Morgunblaðið - 11.02.1998, Blaðsíða 22
22 MIÐVlkubAGUR 11. FÉBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
TYRKLAND
rv: Kúveit
Éiha ríkið við Persailóa
sem hefur sagsl viijugt til
að veita baadaríksum
flugvétum aðstöðu
rr~ J, til árása á irak
~~'_Z
1 Miðjarðarhaf
BAHRAIN
ARABIA
® Vestrænar herstöðvar
svæðínu nemur 375 vólum
HERFLUGVÉLAR VIÐ PERSAFLÓA
Reynt að raða Eduard Shevardnadze af dögum
Kveðst hafa lifað
af fyrir kraftaverk
Tbiiisi. Reuters.
EDUARD Shevardnadze, forseti
Georgíu, sagði í gær að það hlyti að
teljast kraftaverk að hann skyldi
hafa lifað af annað banatilræðið á
rúmum tveim ár-
um á mánudags-
kvöld. „Þetta var
þaulskipulögð
hemaðaraðgerð,"
sagði forsetinn
og bætti við að
„alþjóðleg
hermdarverka-
samtök“ kynnu
Edouard að hafa staðið á
Shevardnadze bak við tilræðið.
íbúar Tbilisi
sögðu að allt væri með kyrrum kjör-
um á götum höfuðborgarinnar og
aðstoðarmenn Shevardnadze sögðu
að hann hefði hafið störf að nýju í
gærmorgun.
Yfirvöld sendu hermenn og bryn-
varðar bifreiðir á götur borgarinnar
og innanríkisráðuneytið fyrirskipaði
hemum að loka landamærunum.
Embættismenn í Tbilisi sögðust
óttast að tilræðismennimir vildu
valda óróa og glundroða í landinu til
að koma í veg fyrir að Georgía
hreppti mjög ábatasaman samning
um rétt til að flytja hráolíu frá Ka-
spíahafi á heimsmarkaðina. Nokkrir
embættismannanna ýjuðu að því að
„öfl í Moskvu" hefðu staðið á bak
við tilræðið og sögðu að Shevardna-
dze hefði reynt að koma í veg fyrir
að þau næðu aftur tangarhaldi á
Georgíu eins og á tímum Sovétríkj-
anna.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti,
sem var staddur í Rómarborg, sendi
Shevardnadze samúðarkveðju og
lýsti tilræðinu sem hermdarverki
gegn „mjög hugrökkum og sterkum
manni“.
Fallinn tilræðismaður
sagður Tsjetsjeni
Tilræðismennimir sátu fyrir bfla-
lest Shevardnadze þegar hann var á
heimleið frá skrifstofu sinni. Þeir
beittu byssum og vopnum sem not-
uð eru til sprengjuárása á skrið-
dreka. Sjö bflar vom í lestinni og
skemmdust allir, m.a. brynvarin bif-
reið forsetans.
Tveir af lífvörðum Shevardnadze
biðu bana í tilræðinu og fjórir særð-
ust alvarlega. Einn tilræðismann-
anna féll einnig og heilbrigðisráð-
herra Georgíu, Avtandtil Dzhor-
denadze, sagði að vegabréf hans
sýndi að hann hefði verið Tsjetsjeni
og búsettur í Dagestan, nági-anna-
héraði Tsjetsjníu. Tsjetsjenskir
embættismenn neituðu því að til-
ræðismaðurinn hefði verið
Tsjetsjeni.
Shevardnadze ávarpaði þjóðina í
sjónvarpi eftir tilræðið og hvatti
hana til að halda stillingu sinni. „Við
emm staðráðnir í að afstýra stjórn-
leysi í landinu, jafnvel þótt það kosti
okkur lífið,“ sagði hann.
Þetta er í annað sinn sem reynt
hefur verið að ráða Shevardnadze af
dögum. Forsetinn særðist í fyrra
tilræðinu, 29. ágúst 1996.
„Það hlýtur að teljast kraftaverk
að ég skuli tvisvar hafa lifað af,“
sagði Shevardnadze í sjónvarps-
ávarpinu. „Kraftaverk verða aðeins
fyrir vilja Drottins. Drottinn veit
að ég geri allt sem í valdi mínu
stendur til að verja hagsmuni
landsins og þjóðarinnar og hann
bjargar mér á slíkum hættustund-
um.“
Shevardnadze var utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna á valdatíma
Míkhaíls Gorbatsjovs og var beðinn
að taka við stjómartaumunum í
Georgíu eftir að Zviad Gamsakhur-
dia forseta var steypt af stóli í janú-
ar 1992. Seinna var Shevardnadze
kjörinn forseti landsins.
Shevardnadze sagði við nokkra
fréttamenn á heimili sínu að „al-
þjóðleg hermdarverkasamtök"
Iqmnu að hafa staðið fyrir tilræðinu.
Hann bætti við að ígor Georgadze,
fyrrverandi öryggismálaráðherra
Georgíu, sem hann sakar um að
hafa skipulagt fyrra banatilræðið,
búi nú við gott atlæti í Moskvu og
sú staðreynd kunni að hafa stuðlað
að árásinni á mánudag.
Reuters
GEORGÍSKIR öryggisverðir við bifreið Shevardnadzes. Kvað hann það kraftaverk, að hann skyldi sleppa lífs
þegar ráðist var á bílalestina með handsprengjum og skothríð.
Flugvélafloti bandaríska og breska flughersins safnast saman í grennd við
írak og í herstöð Breta á eynni Diego Garcia
Færeyjar
Mistökin lítt
könnuð
Þórshöfn. Morgunblaðið.
LÍTIÐ hefur miðað með rannsókn,
sem færeyska lögþingið efndi til
fyrir tveimur ámm og átti að varpa
ljósi á ástæður bruðls og offjárfest-
inga í Færeyjum á síðasta áratug.
Björn á Heygum, formaður laga-
nefndar lögþingsins, hefur harðlega
gagnrýnt sleifarlagið, sem einkennt
hefur rannsóknina á mistökunum á
síðasta áratug, og segir, að það sé
til skammar. Færeyingar gagnrýni
Dani og krefjist þess, að þeir geri
hreint íyrir sínum dymm, t.d. í
bankamálinu, en veigri sér aftur á
móti við að horfast í augu við sjálfa
sig.
Rannsóknin átti m.a. að styðjast
við skýrslu frá rfldsendurskoðanda
en þar segir t.d., að 1988 og ‘89 hafi
landsjóðurinn gengið í allt of marg-
ar ábyrgðir og veitt alls konar
styrki og oft án lagaheimildar.
Björn segir, að komi ekkert frá
rannsóknarnefndinni fyrir kosning-
ar á sumri komanda muni umboð
nefndarinnar falla niður. Leggur
hann áherslu á, að tilgangur rann-
sóknarinnar eigi ekki að vera að
finna einhverja sökudólga, heldur
eigi niðurstaða hennar að geta orð-
ið öllum Færeyingum víti til varn-
aðar.
Viðbúnaður
við
Persaflóa
Dúbai, Kúveit. Reuters.
BRETAR og Bandaríkjamenn
safna nú herflugvélum, skipum og
mannskap til Persaflóa og ná-
grennis til þess að þrýsta á Iraka
að gefa eftir í deilunni um vopna-
eftirlit.
Bandaríski flotinn hefur alls 16
skip á Persaflóa, þ.á m. em tvö
flugmóðurskip sem bera alls 147
flugvélar, F/A-18 og F-14 árásar-
og ormstuþotur auk véla sérbún-
um til árása á ratsjár.
Bandaríski flugherinn sendi sex
F-U7A torséðar orrustu- og
sprengjuþotur til Kúveit í nóvem-
ber, og hyggst senda sex í viðbót
innan tíðar, en alls verða 19
flugvélar sendar á næstunni.
Sex B-52 sprengjuþotur verða á
Diego Garcia-eyju á Indlandshafi
og B-1 sprengjuþota í Bahrain.
Auk þessa er íjöldi eldsneytis-
birgðavéla og ratsjárvél á svæð-
inu. í Saudi-Arabíu eru um 100
bandarískar flugvélar.
Flugmóðurskip breska flotans
kom til Persaflóa í síðasta mánuði
og um borð eru 19 Harrier orr-
ustuþotur og fimm þyrlur. Breski
flugherinn hefur á að skipa 14
Tornado orrustu- og sprengjuþot-
um f Kúveit og Saudi-Arabfu auk
eldsneytisbirgðavéla í Bahrain.
herflugvelar WSBSk
Bandaríkin
B-52 sprengjuflugvélar
F-117 stealth orrustu-
og sprengjuflugvélar
(6 slikar eru nú þegar i Kúveit)
fc ^ F-16orrustuvélar
B-1B sprengjuvélar
Bretland
Tomado
B-52 sprengjuflugvél
Drægi: 12.000 km
Sprengjuhleðsla:
22 tonn
F-117A Stealth
orrustuvélar
Torséðar I ratsjá
Móðir Díönu
hneyksluð
London, París. Reuters.
MÓÐIR Díönu prinsessu for-
dæmdi í gær fullyrðingar um, að
unnt hefði verið að bjarga lífi dótt-
ur sinnar, hefði hún komist á
sjúkrahúsið fyrr. Koma þær fram í
bandarískri bók, sem heitii' „Dauði
prinsessu".
Frances Shand Kydd, móðir
Díönu, kvaðst hafa fengið ná-
kvæmar upplýsingar um áverkana,
sem dóttir sín hefði fengið í slys-
inu, og því vissi hún, að henni var
ekki hægt að bjarga. Sagði hún, að
frönsku læknarnir hefðu gert allt,
sem í mannlegu valdi stóð.
Bókin fyrrnefnda er eftir Tom
Sancton og Scott Macleod, blaða-
menn við tímaritið Time.
Franskur rannsóknardómari
hefur yfirheyrt mann, Eric Petel,
sem heldur því fram að hann hafi
verið fyrstur á slysstað.
í viðtali við tímaritið Voici, sem
kom út í gær, segir Petel, að hann
hafi ekið mótórhjóli sínu á um 115
kflómetra hraða er Mercedes-bif-
reið Díönu þaut fram úr honum.
Nokki'um sekúndum síðar hafi
slysið átt sér stað. Hann segist
hafa reynt að hjálpa farþegunum
og hafi hann þá borið kennsl á
Díönu. Að því búnu hljóp hann að
símaklefa og hringdi í neyðarlín-
una. Þar var talið, að hann væri að
gera at og þegar hann fór á næstu
lögreglustöð var honum haldið þar
í þrjár klukkustundir.
Sé framburður hans réttur brýt-
ur hann í bága við ýmsar kenning-
ar þeirra er rannsaka málið. Meðal
annars þá kenningu að hvítur smá-
bfll, hugsanlega Fiat Uno, hafi
rekist utan í Mercedes-bifreiðina,
skömmu fyrir slysið.
Uppákomur í Italíu-
heimsókn Jeltsíns
Róm. Reuters.
FYRSTI fréttamannafundurinn
sem Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, hefur haldið í nokkra mánuði
gekk ekki með öllu snurðulaust fyr-
ir sig í Róm í gær og þurftu aðstoð-
armenn hans nokkrum sinnum að
grípa í taumana. Jeltsín er í opin-
berri heimsókn á Ítalíu og í gær til-
kynntu hann og ítalski forsætisráð-
herrann, Romano Prodi, að þeir
myndu senda Saddam Hussein,
íraksforseta, sameiginleg skilaboð
til þess að hvetja til samningalausn-
ar á deilunni um vopnaeftirlit SÞ.
Jeltsín ítrekaði andstöðu sína við
að hervaldi yrði beitt og sagði að
það gæti haft alvarlegar afleiðing-
ar. Einörð afstaða forsetans féll þó
að nokkru í skuggann af mismælum
hans og því, að stundum virti hann
diplómatískar venjur að vettugi.
Þegar leggja átti blómsveig að leiði
óþekkta hermannsins á Feneyja-
torgi hafði Jeltsín venjur að engu
og hyllti ekki ítalska fánann, þrátt
fyrir að aðstoðarmenn reyndu að
stöðva för hans.
Þá átti Jeltsín í erfiðleikum með
að skilja sumar þeirra spurninga
sem fyrir hann voru lagðar á 15
mínútna fréttamannafundi eftir
fund með Prodi í forsætisráðuneyt-
inu í Chigi-höll. „Ég sagði aldrei að
ég myndi fara til Baghdad," svaraði
hann spumingu um þá fullyrðingu
sína í fyrradag að Kofi Annan,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, myndi fara til írak og
hafa milligöngu um samningalausn.
Annan sagðist hins vegar ekki vera
á leiðinni til Baghdad í bráð, en úti-
lokaði ekki slíka för.
Fjölmiðlafulltrúi forsetans skarst
í leikinn og útskýrði spurninguna
fyrir honum. Jeltsín sagði að sér
hefði borist bréf um að samkvæmt
fréttum væri Annan á leið til Bag-
hdad. „En svo mun hann hafa verið
beittur miklum þrýstingi og til-
kynnti að hann færi ekki.“
Tómur rafgeymir og
biluð forgangsljós
Tæknilegir örðugleikar hafa sett
nokkurt mark á heimsókn Jeltsíns,
og í gær urðu nokkrar tafir er ann-
ar ítölsku sjúkrabílanna, sem
fylgja Rússlandsforseta hvar sem
hann fer, neitaði að fara í gang.
Reyndist rafgeymir hans hafa
tæmst.
Jeltsín átti fund með Jóhannesi
Páli páfa síðdegis í gær.