Morgunblaðið - 11.02.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 25
LISTIR
Astin sigrar allt
LEIKLIST
Leikfélag Dalvfkur,
Ungó, Dalvík
AÐ EILÍFU
eftir Árna Ibsen. Leikstjóri: Oddur
Bjarni Þorkelsson. Tónlist: Borgar
Þórarinsson. Leikmynd: Kristján
Hjartarson. Ljósahönnun: Ingvar
Björnsson, Búningar: Ásrún Ingva-
dóttir, Hólmfríður M. Sigurðardóttir
og María Jónsdóttir. Föstudagur 6.
febrúar.
AÐ EILÍFU eftir Árna Ibsen,
sem sýnt var við góðar undirtektir
í Hafnarfjarðarleikhúsinu Hermóði
og Háðvör í fyrra, er nú stigið upp
á hringekjuna sem flytur íslenskt
leiklistarléttmeti um landsbyggð-
ina. Fyrsti viðkomustaður er Dal-
vík. Þetta leikrit er röð svipmynda
LR sýnir
Grease
LEIKFÉLAG Reykjavíkur sýnir
rokksöngleikinn Grease á Stóra
sviði Borgarleikhússins nú í júní-
lok.
Það er breski leikstjórinn og
danshöfundurinn Kenn Oldfield
sem færir söngleikinn upp og verð-
ur viðstaddur prufurnar. Tónlistar-
stjóri verður Jón Olafsson.
LR leitar nú eftirfólki, til að taka
þátt og er óskað ftir fólki, 16 ára og
eldra, í söng-, dans- og leikprufu
dagana 14.-17. febrúar nk.
---------------
Frumsýningar-
tafir
Á FRUMSÝNINGU íslenska
dansflokksins á Útlögum síðastliðið
laugardagskvöld á stóra sviðinu í
Borgarleikhúsinu bilaði tjaldið og
vildi ekki upp að hléi loknu. Gestir
fengu því óvænt lengra hlé meðan
starfsmenn Borgarleikhússins
gerðu við.
Brugðið var á það ráð að fjar-
lægja tjaldið og gátu dansarar
flokksins því stigið á svið, að lok-
inni nokkurri bið, og lokið sýningu
kvöldsins.
------^4-------
Tímarit
• DYNSKÓGAR, rit Vestur-
Skaftfellinga, sjötta bindi, er kom-
ið út.
Meginefni ritsins að þessu sinni
er frásögn af lífi og starfi Brands
Jóns Stefánssonar frá
Litla-Hvammi í Mýrdal -
Vatna-Brands eins og hann var oft
nefndur fyrr á árum, í samantekt
Sigþórs Sigurðssonar símaverk-
stjóra í Litla-Hvammi, eftirfrá-
sögn Brands.
Brandur Stefánsson fékk strax á
unga aldri óbilandi trú á bílnum
sem farartæki framtíðarinnar hér
á landi. Liðlega tvítugur réðst
hann í kaup á Ford-vörubíl og
fékk hann sendan í pörtum með
skipi austur til Víkur í Mýrdal. Þar
í fjörunni var bíllinn settur samna
- og fvrsti bíllinn ók inn í Víkur-
þorp 25. maí 1927, fyrh• 70 árum.
Þá voru flest vötn óbrúuð en
Brandur lét það ekki hefta för sína
lengi og strax á næsta ári var hann
með bíl sinn í fórum allt frá Mai'k-
arfljóti austur í Skaftártungu og
stóð fyrir áætlunarferðum milli
Víkur og Reykjavíkur en farþegar
voru reiddir yfir Markarfljót.
Brandur segir frá æsku- og
uppvaxtarárum og margvíslegum
störfum sínum síðar á ævinni.
Af öðru efni Dynskóga skal nefna
frásögn Guðmundar Sveinssonar
frá Vík af fyrstu bílferð um Fjalla-
baksleið nyrðri fyrir hálfri öld.
Ritið er rúmar 300 síður. Það
prýðir fjöldi mynda, bæði af ein-
staklingum sem við sögu koma
sem og af sviði atvinnu- og sam-
göngumála.
úr „brúðkaupi Guðrúnar Birnu
Klörudóttur og Jóns Péturs Guð-
mundssonar, aðdraganda þess,
undirbúningi og eftirköstum" eins
og stendur á titilsíðu leikskrárinn-
ar, sem er, eins og jafnan hjá Dal-
víkingum, ítarleg og fróðleg.
Þetta leikrit er kunnáttusamlega
riðið net til að slæða með á grunn-
miðum; það fangar enga stórfiska
en síli mörg. Þeir sem sætta sig við
sókn á þessi mið eru oftast harla
ánægðir með fangið. Það mátti
heyra í Hafnarfirði á liðnum vetri
og einnig í Ungó á Dalvík á fóstu-
daginn. Konur í salnum hlógu dátt,
oftar er karlar heyrðist mér, og
stundum með skríkjum. Ekki er
sanngjarnt að bera saman þessar
uppsetningar að öðru leyti. I Hafn-
arfirði starfaði menntað lið og
þjálfað með betri efni og snöggt
um skárri aðstæður, en í Dalvík
tekst samt að skapa áþekkt and-
rúmsloft og skemmta áhorfendum.
Og þá er aðalmarkmiðinu sannar-
lega náð.
Sýningunni er haganlega fyrir
komið á hinu litla sviði og það er
gaman að sjá hve þeir fáu leik-
munir sem komast þar fyrir eru
vel nýttir. Þetta auðveldar atriða-
skiptingar til muna og þess vegna
verða þær hvorki þunglamalegar
né tímafrekar. Vel af sér vikið hjá
leikstjóranum Oddi Bjarna Þor-
kelssyni, sem á hér sína
frumraun, sýningarstjóranum
Sigríði Guðmundsdóttur og leik-
tjaldasmiðunum Kristjáni Hjart-
arsyni, Birni Björnssyni, Guð-
mundi Guðlaugssyni og Degi
Oskarssyni.
Leikendur fæi-a verkið ekki
mikið í stílinn en samt má sjá hér
marga skoplega og stundum góða
takta. Með hlutverk brúðhjón-
anna fara Kristín Jóhannsdóttir
og Osvaldur Freyr Guðjónsson og
komast bæði vel frá sínu. Kristín
er bæði fjörleg og hefur góða
framkomu á sviði. Dana Jóna
Sveinsdóttir hefur gott tímaskyn
og sýnir glöggt næmi fyrir kímni.
Þá er Sigurbjörn Hjörleifsson
óborganlegur í gervi gamla
fausksins sem ætlar að drepa
brúðkaupsgesti úr leiðindum með
ættartölu sinni. Sigurður G. Lúð-
víksson er traustur sem prestur-
inn og augljós töggur í Guðnýju
Bjarnadóttur sem sundkennara
og veislustjóra með herforingja-
takta. Margt ungt fólk fer með
hlutverk í Að eilífu, og þó það sé
ekki tíundað hér, má auðveldlega
sjá hvernig sumir, t.d. Jóna Sig-
urðardóttir og Ómar Hjörleifsson,
bæta við sig á leiksviðinu með
nýjum verkefnum ár frá ári. Bún-
ingar eru unnir af alúð og brúð-
ar(kjóllinn?) svo aðlaðandi að ég
er viss um að brúðgumann langaði
til að rífa hann utan af elskunni
sinni við fyrsta tækifæri.
Guðbrandur Gíslason
S 1 N C V
SWIFT 3-DYRA OG 5- DYRA
Kynnstu töfrum Suzuki
Gerðu innanbœjaraksturinn skemmtilegri
Sestu inn í Suzuki Swift
og láttu fara vel um þig
Fmmsætin eru upphituð. Það eru sam-
læsingar ú hurðum og afturhlerinn er
opnanlegur frd bílstjórasæti. Hliðar-
speglar og rúður eru rafstýrð og skol-
spmutur á framljósum og afturrúðu.
Við viljum benda á að Swift skutlan er
með þjófavöm sem staðalbúnað.
Swift er lipur, sparneytinn og
með yfir 90% endingu
Swift er sérstaklega nettur og lipur
að keyra og hentar því mjög vel í
innanbæjaraksturinn. Aflmikil vélin
hefur verið þrautreynd í 10 ár og er
ein sú sparneytnasta á markaðnum.
Ennfremur er ending Suzuki Swift
ein sú allralengsta sem þekkist hér á
landi eða 90,7% samkvæmt DV-
könnun 18.10.'97, Nýskráðir bilar
1987 enn á númerum.
0g tótu d verðið:
SWIFTGLS.34
SWIFT GLX, $-d
980,000 KR.
1,020,000 KR,
Traustur búnaður tryggir
hámarks árekstursöryggi
Að framan og aftan eru krumpu-
svæði með stigvaxandi fyrirstöðu
uns kemur að farþegarýminu sem
er með sérstyrktum hurðum,
þröskuldum og miðpóstum. Þetta,
ásamt loftpúðum og hæðarstillan-
legum öryggisbeltum, tryggir
hámarks árekstursöryggi.
Ný og enn betri fjöðrun
eykur veggrip
Swift hefur sjálfstæða fjöðrun á
hverju hjóli sem ekki er algengt
með bíla í þessum verð- og
stærðarflokki. Þetta tryggir bæði
aukið veggrip og öryggi farþega.
1
$
ALLIR
SUZUKI BÍLAR
ERU MEO 2 ÖRYGGIS-
LOFTPÚÐUM.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sfmi 462 63 00. CT f / T TTVT ÍTTT A D T TT?
Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjöröur: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehf., ^ VJ Z-iVJ I\.l UIL/ ViV I I1
Grænagarði, sími456 3095. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni8,simi 421 12 00.Selfoss:BilasalaSuðurlands, Hrísmýri5,sími482 3700. Skeifunni 17. Sími 568 51 00.