Morgunblaðið - 09.01.1998, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 09.01.1998, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkaer eiginmaður, mágur, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, BJÖRN MAGNÚS MAGNÚSSON, Hofi, Bíldudal, verður jarðsunginn frá Bíldudalskirkju á morgun, laugardaginn 10. janúar, kl. 14.00. Guðrún Ólafsdóttir, Jóhannes Ólafsson, Ólafía Björnsdóttir, Jón Ingimarsson, Magnús Björnsson, Helga Friðriksdóttir, Sindri Björnsson, Sif Svavarsdóttir, Hlynur Björnsson Guðbjörg Klara Harðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR BJARNASON, Háholti 26, Akranesi, sem lést laugardaginn 3. janúar sl., verður jarðsunginn frá Akraneskirkju mánudaginn 12. janúar kl. 14.00. Guðlaug Birgisdóttir, Þorsteinn G. Guðmundsson, Erla Þórisdóttir, Guðfinna B. Guðmundsdóttir, Þorbjörn Steingrimsson, Halldóra Traustadóttir, Friðþór Jakobsson og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, JÓNÝAR ÞORSTEINSDÓTTUR frá Svínárnesi við Eyjafjörð. Guð blessi ykkur öll. Aðalsteinn H. Friðfinnsson, Elsa F. Pétursdóttir, Guðný Friðfinnsson, Sveinn Friðfinnsson, Kristín Friðfinnsdóttir, Friðfinnur Friðfinnsson, Selma Friðfinnsdóttir, Níels Friðfinnsson, Margrét D. Jónsdóttir, Alfreð R. Magnússon, Halla Elimarsdóttir, Jón E. Snorrason, Jakobína E. Thomsen, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs föður, stjúþ- föður, tengdaföður, afa og langafa, EYJÓLFS ELLERTS JÚLÍUSSONAR frá Bolungarvík. Sérstakar þakkir til starsfólks Hrafnistu Hafnarfirði. Guðmundur H. Eyjólfsson, Sigurrós Elíasdóttir, Bjarni Aðalsteinsson, Guðrún H. Kristjánsdóttir, Bryndís Fanney Guðmundsdóttir, Guðlaug Bjarnadóttir, Alda Bjarnadóttir, Steinunn Kr. Bjarnadóttir, Eyrún Jenný Bjarnadóttir og barnabarnabörn. Kæru vinir nær og fjær! Innilegar þakkir tii ykkar allra fyrir hlýhug og stuðning vegna fráfalls SIGURGEIRS JÓHANNSSONAR, Bakkakoti, Meðallandi. Guðrún Gísladóttir, Steinar Sigurgeirsson, Jóhanna Margrét Árnadóttir, Guðfinna Ólafsdóttir, Halldór Guðbjörnsson og barnabörn. LAUFEY TRYGGVADÓTTIR + Laufey Tryggvadóttir var fædd að Meyjar- hóli á Svalbarðs- strönd við Eyjafjörð 5. apríl 1911. Hún lést á Dvalarheimil- inu Hlíð 28. desem- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jóhanna Valdemars- dóttir og Tryggvi Kristjánsson. Laufey giftist 1930 Skarphéðni Ás- geirssyni frá Gauts- stöðum á Svalbarðs- strönd. Foreldrar hans voru Sig- rún Jóhannsdóttir og Ásgeir Stefánsson. Skarphéðinn lést í september 1988. Laufey og Skarp- héðinn eignuðust þijá syni, en þeir eru: 1) Brynjar, maki Guðlaug Her- mannsdóttir, þau eiga þijú börn og fimm barnaböm. 2) Birkir, maki María Einarsdóttir, þau eiga Qögiir börn og þijú bamaböm. 3) Kristján, maki Marta Þórðardóttir, þau eiga þijú börn og eitt barnabam. Utför Laufeyjar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Foringi er fallinn. Laufey Tryggvadóttir hefur kvatt þetta jarðsvið eftir 86 ára dvöl. Laufey var mikil atorkukona. Því kynnt- umst við félagar hennar í Náttúru- lækningafélagi Akureyrar vel. At- hygli vekja orð hennar er hún tek- ur við formennsku í félaginu 1971. „Eitthvað verðum við að láta að okkur kveða.“ Og hún hófst þegar handa. Störf hennar sem formaður í 15 ár, og aðaldriffjöður ásamt með samstilltu samstarfsfólki, af- rekaði það ótrúlega: Byggingu Kjamalundar. Þessu mikla áhugamáli sínu fómaði Laufey ómældum tíma og lifði það að sjá þetta óskabam sitt fullburða og taka til starfa, enda þótt starfsvettvangur hússins sé enn ekki nema að hluta kominn á það starfssvið sem ætlað var og Laufey vænti. Ekki má láta hjá líða að nefna eiginmann Laufeyjar, Skarphéðin Ásgeirsson, eða Skarp- héðin í Amaro eins og hann jafnan var nefndur, stórhuga athafna- mann sem studdi og styrkti konu sína og hennar hugsjónaverk á margvíslegan hátt án þess að skráð sé eða styrktaraðildar getið, sem og syni þeirra hjóna, sem einnig lögðust á sömu sveif. Það er vissulega ijósgeisli í minningunni að hafa fengið að fylgjast með atburðarásinni, hinum óslökkvandi áhuga Laufeyjar, vissu hennar og trú, sem yfirvann alla örðugleika og hindranir. hún beislaði krafta og áhuga fjöldans, sem þokaði þessu stórvirki jafnt og þétt rétta braut, heilu í höfn. St- arfsdagurinn var orðinn langur, og nú er hvfldin góð. Við félagar henn- ar þökkum samfylgdina og kveðj- um hana með virðingu og ljúfum huga, fyrir öll góðu athafnaárin, þar sem hún stóð í fylkingarbrjósti, bjartsýn og hvetjandi. Henni ber sæmdarheitið móðir Kjarnalundar. Kæra Laufey. Á þessum tíma- mótum óskum við þér gleðilegs nýárs og farsældar á nýjum lífs- Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudags- blaði ef útfór er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingar- dag. Berist grein eftir að skila- frestur er útrunninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. vettvangi ljóss og friðar. Fjölskyld- um Laufeyjar sendum við innilegar samúðarkveðjur. Stjóm NLFA. Ásdís Árnadóttir, Stefán Jóhannesson, Guðrún Lárusdóttir, Vilhjálmur Árnason, Jón Kristinsson. Elsku amma. Við systkinin vilj- um kveðja þig með þessum orðum og þakka þér fyrir allar góðu sam- verustundimar sem við áttum með þér. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar afa í Helgamagrastrætið. Efst í huga okkar em laugardags- morgnamir, þegar fjölskyldan sameinaðist í eldhúsinu yfir nýbök- uðum skonsum, kleinum og öðru góðgæti, ræddi málin og borðaði á sig gat. Þú tókst á móti okkur með bros á vör, fersk eftir sundið sem þú stundaðir á hverjum morgni og tilbúin að stjana við okkur bama- bömin. Svo var það laufabrauðsgerðin í byrjun desember. Við skámm út í óendanlega margar kökur að okk- ur fannst og fengum að launum ljúffengan kvöldverð. Það var líka gott að koma í litlu íbúðina þína á Dvalarheimilinu þar sem þú bjóst síðustu árin. Það geislaði af þér heilbrigðið og hlýjan sem maður fann svo sterkt í návist þinni. Við söknum þín, elsku amma. Kveðjur, Hildur, Laufey, Guðrún Margrét, Skarphéðinn. „Alltaf leggur bjarmann bjarta af brautryðjandans helgu glóð.“ (Davíð St.) Fyrir mikil og óeigingjöm störf í þágu Náttúralækningafélags Akur- eyrar vfljum við þakka þér, Laufey mín. Að starfa með þér var góður skóli, bjartsýni þín, áræði og dugur hreif okkur með. Laufey var formaður NLFA frá 1971-1986. Hún var áður búin að vera um tíma í stjóminni og gaf ómældan tíma, fundaraðstöðu og fjármuni til félagsins. Aflaði því fjölda félaga og skapaði því álit með formennsku sinni og framgöngu. Hún stóð sannarlega ekki ein, eig- inmaður hennar, Skarphéðinn Ás- geirsson, og öll fjölskyldan stóðu að baki henni svo um munaði, svo og góðir félagar og meðstjómendur. En það gustaði um náttúmlækn- ingastefnuna á þessum áram, og það var enginn fríðarstóll að stýra NLFA og ráðast í byggingu Kjamalundar. Starfsvettvangur Laufeyjar var ekki bara að sinna náttúralækn- ingastefnunni sem mest hún mátti. Hún var mikil félagsmálakona og mjög liðtæk í kvenfélaginu Hlíf, og vann ótrauð að því, þegar þær komu barnaheimilinu Pálmholti á fót. Það hefur eflaust verið reynslu- skóli sem kom henni að góðum not- um í baráttunni fyrir Kjamalundi löngu síðar. NLFA var stofnað á Akureyri í ágúst 1944. Það beitti sér fyrst og fremst fyrir hollráðum með fæðuval. I dag má telja það til tíðinda að félag áhugamanna keypti kvöm til að mala kom árið 1952, og það var stórvirki að koma þá á fót smábrauðgerð og verslun með korntegundir, baunir af ýmsu tagi og hollefni, Kkt og í verslun NLFI í Reykjavík. í þá daga fengust engin gróf brauð. í Heilsuvemd 2. hefti 1986 er ágrip af sögu NLFA og Kjanalund- ar tekið saman af Ama Bjamarsyni bókaútgefanda, einum sterkasta stofni NLFA. Ég ætla ekki að rekja söguna hér, en get þess þó að Laufey tók fyrstu skóflustunguna að Kjarnalundi 7. ágúst 1979. Þetta var henni mikill gleðidagur, þótt framundan væri þrotlaus barátta. Þessi netta og fíngerða kona átti al- veg ótrúlegan vilja og kraft til að láta hugsjónir rætast, hún hreif samstarfsfólkið með sér, hún bað en skipaði aldrei. Og það var eigin- lega ekki hægt að neita því sem Laufey bað menn að gera. Á þess- um miklu vinnu- og baráttuárum vora miklir eldhugai- í fararbroddi og 40-60 manns sívinnandi í ýmsum nefndum. Félagar vora um og yfir 300, en félagssvæðið var líka stórt, allt norðurland. Fræg vora bingó og hlutaveltur, Kjarnalundardagur- inn og flóamarkaðurinn, sem lifir enn. Þið sem ekki unnuð með Lauf- eyju í félagsmálum hafið misst af miklu. Forastufólk fær oft meiri skammir en þakkir. Ég held samt að fáir hafi lagt illt til Laufeyjar, hún var grandvör og heilsteypt, var hafin yfir flokkapólitík og talaði ekki hvasst til andstæðinga, eins og mörg móðirin hafði hún sitt fram með góðu. Við í NLFA reyndum að gleðja hana áttræða með því að gera hana að heiðursfélaga NLFA, en auðvitað var það okkur mest gleði sem komum því í framkvæmd. Nú vakir þú ekki lengur yfir hverju okkar skrefi, oft vora sótt ráð til þín, ráð sem dugðu. Þú sem eldinn átt í hjarta yljar lýsir, þótt þú deyir. Vald þitt eykst og vonir skarta verk þín tala, þótt þú þegir. Alltaf sjá menn bjarmann bjarta blika gegnum himins tjöld. (DavíðSt.) Áslaug Kristjánsdóttir. Við minnumst elsku ömmu sem nú er látin 86 ára að aldri. Amma var alveg einstök kona og naut hún mikillai- hylli allra. Við munum þegar fjölskyldurnar hittust heima hjá afa og ömmu í Helgamagrastræti á laugardags- morgnum. Afi lá oftast í sófanum sínum inni í stofu en amma sauð gijónagraut handa öllum. Við krakkarnir lékum okkur og brölluð- um niðri í kjallara á meðan full- orðna fólkið spjallaði saman uppi. Alltaf fannst okkur það upphaf jólanna þegar við komum öll saman hjá ömmu og afa við laufabrauðs- gerð. Þá var glatt á hjalla, sagðar skemmtilegar sögur og hlustað á jólalög. Allt hefur sinn líftíma og þegar amma og afi fluttu á Dvalar- heimilið Hlíð þá lagðist þessi siður af. Við héldum samt áfram að hitt- ast yfir kaffibolla á laugardags- morgnum. Alltaf var jafn gott að koma til ömmu, hún sagði okkur sögur frá því sem gerðist í gamla daga. Fannst okkur alltaf ákveðinn sjarmi yfir gamla tímanum og hlustuðum við því með mikilli ánægju á hana og spurðum mikið. Eftir að amma flutti á Dvalar- heimilið Hlíð tók hún aftur til við hannyrðir og saumaði hún út hverja myndina á fætur annarri, sem nú prýða heimili bamabarn- anna. Við gætum endalaust rifjað upp minningabrot um elsku ömmu okk- ar sem nú mun hvfla við hlið afa. Blessuð sé minning elsku ömmu. Jóhanna, Þórdís Björg og Kristín.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.