Morgunblaðið - 25.02.1998, Page 1

Morgunblaðið - 25.02.1998, Page 1
72 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 46. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Annan fagnað sem hetju í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna Albright segir að ýmsum spurningum sé ósvarað Reuters KOFI Annan, franikvæindastjóri Sameinuðu þjdðanna, veifar til starfsmanna í höfuðstöðvum samtakanna í New York þegar hann kom þangað í gær eftir að hafa náð samkomulagi við ráðamenn í Bagdad um vopna- eftirlitið í írak. Annan var fagnað sem hetju við komuna í höfuðstöðvarnar. KOFI Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, var fagnað sem hetju þegar hann kom í höfuð- stöðvar samtakanna í New York í gær eftir að hafa náð samkomulagi við ráðamenn í Bagdad um að þeir heimiluðu ótakmarkaða leit að ger- eyðingarvopnum í Irak. Madeleine Albright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði að nokkur atriði samkomulagsins væru óljós og ýms- um spurningum um tilhögun vopna- leitarinnar væri enn ósvarað. „Við þurfum nú að tryggja að öllum hugsanlegum smugum verði lokað í nánu samstarfi við öi-yggisráðið,“ sagði hún. Hundruð starfsmanna í höfuð- stöðvunum hylltu Annan þegar hann kom þangað til að svara spurningum sendiherra aðildarríkja öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um samkomu- lagið. Annan þakkaði ieiðtogum Frakk- lands og Rússlands fyrir að stuðla að friðsamlegri lausn deiiunnar og lýsti Bill Clinton Bandaríkjaforseta og Tony Biair, forsætisráðherra Bretlands, sem „fullkomnum friðar- gæslumönnum“. „Við kenndum frið- argæsluliðum okkar að besta leiðin til að beita valdi er að sýna það til að þurfa ekki að beita því,“ sagði hann 1 stuttu ávarpi. „[Clinton og Blair] stuðluðu að lausn deilunnar með því að sýna staðfestu og sjá til þess að hægt yrði að beita hei’valdi ef þörf krefði." Vilja skýra viðvörun Bill Clinton segist vera tilbúinn að láta reyna á samkomulagið en hefur áskilið sér rétt til að beita hervaldi ef Irakar standa ekki við það. „Við erum enn staðráðnir í að sjá til þess að Saddam Hussein ógni ekki heim- inum með gereyðingarvopnum," sagði hann í gær. Tony Blair fagnaði samkomulag- inu en sagði að öryggisráð Samein- uðu þjóðanna þyrfti að samþykkja ályktun þar sem Saddam Hussein yrði varaður við því að ef hann stæði ekki við samkomulagið myndi það hafa „rnjög alvarlegar afleiðingar" fyrir íraka. Senda þyrfti Saddam skýr skilaboð um að ekkert aðildar- rikja ráðsins myndi líða frekari ögi’- anir eða tilraunir til að hindra leit Sameinuðu þjóðanna að gereyðing- arvopnum í Irak. Talsmaður franska utanríkisráðu- neytisins sagði að Frakkar væru hlynntir því að Irakar yrðu varaðir við því að brot á samkomulaginu myndi hafa „alvarlegar afleiðingar". Hann áréttaði hins vegar að Frakk- ar myndu ekki styðja ályktun sem veitti Bandaríkjamönnum og Bret- um sjálíto’afa rétt til að beita her- valdi ef írakar standa ekki við sam- komulagið. Samkvæmt samkomulaginu á að stofna „sérstakan hóp“, skipaðan vopnasérfræðingum Sameinuðu þjóðanna og stjórnarerindrekum, til að leita að vopnum á átta stöðum, sem írakar höfðu meinað vopnaeft- irhtsnefnd SÞ að rannsaka. Sandy Berger, öryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, sagði að sam- komulagið væri sigur íyrir Banda- ríkjastjórn hvernig sem færi. Ef Irakar stæðu við samkomulagið myndi það tryggja óhefta vopnaleit í samræmi við ályktanir öryggisráðs- ins. Hins vegar myndu brot á sam- komulaginu eyða öllum efasemdum um hvort Bandaríkjamenn mættu beita hervaldi. Staða Schröders kann að veikjast Bonn. Reuters. SVO KANN að fara að þýzki Jafnað- armannaflokkurinn, SPD, tapi meiri- hluta sínum á þingi Neðra-Saxlands í kosningum sem framundan eru ef marka má niðurstöður nýrrar skoð- anakönnunar. Slík niðurstaða yrði mikið pólitískt áfall fyrir Gerhard Schröder, forsætisráðherra Neðra- Saxlands, og kynni að gera vonir hans um að verða kanzlaraefni SPD í kosningum til Sambandsþingsins í haust að engu. Samkvæmt niðurstöðum könnun- arinnar, sem gerð var fyrir einka- reknu sjónvarpsstöðina n-tv, kann SPD í Neðra-Saxlandi að neyðast til að fá flokk umhverfissinna, græn- ingja, með sér í samsteypustjórn að loknum kosningunum, sem fara fram 1. marz. Slík niðurstaða myndi bæta stöðu Kristilegra demókrata, CDU, í héraðinu til muna og skaða verulega horfur Schröders á að verða tilnefnd- ur kanzlaraefni jafnaðarmanna. --------------- Tyrkneskri flugvél rænt Ankara. Reuters. TYRKNESKRI flugvél var rænt í gærkvöld þegar hún var á leiðinni frá borginni Adana í suðurhluta Tyrklands til Ankara. 63 farþegar voru í vélinni, auk fimm manna áhafnar. Síðustu fregn- ir hermdu að flugræninginn hefði gefist úpp þegar vélin lenti í borginni Diyai’bakir til að taka eldsneyti. Haft var eftir tyrkneskum emb- ættismönnum að flugræninginn væri Kýpurbúi. Hann hefði krafíst þess að fá aðra flugvél og henni yrði flogið tO Teheran. Talið var-að maðurinn væri með sprengju, sem hann hefði laumað í vélina innan í leikfangabangsa. Nýr for- seti hyllt- ur í Seoul SUÐUR-KÓREUMENN hófu í gær hátíðahöld í tilefni þess að Kim Dae- jung sver embættiseið forseta í dag. Hátíða- höldin hófust á miðnætti að staðartíma þegar stórri klukku var hringt í miðborg Seoul, en hún glumdi einnig þegar her- námi Japana lauk árið 1945. Á sama tíma voru „vonareldar“ tendraðir á fimm súlum eins og hefð er fyrir að gera þegar mikilvægar tilkynningar eru boðaðar í Seoul. Kim var í stofufangelsi eða fangelsi megnið af áttunda áratugnum vegna andófs gegn her- foringjasljórninni sem var þá við völd. Reuters Danskir Miðdemókratar hlynntir stjórnarskiptum Ætla að styðja hægri- stjórn með skilyrðum Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. MIMI Jakobsen, formaður danskra Miðdemókrata, tilkynnti á blaða- mannafundi í gær að flokkurinn væri hlynntur því að mynduð yrði hægri- stjórn eftir þingkosningarnar 11. mars. Fyrir stuðningi við slíka stjórn setur flokkurinn þó fjögur skilyrði, sem við fyrstu sýn gætu staðið í Venstre, flokki Uffe Ellemann-Jen- sens, og Ihaldsflokknum. Ekki er því víst að líkurnar á stjórnarskiptum eftir kosningarnar hafí aukist. „Við ætlum að styðja hægrimenn til að hafa forystu um stjórnarmynd- un eftir kosningar," sagði Mimi Jak- obsen við stóran hóp blaðamanna, sem biðu í ofvæni eftir að heyra boð- skap flokksins. Hún aftók hins vegar með öllu að velta vöngum yfir því hver ætti að mynda hægristjórnina ef til þess kæmi. „Það er öldungis ótímabært að ræða það,“ sagði hún. Þótt Miðdemókratar hafi aðeins fimm þingmenn af 179 í danska þing- inu og hafi átt undir högg að sækja er Mimi Jakobsen vinsæll og virtur stjórnmálamaður og nýlegar skoð- anakannanir benda til þess að fylgi flokksins hafi aukist. Reglur um innflyljendur verði ekki hertar Miðdemókratar setja þó fjögur skilyrði fyrir stuðningi við hægri- stjórn. Hið fyrsta er að ekki verði hreyft við sjúkradagpeningum og eftirlaunum, sem greidd eru ef laun- þegi hættir vinnu sextugur og þar til eiginlegum eftirlaunaaldri er náð. Annað skilyrðið er að reglur um flóttamenn og innflytjendur verði ekki hertar, þriðja að gerðar verði endurbætur á grunnskólunum og fjórða að launþegai’ fái skattafrá- drátt fyrir að vera í vinnu, þannig að það borgi sig betur að vinna en að lifa á bótum frá ríkinu. Talið er að það vefjist helst fyrir hægriflokkunum tveimur að sam- þykkja að herða ekki reglurnar um innflytjendur en þeir ættu að vera til viðtals um hin skilyrðin. ■ Trúverðugleiki/19

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.