Morgunblaðið - 18.01.1998, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.01.1998, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sóiðiS kl. 20.00: HAMLET — William Shakespeare 8. sýn. í kvöld sun. uppselt — 9. sýn. fös. 23/1 uppselt — 10. sýn. sun. 25/1 nokkur sæti laus — 11. sýn. fim. 29/1 nokkur sæti laus. GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir. Fim. 22/1 uppselt — lau. 31/1 nokkur sæti laus — fös. 6/2. FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Hamick Lau. 24/1 -fös.30/1. YNDISFRÍÐ OG ÓFRESKJAN - Laurence Boswell i dag sun. 18/1 kl. 14 — sun. 25/1 kl. 14. Stfnt i Loftkastalanum kl. 20.00: LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza Lau. 24/1 -fös. 30/1. LISTAKLÚBBUR LEIKHÚSKJALLARANS mán. 19/1 kl. 20.30: Hiti og hamingja: Ingveidur Ýr, mezzóspran syngur við undirleik Gerrit Schuil. --GJAFAKORT ER GJÖF SEM GLEÐUR----- Miðasalan eropin mánud.—þriðjud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. LEIKFELAG J REYKJAVÍKUR BORGARLEIKHUSIÐ Stóra svið kl. 14.00 eftir Frank Baum/John Kane I dag, sun 18/1, nokkur sæti laus, lau. 24/1, sun. 25/1. Stóra svið kl. 20.00 FGÐIfR BG SVIIir eftir Ivan Túrgenjev 4. sýn. fös. 23/1, blá kort, 5. sýn. lau 31/1, gul kort, 6. sýn. fös. 6/2, græn kort. Stóra svið kl. 20.30 W/ Tónlistög textar Jónasar og Jóns Múla. í kvöld sun. 18/1, lau. 24/1, sun 1/2, fim. 12/2. Allra síðustu sýningar Höfuðpaurar sýna á Stóra sviði: fW%HiTT; Rm. 22/1 kl. 20.00, lau. 24/1, kl. 22.30. Nótt & dagur sýnir á Litla sviði kl. 20.30: NTTALA eftir Hlín Agnarsdóttur Lau. 24/1. Aðeins sýnt f janúar. Miðasalan er opin daglega frá kl. 13—18 og fram að sýningu sýningardaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10 Greiöslukortaþjónusta Sími 568 8000 fax 568 0383 KalfiLeiifbúsxðH Vesturgötu 3 „ffiíIHN I DEN“ HLADVARPAIMUM lau. 24/1 kl. 21.00 laus sæti fös. 30/1 kl. 21.00 laus sæti Ath. sýningum fer fækkandí „Sýningin kom skemmtilega á óvart og áhorfendur skemmtu sér konunglega". 'Pönnusleiklur korfi m/hurnarsósu „ iiláljcrjgski/rfrauó m/áslríðusósu „ Miðasala opin fim-lau kl. 18—21 Miðapantanir allan sólarhringinn í síma 551 9055 BUGSY MALONE Frumsýning 31. jan. kl. 15 uppselt 2. sýn. 1. feb. kl. 13.30 3. sýn. 1. feb. kl. 16.00 FJÖGUR HJÖRTU eftir Óiaf Jóhann Ólafsson 6. sýn. í dag kl. 16 uppselt, 7. sýn. í kvöld ki. 20 uppselt 8. sýn. fös. 23. jan kl. 20 uppselt, 9. sýn. sun. 25. jan. kl. 20 uppselt 10. sýn. fim. 29. jan. kl. 20 uppseit 11. sýn. sun. 1. feb. ki. 21 örfá sæti laus 12. sýn. fös. 6. feb. kl. 21 uppselt 13. sýn. fim. 12. feb. kl. 21 ÁSAMA TÍMAAÐÁRI 1au. 31. jan. kl. 21 Síðustu sýningar LISTAVERKIÐ lau. 24. jan kl. 20. VEÐMÁLIÐ Næstu sýningar verða í janúar_ Loftkastalinn, Seljavegi 2, Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775 Miðasala opin 10-18, helgar 13—20 Leikfélag Akureyrar Á fferð með ffrú Paisv Hjörtum mannanna svipar saman f Atlanta og á Akureyri Sýningar á Renniverkstæðinu á Strandgötu 39. 7. sýn. í dag sun. 18. jan. kl. 16.00 8. sýn. lau. 24. jan. kl. 20.30 Miðasölusími 462 1400 leikfélag Kópavogs sýnir 3 einþáttunga e. Tsjekhov MEÐKVEÐJU FKÁYALTA jrælsóð þrenna...' Guðbr. Gíslas. Mbl. Aukasýningar: sun. 18. jan. kL20 lau. 24. jan. kl. 20 lau. 31. jan. kl. 20 Sýnt í Hjéleigu, Félagsheimili Kópavog: Miðasala 554-1985 (allan sólarhringinn Miðaverð aðeins kr. 1,000 - kjarni málsins! Sídasti jYBærinn r J^alnum Vesturgata 11, Hafnarfiröi. Míöasalan opin milli 16-19 alla daga nema sun. Miöapantanir í síma: 555 0553. Sýningar hefjast kl. 14 Forsýning mið. 21/1 kl. 13, uppselt Fim. 22/1 kl. 13, uppselt Fös. 23/1 kl. 18, uppselt Frumsýn. 24/1 kl. 14 uppselt 2. sýn. sun. 25/1 kl. 14 nokkur sæti laus 3. sýn. lau. 31/1 kl. 14 4. sýn. sun. 1/2 kl. 14. Hafnarfjaráirleikhiisió HERMÓÐUR OG HÁÐVÖR FÓLK í FRÉTTUM LYNN Carlin og Audra Lindley í „Taking Off“. JACK Nicholson bregður á leik í Gaukshreiðrinu. MILOS FORMAN GAUKSHREIÐRIÐ - ONE FLEW OBER THE COCKOO’S NEST, (‘75) ★★★★ Ein af bestu myndum allra tíma segir sögu smákrimma (Jack Nicholson) sem álítur að hann geti losnað við fangelsisdóm ef hann er vistaður á geðsjúkrahúsi. Þar mætir hann ofjarli sínum, yfirhjúkrunar- konunni, (Louise Fletcher). Hún kann tökin á að gera menn að lög- gildum vanvitum þegar hún sér að þeir geta ógnað veldi hennar. Á yf- irborðinu sjáum við hvemig hinn frjálsi andi er kæfður innan veggja sjúkrahússins. Forman hefur sjálf- sagt haft örlög heimalandsins í huga, sem þá var í jámgreipum Sovét. Það má túlka aðstaaðumar á marga vegu. Hvaða leið sem er far- in er myndin óendanlega áhrifamik- il. Lengi vel er hún óborganleg gamanmynd, síðan tekur gamanið að grána og lokakaflinn þegar búið er að brjóta McMurphy niður, laga hann að kerfinu, er nánast óbæri- legur. Það leggst allt á eitt, enda var myndin sú fyrsta í fjóra áratugi til að fá 4, reyndar 5, eftirsóttustu Oskarsverðlaunin; fyrir leikstjórn, bestan leik í aðalhlutverkum og besta mynd ársins. Þau fimmtu fyr- ir handritið. Aukaleikaramir era einnig hver öðmm betri. Mynd sem allir verða að sjá. TAKING OFF, (‘71) ★ ★★>/2 Fyrsta mynd Formans í Vestur- heimi er ekkert sérlega þekkt, engu að síður bráðfyndin skoðun gestsins á hinum sérstaka tíðaranda sem ríkti á Vesturlöndum við lok sjö- unda áratugarins og íramá þann áttunda. Kenndur við blóm, hippa og dóp. Þeir Forman og handrits- höfundurinn Buck Henry, sem einnig fer með eitt aðalhlutverkið, gera honum eftirminnileg skil í skoplegri, einfaldri frásögn um kyn- slóðabilið - sem hefur líklega aldrei verið stærra. Aðalpersónumar era foreldrar (Henry og Lynn Carlin) stúlku sem strokið hefur að heiman. I öngum sínum reyna þau að setja sig í spor hinnar uppreisnargjörnu æsku blómatímans með þeim ár- angri að spurningin er hver sé vandamálið. AMADEUS, (‘84) ★★★% Reisn og fall Wolfgangs Ama- deusar Mozart (Tom Hulce) og þáttur kollega hans og öfundai-- manns, Salieri (F. Murray Abra- hams) í því mikla sjónarspili og eymakonfekti, er umfjöllunarefni þessarar margverðlaunuðu, sann- sögulegu myndar. Einstaklega vel heppnuð sem búningamynd og drama, tónlistin fær vitaskuld mikið rúm og að henni hlúð á allan hátt. Abrahams stendur uppúr sem hinn slægvitri Salieri, ásamt búninga- hönnuðunum, tónlistarapptöku- stjómm og Forman, sem hefur gott tak á öllum þáttum þessarar til- komumiklu og margbrotnu myndar. Sæbjörn Valdimarsson TVEIR af þremur gagnrýnendum Morgunblaðsins völdu Málið gegn Larry Flynt - The People vs Larry Flynt, (‘96), eina af 10 bestu mynd- um ársins sem var að líða. Það var ekki til að slæva ánægjuna að hún var einnig myndin sem kom stór- Ieikstjóranum Milos Forman aftur inná landakort þeirra bestu. Forman er af tékknesku bergi brotinn, fæddur 1932 í nágrenni Prag. Foreldrar hans, faðirinn af gyðingaættum, móðirin mótmæl- andi, báru beinin í útrýmingarbúð- um nasista. Snemma á sjötta ára- tugnum lauk hann kvikmyndanámi við listaháskólann í Prag og varð strax notadrjúgur á því sviði. Gerði nokkrar eftirtektarverðar stutt- myndir og lék í myndum vina sinna uns hann lauk sinni fyrstu, löngu mynd, Konkurs, 1963. Á þessum ár- um fór andrúmsloftið hlýnandi í Tékkóslóvakíu og mikil gróska í listalífi, ekki síst kvikmyndagerð. Þriðja mynd leikstjórans, Svarti Pétur - Cemý Petr, (63), fór víða og hlaut mikið lof. Það var hinsvegar sú næsta . Ástir Ijósku - Lásky jedné plavovlásky/The Loves of a Blonde, (‘65), sem vakti athygli um- heimsins á þessum unga leikstjóra sem þótti góður sögumaður með Sígild myndbönd skopskynið í lagi. Dansleikur brunavarðanna - Horímá panen- ko/The Fireman’s Ball, (68), veitti honum alþjóðlega viðurkenningu. Enn ríkti vor í Prag og skopast Forman óspart undir rós að sov- ésku stríðsherrrunum. Sem reynd- ust takmarkaðir húmoristar. Mynd- in hans Formans um dansleik þar sem brunaverðimir missa stjómma á eldinum, endurspeglaði óbeit landa hans á stjómmálaástandinu. Gagnrýnisraddimar gerðust æ há- værari uns sovéski járnhællinn hófst hátt á loft og buldi á tékk- nesku þjóðinni með fúllum þunga. Það tók hana siðan önnur tuttugu ár að losna endanlega undan farg- inu og verða fijáls þjóð að nýju. Sovéska setuliðið varð þess vald- andi að fijáls hugsun tæpast skrimti. Hvergi skjól í landinu nema neðanjarðar, þar sem menn einsog Václav Havel voru með menninguna í gjörgæslu. Forman flúði land ásamt fjölda góðra kvik- myndagerðarmanna; Vilmos Zsig- mond, Laszlo Kovacs, Ivan Passer, Miroslav Ondricek, ofl. Ádeilan dulbúna, Dansleikur bmnavarð- anna, er ein af bestu myndum Formans, bæði hún og Ástir Ijósku eru til hér á leigum og eru góður kostur. Forman var fljótur að komast í gang í Hollywood, gerði 6 myndir fyrir bandaríska aðila á árunum 1971 (Taking Ofí) til 1984, (Ama- deus). Þá var röðin komin að Valmont, (‘89), rislágri útgáfú Formans af Les Liaisons Danger- euses, svo miklu slakari en mynd Stephens Frears, sem þá hafði far- ið sigurför um heiminn, að Form- an tók sér sjö ára hvfld. Margir héldu að dagar hans sem leikstjóri væru taldir, en þá kemur þessi fína mynd um klámkónginn Flynt og nú eru aðdáendur hans í sjöunda himni. Maðurinn sem gerði Gaukshreiðrið, eina bestu mynd samtímans, er aftur kominn á strik. Forman er með tvær myndir í smíðum sem á að frum- sýna í ár. Man on the Moon, sem er rómantísk gamanmynd með ungu stjömunum Natalie Portman, Thora Birch og Brad Renfro, og The Little Black Book, með Danny De Vito. Eftir gamalkunnugt handbragð hans á Málinu gegn Larry Flynt, ætti öllum að vera óhætt að hlakka til... >ia sendingu ÍgéM&' °t :'áWæai°g Uyon»n9a_ Seljum einnig sófasett, hornsófa, svefnsófa, borðstofuhúsgögn o.fl. með miklum afslætti. Val húsqögn Ármúla 8-108 Reykjavik Hjáokkureru Vlsa-og Euroraðsamnlngar ávísun á staðgrelðslu Sími581-2275'568-5375» Fax568-5275
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.