra síðustu samverastundir þínar með okkur. Þú sast ekki auðum höndum frekar en fyrri daginn, svo áhugasamur og naust þín í að að- stoða börnin þín sem sáu um jóla- boðið í ár. Þú varst traustur og vel gerður maður, og greinilega má sjá að börnin þín hafa fengið það vega- nesti með sér út í lífið. Söknuðurinn ■%. er sár, en ég á margar góðar minn- ingar sem ylja mér um hjartaræt- ur. Ferðir mínar á Melteiginn til ykkar vora svo notalegar og hlýjar, við sátum í eldhúsinu og drukkum kaffisopa, þú fórst út í skúr að dunda og dytta að litla kotinu ykk- ar, það var auðvelt fyrir þig að finna þér eitthvað til dundurs. Oft heyrði ég umgang heima hjá okkur á 19, ef þig vantaði verkfæri kíktir þú í skúrinn hjá okkur, eða varst að sækja sláttuvélina sem við fjölskyldurnar áttum saman. Ekki er ég heldur búin að gleyma ferð- inni upp í Biskupstungur, þú að- stoðaðir okkur við að steypa sökkulinn undir sumarhús þar, og *, við gerðum að gamni okkar milli þess sem steypan var keyrð í hjól- þöram á sinn stað. Umhyggja þín var einstök, kunni ég vel að meta hana og hafði gaman af að svara spurningum þínum svo sem: „Ertu búin að athuga olíuna á bílnum þínum nýlega, hvemig er með kertin og platínurnar, eða hvenær áttu skoðun á bflinn?“. Þú aðstoðaðir mig með þessa hluti þeg- ar færi gafst. Eftir að þið Ester fluttuð á Vesturgötuna fannst mér þið fara óralangt, svona til að byrja með. Við mæðgur fengum okkur göngutúr til ykkar og þar mætti okkur sama hlýjan og áður. Þú ' hélst áfram að dunda í skúrnum, sem þið Týra deilduð svo bróður- lega með ykkur. Efst í huga mér er heimsókn okkar Sigurrósar til ykkar í byrjun desember. Þið hjónin vorað á leið í bæinn til krakkanna ykkar sem eru búsett þar, en tókuð ekki annað í mál en að við kæmum inn og fengj- um kaffisopa áður en þið legðuð af stað. Þegar við komum út í bfl sagði Sigurrós: „Mamma, það er svo gaman að koma til Gumma og v Esterar, hann Gummi er alltaf að stríða, svo hlær hann að öllu saman með okkur." Kæri vinur, ég þakka þér kær- lega fyrir umhyggju þína og hlýju. Elsku Ester, Rúna, Einar, Helga og Erla, fjölskyldum ykkar votta ég mína dýpstu samúð. Gestína. ^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.